Þjóðviljinn - 24.04.1955, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 24.04.1955, Blaðsíða 2
2) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 24. apríl 1955 ie 1 dag er sunnudagurinn 24. apríL Georgius. — 114. dagur árs- ins. — Tungl í hásuðri kl. 15:23. Árdegisháflæði kl. 7:18. Síðdegis- háfheði kl. 19:42. Dagskrá Alþingis mánudaginn 25. janúar 1955 Efrldeiid (kl. 1:30) 1. Iðnskó'ar, frv. Prh. 2. umr. 2. Ja.rðræktarlög. frv. 3. umr. 3. Jarð- ræktar- og húsagerðarsamþykktir, frv. 2. umr. 4. Riíkisreikningurinn 1952, frv. 3. umr. Neðrideild (kl. 1:30) 1. Bæjarstjórn í Kópavogskaup- stað, frv. Frh. 3. umr. (Atkvgr.) 2. Ríkisborgararéttur, frv. Frh. 3. umr. (Atkvgr.) 3. Tekjuskattur og eignaskattur, frv. Frh. 2. umr. (Atkvgr.) 4. Verðlagsbreyting, frv. 2. umr. 5. Meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra, frv. 3. umr. 6. Síldarverksmiðjur ríkisins, frv. 3. umr. 7. Almenningsbókasöfn, frv. 2. umr. 8. Húsnæðismál, frv. 3. umr. 9. Ibúðarhúsabyggingar í kaupstöðum og kauptúnum, frv. 2. umr. 10. Landnám, nýbyggðir og endurbyggingár í sveitum, frv. 2. umr. II. Ræktunarsjóður íslands, frv. 2. umr. 12. Togarakaup Nes- kaupstaðar, frv. 2. umr. 13. Tog- arinn Viiborg Herjólfsdóttir, frv. 2. umr. Eeiðrétting Nokkrar línur féllu niður á leik- dómnum í gær, þar sem rætt var um Helga Skúlason. Réttilega átti setningin að vera á þessa leið: „Bróður Hajtang leikur Helgi Skúlason, vandasamt h'lutverk og margþætt sem krefst mikillar þjálfunar og öruggrar tækni — hann er fyrst þrætugjarn og svall- samur stúdent, síðan eldheitur byltingarsinni og dauðadæmdur tötramaður, loks embættismaður hins unga keisara. Leikur Helga er einarður og . þróttmiki'll sem áður, og þarf enginn að efast um beiskju og uppreistarhug hins unga manns" osfrv. Sera L. Murdocli flytur erindi í Aðventkirkjunni kl. 5 í dag og nefnist það Markverð- asti viðburður vorra daga. Aliir ve'lkomnir. Kvenfélag Kópavogshrepps minnir félagskonur á fundinn í barnaskólanum annað kvöld kl. 8:30. Æfing í dag kl. 5 eh. FEHMINGAR 1 DAG Nesprestakall HelgidagsUeknir (frá kL 8 árdegis tii kl. 6 síðdeg- is) er Hulda Sveinsson, Nýlendu- götu 22, sími 5336. Næturvarxla er í Lyfjabúðinni Iðunni, sími 7911. LTFJABÚÐIR Holts Apótek | Kvöldvarzla til UT | kl. 8 alla daga Apótek Austur- | nema laugar- bæjar daga til kl. 4. Stúlkur: Guðrún Örk Guðmundsdóttir, Baldursheimi, Seltjarnarnesi. Heiðut- Guðmundsdóttir, Tjarnarstíg 3. Seltjarnarnesi. Málfríður Erla Konráðsdóttir, Þórsmörk Seitjarnarnesi. Elísabet Jónsdóttir, Blómvöllum Seltjarnarnesi. Hjördís Ólafsdóttir, Nesvegi 46. Ingveldur Jenný Jónsdóttir, Grandavegi 37. Erna Maria Ragnarsdóttir, Reynimel 49. Ragnheiður Valdimarsdóttir, Ægissíðu 98. Soffia Pétursdóttir, Ásvallagötu 4. Xngunn Jensdóttir, Grenimel 14. Þórlaug Steingerður Gunnarsd., Kamp Knox, G. 1. Jytte Aares Hjaitested, Ásvallagötu 73. Ragnheiður Guðfinna Haraldsd., Víðimel 63. Edda Jónsdóttir, Hagamel 12. Þórunn Gestsdóttir, Skaftahlíð 36. Guðrún Árnadóttir, Hagamej 16. Þóra. Johnson, Miklubraut 15. Drengir: Pétur Kjartan