Þjóðviljinn - 23.03.1955, Side 10

Þjóðviljinn - 23.03.1955, Side 10
10) __ÞJÓÐVILJINN — Miðivkudagur 23. marz 1955 Félagslíf Framarar í ráði er að halda skákmót innan félagsins. Þeir, sem vilja taka þátt í mótinu, þurfa að tilkynna þátttöku á fimmtudagskvöld í Fram- heimilinu kl. 8.30—10.30. Sími 5792. Kaup - Sala Samúðarkort Slysavarnafélags íslands kaupa flestir. Fást hjá slysa- varnadeildum um allt land. í Reykjavík afgreidd í síma -4897. Mun’.ð kalda borðið að Röðli. — Röðull. Nýbakaðar kökur með nýlöguðu kaffi. — Röðulsbar. Fyrst til okkar Húsgagnaverzlunin Þórsgötu 1 Munið Kaffisöluna Haínarstræti 16. Myndir og málverk sem legið hafa 6 mánuði eða lengur, verða seldar næstu daga, ódýrt. Ranunagerðin, Hafnarstræti 17 _________________________ 0 tvarpsviðgerðir Radíó, Veltusundi 1. Sími 80300. Ragnar Ölafsson hæstaréttarlögmaður og lög- giltur endurskoðandi. Lög- fræðistörf, endurskoðun og fasteignasala, Vonarstræti 12, sími 5999 og 80065. Sendibílastöðin h.f. Ingólfsstræti 11. — Sími 5113. Opið frá kl. 7.30-22.00. Helgi- daga frá kl. 9.00-20.00. Saumavélaviðgerðir Skriístoíuvélaviðgerðir S y 1 g i a. Laufásveg 19, síml 2658. Heimasími: 82035. 1395 Nýja sendibílastöðin Sími 1395 Lj ósmy ndastof a Laugaveg 12. Viðgerðir á rafmagnsmótorum og heimilistækjum. Raftækjavinnustofan Skinfaxi Klapparstíg 30. — Sími 6484. Sendibílastöðin Þröstur h.f. Sími 81148 Iþróttir Framhald af 9. síðu. mjög spennandi og tvísýn. 35 fyrirtæki tóku þátt í keppninni og urðu úrslit þessi: Klæðaverzlun Braga Brynjólfs- sonar, Eysteinn Þórðarson ÍR. Skóverzl. Stefáns Gunnarsosnar, Stefán Kristjánsson Á. ísafold- arprentsmiðja, Ásgeir Eyjólfs- son. Að lokinni keppni var kepp- endum, starfsmönnum og for- svarsmönnum þeirra fyrirtækja sem þátt tóku í keppninni boðið til sameiginlegrar kaffidrykkju í Skíðaskálanum. Þar flutti ræðu formaður Skíðaráðs Reykjavík- ur Jóh. Óskar Guðmundsson og afhenti sigurvegurunum 1., 2. og 3. verðlaun, sem voru 3 fagrir silfurbikarar (farand-bikarar) og auk þess voru þeim Eysteini, Stefáni og Ásgeiri afhentir til eignar litlir silfurbikarar. Að lokum hélt Stefán Björnsson skrifstofustjóri Sjóvátryggingar- félags íslands ræðu. utnöieeús si&uRmaKraReoit Minningar- kortin eru til sölu í skrifstofu Sós- íalistaflokksins, Þórsgötu 1; afgr. I->jóðviljans; Bókabúð Kron; Bókabúð Máls og menningar, Skólavörðustig 21 og í Bókaverzlun Þor- valdar Bjarnasonar í Hafn- arfirði ___________--------j Bændur í Skagafirði Framhald af 4. síðu. því ekki rétt að stofnað hafi verið bændafélag í Skagafirði og kosin stjóm þess, heldur er hér um að ræða frjálsan fé- lagsskap og þeir menn, sem getið er um, að kösnir hafi verið í stjórn félagsins, vom hinsvegar kosnir, á þessum fyrsta fundi, til þess að sjá um næsta fund. Barnslif Framhaid af 6. síðu. menn að hafa hugfast: að hin gífurlega umferð í Reykjavík hefur farið og mun fara ört vaxandi, — þess vegna verður að gera sér ljóst að gatan get- ur ekki, þrátt fyrir allar góð- ar varúðarráðstafanir, orðið annað en hættusvæði