Þjóðviljinn - 13.05.1955, Side 9
Föstudagur 13. maí 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (9i
r
ÍÞRÓTTIR
RtTSTJÖRl. FRtMANN HELGASON *
¥IB þurfum að ffölga sundstöð-
unurn og aukcs kennaraliðið
Vi&fal við Jón Pálsson sundkennara
Niðurlag.
Er slíll sundnianna þýðdng-
armikill?
Nú eru menn að komast á þá
skoðun að stíllinn sé einskis-
virði, það sé aðeins þrekþjálf-
unin sem um sé að ræða. Kyput
taldi það aukaatriði að kenna
mönnum stíl og eru margir
hrifnir af þessu, bara að farar af-
stað, og þá kemur allt af sjálfu
sér. Þessi kenning sýnir okkur
,að smáþjóðir mega ekki gleypa
við öllu frá stórþjóðunum sem
góðri og gildri vöru. Það er
engan veginn víst, að það sem
talið er gott í Bandaríkjunum,
henti okkur. Við verðum að
halda vel utan um allan okkar
efnivið og kenna sundmönnum
allt sem við getum. Tugmilljóna-
þjóðirnar hafa aftur á móti ráð
á því að benda þúsundum af
mönnum fyrir borð, ef svo mætti
segja, af því að þjálfararnir
telja sig hafa of mikið fyrir því
að gera þá góða.
Eitt lítið dæmi: Mjög efni-
legur sundmaður hefur þann
mikla ókost að skorta þol. Við
nánari eftirgrennslan kemur það
fram að hann hefur of granna
öndun (eingöngu brjóstöndun).
Við hér myndum leggja okkur
fram um að laga þennan galla
mannsins með því að. kenna hon-
um þindaröndun eða kviðarönd-
un. Með þeirri öndun fá menn
miklu meira loft. Undir öllum
kringumstæðum fer manninum
geysimikið fram er hann hefur
lært þetta vel.
Hjá stórþjóðunum er þessum
rnanni lofað að dragast aftur
úr af því að hann hefur ekki
Danir og Ungverj-
ar keppa ásunnn-
dag
Eíils og kuimugt er, er landslið
Ungverja í knattspyrnu nú á
keppnisferðalagi um Norðurlönd
og hefur þegar háð tvo lands-
leiki. S.l. sunnudag kepptu Ung-
verjarnir við Norðmenn í Osló
og sigruðu með 5 mörkum gegn
engu (2—0 í hálfleik). í fyrra-
dag kepptu þeir við Svía í Stokk-
hólmi og sigruðu enn með 7
mörkum gegn 3 (4—1).
N.k. sunnudag keppa Ungverj-
ar við Dani í Kaupmannhöfn.
Danska liðið hefur verið valið
og er þannig skipað: Per Henrik-
sen; Johs. Schmidt og Börge
Bastholm Larsen; Erik Jensen,
Finn Jörgensen og Jörgen Ole-
sen; Jörgen Ilansen, Knud Lund-
berg (fyrirliði), Vagn Birkeland,
Jens Peter Hansen og Poul Pet-
ersen. Væntanlega fáum við að
sjá einhverja ef ekki flesta af
þessum dönsku knattspyrnu-
mönnum á íþróttavellinum hér í
Reykjavík í júlíbyrjun í sumar.
fundið það út sjálfur.
Ég álít það vera fyrsta atrið-
ið til að ná góðum árangri að
læra hrein og góð sundtök. Hinn
hreini og góði sundstíll er ekkert
annað en það sem allir þjálfar-
ar hafa keppzt við að finna út
og reynslan hefur sýnt að reyn-
ist bezt fyrir fjöldann. Innan um
kome svo alltaf menn sem brjóta
þessar reglur og ná samt ágæt-
um árangri.
Á þessa menn er sífellt verið
að benda sem dæmi um, að
góður stíli sé einskis virði. '
í gamalli sundbók las ég einu
Leikur þessi var frá upphafi
til enda jafnK og tvísýnt til síð-
ustu stundar, hvor drægi sigur-
inn heim. Jafnteflið var því
nokkuð sanngjamt eftir gangi
leiksins.