Esrason, Fornhaga 19. Gauti Indriðason, Sörlaskjóli 34. Haukur Már Kristinsson, Kamp Knox, G. 7. Einar Júlíusson, Kvisthaga 1. Þorgils Agnar Kristmanns, Víðimel 23. Magnús Þór Jónsson, Me'ihaga 14. Guðmundur Gaukur Vigfússon, Víðimel 21. Páll Beck Valdimarsson, Reynimel 44. Sveinn Pétur Kjartansson, Ásvallagötu 69. Hilmar Heiðdal, .Sörla.skjóli 13. Borgþór Herbertsson, Ægissíðu 68. Halldór Friðrik Gunnarsson, 'Hjarðarhaga 28. Sigurjón Andrésson, Þjórsárgötu 5. Halldór Kjartansson, Granaskjó’.i 3. Karl Gústaf Grönvold, Spitalastig 1. Gísli Steinar Jónsson, Kársnesbraut 25. Gunnar Ingibergur Guðjónsson, Bjarnastöðum, Grímstaðaholti. Einar Örn Lárusson, Nesvegi 64. Guðni Georg Sigurðsson, Reynimel 56. Gunnsteinn Lárusson, Þvervegi 16. Árni Reynis, Hringbraut 52. Kristinn Kristinsson, Breiðagerði 2. Nýlega voru géfin saman í hjónaband af séra Birgi Snæ- björnssyni ungfrú Hrefna Jakobsdótt- ir og Yngvi Ragn- ar Loftsson, verzl- unarmaður. Heimili brúðhjónanna er að Þórunnarstræti 120 Akul- eyri. Bergur Guðnason, Drápuhlíð 5. Guðmar Eyjólfur Magnússon, Borgargerði 12. Gunnar Árni Þorkelsson, Hörpugötu 39. Eysteinn Bergmann Guðmundsson, iShellvegi 10, Skerjafirði. Laugarneskirkja 1 varp: tónteil / \\\\ ^ virkjal 7 \ \ eftir B / ' pest-k' Stúlkur: Aðalheiður Lilja Sigurðardóttir, Birkih’íð við Reykjaveg. Arnbjörg Pájsdóttir, Hofjaig 22. Birna Júlíusdóttir, Laugateig 42. Dórs, Diego Þorkelsdóttir, Heiði við Kleppsveg. Dóra Þóhallsdóttir, Hofteig 6. Hafdis Jónsdóttir, Stakkholti 6. Helga Lísbet Bergsveinsdóttir, Kambsvegi 6. Hólmfniður Solveig Kofoed Han- sen, Dyngjuveg 2. Ingibjörg Beinteinsdóttir, Stakkholti 3. Ingibjörg Ingölísdóttir, Si.lfurteig 2. Jónína Guðrún Kjartansdóttir, ‘Kirkjuteig 18. Sigríður Borg Harðardóttir, Stakkholti 3. Sigríður Magnúsdóttir, Stalckholti 3. Sigurborg Skjaldberg, ■Stakkholti 3. Drengir: Arnar Laxdal Snorrason, Sigtúni 49. Björgvin Gúnnarsson, Stakkhoiti 3. Böðvar Árnason, Stakkholti 3. Guðjón Tómasson, Hólum við Kleppsveg. Guðlaugur Gauti Jónsson, Hofteig 8. Guðmundur Heiðar Guðmundsson, Langholtsvegi 60. Hallvarður Ferdínandsson, Nóatúni 26. Hreinn Guðmundsson, iStakkhoiti 3. Framhald á 10. síðu. Messur í dag Háteigsprestakall Messa í hátíðasal Sjómannaskóians kl. 11 (Ath. breytt- an messutíma vegna útvarpsins). Séra Jón Þorvarðsson. Dómkirkjan Fermingarmessa kl., 11. Séra Ósk- ar J. Þorláksson. Fermingarmessa kl. 5. Séra Jón Auðuns. Laugarnesklrkja Messa kl. 2. Ferming. Barnaguðs- þjónusta fellur niður. Séra Garðar Svavarsson. Bústaðaprestakall Messa á Háagerðisskóia kl. 2. — Barnasamkoma kl. 10:30 árdegis sama stað. Séra Gunnar Árnason. Langlioltsprestakall Messa kl. 10:30 árdegis. Ferming. Séra Árelíus Nielsson. Fríkirkjan Messa kl. 2 (Ferming). Sr. Þor- steinn Björnsson. Óliáðl fríklrkjusöfnuðuriim Fermingarmessa í Kapellu Há- skólans kl. 2. séra Emil Björnsson. Kl. 9:30 Morgunút- varp: Fréttir og tónieikar: a) Læ- virkjakvartettinn Haydn (Buda- pest-kvartettinn leikur). b) Xrmgard Seefrid syng- ur lög eftir Brahms. c) Sautján tilbrigði op. 54 eftir Mendelssohn (Cor de Groot leikur á píanó ) d) Hermann Schey syngur fjórar ballötur eftir Loewe. e) For’.eikur að baUettinum Sköpun Prómeþevs eftir Beethoven (Hljómsveitin Philharmonía leikur; Nikolai Mal- ko stjórnar.) Veðurfregnir verða lesnar k). 