Þjóðviljinn - 20.03.1955, Síða 1

Þjóðviljinn - 20.03.1955, Síða 1
Æskulýðsfylkiitgin ' Sambandsstj órnar- fundur í dag í Þing-»’ holtsstræti 27 kl. 2 Veröur reynt að afgreíða Disarfeliíð í banni? Dísarfellið kom til Keflavíkur í gær, en afgreiðsla á vör- um er fara áttu til Reykjavíkur var stöðvuö. Af 800 tonn- um af vörum í skipinu eru 711 tonn merkt til Reykjavíkur. Gullfoss lá fyrir utan Keflavík í gærkvöldi. Fulltrúar frá verkfallsstjórn- inni fóru til Keflavíkur snemma í gærmorgun en þá hafði allt verið undirbúið til að losa Dís- arfellið er þangað var komið. Af 880 tonnum sem eru i skipinu eru 711 tonn merkt til Reykjavíkur. Formaður Verka- lýðs- og sjómannafélags Kefla- vikur kvað því skyldi ekki skipað upp í Keflavík sem merkt væri til Reykjavíkur og var aðeins skipað upp 45 böll- um af síldarmjölspokum. Póst- ur var ekki afgreiddur þar. Að því búnu fór Dísarfellið Orðsending frá verkfallsstjórn Verkfallsstjórnin mælist til þess við verkamenn sem nú eru í verkfalli í Reykjavík að þeir gefi sig sem flestir fram til verkfallsvörzlu, en miðstöð hennar er í skrifstofu Fulltrúa- ráðs verkalýðsfélaganna, Hverfisgötu 21. Munið, að það getur aldrei skaðað þótt óþarf- Iega margir mæti, en hitt gæti valdið miklu tjóni, ef liðsafla brysti. og mun eiga að fara á Vest- firði og til Norðurlands og verður vart skilið hvað það á að þýða ef ekki á að reyna að skipa þar upp vörum sem eru í banni Alþýðusambandsins. Verður þvi þó ekki trúað að óreyndu að slíkt verði reynt. Sáttanefndin á fundi með samn- ingsaðilum Sáttanefndin í vinnudeilunni kvaddi samninganefndir deilu- aðila á fimd sinn kl. 2 í gær. Stóðu fundir þeirra, að frá- dregnu matarhléi, allt fram til þess tíma er blaðið fór í press- una. Ágætur afli í Keflavík Keflavik. Frá frétfearitara "Þjóðviljans. Undanfarna daga hefur verið ágætis afli hjá bátunum eða allt upp í 150 skippund í 4 róðrum. Samninganefnd verkalýðsfélaganna, talið frá vinstri: Björn Jónsson formaður Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar, Hermann Guð- mundsson formaður Hlífar, Ben edikt Davíðsson, formaður Tré- smiðafélags Reykjavíkur, Eðvarð Sigurðsson ritari Dagsbrúnar og for- maður samninganefndarinnar, Snorri Jónsson formaður Félags járn- iðnaðarmanna, Björn Bjarnason formaður Iðju, Eggert Þorsteinsson formaður Múrarafélags Reykjavíkur Undanþága á olíu til íbúða Dagsbrún tilkynnti í gær að Dagsbrún liefði veitt undanþágn á afgreiðslu á olíu til íbúðarhúsa. Verður heimilað að flytja 200 SEXTÍU DAGAR -EKKERT BOÐIÐ lítra á hverja íbúð. Fólk sem vantar olíu þarf að snúa sér til olíufélaganna, og sjá trúnaðar- menn Dagsbrúnar um afliending- una á hverjum stað. daffíir 6711 li3nir siðan ráöstef?ia verkalýðsfélacj- Uv Udgdl anna í Reykjavík og Hafnarfirði lýsti yfir peim ásetningi sínum að segja upp samningum fyrir 1. febrúar og hafnaði beiðni ríkisstjórnarinnar um að upp- sögnum yrði frestað. Olíufélögin svíkja saxnkomu- lag við verklýðsfélö gin MeB þvi valda oliuburgeisarnir stöSvun benz inafgreiSslu til lœkna, lögreglu o. s. frv. Olíufélögin í Reykjavík beittu í gær þeini einstæðu ó- svífni að neita að láta verkalýðsfélögin fá benzín til verk- fallsvörzlu sinnar. Með þessu hafa þau rofið samkomulag við verkalýðsfélögin sem gert var 1 fyrradag, og var því stöðvuð í gær öll afgreiðsla á benzíni til lækna, ljósmæðra, opinbena valdhafa o.s.frv. Þessi óþokka framkoma olíuburgeisanna stingur alger- lega í stúf við hina ábyrgu framkomu verklýðsfélaganna. Með þessu framferði eru þeir að stofna til óþæginda og vandræða, algerlega