fyrir börnin — hættusvæði sem sí- fellt leiðir slys og dauða yfir vaxandi fjölda ungra barna. LeikveUir með góðum skil- yrðum og gæzlu eru eina ör- ugga vömin gegn þessari liættu. Foreldrar hljóta að geta sameinazt í óskinni um öryggi bamanna og geta fengið því framgengt að fá leikvellina þannig úr garði gerða að börn- in séu örugg. Fundarmenn, hver nýr leik- völlur og hver ný gæzla er björgun barnslífa! Skarphéðinn Aðalbjarnarson andaðist að Sólvangi, Hafnarfirði, 15. þ.m. Jarðarförin hefur farið fram. Þökkum starfsfólki Sólvangs frábæra hjúkrun í veikindum hans. Vandamenn Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför fósturmóður okkar, Sigríðar Þórðardóttur frá Hausthúsum. Þóra Vigfúsdóttir Sigurður Ingimundarson Sigfús Jónasson Jarðarför konu minnar, Kristjönu Benediktsdóttur Blöndal fer fram frá Dómkirkjunni á morgun, fimmtudaginn 24. marz kl. 2. Lárus H. Blöndal huui\& uut Iðnskólofrumvarpið Framhald af 7. síðu. um sé sú, að hafa ekki fleiri en tvo iðnskóla á landinu, en þeim mun fullkomnari. Við viljum benda á það, að með því að starfrækja aðeins tvo iðnskóla á landinu er meiri trygging fyrir því að skólarn- ir geti fylgzt með öllum þeim framförum sem í iðnaðinum verða og hagað kennslu í sam- ræmi við það. Að sjálfsögðu verða skólar þessir dagskólar og gildir það einnig um fyrir- hugað framhaldsnám sbr. kafla IV. Reynsla undanfar- inna ára hefur sýnt að nám í kvöldskólum eftir vinnudag er gersamlega úrelt fyrir- komulag. Að endingu: Við teljum nauðsynlegt að Iðnnemasam- bandi íslands verði tryggð hlutdeild í skólanefnd skól- anna. Virðingarfyllst f.h. Iðnnemasambands íslands Ingvaldur Rögnvaldsson, formaður. Gunnar Guttormsson, ritarL Eins og fram kemur í áliti þessu, er það skoðun Iðn- nemasambandsins, að ekki komi annað til greina en stofnsetja tvo fullkomna iðn- skóla hér á landi. Höfuðrökin fyrir því eru, að með því móti sé komið í! vég fyrir mis- ræmi það er' skapast hlýtur í menntun iðnaðarmanna, séu hér reknir smáskólar, með mismunandi kennsluskilyrði, víðsvegar um landið. Það er einnig augljost, að þegar iðn- neminn kemur inn í iðnskóla með miðskólapróf, hlýtur hlutverk skólanna að vera, nær eingöngu, að tryggja nemendunum sérmenntun í hinum ýmsu iðngreinum. Slík sérmenntun hlýtur jafnhliða að vera bæði fræðilegt og verklegt nám. Með þessu ætti það að vera tryggt, að nem- andinn verði aðnjótandi þeirr- ar tæknifræðslu, sem hann á heimtingu á að fá og sem nauðsynleg er til þess að hann geti, að afloknu námi, talizt fullfær iðnaðarmaður. Sé verklega kennslan ein- göngu í höndum meistara og iðnfyrirtækja, hefur reynslan sýnt, að á því vill alltaf verða misbrestur að nemand- inn fái nægilega tilsögn í öllu því sem hann á að læra. Á þessum stöðum fer ekki fram nein skipulögð kennsla, heldur vinnur nemandinn eins og hver annar sveinn við hin ýmsu verkefni, sem fyrir liggja í það og það skiptið. Af því sem hér hefur ver- ið tekið fram, er það augljóst, að geisilegur kostnaður er því samfara, að reka marga smá- skóla, með