Leikurinn hafði aðeins stað-
ið í 6 mín. þegar KR fékk vita-
spyrnu á Val sem Gunnar Guð-
mannsson skoraði úr, óverjandi,
en Valsmenn létu engan bilbug
á sér finna og sóttu sem hai-ð-
ast og eftir 4 mín. höfðu þeir
jafnað. Eftir áhlaup hægra meg-
in myndast nokkur þröng fyrir
framan KR. Hilmar nær að
lyfta knettinum mjúklega aftur
fyrir sig til Gunnars Gunnars-
sonar sem er þar frir og skorar
óverjandi. Liðin sklptast á að
gera áhlaup og þrátt fyrir nokk-
urn norðanvind sem Valur lék
gegn lá ekki á Val nema um
stund um miðjan hálfleikinn. í
þdirri sóknarlotu skall hurð
nærri hælum hjá Val. Þorbjörn
hafði komizt innfyrir og orðið
á undan Helga Daníelssyni að
koma fæti á knöttinn og skjóta,
en skotið lenti í þverslá og
hrökk knötturinn inná völlinn
aftur. Helgi var úti á teignum
en Hörður Felixson (KR) skaut
framhjá mannlausu markinu.
Næst er það Hilmar Magnús-
son sem á færi á að skjóta en
er of seinn. Fimm mín. fyrir
hálfleik fær KR aukaspyrnu
nokkuð fyrir utan vítateig.
Sverrir Kærnested spyrnir og
hinn viðbragðsfljóti Þorbjörn
nær að skalla í mark áður en
Valsmenn höfðu áttað sig á að
gæta hans.
Síðari hálfleikur var svipaður
þeim fyrri. Mótvindurinn virt-
ist ekkert trufla KR og skiptust
liðin á um áhlaupin eins og
fyrr. Virtist ekkert draga úr
hraða leiksins þó á liði og var
ekki hægt að sjá á liðunum að
þau væru í „vorþjálfun" eins og
viðkvæðið hefur verið undan-
farin ár til afsökunar lélegum
leikjum. Enda hitnaði áhorfend-
um í hamsi þrátt fyrir allan
sinni að góður sundmaður ef-
aðist um að fótatök ættu rétt á
sér í skriðsundi, af því að hann
var allra manna fljótastur án
þess að nota fótatök.
Erlendir sundsérfræðingar
halda því nú fram að fótatökin
gefi 10—30% af hraðanum. Nú
vita allir að um leið og fótatökin
dofna stórdregur úr hraðanum.
Þrátt fýrir það að góður stíll
sé mikils virði er ég andvigur
því að rugla saman stílkennslu
og þrekþjálfun á gamalæfðum
sundmönnum. Það er að vísu
Framhald á 10. síðu.
kuldann og þeir gáfu spenningi
sínum útrás með áköfum ópum,
er áhlaupin brunuðu fram til
skiptis. Og áhorfendur sögðu
hver við annan, ef þetta á að
ganga svona til í sumar verður
komandi á völlinn. Við fengum
nefnilega að sjá unga fríska
pilta sem börðust af karl-
mennsku fyrir sigri félags síns.
Þetta hefur vantað undanfarin
ár í leiki félaganna hér þegar
þau hafa leikið saman. —
Úr einu áhlaupinu, sem Valur
gerir á Hörður Felixson (Val)
mjög fast skot á markið sem
Ingi í marki KR ver en varð
þó horn úr. Það er þó ekki fyrr
en 24 mín. eru af hálfleik sem
Gunnari Gunnarssyni tekst að
jafna fyrir Val, með lauáu skoti,
sem markmaður gat ekki áttað
sig á vegna varnarveggs er á
skyggði, og þar við sat. 2:2
urðu úrslitin, og ég held að á-
horfendur hafi á samri stundu
gert ráð fyrir öðrum leik milli
KR og Vals og hlakkað til.
KRingar voru með sama lið
og í Þróttarleiknum, og virtust
nú ákveðnari og náðu betri sam-
leik og tökum á leik sínum.
Framlínan var samstilltari með
Gunnar G. sem bezta mann.
Framhald á 11. siðu.
Sundmót í
Hafnarfirði
í kvðld
Sundfélag Hafnarfjarðar minn-
ist 10 ára afmælis sins með fjöl-
breyttu sundmóti í Sundhöll
Hafnarfjarðar í kvöld kl. 8,30.
