Þjóðviljinn - 27.03.1955, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 27.03.1955, Blaðsíða 1
VILIIN Þátttakendur í verkfállinu eru beðnir að hafa sam- band við verkfallsskrif- stofuna í Alþýðuhúsinu. Sunnudagur 27. marz 1955 — 20. árgangur — 72. tölublað VerMýðsfélögin rinna störfelldan sigur: Hafnaríjarðarbær og öll fyrirtæki hans sömdu við Hlíí í gær Ganga að kröfum félagsins meSan verkfalliS stendur - Langstcersti at- vinnurekandinn i HafnarfirSi - IhaldiS greiddi atkvœSi gegn samningum Bæjarútgerð Hafnarfjarðar. Hafnaríjarðarbær og öll sömdu í gær við Verkamannafélagið Hlíf. Ganga bærinn og fyrirtæki hans að öllum kröfum Hlífar meðan verkfallið stendur, en síðan breytast samningarnir í samræmi við endanlegar niðurstöður. Bæjarútgerðin og önnur fyrirtæki bæjarins eru langstærsti atvinnurekandinn í Hafnarfirði, og nær samningur- inn til á annað hundrað manns en það jafngildir bví að samið væri við at- vinnurekenda sem hefði í þjónustu sinni á annað þúsund manns hér í Reykja- vik. Með samningum þessum er m.a. bjargað frá skemmdum fiski sem nemur að verðmæti um milljón króna, og hófst uppskipun á fiski strax í gær. íhaldið greiddi atkvæði á móti samningum og lagði til að bæjarútgerðin gengi í stað- inn á Vinnuveitendasamband íslands! Nokkrir atvinnurekendur aðrir í Hafnar- firði hafa samið við Hlíf á sama grundvelli, og hafa samningar náðst alls við 9 atvinnufyrirtæki. Samningar þessir eru stór- atburður í kjarabaráttu peirri sem nú stendur yfir og munu styrkja mjög að- stöðu verklýðsfélaganna. Þeir sýna glöggt hvers virði atkvæðaseðillinn er, einnig í kjarabaráttunni, og hvílík nauðsyn það er allri alþýðu að vinstri samvinna takist Samúðarvinnu- stöðvun hjá Þrótti 1, apríi Vörubílstjórafélagið Þróttur hefur tilkynnt atvinnurekendum samuðarvinnustöðvun með þeirn félögum sem í deilunni eiga. Gengur samuðarvinnustöðvun Þróttar í gildi 1. april n. k hafi samningar ekki tekizt áður. sem víðast og á sem flest- um sviðum, en Hafnarfjarð- arbæ er sem kunnugt er stjórnað af sósíalistum og Alþýðuflokksjnönnum. Gangur málsins Samningar þessir hafa verið í undirbúningi um alllangt skeið. Nokkru áður en verkföll hófust sneri Hermann Guð- mundsson formaður Hlífar sér til bæjarstjóra og rfeeddi við hann um möguleika á því að bærinn semdi án þess að til stöðvunar kæmi. Ræddu sam- starfsflokkamir málið, og Iýsti fulltrúi sósialista Kristján Andrésson sig fylgjandi því að þegar yrði samið við Hlif og að mikilvægt væri að samið Áivimuráeitfkr höflu ekkert að fejíla á samingafundiitun) i gær! Samningafundur verklýðsfélaganna og atvinnu- rekenda var lialdinn í gær og stóð hann aðeins stutta stund, rúman klukkutíma. Höfðu atvinnu- rekendur þar ékkert jákvætt til málanna að leggja, bu&u ekki fram eyrishœkkun á kaupi né nokkurt annað atriði. Hins vegar voru þeir svo óskamm- feilnir að spyrja hvort verklýðsfélögin vildu ekki lœkka kröfur sínar einhliða! Enginn nýr fundur var boðaður. «>- fyrirtæki bæjarins siðan rætt 1 útgerðarráði og barst þangað m.a. áskorun frá Sjómannafélagi Hafnarf jarðar um að samið yrði þegar í stað til þess að unnt væri að bjarga miklum verðmætum í fiski frá eyðileggingu. Einnig barst út- gerðarráði einróma áskorun Hlífarfundar sama efnis. Full- trúi sósíalista lagði enn til að samið yrði án tafar. t gær var málið svo afgreitt í útgerðarráði með séráliti sós- íalista og Alþýðuflokksmanna sem lögðu til að samið yrði við Hlíf enda yrði Bæjarútgerðinni