Þjóðviljinn - 23.03.1955, Side 12

Þjóðviljinn - 23.03.1955, Side 12
Olíyfélögin hafa í hótunum um að gera landii olíulaust! Slikt yrSi algerlega á ábyrgS oliufélag- arma sjálfra en ekki verkalýSsins Frekju og ósvífni olíufélaganna virðast engin tak- mörk sett. Þau hafa nú hótað að gera landið olíulaust ef verkalýðsfélögin vilja ekki lúta vilja þeirra. Þetta gerist sömu daga og gjaldeyrisvikamál Olíu- félagsins h.f. —■ eitt stærsta svikamál er hér hefur upp komizt — er fyrir Hæstarétti. I gær barst Alþýðusamband- inu bréf frá olíufélögunum öll- um, þar sem þau fara þess á leit að fá að setja í land olí- una úr Smeralda í Hvalfirði, þar sem landið verði að öðr- um kosti olíulaust mánuð eftir verkfallið, því þau hafi kaup- endur að olíunni erlendis og muni selja hana úr landi verði ekki orðið við vilja þeirra! Það skal tekið fram að engin húsa- olía er í Smeralda, heldur er skipið með ,,svartolíu“ togara og verksmiðjur. Þetta bréf olíufélaganna var tekið fyrir á fundi samninga- gær og þar einróma samþykkt að verða ekki við ósk þeirra, og var sérstaklega tekið fram í svarinu að verklýðsfélögin hefðu gefið frest á frest ofan til þess að ná samningum, og stendur olíufélögunum sem öðr- um að sjálfsögðu opið enn að gera samninga. Það er því algerlega á ábyrgð olíufélaganna ef þau gera land- ið olíulaust. Siglir Guilfoss óafgreiddur? Líklegt er að Gullfoss faii til Kaupmannahafnar óaf- greiddur. 1 gær spurðust forráðamenn Eimskips fyrir um það hvort þeir gætu látið Gullfoss sigla héðan, án þess að fá afgreiðslu fyrir ’ hér, og beint til Kaupmanna- hafnar, taka þar 60 þarþega, er þar muni bíða, en enga aðra afgreiðslu, og komi skipið síð- nefndar verklýðsfélaganna í. an beint hingað aftur. Dags- 8-16 ára gömlum drengfum hoðið á Rvíkurflugvöll Þeim verða sýnd bar flugskyli og flug- vélar á ákveðnum tímum á sunnudögum Ákveðið hefur verið að gefa drengjum á aldrinum 8—16 ára kost á að skoða flugvélar og önnur flugtæki á Reykjavíkurflug- velli á ákveðnum tínium á sunnudögum. Verður þetta fyrirkomu- lag reynt í fyrsta sinn n.k. sunnudag. Agnar Kofoed Hansen, flug- málastjóri, .skýrði Þjóðviljan- um frá þessu í gær. Lét hann þess getið, að for- vitnir stráklingar hefðu um all- langt skeið verið tíðir gestir á Reykjavíkurflugvelli, oft kom- ið þangað suður eftir að lokn- um almennum vinnudegi í stór- hópum á reiðhjólum og skelli- nöðrum, farið inn í flugskýlin og stundum valdið skemmdum á flugvélum og tækjum sem þar væru. Þetta tilt^ki strák- anna væri ekki hættulaust, t.d. gætu mikil slys hlotizt af ef snúið væri flugvélarskrúfu og kveikjan væri á, auk þess sem ýmislegt kynni að ganga úr skorðum og valda hættu fyrir farþega flugvélanna og áhafn- ir. Nú væri ætlunin að reyna að svala forvitni drengjanna með því að bjóða þeim að koma á Reykjavíkurflugvöll kl. 10:30 og 14 á sunnudögum. Myndu þá flugvallarstarfsmenn taka á móti þeim, sýna þeim flugskýli og flugvélar og gefa skýringar, auk þess sem þeir myndu benda Undanþága á kol- umtilhusa 1 gær veitti Dagsbrún undan- þágu um afgreiðslu á kolum til húsahitunar. Er heimil af- greiðsla á 250 kg í hús sem er hitað með kolum. á þá gífurlegu hættu sem er 'samfara því að fara óvarlega á flugvellinum. brún hefur svarað því að hún muni ekki hindra að skipið fari slíka ferð. Afli jan.-febr. 14 þús. lestum meiri en í fyrra Heildarfiskaflinn mánuðina janúar og febrúar varð 64.871 smálestir, en á sama tíma í fyrra 50.721 lestir. Bátafiskur var, af þessum afla, 36.644 lestir, en togara- fiskur 28.227 lestir. Aflinn skiptist þannig til verkunar: ísfiskur 445 lestir. Til frystingar 28.191 1. Til herzlu 15.871 1. Til niðursuðu 64 1. í söltun 19.339 1. 1 . fiskimjölsvinnslu 714 1. 