10:10. — 11:00 Messa í hátíðasal Sjómannaskólans (Sr. Jón Þorvarðsson). 12:15 Hádegis- útvarp. 15:15 Miðdegistónieikar: a) Sinfóniuh' jómsveitin leikur; Olav Kielland stjórnar. 1. Leonóru-for- lsikur nr. 3 eftir Beethoven. 2. Norsk kunstnerkarnevel op. 14 eftir Johan Svendsen. b) Renata Tebaldi syngur óperuaríur eftir Verdi og Gounod (pl.) c) Fiðlu- konsert nr. 2 í d-mo!l op. 22 eftir Wieniawsky (Jascha Heifetz og Fílharmoníska hljómsveitin í Lun- dúnum leika; Sir Barbirolli stjórn- ar) 16:15 Fréttaútvarp til Islend- inga erlendis. 16:30 Veðurfregnir. 18:30 Barnatími (Þ. Ö. St.): Efni: Söngur, píanóleikur, sögur, kvæði og samtöl, flutt af börnum á Ak- ureyri og tekið á segutband undir stjóin Jóns Norðfjörðs leikara. 19:25 Veðurfregnir. 19:30 Tónleik- ar (pl.): Ensk svíta i d-moll eftir Baoh (Alexander Borowsky leikur á píanó). 19:45 Auglýsingar. 20:00 Fréttir. 20:20 Leikrit: Drauma- stúikan eftir Elmer Rice, i þýð- ingu Ásgeirs Hjartarsonar. Leik- stjóri: Rúrik Hara'dsson. Leik- endur: Þóra Friðriksdóttir, Lárus Pálsson, Steindór Hjörleifsson, Ævar Kvaran, Hildur Kalman, Hólmfníður Pálsdóttir, Þorsteinn Ö. Stephensen, Anna Guðmunds- dóttir, Helgi Skúlason, Gestur Pálsson Jón Aðils, Rúrik Hara'ds- son, Rósa Sigurðardóttir, Einar Ingi Sigurðsson, Baidvin Halldórs- son, Haraldur Björnsson, Árni Tryggvason, Valdimar Lárusson og Kiemenz Jónsson. Kl. 22:00 Fréttir og veðurfregnir; síðan dans’.ög af piötum til kl. 01:00. Útvarpið á morgun Fastir liðir eins og venjulega. Kl. 20:30 Útvarpshljómsveitin: Lög úr óperunni La Boheme eftir Puccini. 20:50 Um daginn og veginn (Kjartan Jóhannsson alþm.) 21:10 Einsöngur: Gunnar Kristinsson syngur; Weisshappel leikur undir. a) Tvö lög eftir Pál Isóifsson: Kóngsdóttir sat í dýrri höll og I harmanna helgilundi. b) Tvö lög eftir Brahms: Von ewiger Liebe og Die Mainacht. c) Aria úr óper- unni Tannháuser eftir Wagner. •21:30 Erindi: Starfsemi neytenda- samtakanna (Sveinn Ásgeirsson hagfræðingur). 22:00 Fréttir og. veðurfregnir. 22:10 Islenzk málþró- un (Jón Aðalsteinn Jónsson cand. mag.) 22:30 Létt lög: Lys Assia og Rudi Schuricke syngja (pl.) Dagskrárlok kl. 23:00. Til Sólhelmadrengsins hafa borizt 20 krónur frá L. J. •Trá hóíninni Ríkisskip Hekla fór frá Reykjavik í gær- kvöid vestur um land til ísa- fjarðar. Esja fór frá Reykjavík i gær austur um land til Vopna- fjarðar. Eimskip Gullfoss fór frá Kaupmannahöfn 23. þm til Leith og Reykjaidkur. Selfoss fór frá Leith 22. þm til Islands. Drangajökull fór frá New York 19. þm til íslands. Önnur skip Eimskipafélagsins eru í Rvík. Sambandsskip Hvassafell er 'í Rotterdam. Arnar- fell er í Reykjavík. Jökulfell átti að fara frá Boulogne í gær til Hamborgar. Disarfell er á Akur- eyri. Helgafell er í Hafnarfirði. ‘Smeralda er í Hvalfirði. Granita er á Borðeyri. Jörund Basse átti að fara frá Rostock í gær