heimilað að kaupa fisk af Hafn- arfjarðarbátum þannig að þeir gætu haldið áfram veiðum. Full- trúar íhaldsins greiddu atkvæði á móti því og lögðu til að Bæj- arútgerðin gengi í staðinn í Vinnuveitendasamband íslands! Síðan var þessi niðurstaða lögð fyrir bæjarráð, og þá samþykkti meirihluti bæjarráðs, Kristján Andrésson og Guðmundur Giss- urarson, gegn atkvæði íhalds- mannsins Helga S. Guðmunds- sonar, að bæjarútgerðin, bæj- arsjóður og fyrirtæki bæjarins, svo sem rafveita og hafnar- sjóður, gerðu samninga við yrði án þess að til nokkurrar stöðvunar kæmi. Samkomulag tókst þó ekki um málið. Þegar Hlíf var skýrt frá því að einhuga samkomulag hefði ekki fengizt, lagði félagið fram formlega beiðni til bæjarráðs um að orðið yrði við erindi þess og barst það s.l. laugardag. Erindi þetta var tekið fyrir í bæjarráði næsta dag, og var þar samþykkt gegn atkvæði sósíalista að vísa málinu til út- gerðarráðs til umsagnar, en fulltrúi sósíalista lagði til að samið yrði þá þegar. Málið var Hlíf þar sem gengið væri að öllum kröfum félagsins meðan verkfall stæði en síðan breytt- ust samningarnir i samræmi við niðurstöður kjaradeilunnar. Var bæjarstjórn heimilað að undir- rita samninga, með þeim fyrir- vara að þeir yrðu síðan sam- þykktir í bæjarstjórn, og fór undirritun fram kl. 1.30 í gær. Mikil ánœgja Mikil ánægja er í Hafnarfirði Framhald á 3. síðu. Iðja semur við Record Iðja, félag verksmiðjufólks í Reykjavík, hefur náð samning- um við Efnagerðina Record. Var samið um allar kröfur félagsins meðan verkfallið stendur og um breytingar síð- ar til samræmis við heiklar- samninga Iðju. Eins og skýrt hefur verið frá hér í blaðinu hefur Iðja áður náð samningum við nokkur fleiri fyrirtæki. Loftieiðir báðu um samn- inga við verkalýðsfélögin — en voru síðan kúgaðir af ríkisstjórn og atvinnu- rekendum til að falla frá keiðni sinni Fyrir nokkru sneri stjórn Loftleiða sér til verklýðsfélag- anna og fór fram á aö fá aö gera sérsamninga, en félagiö hefur ekki verið meölimur í Vinnuveitendasambandi fs- lands. Var þessari málaleitun tekið mjög vel — en þegar til átti aö taka beittu atvinnurekendur og ríkisstjórn Loftleiðir þvingunum til þess að koma í veg fyrir samn- inga; m.a. mun ríkisstjórnin hafa hótaö því aö neita fé- laginu um ríkisábyrgö fyrir láni ef þaö semdi viö verk- lýðsfélögin. Á sama hátt munu atvinnurekendur nú fara hamför- um gegn þeim aöilum sem þegar hafa samiö viö Iöju og reyna aö neyöá þá til aö rifta samningum. Þegar stjórn Loftleiða snerilhún á að félagio þyrfti fyrir sér til verklýðsfélaganna benti | alla muni að geta haldið áfram flugferðum sínum milli Evrópu og Ameríku, að öðrum kosti væri félagið í mikilli hættu statt vegna. samkeppninnar við SAS og önnur flugfélög og auk þess hefði félagið ekki fjár- hagslegt bolmagn til þess að standast 35-40.000 kr. úígjöld á dag án þess að nokkrar tekj- ur kæmu á móti. Verklýðsfélög- in kváðu sig þegar reiðubúin til að semja við Loftleiðir, þannig að félagið gæti haldið rekstri sínum áfram. Á mið- Framhald á 11. síðu. ■■■■■■■»■......................*•■■■*■■■•■.......■■■■■■■■■ ■■■■■■■■•■■«■■■■■! Dagsbrúnarmenn! Á morgun, máaudag, kL 2 e.h. heíst Dagshrúnarfimd- ur í Iðnó. Þar verður skýrt frá gangi samningaumleit- ana til þessa og framkvæmd verkfallsins o§ íramhald baráttunnar fyrir sigri Dagsbrúnarmanna rætt og undirbúið. — Fjölmennið á fundinn og mætið sfundvíslega.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.