að tilefn- islausu. Virðast okurkarlar olíufélaganna áfram um að verkamenn líti á þá öðrum fremur sem fjandinenn verk- lýðsfélaganna, og mega þá vænta þess að verða nieð- höndlaðir þar eftir. Verkfallsstjórn samdi í fyrra- dág við olíufélögin um takmark- aða afgreiðslu á benzíni eins og alltaf hefur tiðkazt í vinnudeil- um. Skyldi undanþága veitt læknum, Ijósmæðrum, valdhöfum hins opinbera o. s. frv. og svo skyldu verklýðsfélögin að sjálf- sögðu fá benzin til verkfalls- vörzlu sinnar. Ætluðu oliufélögin að annast afgreiðsluna til skipt- is. En þegar framkvæmd átti að hefjast kl. 2 í gær hjá Esso, kom Haukur Hvannberg fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins á vettvang og lagði bann við því að verklýðsfélögin fengju nokk- urt benzín til verkfallsvörzlu sinnar. Verklýðsfélögin lýstu þá yfir því að þar með væri samkomu- lagið rofið af hálfu olíufélaganna og var afgreiðsla á benzíni alger- lega stöðvuð samstundis og held- ur það bann áfram þar til séð verður hvort olíufélögin ætla að halda fast við þessa afstöðu sína. Þessi einstæða ósvífni olíufé- laganna mun vera hugsuð sem hefnd vegna þess að verkalýðs- félögin stöðvuðu verkfiallsbrot þeirra bæði hér í Reykjavik og í Hvalfirði eins og rakið er á öðr- um stað í blaðinu. En olíufélög- in skulu sízt ímynda sér að að- staða þeirra vænkist við slíka framkomu eða atvinnurekendur almennt að þeirra hagur batni ef beita á slíkum aðferðum í verk- fallinu. Sósíalistaíélag Reykjavíkur: Fulltrúaráðs- og trunaðarmanna- fundur verður aiuiaðkvöld kl. 8.30 í Baðstofu iðnaðarmanua (Vonar- stræti). Dagskrá: VINNUDETLI KNAR. Öllum flokksmönmun heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. 49 dagar eru liðnir síðan verkalýðsfélögin sögðu formlega upp samningum sínum við at- vinnurekendur frá og með 1. marz. 07 eru liðnir síðan verkalýðsfélögin lýstu yf- Lál Udgal jr þyj pau myiidu fresta verkfallsað- gerðum til þess að reyna að tryggja pað að samningar gætu tekizt án stöðvunar. 20 dagar eru liðnír síðan verkföllin hefðu átt að hefjast, ef verkalýðsfélögin hefðu hegðað sér á sama hátt og atvinnurekendur og ekki lagt sitt fram til pess að leysa málið án þess að til framleiðslustöðvunar kæmi og stórfellt tjón hlytist af. lft rlíiíyíir eru ^nir síðan verkalýðsfélögin boðuðu IV Udgdl vinnustöðvun sína eftir að fullreynt var að atvinnurekendur buðu ekki neitt — nákvæmlega ekki neitt — í viðrœðum peim sem fram höfðu farið. 2 dagar eru liðnir í algeru verkfalli sem tekur bein- línis til 7000 verkamanna og verkakvenna í Reykjavík og Hafnarfirði en snertir óbeinlinis og í vax- andi mæli állar athafnir í bœjunum báðum. Allur þessi tími hefur liðið án þess áð atvinnurekendur hafi nokkuð gert, smátt eða stórt, til þess að greiða fyrir samningum. I»eir höfðu ekki enn boðið eyris kauphækkun þegar seinast fréttist. I>eir virðast hafa stefnt að stöðvun \itandi \its og af ráðnum liug. Þjóðin hefur þegar kveðið upp þungan dóm yfir þessari ofstækisfullu og ábyrgðarlausu klíku og sá dómur þyng- ist með hverjum degi sem líður án þess &ð samið sé um rétt- lætiskröfur verkalýðssamtakanna. Það veit liver einasti maður að verkalýðssamtökin vinna sigur í þessum átökum; atvinnurek- endur vita manna bezt að þeir komast með engu móti undan því að semja við þau; það eitt skortir að dregin sé óhjákvæmijeg ályktun af þessum staðreyndum og samið. Vilji atviimurekendur ekki horfast í augu \ið þánn veruleika ber þeim að afsala sér öllum afskiptum af atvinnntækjum þjóðarimiar.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.