til Ólafsfjarðar, Hofsóss og Sauð- árkróks. Fuglen fer væntanlega frá Rostock á morgun til Raufar- hafnar, Kópaskers og Hvamms- tanga. Erik Boye fer væntanlega frá Rostock á morgun til Borð- eyrar, Norðurfjarðar, Óspakseyr- ar og Hólmavíkur. Pieter Born- hofen er á leið frá Riga til Isa- fjarðar, Skagastrandar, Húsavíkur, Norðfjarðar og Vopnafjarðar. SKÁKIN ABCDEFGH Hvítt: Botvinnik Svart: Smisloff 38. Dg2—fl Bf8—g7 Nú væri Bxa6 einfaldasta vinn- ingsleiðin, en Botvinnik kýs að halda Smisloff í óvissu ögn leng- ur og setja b-peðið í uppnám líka, 39. Bb2—cl Bg7—f6 40. Hgð—g4 ABCDEFGH litli Kláus og stóri Kláus Ævintýri eftir H. C. ANDERSEN Teikningar eftir Helge Kuhn-Nielsen 15. Þú verður að selja mér þennan galdrakarl, sagði bóndinn, þú getur sett upp á hann, hvað sem þú vilt; já. meira að segja, ég skaj þegar í stað gefa þér eina skeppu af peningum fyrir hann. — Nei, það get ég ekki, sagði litli Kláus, gáðu að þvi, hvað mikið gagn ég get haft af þessum galdrakarli. — Æ, mér er svo skrambi hug- leikið að fá hann, sagði bóndinn og linnti ekki á bæn- inni. — Jæja þá sagði litliiKiáus 'loksins, fyrst þú hefur verið svo vænn að hýsa mig í nótt, þá ætja ég að gera það fyrir þig. Þú skalt fá galdrakarlinn fyrir eina. .skeppu af peningum, en ég vil hafa hana kúfmælda. — Það skaltu fá, sagði "bóndinn, en kistuna þarna verðurðu að taka með þér, ég vi'l ekki hafa hana stundu lengur í mínum húsum. Það er ekki að vita, nema hann sitji í kistunni enn, Sunnudagur 24. apríl 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (3 Ég vil fn tunnunn mioo jóðviljinn hefur áður sagt frá því að verka- menn á Akureyri settu upp verkfallsvaktir á vegina, eins og stéttarbræður þeirra hér syðra, en fátt hefur til þessa verið sagt frá þeim syðra. Til að bæta þettá örlítið upp er birt hér frásögn úr Verka- manninum á Akureyri. yerkfallsvörður við Lónsbrú Verkamannafélag Akureyrar- kaupstaðar, sem nú hefur átt í verkfalli hólfan mánuð, hefur sett bann við vöruflutningum til bæjarins og frá, undanskildir þessu banni eru þó allir flutn- ingar í sveitirnar í kring, og frá þeim, aðrir en með benzín og olíur. Til að framfylgja þessu, hefur verkfallsnefndin haft verk- fallsvörð á þjóðveginum uían við Lónsbrú. Samskonar ráðstaf- anir hafa verði framkvæmdar á vegum i nánd við Rvík. Af frétt- um blaðanna syðra sézt, að aftur- haldið og auðmannaklíkan sem ætlar sér að svelta verkalýðinn til hlýðni við sig, hefur hvað eftir annað staðið fyrir hinum dólgslegustu árásum á verkfalls- verðina þar. Nótt eftir nótt hef- ur verið sent árásarlið frá stöðv- um Sjálfstæðisflokksins, búið bareflum og ‘ handslökkvitækj- um! til að berja á verkfalls- vörðunum. Þessar fantalegu til- raunir hafa þó mistekizt að mestu, vegna þess að verkamenn hafa fjöimennt á vaktirnar síðan fyrstu árásirnar voru gerðar og hefur það komið í veg fyrir að glæpaliði íhaldsins tækist sitt ætlunarverk. Til þessara árása hafa einkum verið notaðir dæmdir menn og hverskyns drullusokkar, lögreglu og réttvísi að illu einu kunnir. Hér í bæn- um finnast aftur á móti lítið af