Þjóðviljinn - 10.06.1955, Page 6
■W6) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 1Ö. júní 1955
þJÓOVIUINN
Útgafandl: Samelnlngarflokkur alþýBu — Sós!alistaflokkurlzm.
Ritstjórar: Uagnús Kjartansson, Sigurður Quðmundsson (áb.)
Fréttastjórl: Jón Bjarnason.
BlaBamcnn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarnl Benediktsson, Qu8-
mundur Vigfússon, Ivar H. Jónsson, Magnús Torfl Ólafsson.
Auglýsingastjórl: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiCsla, auglýsingar, prentsmlSja: BkólavörBustíg
19. — Síml 7500 (3 línur).
ÁskriftarverB kr. 20 & mánuði I Reykjavík og nágrenni; ta. 1T
annars staSar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. einlaklB.
r»-»ntPToiBia 'ÞióBvillanp h.f.
———— -----------------------------------------------/
Aukning togaraflotans hindruð
Þegar Þjóðviljinn benti á það að gefnu tilefni fyrir nokkrum
dögum að jafnt Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn
liefðu á þinginu í vetur staðið eins og veggur gegn hinum mestu
nauðsynjamálum sjávarútvegsins og réttlætismálum sjómanna,
varð Morgunblaðið sárreitt. Að nokkur skyldi voga sér að
rninnast á það að Sjálfstæðisflokkurinn væri ekki hinn eini og
^anni flokkur sjómanna og sjávarútvegs! Og sú ósvífni að
minnast á baráttu „heiðurssjómannsins“ Ólafs Thórs gegn því
eð togarahásetarnir fengju lögboðinn 8 stunda hvíldartíma á
sólarhring hlaut að koma af einskærri mannvonzku! Annað varð
ekki skilið á því blaði þann daginn.
Þjóðviljinn leyfði sér svo að gefnu þessu nýja tilefni að
minnast á nokkrar frekari staðreyndir um þessi mál, og brá
þá svo við að ritstjóri Morgunblaðsins taldi heppilegra að
venda leiðara sínum í kross, og fara að spjalla um Adenauer
og Rússa.
Eitt brýnasta nauðsynjamál þjóðarinnar er endurnýjun tog-
araflotans.
Frumvarp sósíalistanna fjögurra, Karls Guðjónssonar, Lúð-
víks Jósefssonar, Gunnars Jóhannssonar og Einars Olgeirssonar,
f jallaði um það að ríkið keypti erlendis frá tíu fullkomna togara,
og skyldi auk þess láta smíða tvo togara af fullkomnustu gerð
í íslenzkum skipasmíðastöðvum. Skyldu þær ráðstafanir miðaðar
við að smíði þessara tíu togara yrði lokið á tveimur nasstu árum,
1956 og 1957. Skyldi ríkisstjórninni heimilt að selja skipin ein-
staklingum, félögum, bæjarfélögum eða sveitarfélögum eða hafa
þau og reka í eigu rikisins til atvinnujöfnunar.
Hér var ekki farið fram á meiri framkvæmdir í þessum efnum
en þær allra nauðsynlegustu, um það munu flestir þeir sammála
sem þekkja til sjávarútvegs Islendinga. I umræðunum um þessi
mál á þinginu I vetur eins og jafnan endranær bentu sósíalistar
á að togaraútgerðin er afkastamesta og að ýmsu leyti bezta út-
gerð Islendinga, þjóðhagslega séð. Þeir sýndu fram á að íslend-
ingar eru sífellt að sækja á fjarlægari mið, og líkur séu til þess
að veiðar á fjarlægum miðum fari í vöxt. Engin fiskiskip í eigu
Islendinga aðrir en togaramir eru vel til slikra veiða fallin.
Nýsköpunartogaramir em nú orðnir níu ára gamlir, og því aug-
ljóst að endumýjun flotans fer að kalla að smám saman á næstu
ámm, auk þess sem núverandi togarafloti landsmanna er of lít-
ill. Hafa rök sósíalista um nauðsyn ráðstafana til endumýjunar
togaraflotans sannazt áþreifanlega þar sem tveir nýsköpunar-
artogarar hafa farizt á þeim fáu mánuðum sem liðnir era frá því
framvarp sósíalista var flutt. Og málið er ekki leyst með því
einu að reynt sé eftir á að fylla í skörð þeirra togara sem farast.
