Þjóðviljinn - 20.03.1955, Síða 12

Þjóðviljinn - 20.03.1955, Síða 12
Frá fundi „lýðræðisflokkanna" í Kópavogi Reyndu að vzsa frá tlllögu um að bera málið undir íbúana Stjórnmálafélög Alþýðuflokksins, Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins boðuðu til fundar í Kópavogi á íöstudagskvöld um kaupstaðarmálið, og pöntuðu þangað ráðherra og þingmenn sér til aðstoðar. Stórmennin létu ekki sjá sig, en sendu sumir fulltrúa í sinn stað. Meirihluta breppsnefndar var einnig boðið, en þeir neituðu að mæta þar sem þeim var aðeins boðið uppá 1/10 hluta af ræðu- tíma og hrepsnefnd auk þess búin að boða til borgarafundar um sama mál. Afturhaldsflokkarnir voru því einir um fundinn, og not- uðu hann til að flytja persónulegt níð um oddvita hrepps- irs, sem ekki var á fundinum, einkum var Hannes Jónsson ósvífinn að vanda. í fundarlok reyndu þeir að v.ísa frá tillögu frá einum fundarmanna um að leggja mál þetta undir dóm kjósenda, slíkt þola ekki „lýðræðissinnar“ i Kópavogi. Morgunblaðið og Alþýðublaðið voru í gær að reyna að bera 'sig mannalega yfir fundi sem aftur- baldsflokkarnir boðuðu til í Kópavogi á föstudagskvöld, en sannleikurinn var sá að þó meiri- hluti breppsnefndar hafði tilkynnt að hann mundi ekki mæta, mátti ekki á milli sjá hvorir voru í meirihluta á fundinum. Aðalinn- tak í ræðum flestra framsögu- mannanna var að vanda persónu- legt og rætið níð um oddvita hreppsins Finnboga Rút Valdi- marsson, sökuðu þeir hann um 'óheiðarlega meðferð á fjármálum hreppsins og jafnvel fjárdrátt. Séra Gunnar Árnason, sem lét hafa sig til að stjórna fundi, Hafliði Jónsson ráðinn garðyrkjuráðu- nautur Reykjavíkurbæjar Bæjarráð Reykjavíkur sam- þykkti einróma á fundi sínum 18. þ. m. að ráða Hafliða Jóns- son, garðyrkjufræðing, í starf garðyrkjuráðunauts Reykjavik- urbæjar. Umsækjendur um starfið voru upphaflega sjö, en einn þeirra, Jón H. Bjömsson, eigandi Alaska stöðvarinnar, tók aftur umsókn sína. Myndlisiarmenn fá lóð undir sýn- ingarskála Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 18. þ. m. að gefa Félagi íslenzkra myndlistarmanna og Nýja myndlistarfélaginu kost á lóð undir nýjan sýningarskála á svæðinu austan Gamla Garðs. Gamli sýningarskálinn við Kirkjustræti á að fara burt af lóðinni innan tíðar og mun auk þess orðinn mjög lélegur. Gunnari Thorodd sen boðið vestur til fyrir- lestrahalds Þjóðræknisfélag Vestur-íslend- inga og Manitobaháskóli hafa boðið Gunnari Thoroddsen borg- arstjóra vestur um haf til fyr- irlestrahalds í íslendingaþyggð- um og við háskólann. Fer Gunn- ar flugleiðis vestur í dag og mun verða hálfan annan mánuð í ferðinni. sat hinn rólegasti undir þessum málflutningi og virtist una sér hið bezta. Einn fundarmanna, Sveinn Sæ- mundsson tók til máls, og flutti eftirfarandi tillögu: „1. Fundur haldinn í bamaskól- anum í Kópavogi 18. marz 1955 telur sjálfsagt, að vilji meirihluta kjósenda við al- menna atkvæðagreiðslu verði látinn ráða um það, hvort lireppnum verði breytt í kaupstað eða ekki. 2. Við þá atkvæðagreiðslu verði kjósendur eiimig spurðir um það, hvort þeir óski lieldur, að ieitað verði sanminga um sameiningu hreppsins við Ueykjavíkurbæ.