Þjóðviljinn - 10.05.1955, Qupperneq 1
íslandi verður ekki stjórnað
á móti verkalýðnum
Kjarnorku-
sprengja sprengd
ísjó
Landvarnaráðuneyti Banda-
ríkjanna tilkynnti í gær, að ein-
hvern næstu daga verði kjarn-
orskusprengja látin springa í
sjó í Kyrrahafi nokkuð hundruð
mílur undan vesturströnd Banda-
ríkjanna. Segir ráðuneytið að
þess verði g'ætt að sprengja
sprengjuna á stað, þar sem eng-
an matfisk sé að finna!
Valut og Fram 4:0
KR og Þióttui 1:0
Myndun ríkisstjórnar, sem styðst við samtök alls hins vinnandi fjölda er
mikilvægasta verkefnið sem nú þarf að vinna í íslenzkum stjórnmálum
Reykjavíkurmótið i knattspyrnu
hófst s.l. sunnudag. Þá sigraði
Vaiur Fram 4—0 (sjá íþrótta-
síðu). í gærkvöld kepptu KR og
Þróttur. KR vann 1—0.
Oft var íslandi þörf á róttækri stjórn en nú er það
lífsnauðsyn að mynduð sé þjóðleg, framsækin ríkis-
stjórn, sem alþýða landsins getur stutt og stjórnar
með hag vinnandi stéttanna fyrir augum og heill
þjóðarheildarinnar að leiðarljósi.
Þannig mælti Einar Olgeirsson í snjallri og efnismikilli ræðu
í útvarpsumræðunum írá Alþingi í gærkvöld. Var ræða lians
þung og markviss ádeiia á spillingarkerfi afturlialdsins í landinu
og máttug ihvöt til einingar allrar alþýðu og lýðræðisafla þjóð-
arinnar.
í framhaldi af ummælum þeim
sem tilfærð voru hér að framan,
lauk Einar ræðu sinni á þessa
leið:
Slík ríkisstjórn myndi stór-
efla sjávarútveginn, land-
búnaðinn og iðnaðinn um allt
iand, — koma upp. tugum
nýrra togara, vélbátiun, fisk-
iðjuverum uin landið, hraða
vélvæðingu landbúnaðarins,
iræktun landsins og rafvæð-
íngu og útvega jafnt land-
búnaði sem sjávarútvegi
næga markaði erlendis. Slík
ríkisstjórn myndi þannig
setja aleflingu íslenzks at-
atvinnulífs í stað þess ame-
ríska hermangs, sem er nið-
urdrep íslenzkra atvinnu-
vega, eyðing íslenzkra
byggða og svívirðing ís-
ienzkrar menningar.
Slík stjóm myndi ekki aðeins
rétta hlut allrar alþýðu. Hún
myndi og hafa góða samvinnu
við alla íslenzka atvinnurekend-
ur, sem efla vilja atvinnulíf
vort eftir sínum einkaframtaks-
leiðum. En það hringa- og her-
mangaraauðvald, sem sýnir sig
að kúga og niðurbeygja þjóðina,
verður að víkja fyrir samvinnu
og sameign þjóðarinnar sjálfrar.
Slík stjórn getur trj’ggt
vinnufriðinn í landinu, því
hann verður aðeins tryggður
með réttlæti í garð hinna
vinnandi stétta. Slík stjóm
getur liindrað að hér verði
komið á því alræði braskar-
anna, því nýlenduástandi eft-
ir suðiir-amerískri fyrirmynd,
sem ameríska auðvaldið
stefnir að. Slík stjórn ein er
fær um að varðveita „lögin
og friðinn“, sem of rík og of
voldug yfirstétt nú grandar.
Það er á valdi alþýðunnar að
skapa slika stjórn.
Sú alþýða, sem hefur ' mátt-
inn til að rísa gegn auðstéttinni
og sigra hana, hún býr og yfir
kraftinum til að frelsa ísland.
Tökum því höndum saman,
vinnandi stéttir íslands og þjóð-
hollir íslendingar, hvar í flokki
sem þið standið, allir þið, sem
liafið ábyrgðartilfinningu fyrir
þjóð vorri, tökum höndum sam-
an um að skapa slíka stjóm.
Sú veröld vetnissprengjunnar
Sloppaþvottur
hækkaður um 30%!
Nýlega hafa þvottahúsin hér í Reykjavík hækkað
þjónustu sína svo að þvottur og stífing á sloppum sem
áður kostaði kr. S,50 er nú seldur á kr. 12,00. Hækkun
um 30%!
Hliðstæð verðhækkun mun hafa orðið á annarri þjón-
ustu af hendi þvottahúsanna.
Sem sagt: 10% grunnkaupshækkun er notuð sem á-
tylla til allt að 30% verðhækkunar og hér þarf ekkert.
verkfall, enga baráttu til þess að knýja kröfur sínar
fram. Þvottahúsin ákveða sjálft.taxtann og- virðast ekki
hafa undir neinn að sækja samþykkti til þessarar gífur-
legu verðhækkunar.