Keppendur verða frá Hafnar-
firði, Reykjavík, Keflavík og
Akranesi og meðal þeirra flest-
ir beztu sundmenn landsins.
Einnig sýnir dýfingarflokkur,
sem æft hefur á vegum félagsins.
Er það í fyrsta skipti sem dýf-
in^ar eru sýndar í Hafnar-
firði.
Reykjavíkurmótið
Valur og KR skildu jöfn
Gunnœr M. Magnúss: ,
Börnin frá Víðigerði
Og þegar nafn bóndans og föðurnafn og nafn
konunnar var komið í ameríska bók, með enskri
hendi, gátu allir séð, að hér var engum gleym'f,
þó að fólk biði afsíðis, rólegt og kurteist, og þó að
Ameríkanarnir hefðu í mörgu að snúast, bæði fyr-
ir sjálfa sig og aðra.
En sumir urðu að bíða eilífðartíma og áttu
erfitt með að vera kurteisir allan þann tíma,
svo að þeir sem frekastir voru, sögðu bara tölu-
vert hátt, að íslendingar hefðu varla sýnt svona
kurteisi og' látprýði á hreppaskilum heima á
gamla landinu.
Já, en var það nú ekki nokkur munur, fanst
öllum hinum, sem biðu og fundu, að þeir voru
kurteisir frá hvirfli til ilja.
Víðigerðisfólkið var búið að bíða lengi með
hinni almennu þolinmæði, þegar Ameríkaninn og
túlkurinn komu til þess. Bændurnir stóðu þar
með hinni mestu prýði og létu ekki hið minnsta
bera á því, að þeir væru orðnir dálítið vondir
yfir því að vera svona aftarlega í röðinni, og eins
af hinu, að tvo strákana vantaði í f jölskyldurnar,
þá Stjána og Geira. Það gerði nú kannski ekki
svo mikið til með Stjána, því að hann var ýmsu
vanur, en Geiri hlaut að hafa lent í einhverju, úr
því að hann var ekki nálægt samferðafólkinu.
Og Guðmundi bónda leið illa, þar sem hann stóð
og skimaði í allar áttir, og allir töldu víst, að nú
hefði Stjáni langi narrað Geira út í einhverja
vitleysu ok komið þeim í klípu með ókurteisi og
glannaskap. .
En rétt í því að Ameríkaninn og túlkurinn voru
að fara frá Víðigerðisfólkinu, kom Stjáni blístr-
andi þvert yfir torgið, gleiðstígur, ófeiminn og
brosandi út í annað munnvikið, snaraðist að hlið
Finns bónda, brá hendinni upp að gagnauganu,
hneigði höfuðið ofurlítið og sagði hýrlega við
Ameríkanann: „So long, Sir“.
^■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■••■W
{ {
Unglingar! !
Tokið effir!
Málarameistarafélag Beykjavíkur gengst fyrir liæfnis-
prófi fyrir unglinga sem hugsa sér að hef ja nám í málara-
iðn.
Þeir unglingar sem myndu vilja komast að námi nú í
vor, verða að hafa gengið undir slíkt próf, og ber þeim að
mæta til innritunar laugard. 14. maí kl. 20.30 í Nýja
Iðnskólanum. Gengið inn frá Skólavörðuholti.
Prófgjald er kr. 100,00.
Málammeistaraiélag Reykjavskur
Bifreiðaskaftur. {
Skoðunargjald og vátryggingariðgjald ökumanna
bifreiöa féll í gjalddaga 2. janúar s.l. Gjöld þessi |
ber aö greiða í tollstjóraskrifstofunni, Arnarhvoli,
hið fyrsta, enda ber umráöamanni bifreiðar aö |
sýna kvitun fyrir gjöldunum við skoöun bifreiöar- :
innar.
Athugiö aö gjöldunum er ekki veitt móttaka í :
bifreiöaeftirlitinu eins og aö undanförnu, og þurfa |
því að greiðast hér í skrifstofunni áöm’ en skoöun |
fer fram.
Reykjavik, 9. maí 1955
Tollstjóraskrífstofan,