“ Tillaga þessi kom mjög illa við ,,lýðræðishetjurnar“, and- mæltu þeir þenni hver af öðrum, og settu saman frávísunartil- lögu í skyndi. Fundarstjóri gaf fundarboðendum hálftima til að mæla með sinni tillögu en harð- neitaði öðrum fundarmönnum um orðið. Fundarstjóri reyndi síðan að bera upp frávísunartillöguna til þess að þessi fundur gæti mót- mælt því að hinir 1400 kjósendur hreppsins fengju að segja sitt álit á málinu. Skipaði hann 4 teljara en þeir gáfust fljótlega upp við að telja. Fann klerkur þá uppá því snjallræði að biðja þá sem væru með tillögunni að ganga út úr fundarsalnum, gerðu það nokkrir menn en þá gleymd- ist að telja svo þeir urðu að koma inn aftur. Varð af þessu nokkur troðningur og þrengsli í dyrum, og almenn upplausn á fundinum sem endaði með því að nokkrir fundarmenn kváðust neita að taka þátt í þessum skrípaleik og gengu af fundi, og fóru brátt aðrir að þeirra fordæmi. Mótatkvæða var aldrei leitað svo allar tölur um at- kvæði með og móti tillögunni eru hreinn uppspuni. Seint í gærkvöldi frétti blaðið að agentar framsóknar og íhaldsins læddust á núlli húsa í Kópavogi og reyndu að safna undirskriftum undir áskorun á Alþingi að sam- þykkja lög um kaupstaðarrétt- indi, beita þeir ósvífnum blekkingnm eftir því sem við á á hverjum stað. Þora þeir ekki að biða eftir allsherjaratkvæðagreiðslunni? þlÓÐVILIINM Sunnudagur 20. marz 1955 — 20. árgangur — 66. tölublað Heimsmót æskunnar í Varsjá: Farið með Drottningunni til Hafnar og aftur til baka Ferðazt verður með járnbrautarlest um Danmörku, A-Þýzkaland og Pólland Tilhögun ferðalagsins á Varsjármótið er nú ákveðin í öttum atriðum; verður farið héðan með Drottningunni 22. júlí og komið aftur heim 21. ágúst með sama skipi. Til Kaupmannahafnar verður komið 27. júlí. Þar verður dvalizt rúman sólarhring, en þá tekin lest til Gedser í Danmörku; það- an verður siglt með ferju til Warnerminde, síðan ekið bein- ustu leið til Varsjár um Austur- þýzkaland og Pólland og komið Verkakonur á Húsavík fengu / framgengt öllum kröfum Verkakvennafélagið á Húsavík hefur nýlokið samningum við atvinnurekendur. Fékk félagið framgengt, án verkfaUs, öllum kröfum sem það gerði í uppkafi; er nú tíniakaup þeirra í al- inennri tlagvinnu kr. 7,20, og er það hvergí á landinu hærra. Kvenfélagið boðaði ekki verk- fall, en samningar þess voru runnir úr 12. marz. Daginn áður var setzt að samningaborði, og tókust samningar að kvöldi þess 17. Fékk félagið framgengt öllum kröfum sínum, en höfuðkrafan var að tímakaup í almennri dag- vinnu hækkaði í kr. 7,20 í grunn úr kr. 7.11. Mun Eining á Akur- eyri vera eina félagið er hefur svo háan taxta. Onnur meginkjarabótin er sú að fyrir eftirtalda vinnu fá konur nú sama kaup og karlar: flökun, uppþvott á skreið, pökkun skreið- ar á bíl, upphengingu á skreið í hjalla, hreistrun, blóðhreinsun á fiski til herzlu, uppspyrðingu, uppþvott á fiski, umstöflun fiskj- ar og að lokum fyrir saltfisk- þvott. Þessir samningar gilda frá 12. marz og eru uppsegjanlegir hve- nær sem er með mánaðar fyrir- vara. Flogi með slasaðan mann til upp- skurðar í Kaupmaimahöfn í gær slasaöist maður mjög. illa við hernámsbyggingar austur við Horn. Björn Pálsson sótti hann í sjúkraflugvél- inni og var hann fluttur í Landspítalann, en í gærkvöldi fór flugvél frá Flugfélagi íslands meö hann til heilaupp- skuröar í Kaupmannahöfn. Hinn slasaði maður, Einar Lúðvíksson, er rafvirki héðan úr bænum. Var hann í banda- rísku herstöðinni á Stokksnesi að vinna með byssu er skýtur festingum — nöglum — fyrir rafleiðslur inn í steinveggi. Eitt skotið hljóp