244 lestir fóru í aðra vinnslu. ÞIÓÐVILIIN Miðvikudagur 23. marz 1955 — 20. árgangur — 68. tölublaá Finnskir bændur hóta að stöðva afhendingu af urða Ekkert gert til að leysa verkíall opin- berra starfsmanna Samtök finnskra bænda hótuðu því í gær a'ö bændur myndu hætta aö senda afurðir sínar á markaö frá og með 4. apríl. Bændasamtökin segjast munu gangast fyrir afhendingarverk- falli ef ríkisstjómin verði ekki búin að ákveða nýtt verð á búsafurðum fyrir 4. apríl. í dag hefur verkfall 25.000 opinberra starfsmanna í Finn- landi staðið í viku og engar horfur eru á að það leysist bráðlega. Engar viðræður hafa átt sér stað milli verkfalls- manna og ríkisstjómarinnar. Rætt hefur verið um að fyrr- verandi forseti Alþýðusam- bands Finnlands yrði skipaður sáttasemjari en hann hafði ekki fengist til að taka það starf að sér þegar síðast fréttist í gær- kvöldi. Samgöngur í Finnlandi og. ut- anríkisverzlunin hafa lamazt af völdum verkfallsins. Skip rekast á við Noreg I gær var 5000 tonna sovr ézku skipi siglt í strand á ey einni við Norður-Noreg. Hafði það rekizt á þýzkt skip og var að því komið að sökkva. Reynf verður að dæla sjó úr skipinu og ná því út. Þýzka skipið er á leið til hafnar með gapandi rifu á kinnungnum. Mólstaður verkfallsmanna er málstaður alþýðunnar Verkfallsmenn finna það betur og betur með hverjum degi sem líður að almenningur í bænum lítur á þeima bar- áttu sem sína baráttu. Kemur þetta ekki aðeins fram í hlý- hug sem verkfallsmenn mæta hvarvetna hjá almenningi held- ur og virkum stuðningi. Áður hefur nokkuð verið sagt frá slíku, -en í gær komu gömul hjón, Jóhanna Benediktsdóttir og Þórður Jónsson, Samtúni 30 með 100 krónur að gjöf til verkfallsvarðanna, — og appel- sínur til að hressa sig á verk- fallsverðinum. Tillaga Eínarsf Lúðvíks og Gunnars um þingmanna- nefni fil rannsóknará okurstarfsemi samþykkt Nefndin verSur kosin á nœsta fundi neSri deildar Alþingis Neðri deild Alþingis samþykkti í gær einróma tillögu Einars Olgeirssonar, Lúövíks Jósefssonar og Gunnars M. Magnúss um skipun þingmannanefndar til að rannsaka okurstarfsemi. Virðist svo sem skrif Þjóðviljans og frumkvæði alþingis- manna Sósíalistaflokksins hafi haft mikil og skjót áhrif í þá átt að sannfæra menn um nauðsyn rannsóknar. Lýstu þeir Bjarni Benediktsson og Bjöm Ólafsson nú yfir brennandi áhuga sínum að uppræta spillinguna í við- skipta- og fjármálum, hvar sem hún fyndist. Hafði Bjarni um þetta hin sterkustu orð, nú „fagnaði“ hann tillögunni. Tillaga þeirra þremenninganna, Einars, Lúðvíks og Gunnars var þannig afgreidd sem ályktun neðri deildar Alþingis með sam- hljóða atkvæðum. Samkvæmt henni kýs neðri deild 5 manna nefnd innandeildarmanna, sam- kvæmt 39. gr. stjórnarskrárinn- ar, til þess að rannsaka að hve miklu leyti og með hvaða móti okur á fé viðgangist nú, fyrst og fremst í Reykjavík. Nefndin skal hafa það vald, sém heimíl- að er í 39. gr. stjórnarskrár- innar til þess að heimta skýrsl- ur af embættismönnum og öðr- um Að lokinni rannsókn skal nefndin gefa deildinni ýtarlega skýrslu um störf sín og niður- stöðu.. Lýsti forseti, Sigurður Bjarna- son, yfir því, að nefndin yrði kosin á næsta fundi deildarinn- ar. ★ Umræðurnar í gær um þessa tillögu hófust dálítið spaugilega. Björn Ólafsson las upp klausu úr þingfréttum Þjóðviljans og virtist sárt móðgaður af henni! Klausan var þannig: „En rétt áður en að tillögunni kæmi, tók Bjarni Ben. Björn Ólafsson út undir vegg í þingsalnum og tal- aði geyst yfir honum, ómjúkur á svip. Að því loknu kom Björn dálítið skömmustulegur til for- seta og ræddi við hann nokkra hríð, en forseti brosti svolítið Framhald á 10. síðu. Þréttur Siglufirði fagnar bréfi um vinstri stjórn Eftirfarandi samþykkt var gerð á fundi í Verkamanna- félaginu Þrótti á Siglufirði 15. marz 1955: „Fundur í Verkamannafélaginu Þrótti 15. marz 1955 lýsir yfir samþykki sínu og ánægju yfir bréfi því, sem stjóm A.S.I. hefur sent til hinna pólitísku flokka um samvinnu í þeim tilgangi að mynda frjáls- lynda ríkisstjóm, sem studd væri af vinstri sinnuðu fólki í landinu. Telur fundurinn stjóm A.S.Í. með bréfi þessu vera að fram- fylgja áskorun og samþykktum verkalýðs- félaganna í landinu og stefnu þeirri, sem 24. þing A.S.Í. markaði.“ Dagsbrúnarmenn! MætiÖ í verkfallsskrifstofunni í Alþýðuhúsinu!

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.