Þjóðviljinn - 23.03.1955, Síða 1
VILJIN
Miðvikudagur 23. ruarz 1955 — 20. árgangur — 68. tölublað
Atvinnurekendur hafa ekki enn
boðið neina tilgreinda kauphækkun
Morgunblaðið fer með vísvitandi blekkingar til þess að reyna að
dylja hina hneykslanlegu framkomu atvinnurekendaklíkunnar
Engir sðirni'
Ir
★ Sáttanefndin í vinnudeil-
unni mun hafa haldið fund
í gær, en ekki voru fulltrú-
ar verkamanna og atvinnu-
rekenda kvaddir á neinn
fund. Lá ekkert fyrir um
það í gœrkvöldi hvenœr
næsti fundur yrði haldinn.
Þátttakendur í verkfallinu
eru beðnir að hafa sam-
band við verkfallsskrif-
stofuna í Alþýðuhúsinu.
Eftir að atvinnurekejidur hafa í rúma tvo mánuði
þrjózkazt við aö bera fram nokkur tilboð um grunnkaups-
hækkanir — og ítrekuðu þá afstöðu sína á síðasta samn-
inganefndarfundi — bæta þeir nú gráu ofan á svart með
því að láta málgagn sitt Morgunblaðið flytja staðlaus ó-
sannindi um afstöðu atvinnurekenda og boð þeirra. Morg-
unblaðið birtir í gær lista sem á að sýna aö atvinnurek-
endur hafi boöið allt að 6% hækkun á grunnkaupi Dags-
brúnarmanna. Vissulega væri slíkt tilboð ekkert til að
státa af, en þar að auki er frásögn blaðsins einbert blað-
ur sem enga stoð á 1 veruleikanum.
í>að tilboð atvinnurekenda
sem sagt var frá hér í blaðinu í
gær hljóðaði orðrétt á þessa leið
að því er Dagsbrún snertir:
„Vinnuveitendur mæla með
7% kjarabótum í formi orlofs,
vísitölubreytinga, sérkrafna og
kaupgjalds í þessari röð. Grunn-
kaupshækkun fái þó þeir ekki,
sam fengið hafa grunnkaup sitt
hækkað á sl. 12 mánðum.“
Sambærilegt tilboð fengu iðn-
aðarmenn og Iðja, en þeir Iðju-
félagar sem fengu hækkun í
desember skyldu fá samtals 5%
kjarabætur.
« Langt í land að
röðín sé komin að
kauphækkun
■ Þessu tilboði fylgdu engar
skýringar á því hvernig það
skyldi umreiknað. Hins vegar
hafa vísbendingar verið um það
í Morgunblaðinu undanfarna
daga. Það hefur haldið því fram
— og gerir það seinast í gær —
að kröfur Dagsbrúnar samsvari
56% kjarabótum. Þar sem
grunnkaupskröfur félagsins eru
aðeins 30% hljóta atvinnurek-
endur að reikna orlof, vísitölu-
breytingar og sérkröfur sem
26% kjarabætur. Tilboð at-
vinnurekenda um 7% kjarabæt-
ur eru aðeins rétt rúmur fjórð-
ungur af því — þannig að það
á langt í land að atvinnurek-
endur hafi léð máls á nokkrum
grunnkaupshækkunum, þar sem
röðin átti að koma síðast að
þeim. Sem dæmi um aðferðir
atvinnurekenda við útreikninga
sína má nefna að þeir hafa allt-
af reiknað styttingu eftirvinn’u-
tímabilsins sem kauhækkun (!),
og er ekki kunnugt að þeir hafi
fallið frá því.
• Rausn atvinnu-
rekenda
Það er einnig athyglisvert að
atvinnurekendúr taka sérstak-
lega fram að þeir sem hafa feng-
ið kauphækkun nýlega i Dags-
brún og Iðju skuli vera afskiptir
! einnig hvað þetta auma tilboð
j snertir. Er þar m. a. átt við
Dagsbrúnarmenn á lægsta mán-
i aðarkaupi, en þeir hafa kr.
: 2946 30 í kaup — og á það má
| engin grunnkaupshækkun koma!
Einnig á að klína af tilboðinu ti)
kvenna þeirra í Iðju sem hafa
2109 kr. á mánuði! Rausnin er
þannig ekki smálítil.
« EiVa mlkið ólært
Framkoma atvinnurekenda í
vinnudeilunum er með þvílíkum
endemum að fáir hefðu trúað
slíku fyrirfram. Þeir létu líða
allan frestinn sem verkalýðsfél.
veittu án þess að bjóða eyris
^ kauphækkun. Eftir tveggja daga
| verkfall komu þeir loks með
j tilboð sem er svo aumt og lág-
i kúrulegt, að málgagn þeirra,
Morgunblaðið, verður að fara
með vísvitandi blekkingar til
þess að reyna að snyrta það
ofurlítið til. Frá atvinnurekend-
um sjáifum liggur ekki enn
fyrir neitt formlegt tilboð um
nokkra tilgreinda grunnkaups-
hækkun; þar situr allt við hið
sama og í upphafi. Þessir herrar
eiga þannig eftir að læra æði
mikið ennþá — en þeim verður
kennt.