slíkum manntegundum, góðu heilli, og hafa verkfallsverðir við Lónsbrú yfirleitt mætt skilningi og kurteisi hjá vegfarendum og öðrum, enda er umferð algerlega l^tin afskiptalaus að öðru leyti en því, sem að framan greinir. Föstudagurinn langi og „postularnir“ 12 Á fjórða tímanum fyrra föstu- dag, sem var hinn heilagi og langi föstudagur kristninnar, renndu tveir fólksbílar út fyrir Lónsbrú og staðnæmdust ó- beðnir hjá verkfallsvörðum þar, en þeir voru þrír á vakt. Út úr bílunum stigu tólf menn, post- ulatalan að Júdasi meðtöldum. Voru þar komin ungmenni úr Menntaskólanum á Akureyri. Á- vörpuðu þeir vaktmennina laus- lega, en kváðust vera hér komn- ir til þess að brjóta „þessa ólög- legu vörzlu á vegum úti, á bak aftur, og opna veginn“. Þeim var hógværlega bent á að vegurinn væri opinn öllum venjulegum borgurum og öllum farartækjum öðrum en þeim, sem fluttu vörur í banni verkalýðssamtakanna. Ekki létu hinir 12 unglingar neinar fortöhir eða rök á sig fá, en urðu brátt hinir gunnreif- ustu í munninum og viðhöfðu stór orð um að láta hendur skipta, ef vörðurinn yrði ekki tafarlaust leystur upp. Sögðust þeir vera umbjóðendur „lýðræðis- ins í vestri“, og sjálfkjörnir vökumenn yfir andlegu og efna- legu sjálfstæði þjóðarinnar. Tunnan og lýðræðið í landinu < ,<ii. ; , Verkfallsverðir höfðu sett steinbákn nokkurt á neðri brún vegarins, þar sem þeir standa •vörðinn. Þetta steinbákn er frá dögum hersins, það er tunnulag- aður steypukökkur og mun hafa verið notaður sem hliðstólpi eða vegvísir meðan herinn dvaldi á þessum stað. Hér eftir verður gripur þessi nefndur tunna, þótt engin tunna sé. Tunnunni vildu unglingarnir fyrir hvern mun ryðja úr vegi og töldu hana brjóta í bág við „lýðræðið“ og vera hinn mesta ,,skandal“ fyrir frelsið í landinu. Byrjuðu þeir nú fangbrögð við ferlíkið og hugðust koma tunn- unni út af kantinum. Einbjörn — Tvíbjöm — og ekki gekk rófan Sá er hafði aðallega forusíu fyrir hinum 12 postulum lýðræð- isins, er forstjórasonur af Akra- nesi, ekki ógeðugur ungling- ur, dökkur yfirlitum og með- almanngildi á vöxt. Svipur hans og látbragð allt ber með sér að hann sé vanur því að fá það sem hann biður um eða langar í. Það kom fýlulegur þráasvipur á andlit hans, þegar hann varð þess var að tunnan gekk lítið eða ekki, þrátt fyrir fangbrögð hans og félaga hans. Verkfalls- verðirnir létu þá að mestu af- skiptalausa, nema hvað einn þeirra setti tána fyrir tunnuna, þegar atrennur drengjanna voru hvað harðastar og tunnan var í þann veginn að hreyfast úr stað. Leiddist nú liðinu þóf þetta og sáu að tunnan mundi enn um sinn standa í vegi lýðræðisins i landinu, nema aðrar og meiri ráðstafanir yrðu gerðar. Eigandinn og 30 pappírs- peningar. Spyr nú fyrirliðinn með þjósti nokkrum, hver eigi þessa tunnu, því eignarrétturinn er auðvitað næstur lýðræðinu, og sá sem elsk ar lýðræðið meira en sjálfan sig, ann eignarréttinum eins og ná- unga sínum, svo ekki sé meira sagt. Já, hver á tunnuna? Á þvi gat leikið nokkur vafi. Senni- legast var talið að bóndinn í Grænhól hefði mest tilkall til hennar, næst Elísabetu Englands- drottningu. En víst var að bónd- inn á Grænhól hafði heimilað verkfallsvörðum afnot af tunn- unni. Er nú sendur hraðboði .