sérmenntaða kenn- ara í hverri grein, á mörgum stöðum í landinu. Einnig með tilliti til þess, að hlutverk iðnskólans, að veita nemand- anum alhliða menntun, er að mestu leyti úr sögunni við til- komu miðskólaprófsins sem inntökuskilyrðis. Sem dæmi má geta þess, að í Danmörku hafði verið komið upp þéttríðnu neti iðn- skóla er veita skvldu nemend- um sérkennslu í hinum ýmsu iðngreinum. Þar sem nemend- ur voru fáir í hverri iðngrein og skólamir minni, varð reynslan sú, að kennslan í þessum skólum reyndist lítil og aðallega endurtekning þeirrar fræðilegu kennslu, sem nemandinn hafði áður hlotið. Tóku meistarar því það ráð að senda nemendur sína á stærri skólana, sem gátu veitt fullkomna fræðslu í öllum iðngreinum. Orsökin til að smærri skólarnir stóð- ust ekki samanburð við hina stærri, var skortur sérmennt- aðra kennslukrafta, og kostn- aðurinn við að reka fullkomn- ar tæknistofnanir, þar sem nemendur voru fáir, reynd- ist of mikill. Þetta dæmi ætti að nægja til þess að sýna fram á það, að stofnun og rekstur lítilla iðnskóla hér kemur ekki til greina. Slíkt væri aðeins við- hald á því ófremdarástandi er nú ríkir í þessum málum. (Framhald). Rannsókn á okri Framhald af; 12. síðu. háðslega meðan á því stóð. Svo gerðist það, að forseti tók til- löguna um rannsókn á okri af dagskrá, enda þótt ríflegur fundartími værj enn til stefnu!“ Er hann hafði lesið þetta, játaði hann það sem ekki er sagt í Þjóðviljanum, að hann Björn Ólafsson, hefði beðlð for- seta að taka málið af dagskrá^ en það hafi verið vegna þess að hann þurfti að bregða sér frá Ekkert er i klausunni sem hægt er að mótmæla nema ef bomar eru brigður á að rétt sé skýrt frá svipbrigðum hinna þriggja þingmanna, allt annað er óvé- fengjanlegt. ★ Einar Olgeirsson tók til máls og þakkaði allsherjamefnd góða og skjóta afgreiðslu málsins, og mætti hún verða til fyrirmyndar nefndum þeim sem fastast svæfu á þingmálum, svo sem fjárhagsnefnd neðri deildar. ★ Næst hélt Bjami Ben. langa ræðu, og kvartaði sáran undan 'i'á4* -'i; (u> t/iv’ vanmati Þjóðviljans á vilja nú- verandi dómsmálaráðherra til baráttu gegn okri og hvers kon- ar spillingu. Kvað- hann fyrir- mæli sín til sakadómara nógu víðtæk til að ná yfir almenna rannsókn í Blöndalsmálinu, og skýrði frá að eftir vitnaleiðslu Jóns Guðmundssonar endurskoð- anda í gærmorgun hefði verið felldur sá dómur að allt bókhald Ragnars Blöndals h.f. yrði tekið til rannsóknar. Þar með væri fenginn möguleiki til að kalla allt það mál niður í kjölinn. ★ Nokkur orðaskipti urðu um fréttir af umræðum á Alþingi og fór Bjarni Ben. hörðum orð- um um óáreiðanleik þeirra. Gunnar Jóhannsson og Gylfi Þ. Gíslason bentu á að blað ráð- herrans væri þar sízt til fyrir- myndar. Hét Bjarni þá á for- menn allra þingflokkanna til samstarfs um betri starfs- hætti á þessu sviði. (Er þess að vænta að sú endurbót nái einnig til þeirra ráðherra sem liggja á því lúalagi að rang- færa ummæli samþingsmanna i sinna). í. i.ui "i;'»q .AlttV IOT öin

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.