Árin fyrir heimsstyrjöldina vom skipin orðin léleg og var
fyrst og fremst hugsað um endumýjun flotans í saxnbandi við
þau 33 skip sem keypt vom á nýsköpunaráranum. Var ekki
reiknað með því að gömlu togaramir hyrfu jafnfljótt úr sögunni
<jg raun varð á. Þau fáu skip sem enn em talin á skipaskrá em
ólíkleg til framleiðslu svo nokkm nemi úr þessu. Auk togaranna
frá nýsköpunarámnum hefur ríkissjóður látið smíða 10 togara,
svo nú era í eigu landsmanna 41 nýlegt skip, og aðrir togarar em
-ekki gerðir út að staðaldri.
Því má ekki gleyma að nú em margfaldir möguleikar til hag-
nýtingar togaraafla hér á landi móts við það þegar ekki var um
annað að gera en að flytja fiskinn út ísvarinn eða salta hann, en
einmitt sú staðreynd sýnir að þjóðinni er hagstætt að leggja
aukna áherzlu á togaraútgerð. Hraðfrystihúsin valda þar mestu
um en skreiðarverkunin á einnig sinn þátt í því.
Þingmenn Sósíalistaflokksins lögðu áherzlu á að togaraútgerðin
hljótj að verða í vaxandi mæli ein styrkasta stoðin undir sjálf-
stæðu atvinnulífi þjóðarinnar og því væri brýn nauðsyn að ekki
kæmi til stöðvunar í þróun hennar. Því lögðu þeir til að gerðar
yrðu tafarlaust ráðstafanir til að auka togaraflotann um tíu skip
af fullkomnustu gerð. Með ákvæðinu um smíði tveggja skipa inn-
enlands var farið inn á braut sem líkleg væri til að hafa mjög
farsæl áhrif á þróun íslenzks iðnaðar og skapa möguleika til end-
umýjunar togaraflotans hér á landi.
Þetta nauðsynjamál stöðvuðu Sjálfstæðisflokkurinn og Fram-
sóknarflokkurinn. Engin rödd heyrðist úr þeim flokkum sem benti
til þess að þar væri fyrir skilningur á þessu mikla nauðsynja-
ináli þjóðarinnar allrar. Þinglið þessara flokka reis eins og vegg-
«r gegn framgangi þess. Það er staðreynd sem Morgunblaðið og
stjómarflokkunum tekst ekki að hlaupa frá, hvað sem Rússum
Jíður og Adenauer.
oöía .01 & bíasUm^t 'M, ztúíhlh iiihí.:'ioii.)ísAe ía:
Fimmta heimsmót æskunnar í Varsjá
I dag em aðeins 42 dagar
þangað til hópurinn leggur
af stað til Varsjár. Eins og
áður hefur verið getið um í
dálkum þessum hefur undir-
búningsnefndin tryggt
125 farþegarúm til
ferðarinnar, en aðeins
5-6 eru nú eftir, og
síðustu dagana hafa
þátttökubeiðnir borizt
mjög ört. — 1 ráði er
að reyna að fá 25 far-
þegarúm í viðbót, en
að svo stöddu er ekki
hægt að segja um,
hvort það tekst. Allar
vonir standa þó til að
svo verði. — Enn sem
komið er er kórinn
ekki orðinn nægilega
fjölmennur, en þátt-
taka í honum hefur þó
stöðugt vaxið. Þá hefur og
fengizt danskennari til að
þjálfa hóp þátttakenda í
þjóðdönsum og munu æfing-
ar byrja í næstu viku. Þeir
þátttakendur, sem áhuga hafa
á þjóðdönsum em því beðn-
ir að gefa sig fram við undir-
búningsnefndina hið allra
fyrsta. Þá er og þeim tilmæl-
um beint til þeirra, sem hafa
hugsað sér að taka þátt í
mótinu, að koma beiðnum sín-
um um þátttöku á framfæri
við undirbúningsnefndina, þar
sem viðauki þátttökunnar frá
þvi sem nú er byggist á því
að vitað verði nokkura veg-
inn hve margir muni bætast
við.
