Þjóðviljinn - 13.05.1955, Side 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 13. mai 1955
nm
Auglýsing
i skoSun bif reiða í Gnllbringii-
og K jósársýsln og Hafnar-
fjarðarkaupstað
Aðalskoðun bifreiða í Gullbringu- og Kjósarsýslu
og 1 Hafnarfjarðarkaupstað fyrir árið 1955, fer
fram dagana frá 20. maí — 7. júlí eins og nánar
verður tiltekið hér að neðan og fer skoöunin fram
tilgreinda daga frá kl. 9—12 f.h. og 1—5 e.h. eins
oghér segir:
Giindavík
Föstudaginn 20. maí, við barnaskólann.
Sandgerði
Mánudaginn 23. maí og þriðjudaginn 24.
maí, við vörubílastöðina í Sandgerði fyrir
aílar bifreiðar og bifhjól í Miðneshreppi._.
Að Bör komi að nýju — Að finna framhaldssögur
— Að útvarpsstjóri lesi Bittu
ÞAÐ HRINGDI maður til Bæj-
arpóstsins í gærmorgun og
kvaðst hafa tillögu fram að
færa. í fyrrakvöld hefði sem sé
Helgi Hjörvar flutt kafla í út-
varpið úr Bör Börssyni, og
hefði það verið einhver bezti
lestur sem hann hefði lengi
heyrt. Helgi hefði flutt alla
(eða nær alla) söguna fyrir
röskum tíu árum, og þá hefði
hún notið meiri vinsælda en
nokkur önnur útvarpssaga fyrr
og síðar; þess vegna væri
kannski nógu langt umliðið til
þess að flytja hana aftur. Þús-
undir nýrra útvarpshlustenda
hefðu vaxið úr grasi þessi
rösku tíu ár, og þúsu*idir
þeirra sem þá hlýddu á söguna
mundu fagna endurfundum við
hana — og sitthvað fleira sagði
þessi upphringjari Póstsins.
FJÖLSKYLDAN hér á Bæjar-
pósthúsinu hlustar ekki á fram-
haldssögur, og getur því tæpast
lagt orð í þennan belg. Við telj-
um þó sjálfsagt að koma þess-
ari tillögu á framfæri, og það
Garði
Miðvikudaginn 25. maí fyrir Gerðahrepp,
við vörubílastöðina.
Ytri-Mjjarðvík
við húsið Herðubreið. Fimmtudaginn 26. og
föstudaginn 27. maí fyrir allar bifreiðar úr
Njarðvíkurhreppi.
Vogum,
við frystihúsið þriðjudaginn 31. maí fyrir
allar bifreiðar úr Vatnsleysustrandarhreppi.
Hiégarði
Miðvikudaginn 1. júní, fimmtudaginn 2. júní
og föstudaginn 3. júní'fyrir allar bifreiðar
og bifhjól úr Kjósarhreppi, Kjalarneshreppi
og Mosfellshreppi.
Kópavogi,
við barnaskólann. Fimmtudaginn 9. júní og
föstudaginn 10. júní, fyrir Kópavogshrepp
og Seltjarnarneshrepp.
Hafnariiörður
Fimmtudaginn 16. júní, þriðjudaginn 21.
miðvikudaginn 22., fimmtudaginn 23., föstu-
daginn 24., þriðjudaginn 28., miðvikudaginn
29., fimmtudaginn 30. júní, föstudaginn 1.
júlí, þriðjudaginn 5., miðvikudaginn 6. og
fimmtudaginn 7. júlí. Skulu þá allar bifreið-
ar og bifhjól úr Hafnarfirði og Bessastaöa-
og Garðahreppi færð til skoðunar á Vöru-
bílastöö Hafnarfjarðar.
Ennfremur fer þá fram skoðun á öllum bifreið-
um, sem eru í notkun á áður tilgreindum stöö-
um, en skrásettar utan umdæmisins.
Við skoöun skulu þeir, sem eiga tengivagna eöa
farþegabyrgi koma með þau um leiö og bifreiðin
er færð til skoöunar.
Þá skulu ökumenn bifreiða leggja fram fullgild
ökuskírteini við skoðim. Vanræki einhver að koma
bifreið sinni til skoðunar á réttum degi, verður
hann látinn sæta ábyrgð samkvæmt bifreiðalög-
um og bifreiðin tekin úr umferð af lögreglunni,
hvar sem til hennar næst. Ef bifreiðaeigandi (um-
ráðamaður) getur ekki af óviðráðanlegum ástæð-
um fært bifreið sína til skoðunar á réttum tíma,
ber honum að koma á skoöunarstaö og tilkynna
það. Tilkynningar í síma nægja ekki. Bifreiða-
skattur fyrir árið 1955 (1. jan. 1955 — 31. des.
1955) skoðunargjald og iðgjald fyrir vátryggingu
ökumanns, verða innheimt um leið og skoðun fer
fram. Sama og sagt hefur verið um bifreiðar gildir
um bifhjól.
Þetta tilkynnist öllum, er hlut eiga að máli.
Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu
og bæjarfógetinn í Hafnarfirði, 6. maí 1955
Guðmuitdur í. Guðmundssott
Árbók skálda 1955
kemur út að hausti og verður efni liennar að þessu sinni:
Sögur og þættir
eftir unga höfunda frá árunum 1945—‘55. — Valið verður
úr birtu efni og óbirtu eins og í Ljóð ungra skálda og
miðað við sama aldur höfunda og þar. — Sögurnar mega
ekki fara fram úr 3000 orðum að jafnaði, þótt undan-
tekningar kunni að verða gerðar, ef séretök ástæða þykir
til. Öll handrit, sem ekki hafa birzt áður, skulu vera
vélrituð, með hæfilegum línubilum. — Ekki verður tekin
ábyrgð á endursendingu handrita. — Mynd og rithand-
arsýnishorn höfundar fylgi. — Handrit skulu hafa borizt
ritstjóranum, Magnúsi Ásgeirssyni, Suðurgötu 57, Hafn-
arfirði (sími 9370) fyrir 31. júlí n.k.
Æskilegt er, að þeir höfundar sem óska að koma til
greina við val efnis í Árbókina, gefi sig fram við rit-
stjórann sem fyrst, og mun hann þá veita þeim nánari
upplýsingar, svo sem um ritlaun, og sérstök verðlaun,
sem veitt verða fyrir beztu söguna, áður óbirta, að mati
þriggja manna nefndar.
Bókaútgáfan HELGAFELL
Þjóðviljann vantar ungling
til blaðburðar í
SKIÖLIN
TaliS viS algreiSsiuna. Sími 7500.
Bifreiðœigendur
Gjaldfrestur á iðgjöldum fyrir hinar lögboðnu ábyrgð-
artryggingar (skyldutryggingar) bifreiða er útrunninn
14. þ.m., og eru bifreiðaeigendur alvarlega áminntir um
að greiða iðgjöldin nú þegar.
Þeir, sem sögðu upp ábyrgðartryggingum fyrir bifreið-
ir sínar 1. þ.m., en hafa eigi tekið tryggingu á ný, eiga á
hættu, að þeir verði gerðir ábyrgir fyrir þeim tjónum,
er þeir kunna að valda.
Bifreiðatryggingafélögin
því fremur sem við höfum
heyrt ávæning af ýmsum erfið-
leikum útvarpsráðs um val út-
varpssagna, bæði fyrr og síðar.
Til dæmis mun valið á nýjustu
útvarpssögu hafa borið að með
allsviplegum hætti, ef svo má
að orði komast; og heyrt höf-
um við því fleygt að sagan
verði þeim mun lélegri sem
lengra líður á hana — og kunna
þá Gunnari okkar Benedikts-
syni að bregðast vonir um
hana. Og ef minnið svíkur
okkur ekki, þá var síðast í
haust farið fram á það við út-
varpshlustendur að þeir bentu
útvarpsráði á góðar framhalds-
sögur í útvarpið, en ekki hefur
heyrst neitt um árangur af
þeirri málaleitan.
ÞAÐ ER TIL afskaplega mikið
af mætum bókmenntum í ver-
öldinni, þannig að Ríkisút-
varpið mundi aldrei verða
uppiskroppa með góðar sögur,
ef þeir sem um þau mál fjalla
væru nógu kunnugir heims-
bókmenntunum. En útvarps-
sögur þurfa að uppfylla eitt
skilyrði alveg óhjákvæmilega:
það þarf að vera í þeim sterk-
ur söguþráður, og atburðirnir
þurfa að ganga tiltölúlega hratt
fyrir sig. Bæjarpósturinn leyfir
sér í allri auðmýkt og lítillæti
að stinga upp á Ðittu manns-
barni, og honum kemur meira
að segja til hugar hvort sjálfur
útvarpsstjórinn mundi ekki vel
fallinn til að lesa hana. Hann
mun aldrei hafa lesið útvarps-
sögu áður; og mun það eina
grein útvarpsefnis, að frátöld-
um skákþætti og alþingisum-
ræðum, sem hann hefur ekki
farið ,,höndum“ um. Þó væri
hann kannski enn betur fallinn
til að lesa vesalingana hans
Hugos, enda rámar mig í að
Þorsteinn Gíslason hafi gefið
þá út í þýðingu þeirra Kvar-
ans-feðga: Einars og Ragnars.
Eða hvernig væri að leita aft-
ur til upphafs skáldsögunnar
og taka Don Kvísóta eða ein-
hverja sögu eftir Fielding? Um
að gera að binda sig ekki ein-.
göngu við Maugham eða Bojer.
SKlpAHTCCRO
RIKISINS
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■«■•■■■■•)
M
vestur um land til Akureyrar
hinn 18. þ.m. Tekið á móti flutn-
ingi til Tálknaf jarðar, Súganda-
fjarðar, Húnaflóa- og Skaga-
fjarðarhafna, Ólafsfjarðar og
Dalvíkur í dag. Farseðlar seldii'
á þriðjudag.
SkafiíeHíngiir
fer til Vestmannaeyja í kvöld.
Vörumóttaka í dag.
Herðubreið
austur um land til Þórshafnar
um miðja næstu viku. Tekið á
móti flutningi til Hornafjarðar,
Djúpavogs, Breiðdalsvíkur,
Stöðvarfjarðar, Fáskrúðsfjarð-
ar, Borgarfjarðar, Vopnafjarð-
ar, Bakkafjarðar og Þórshafnar
árdegis á laugardag og á mánu-
dag. Farseðlar seldir á þriðju-
dag.