Þjóðviljinn - 10.05.1955, Síða 12

Þjóðviljinn - 10.05.1955, Síða 12
íholdið beitlr ÍY^lr sig rói- herra @g þin§m. Framsóknar Reynt að keyra gegnum jb/ng/ð árásina á Grœnmetisverziun rikisins - jbrátt fyrir óánœg'ju Pramsóknarmanna Enn virðist eiga að reyna að reka gegnum Alþingi hneykslismál Steingríms Steinþórssonar og íhaldsins, frumvarpið um að leggja niður Grænmetisverzlun ríkisins og selja eigur hennar dularfullu fyrirtæki, sem óvíst er um í hven-a eign verður. Gunnar M. Magnúss og Gylfi Þ. Gíslason mótmæltu enn þessu hneykslismáli, og sýndu fram á, að hér er ver- ið að framkvæma það stefnumál íhaldsins að farga sem mestu af ríkisfyrirtækjum eins og reynt hefur vexið þing eftir þing með Skipaútgerð ríkisins._ Til þessa hefur þó Framsókn- arflokkurinn fellt tillögumar um afhendingu skipastóls Skipa útgerðarinnar, en áhrifin af samvinnunni við íhaldið segja Steingrínmr Ásgeir I»eir berjast fyrir íhaldsstefn- unni að vilja farga ríkisfyrir- tekjum. til sín. I árásinni á Grænmetis- verzlun ríkisins getur íhaldið beitt fyrir sig Framsóknarráð- herranum Steingrími Steinþórs- syni og Framsóknarþingmann- inum Ásgeiri Bjarnasyni, en situr sjálft glottandi og horfir á þessa heiðursmenn ráðast á Og rífa niður það kerfi sem Framsóknarflokkurinn liefur byggt upp á þessu sviði. Og svo er manni með bandarískan pungaprófstitil greidd nóbels- verðlaunaupphæð af ríkisfé fyrir að semja doðrant til að undirbyggja árásina, sem er þó á þann hátt, að landbúnaðar- ráðherra, Steingrímur Stein- þórsson, blygðast sín fyrir að þingmenn fái að sjá hann, hvað þá aðrir. Kaupfélög, búnaðarfélög, rækt- unarfélög niótmæla. Steingrímur lét ekki sjá sig er málið var enn tekið til um- ræðu í gær, og lét Ásgeir Bjarnason um að halda uppi vörnum. Gunnar M. Magnúss las upp mótmæli frá kaupfé- lagsstjórum, umboðsmönnum Grænmetisverzlunar ríkisins, frá búnaðarfélögum, ræktunar- félögum og framieiðanda með langa reynslu að baki. Reyndi Ásgeir að gera lítið úr þeim mótmælum, og taldi að alþing- ismenn þyrftu ekki að taka til- lit til mótmæla, sem ekki væru send þinginu á formlegan hátt! (Ekki gat Ásgeir sagt hvað Steingrímur Steinþórsson hefði látið greiða fyrir ritun og út- gáfu nóbelsverðlaunabókar Jó- hannesar Helgasonar, en lofaði að ráðherrann skyidi segja frá því áður en málið færi úr deild- inni. Flausturslöggjöf. Gylfi Þ. Gíslason sýndi fram á ákvæði í breytingatillögum meirihluta landbúnaðarnefndar sem væru vart framkvæmanleg, og óskaði eindregið eftir því að umræðu yrði frestað til að hægt væri að ræða ýmis atriði þess við upphafsmann þess, Stein- grím Steinþórsson. Varð forseti við þeirri ósk. þJÓÐVILIINN Þriðjudag ir 10. mai 1955 — 20. árgangur — 104. tölublað Þjóðleikhúsið frumsýnir banda- rískan gamanleik á föstudag Æíingar eni hafnar á leikrifmu „I deigl- unni'' eíiir Arthur Miller N.k. föstudagskvöld írumsýnir Þjóðleikhúsið bandaríska gam- anleikinn Er á meðan er. Verður þetta síðasta leikritið, sem leik- húsið tekur til sýningar á leikárinu. Stjóraarkosning í Hreyfli dag og á morgun I Lisli vinstri ntanna er B-listi Stjórnarkosniixg' í Bifi'eiðastjórafélaginu