á fund bóndans og að vörmu spori kemur hann á staðinn. Hefjast nú langar viðræður millum hans og ,,postulanna“ og fala þeir tunnuna til kaups. Segjast ætla að íjarlægja þessa tunnu í nafni lýðræðisins, en búast við að hún verði leiðitamari út af veginum ef þeir eigi hana sjálfir. For- stjórasonurinn af Akranési býður allt að 30 krónur í tunnuna og segist greiða út í hönd. Eftir mikið orðaskak varð það úr að bóndi slær honum tunnuna fyrir 30 krónur og stóð ekki á greiðsl- unni. Það voru að vísu 30 papp- írskrónur, en þrjátíu peningar samt. Bóndinn hverfur síðan á braut. Á fund lögreglunnar Nú þóttust piltungamir standa með pálmann í höndunum. ’Tunn- an var þeirra eign, upp á það höfðu þeir skriflegt afsal frá Grænhólsbónda — og nú var ekki annað eftir en taka hana. Helzt vildu þeir flytja hana í bæinn og hafa sennilega ætlað sér að koma henni fyrir á lóð Menntaskólans sem sigurtákni lýðræðis og eignaréttar. En bíla- kostur þeirra var ekki slíkur að hægt væri að flytja eignina með þeim og þurfti því sýnilega að gera aðrar ráðstafanir. Kemur drengjunum nú saman um að senda nokkra í bæinn eftir vöru- bifreið, sem flutt gæti tunnuna. Þeim sem til þeirrar ferðar völd- ust, var einnig sagt að fara á fund lögreglunnar og fá liðsinni hennar til að ná eigninni úr ■ greipum vaktmanna. Um afdrif þessa leiðangurs er fátt vitað, en enginn leiðangursmanna kom aft- ur að Lónsbrú. Lögreglan fékkst ekki til að skipta sér af málinu. Tunnan fer af stað- Nú skipuðust málin þannig ytra, að fleiri verkfallsmenn komu á vaktina með því að vaktaskipti áttu að vera kl. 4. Unglingarnir voru að mestu látnir afskiptalausir, en þeir hnoðuðust við tunnuna í sí- fellu. Kom þar að hún fór á stað og mátti þá heyra fagnaðaróp mikil úr liðsflokki drengja. Gátu þeir nú velt tunnunni nokkra snúninga eftir veginum, hafa sennilega ætlað að koma henni á öruggari stað og heppilegri áður en lögreglan og vörubíllinn kæmu. En tunnan gekk hægt og seinlega, enda voru tær verk- fallsmanna stundum fyrir til aug- ljósra óþæginda. Skólameistari kvaddur til Á meðan þessu fór fram höfðu verkfallsmenn tal af skólameist- ara í síma, og sögðu honum hvað drengirnir hefðust þarna að og væri hyggilegra að skakka leikinn áður en meira hlytist af. Skólameistari brá hart við og kom út eftir. Sló þá nokkuð á surna í liði ,,postulanna“ þegar meistari steig út úr bílnum hjá Lónsbrú. Hann bað þá að hætta þessum stympingum þegar í stað. Kvað þetta ekki vera innan þeirra verkahrings og þeim mundi sæmra að dveljast ekki mikið lengur á þessum stað. Og fleira sagði hann við þá í sama dúr. „Mín tunna“ En „eigandi“ tunnunnar taldi sig ekki geta farið tunnulausan i bæinn og veifaði „afsalinu“. Skólameistari hafði hinsvegar engan áhuga fyrir því og spurði hvort hann ætlaði að hafa tunn- una í herbergi sínu. „Það er sama. Eg vil fá tunn- una mína — þetta er mín tunna“, staglaði drengurinn af Akranesi í sífellu, með ólundarviprur um alla ásjónuna. En það var sama hversu oft og kröftuglega drengurinn lýsti yfir eignarétti sínurn á tunnunni. Skólameistari taldi að hann hefði öðru þarfara að sinna, en velta einhverjum tunnum út við Lóns- brú. Kom þar að lokum að skóla- sveinarnir skriðu inn í bíla sína og fylgdu skólameistara eftir til heimkynna sinna. Og tunnan var færð í sömu skorður og áður! Tunnunnar vitjað á ný Daginn eftir, laugardag fyrir páska, fara M. A.