til baka og lenti í höfði mannsins. Björn Pálsson sótti manninn austur í sjúkraflugvélinni, en eftir að hann hafði verið at- hugaður var ákveðið. að senda hann til Kaupmannahafnar til sérfræðings í heilauppskurðum. Var þegar veitt undanþága fyrir flugvélina og kl. 6 lagði hún af stað. Flugskilyrði eru óvenjugóð til Kaupmannahafn- ar, og var búizt við að flug- vélin yrði ekki nema 7 klst., eða svipaðan tima og stóru flugvélarnar. Með manninum fór hjúkrunarkona af Land- spítalanum. Flugmenn eru Gunnar Frederikssen og Björn Guðmundsson. Formaður verkakvennafélags- ins á Húsavík er Þorgerður Þórð- ardóttir. «» þangað 30 júlí, daginn áður en mótið hefst. Þegar að motinu loknu, 14. ágúst, verður haldið heimleiðis; mun þurfa að haía heldur hrað- an á, því haldið verður frá ICaup- mannahöfn með Drottningunni 16. ágúst og komið heim 21. ágúst eins og fyrr segir. Á Drottning'unni *ru aðeins til reiðu 125 pláss. Að svo stöddu eru því miður ekki horfur á að unnt verði að útvega meiri farkost, þannig að fjöldi þátttak- enda héðan að heiman kann að verða bundinn við þessa tölu. Þegar hafa um 50 skráð sig til þátttöku, og ættu þeir, sem ætla sér að fara, ekki að draga lengi úr þessu að láta skrá sig: hjá Eiði Bergmann Þjóðviljanum eða á skrifstofu Alþjóðasamvinnu- nefndar íslenzkrar æsku Þing- holtsstræti 27. Eisenhower að grafa undan valdi Dulles Skipar Harold Stassen sérstakan ráðgjafa sinn í aivopnunarmáium Eisenhower Bandaríkjaforseti skipaði í gær Harold Stassen sérlegan ráögjafa sinn í afvopnunarmálum og veitti honum ráöherratign. Stassen hefur verið forstöðu- maður þeirrar stofnunar sem annast efnahagsaðstoð Banda- ríkjanna við útlönd og mun gegna því starfi áfram, þar til gengið hefur verið frá starfsskrá stofnunarinnar fyrir næsta ár og hún lögð fyrir þingið. V Á að rannsaka og meta Stassen verður falið að vega og meta þýðingu hinna nýju vopna, sem Bandarikin og önnur ríki ráða nú yfir og gera grein fyrir lík- legri þróun vopnafram- leiðslu í fram- tíðinni og Kynna sér skoðanir her- stjómenda og embættismanna i þjónustu Bandaríkjastjórnar og annarra ríkisstjórna. Á grundvelli þessar- ar athugunar á hann svo að semja skýrslu, sem eftir að hún hefur verið samþykkt af Öryggis- málaráði Bandaríkjanna og stjórninni verður grundvöllur að stefnu Bandaríkjanna í afvopn- unarmálunum. Stassen fær ráðherratign og mun sitja fundi Örvggismálaráðs- ins og rikisstjórnarinnar. Harold Stassen Óttast eyðileggingarmáttinn í tilkynningu um skipun Stass- ens í þetta nýja embætti segir Eisenhower forseti, að hinn gíf- Framhald á 5. síðu Planótónleik- ar Jórunnar ViÓar Annaó kvöld og á þriðjudags- kvöld lieldur frú Jórunn Viðar pianótónleika í Austurbæjarbíói. Tónleikarnir eru haldnir fyrir styrktarfélaga Tónlistarfélagsins og hefjast kl. 7 bæði kvöldin. Leikm verða verk eftir Skrjabín, Chopin og Robert Schumann. Frú Jórunn Viðar er í hópi beztu tónlistarmanna okkar, og er ekki að efa að þessir tónleikar hem.ar verða fjölsóttir. MlR í Keflavik • MIR í Keflavilt miivnlst 5 ára afmælis Menningartengsla islands og Ráðstjórnanákjanna i dag kl. 4 í Ungnieunafélags- húsinu í Keflavik. • Oddbergur Eiríksson flj'tur ávarp og Siguröur Brynjólfsson segir frá friðarþinginu í Stokk- hólnii á s.i. liausti, en hann var einu íslenaku fulltrúaiuia á þri þingi.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.