(Einsöngvari hér í bænum
hefur gefið vilyrði fyrir því
að koma fram á mótinu og
kynna íslenzka tónlist,
1 ráði er að bjóða a.m.k.
2 íþróttamönnum til þátttöku
í íþróttaleikjum þeim sem
fram fara á mótsstað, en í
leikjum þessum taka þátt
margir frægustu íþróttamenn
heimsins. Talið er, að nokkr-
ir beztu íþróttamenn Banda-
ríkjanna muni sækja mót
þetta og er það nú til ákvörð-
unar hjá forystumönnum
taki þátt í mótinu, má segja
að mót þetta verði að öllu
leyti heimsmót I íþróttum.
1 Varsjá fara einnig fram
kappleikir í knattspymu og
gefst þátttakendum tækifæri
til að sjá ungversku meist-
arana og önnur þau beztu
knattspymulið, sem til em.
Margar þjóðir hafa þegar lát-
ið skrá sig til keppni í
knattspymu, svo sem Dan-
mörk, Súdan, ísrael, Ung-
verjaland, Rúmenía, Tékkó-
slóvakía, Rúmenía ofl. Er það
ekki alltaf sem manni gefst
kostur á að sjá beztu knatt-
spymulið heimsins að leik.
1 blaði alþjóðaundirbúnings-
nefndarinnar var nýlega birt-
ur útdráttur úr bréfi norsku
undirbúningsnefndarinnar þar
sem segir svo:
„Við óskum sérstaklega
eftir þvi að koma á vin-
áttufundi með sendinefnd-
um eftirtalinna landa: Pól-
lands, Ráðstjómarríkjanna,
Frá og mcð ló.júni nk. verövr
shrifstofa undirbúningsncfndar-
innar opin alla virka daga. f'á
hádegi og fram á kvöld. Verða
þar allar uþplýsingar gefnar
varðandi undirbúninginn. —
Starfsmaður nefndarinnar á
skrifstofunni er Kjartan Ólafs-
son, stud. mag. Skrifstofan er
að 'Þingholtsstrceti 27, II. hað.
íþróttahreyfingarinnar þar, og
ekki vonlaust að þeir muni
þiggja boðið. Verði þátttaka
Bandaríkjanna og Vestur-
Evrópu tryggð, þannig að í-
þróttastjömur þessara landa
ALÞJÓDASÖNGUR
ÆSKUNNAR
Yfir heimsbyggðir allar
tengir æskan .sín vináttubönd.
Tímans kvöð okkur kallar.
Heimta kúgaðar þjóðir sín lönd.
Heyrið heit hinna ungu
hljóma’ á sérhverri tungu:
— Harm skuium sefa,
heiminum gefa
hamingjuríka tið.
Þvi mun æskan trútt um heiminn
halda vörð
hvern einn dag, hverja stund.
Hún mun tryggja fólksins rétt
og frið á jörð,
frjálsum lýð frjálsa lund.
Æska, þinn söng
láttu hljóma glatt frá strönd að
strönd,
láttu rætast fólksins draum um
frið á jörð.
Frið á jörð! Frið á jörð!
Minnumst dapurra daga,
góðra drengja, sem háðu vort stríð.
Horfnu lietjanna saga
geymist heilög um ókomna tíð.
Arfsins æskan mun njóta,
áfram leiðina brjóta,
Senn á þeim vegi
sólríkum degi
sameinuð fögnum vér.
Því mun æskan trútt, osfrv.
Lífsins straumur er stríður,
ekkert stöðvar hinn framsækna lýð.
Önnur öld okkar biður,
■
; líf án ótta við þjáning og stríð.
Brasilíu, Indónesíu, Kína, j Æska, þú átt að þekkja
Bandaríkjanna og Islands. * þá, er sundra og blekkja.
Má annaðhvort skipuleggja • Úlfúð skal víkja,
þessa fundi sem skemmti- j vinátta ríkja
fundi eða umræðufundi um | vítt yfir alIn. jörð.
málefnl æskunnar", 5 Þvi mun æskan trútt, osfrv.
- ’ ^ ‘ • f •’ E. B. þýddi.
IMUIIIIRIMIIIIIIIianilMfHIIMIIIIIIIUIIIIIIIHIHHIIIIMmilHHHIinili