Eiga þetta að verða efndirnar á loforði rfltísstjórnar-
innar um að standa á móti verðhækkunum, sbr. yfirlýs-
ingu IBjarna Benedlktssonar sem birt var yfir þvera
forsíðu í Morgunblaðinu 30. apríl s.l.?
sem við lifum í, þarf á því að
halda að sannað sé að mennim-
ir geti lifað saman í friði og ein-
drægni, þrátt fyrir ólíkar skoð-
anir.
ísland þarfnast þess að
verkalýðshreyfingin sé látin
skipa þann fomstusess í þjóð-
lífinu sem henni ber.
Eg segi ykkur það ráðherrar
og þingm. st jómarflokkanna:
Framhald á 3. síðu.
ríf asf (if ðf Bao 01
Faure hótar að kalla franska herinn heim
Komin er upp höið rimma milli stjórna Frakklands og
Bandaríkjanna, um hvem styðja skuli til valda i suöur-
hluta Viet Nam.
Fréttaritari Reuters í París
segir að Dulles utanríkisráð- (
herra Bandaríkjanna og Pinay
utanríkisráðherra Frakklands
hafi ekki getað komið sér sam-
an um neina sameiginlega
stefnu í Indó Kína. Faure, for-
sætisráðherra Frakklands hafi
þá gripið til þess ráðs að biðja
brezka utanríkisráðherrann
Macmillan að reyna að telja
Dulles hughvarf og fá hann til
að hætta stuðningi við Ngo
Dinh Diem, forsætisráðherra i
suðurhluta Indó Kína.
Franska ríkisstjórnin er þeirr-
ar skoðunar að brýn nauðsyn
sé að ýta Diem til hliðar svo
að hægt sé að mynda nýja rík-
isstjórn í Saigon sem haft geti
góða samvinnu við þjóðhöfð-
ingjann Bao Dai. Dulles vill
hinsvegar ekkert eiga saman
við Bao að sælda og hefur neit-
að að hitta hann í París.
Að sögn Reuters hallast
franska stjórnin nú að þeirri
skoðun, að hún verði að kalla
her sinn heim frá Viet Nam og
þvo hendur sínar af öllu sem
þar kann að gerast, ef Banda-
ríkjastjórn haldi áfram að
skipta sér af málum þar án
samráðs við Frakka.
Vesturveldin bjóða fjór-
veldafund í Sviss í júní
Veltur á Eisenhower hvort œSstu menn
eðo utanrikisráSherrar koma saman
Áður en þessi vika er úti ætla stjórnir Vesturveldanna
aö bjóöa Sovétstjórninni til fundar um málefni Evrópu.
Stjórnir Bandaríkjanna, Bretlands og Frakklands munu
leggja til aö fundurinn veröi
Uanríkisráðherrar Vestur-
veldanna skýrðu í gær fundi
A-bandalagsráðsins í París frá
því að þeir hefðu ákveðið að
senda boðið. Jafnframt skýrðu
þeir frá því að ágreiningur
þeirra um til hverskonar ráð-
stefnu ætti að bjóða væri enn
óleystur. Stjórnir Bretlands og
Frakklands vilja að æðstu
menn stórveldanna, þeir Búlg-
anín, Eden, Eisenhower og
Faure, komi saman á stuttan
fund, svo sem tveggja daga, og
ræði í stórum dráttum Þýzka-
landsmálin og öryggismál Evr-
ópu í heild, þar á meðal þær
tryggingar sem Austur- og
Vesturveldin geti gefið hvor
öðrum fyrir að þau fari ekki
með ófriði á hendur hinum.
Síðan komi utanríkisráðherr-
arnir saman til þess að ganga
haldinn í Sviss seint í júní.
frá samningum um þau atriði,
sem samkomulag kann að nást
um.
Dulles, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, vill hinsvegar
að utanríkisráðherrarnir komi
saman fyrst og æðstu menn
stórveldanna þá síðar og því
aðeins að utanríkisráðherra-
fundurinn beri verulegan á-
rangur. Hefur það nú verið
borið undir Eisenhower Banda-
ríkjaforseta persónulega, hvort
hann sé fáanlegur til að fallast
á fund æðstu manna. Búizt er
við svari frá honum í síðasta
lagi um hádegi í dag.
Asíumálin verða ekki rædd á
neinum fjórveldafundi, því að
Sovétstjórnin fellst ekki á að
ræða þau nema Kína fái aðild
að viðræðunum. Stungið hefur
verið upp á svissnesku borgun-
um Lugano, Lausanne og Genf
fyrir fundarstað.
Lænkar treysta
bóluefni Salks
Schele, landlæknir Bandaríkj-
anna, sagði í gær að hann von-
aðist til að innan nokkurra
daga yrði aftur hægt að hefja
bólusetningu við lömunarveiki
með bóluefni Salks. Kvað hann
það vera niðurstöðu tveggja
daga fundar færustu sérfræð-
inga að bóluefnið væri öruggt
og áhrifamikið. Til enn frekari
öryggis yrði hver sending hér
eftir þrautprófuð en ekki látið
nægja að taka sýnishorn af
handahófi til prófunar.
í Kanada er búið að bólusetja
55.000 börn með bóluefninu og
er bólusetningu haldið áfram