Hi'eyfli hefst í dag kl. 1 e.h. og stendur til kl. 9 1 kvöld. Kosning heldur áfram á sama tíma á morgun og lýkur kl. 9 annað kvöld. Listi vinstrimanna í félaginu er B-listi. Höfundar leikritsins, sem er í 3 þáttum, eru tveir, George Kaufman og Moss Hart. Þeir eru vel þekktir í Bandaríkjunum og víðar, ekki hvað sízt fyrir leikritið The Man Who Came to Dinner, sem margir hér munu kannast við. Er á meðan er verður flutt hér í þýðingu Sverris Thorodd- sen, en leikstjóri er Lárus Páls- son. Leiktjöldin hefur Lárus/ Ingólfsson gert. Með aðalhlutverkin fara Þóra Borg Einarsson, Brjmdís Pét- ursdóttir, Jón Aðils og Indriði Waage, en aðrir helztu leikendur eru: Herdís Þorvaldsdóttir, Ró- bert Arnfinnsson, Haraldur Bjömsson, Emelía Jónasdóttir, Rúrik Haraldsson, Valdimar Helgason, Ævar Kvaran, Bene- dikt Árnason, Steinunn Bjarna- dóttir, Gestur Pálsson, Regína Þórðardóttir og Inga Þórðar- dóttir. Listi vinstri manna, B-listinn er skipaður þessum mönnum: Formaður Jónas Sigurðsson. varaformaður Snorri Gunnlaugs- son, ritari Jón Guðmundsson. Varast.ióm: Steingrímur Aðal- steinsson, Kristján Jóhannesson. Formannsefni A-listans er Bergsteinn Guðjónsson, en í Jóhann Tryggvason stjórnar Siníón- ínhljómsveitmni annað kvöld Þóruirn dóttir hans einleikari Sinfóníuhljómsveitjn heldur tónleika í Þjóðleikhúsinu annaö kvöld. Hljómsveitarstjóii er að þessu sinni Jóhann Tryggvason og einleikari með hljómsveitinni dótth' hans Þórunn. Á efnisskrá tónleikanna er píanókonsert í a-moll eftir Ro- mert Schuman, sinfónia nr. 2 í D-dúr eftir Jan Síbelíus og ballett-tónlist úr óperunni „Fá- ráðlingurinn frábæri“ (The Per- fect Fool) eftir Gustav Holst. Þetta mun vera i fyrsta skipti sem tónlist eftir Holst er flutt á tónleikum hér á landi, en hann er í hópi þekktustu tónskálda Englendinga á síðari tímum, var prófessor við Royal College of Music í London, en lézt árið 1934 sextugur að aldri. Tónleikar Sinfóníuhljómsveit- arinilar kvöld. hgífjast kl. 8 annað höndum hans og núverandi stjórnar Hreyfils er félagið að molna niður sem stéttarfélag. Samningur sá er félagið hafði við bifreiðastöðvarnar hefur runnið út í sandinn og ekki verið framkvæmdur. Strætis- vagnstjóradeild félagsins treysti félagsstjórninni ekki betur en svo að strætisvagnastjórarnir töldu heppilegra að ganga i ann- an félagsskap, enda þótt þeir yrðu að afsala sér verkfalls- réttinum. Loks er þess að geta að núverandi stjórn Hreyfils hef- ur ekki hindrað að stofnuð væri ný bifreiðastöð — harkarastöð — í bænum. Hafa þá aðeins verið nefnd þrjú dæmi um ræf- ilshátt og dugleysi núverandi stjórnar. Bílstjórar, svarið þessu meó því að fylkja ykkur um B-list- ami. — X B. Aðalíimdur ÆFR er á fimmtudagskvöld Aðalfundur ÆFR, sem frestað var á sínum tíma vegna verk- fallsfunda, verður haldlnn á fimmtudagskvöldið kl, 8,30 í Þingboltsstiæti 21. Auk venjulegra aðalfundar- starfa tala þeir Einar Olgeirsson og Jónas Hallgrímsson um nýaf- staðið verkfali, lærdóma þess og verkefnin sem bíða framund- an. Þess er að vænta að félagar ÆFR fjölsæki aðalfundinn, og væri þá ekki út vegi að taka með sér nýja félaga. Saharuppgjöf