Verkalýðsfélög móti
brottrekstri Bevans
Kreíjasf að hann verði tekinn aífur
í þingflokk Verkamannaflokksins
Fyrir fundi miöstjórnar brezka Verkamannaflokksins
sem kemur saman í dag liggur tilkynning frá stjórn þing-
flokksins um brottvikningn Aneurins Bevans úr þing-
flokknum.
Búizt hafði verið við að fjand-
menn Bevans í hægra armi
flokksins myndu leggja til á
fundinum að Bevan yrði með
öllu vikið úr flokknum. Hægri
Framhald á 5. síðu
Fró flutningi olíumólsins í Hœstarétti
Oliofélgii runni á afgrelslufsanm
til
Afgreiðsla til allra undauþágubíla
h’efst kl. 1 í dag hjá Shell
Olíufélögin hafa nú gefizt upp á þeirri fjandsemi sinni við
verkfallsmenn að neita þeim um benzín.
um að afgreiðsla skyldi fara
fram eins og í upphafi hafði
verið um talað, áður en olíu-
félögin rufu það samkomulag.
Olíufélögin afgreiða því eftir-
leiðis benzín til allra undan-
þágubíla, 2 daga í röð hvert
hinna þriggja oMufélaga, — þó
þannig að afgreiðsla á benzíni
frá BP fer aðeins fram frá
benzínstöð Hreyfils. Afgreiðsla
á undanþágubenzíni er frá kl.
1-4 og verður í dag hjá Shell.
/ yfirstandandi verkfalli hafa olíufélögin sýnt verkalýðnum meiri fjandskap og lítils-
virðingu en flestir aðrir atvinnurekendur, reynt hvað eftir annað að efna til verkfalls-
brota og rofið gerða samninga við verkfallsstjórnina. Það fer því vel á því að einmitt
þessa dagana skuli standa yfir málflutningur í Hæstarétti í olíumálinu svonefnda,
sakamáli sem höfðað var gegn stjórnendum tveggja olíufélaganna, — einu mesta
svindlmáli, sem íslenzkir dómstólar hafa fengið til meðferðar. — Myndin var tekin í
Hæstarétti í gœr, á öðrum degi málflutningsins. Sœkjandinn, Gústav A. Sveinsson,
flytur sóknarrœðu sína og snýr baki að myndasmiðnum. Lengst tiL vinstri er Hákon
Guðmundsson hæstaréttarritari, en síðan dómararnir: Jón Ásbjörnsson, Gizur Berg-
steinsson, Þórður Eyjólfsson, Kristján Kristjánsson (varadómari í stað Jónatans Hall-
varðssonar) og Árni Tryggvason. Á myndinni lengst til hœgri eru verjendurnir: Einar
Arnórsson verjandi Sigurðar Jónasonar, Jóhanns Gunnars Stefánssonar og stjórnenda
Olíufélagsins og Hins íslenzka steinolíuhlutafélags, og Ragnar Jónsson, verjandi Hauks
Hvannbergs.
1 gærmorgun leituðu þau eft-
ir við verkfallsmenn að sam-
komulag gæti tekizt um benzín-
afgreiðslu. Varð samkomulag
Neðri deild samþykkti í gær
einróma tillögu sósícdista
um
Kannsen á okri
Sjá 12. síðu.
Allt bókhald Ragnars Blöndal
h,f. tekið til rannsóknar
Allt bókhald fyrirtækisins Ragnars Blöndals h.f. verður
tekiö til rannsóknar, vegna framburðar vitnisins Jóns
Guðmundssonar endurskoðanda við rannsókn sakadóm-
ara vegna kæru Hermanns Jónassonai’.
Dómsmálaráðherra skýrði frá
þessu á þingfundi í gær og að
þetta atriði gæfi sakadómara á-
stæðu til að færa mjög út vett-
vang rannsóknar sinnar.
Endurskoðunarskrifstofa Jóns
Guðmundssonar hafði haft bók-
hald fyrirtækisins 1953 og síð-
an. Skýrði Jón svo frá í rétt-
inum að hann hafi ekki vitað
annað en að bókhald fyrirtæk-
isins væri í samræmi við hag
þess, fyrr en nú eftir áramót
að hann hafi fengið vitneskju
um að forstjóri fyrirtækisins
hafi haldið eftir skuldaskilríkj-
um og leynt bókhaldið þeim.
Var þá ltveðinn upp sá dóm-
ur að rannsóknardómarinn taki
allt bókhald og bókhaldsgögn
Ragnars Blöndals hf. í sína
vörzlu til rannsóltnar.