-drengir enn á stúfana. Er liði safnað af mik- illi leynd en harðfylgi, og á nú að láta til skarar skríða og sækja tunnuna. Mun „tunnueigandimV1 og nokkrir aðrir sem fastast fylgdu honum að málum á langa frjádag hafa skipulagt liðsöfn- un þessa, nema önnur öfl hafi þar einnig komið til, sem er ekki ósennilegt. Ekki vildi þó „eigandinn11 vera á oddinum í þetta sinn og munu aðvörunarorð skólameistara hafa valdið. En hvað um það. Kl. um sjö að kvöldi er tilbúin 30—40 manna sveit, sem staðráðin er í því að gera stóra hluti hjá Lóns- brú. Er leitað eftir bílum á stöðv- unum til að flytja flokkinn á staðinn, en þá bregður svo við að þeim er allsstaðar neitað um bíla, þar sem stöðvarnar vildu ekki láta auglýsa bifreiðir sínar á þennan hátt. K.E.A.-bílIinn bjargar En eins og oft áður þegar neyðin er stærst, þá er hjálpin næst. Drengjunum tókst með ein- hverju móti að fá til fararinnar yfirbyggða vörubifreið, A-927, sem tilheyrir Raflagnadeild K, E.A. og ber auðvitað stóran K. E.A.-stimpil, eins og flestir góð- ir hlutir hér í bæ. Ekki er vitað hvort forráðamönnum samvinnu- fyrirtækisdns hefur verið kunnugt um ferð þessa eða þeir lánað bif- reiðina, en telja verður það ó- sennilegt, að svo stöddu. En inn í þennan bíl fer allur flokkurinn og læsir að sér. Er svo ekið sem leið liggur úteftir. Þá var kl. að verða 8. Hafa drengir sennilega valið þennan tíma með hliðsjón af matmálstímanum og reiknað út að þá mundi helzt fámennt á verðinum við Lónsbrú. En nokkru áður fékk verk- fallsskrifstofan veður af ráða- gerðinni og þar af leiðandi voru fleiri mættir á vakt útfrá en venjulegt er. Þetta mun hafa skyggt nokkuð á gleði herdeild- arinnar og dregið úr henni mesta móðinn. Þeir keyrðu framhjá á úteftirleið og létu ekkert til sín heyra, en sneru þó fljótlega við og komu aftur. Þegar bíll þeirra hafði verið stöðvaður opnaðist afturhurðin og dátarn- ir fóru að hoppa niður á veginn. rétt hjá tunnunni, (þær voru nú reyndar orðnar tvær, því vaktmenn höfðu fundið aðra eins, þarna skammt frá, og fært hana til hinnar ,,seldu“ tunnu >. Sjálfstæðistunnan er kyrr Fylkingin tvísté kringum tunn- urnar og upp á þeim, og fyrirlið- inn, þreklegur strákur jsonur yfirfiskimatsmannsins á Norður- landi, kvað það meiningu sína og sinna liðsmanna að sæk.ia tunnu sém væri skjalföst eigh skólabróður síns, en tunna þessj væri mikill þröskuldur í vegi alls frelsis og lýðræðis þar sem hún nú væri. Honúm var sagt að hann skyldi þá taka þessa tunnu. Framhald á 5. síðu. Á verkfallsvakt við .Lónsbrú, — Fremri „tunnan“ var seld fyrir 30 pappírspeninga á föstudaginn langa.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.