í Tékká- slárakíu Ríkisstjórn Tékkóslóvakíu til- kynnti í gær, að vegna 10 ára afmælis frelsunar landsins und- an oki nazista hefði verið á- kveðið að framkvæma alisherj- ar náðun sakamanna. Fangavist þeirra sem dæmdir hafa verið í ævilangt fangelsi styttist niður í 10 til 25 ár, þeirra sem af- plána fengelsisdóma sem eru meira en tíu ár niður í tvö til þrjú ár o. s. frv. Eitt ísienzkt leikrit til úr- slitakeppni Eins og áður hefur verið skýrt frá fer Guðlaugur Rósinkranz þjóðleikhússtjóri í 10 daga dvöl til Sovétrikjanna á morgun í boði sovézka menntamálaráðu- neytisins. Að lokinni sovétför- inni mun hann sitja fund yfir- dómnefndar norrænu leikrita- samkeppninnar í Stokkhólmi en þar verður gert út um hvaða leikrit hljóta verðlaun. Um 540 leikrit munu hafa borizt til samkeppninnar á öllum Norður- löndunum, þar af 11 íslenzk. Allt að þrjú leikrit koma til úrslitakeppninnar frá hverju hinna Norðurlandanna en héðan eitt, það sem íslenzka dóm- nefndin dæmdi fyrstu verðlaun. í.eikför út um land Nú er lokið sýningum á Gullna hliðinu eftir Davíð Stefánsson, en það var sýnt alls 20 sinnum og nær alltaf við húsfylli. Sýn- ingar standa enn yfir á Kritar- hringnum og Fædd í gær. Síðar- nefnda leikritið hefur verið sýnt 23 sinnum og við ágæta aðsókn. Þegar lokið er sýningum á því hér í Þjóðleikhúsinu verður far- ið með það til sýninga út á land í næsta mánuði, fyrst um Suðurland og til Vestmanna- eyja en síðar norður í land. í deiglunni sýnt næsta haust Æfingar eru nú hafnar á tveim nýjum leikritum, sem verða fyrstu verkefni Þjóðleik- hússins á hausti komanda. Þau eru í deiglunni (The Crucible) eftir bandaríska höfundinn Art- hur Miller og Góði dátinn Sveik, leikrit gert eftir sögu Jaroslav Haseks. Fyrra leikritið hefur Jakob Benediktsson þýtt en leik- átjórn annast Lárus Pálsson, Góða dátann Sveik þýddi Karl ísfeld en leikstjóri er Indriði Waage. Garðleigjendur sm í kvöld Garðleigjendafélag Reykjavík- ur efnir til uiiiræðufundar um málefui sín í kvöld kl. 8,30 í Breiðfirðingabúð. Borið verður fram kaffi, og undir borðum verður meðal ann- ars rætt um möguleika á bygg- ingu sameiginlegrar verkfæra- geymslu í einhverju garðlandinu, t. d. í Borgarmýri; einnig verður rætt um möguleika á föstum áætlunarferðum vörubíls með afurðir frá garðlöndunum. Þá verður vakið máls á því að koma upp miðlun á lyfjum til vama gegn kálflugu og öðrum skað- ræðisdýrum í garðlöndum, og að tryggja garðleigjendum ör- ugga vetrargeymslu fyrir afurðir sínar í því sambandi má minna á að nú er hafinn innflutning- ur kartaflna, þar sem fyrra árs framleiðsla er á þrotum; og hafa menn nú mikinn hug ú að rækta sem mest í sumar. Garðleigjendafélagið er ekki nema eins árs gamalt, og virð- ist það hafa allmiklum verkefn- urn að sinna. Til dæmis geta garðleigjendur ekki fengið ýms varnarlyf gegn meindýrum í görðum í minna en 20 lítra brúsum — þótt þeir þurfi kann- ski ékki nema á fáeinum grömm- um að halda; og er það eitt málið sem á að ræða í kvöld. VJndirritið Vínarávarpið í dag - Sendið undirskriftalistana um hæl

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.