Þjóðviljinn - 23.06.1955, Page 1
Fimmtudagur 23. júní 1955 — 20. árgangur — 137. tölublað
Komið að Vesturveldyfium að sýna
samkomulagsvilja, segir Molotoff
Leggur fram í San Francisco tillögur um hversu bund-
inn verSi hi<$ fyrsta endir á kalda striSiS
íslendingar á
friðarþinginu
Þrír Islendingar a. m. k.
sitja þing Heimsfriðarhreyfing-
arinnar í Helsinki, Arirfinnur
Jónsson skólastjóri, frú Sigríð-
ur Eiríksdóttir og Skúli Þórð-
arson sagnfræðingur.
Þeir einstaklingar og félög
sem vilja senda þinginu kveðju,
geta stílað hana til World
Assembly for Peace, Helsinki.
Söfnunin undir Vínarávarpið
heldur áfram af fullum krafti.
Ættu menn að láta friðarþing-
ið verða sér áminningu um að
draga ekki lengur að skrifa
undir.
Valtséslav Molotoff, utanríkisráSherra Sovétríkjanna
lagði í gær fram tillögur stjómar sinnar, um hversu bund-
inn veröi endir á kalda stríöið. Hann tók til máls á 10 ára
afmælishátíð SÞ í bandarísku borginni San Francisco.
Molotoff kvað það óhrekjan-
3ega staðreynd að meginábyrgð-
in á varðveizlu friðar og ör-
yggis í heiminum hvíldi nú á
tveinr ríkjunf, Bandaríkjunum
og Sovétríkjunum. Sovétstjórnin
gerði sér þessa ábyrgð ljósa og
því hefði hún borið fram tillög-
ur sínar um afvopnun. Þar hefði
hún fallizt á tillögur Vesturveld-
anna um afvopnun að því tekur
til eldri vopna. Nú væri komið
að Vesturveldunum að taka
næsta skrefið og varla væri til
of mikils mælzt að þau féllust
á tillögu sovétstjórnarinnar um
bann við kjarnorku- og vetnis-
vopnum.
Stöðugt eftirlit
Um tillögur sovétstjórnarinnar
um eftirlit með afvopnun sagði
Molotoff, að þar v'æri gert ráð
fyrir því að föst stofnun hefði
eftirlitið með hendi. Starfsmenn
hennar skyldu hvar og hvænær
sem væri hafa fullan aðgang að
þeim stöðum, þar sem eftirlit
þyrfti að fara fram til þess að
tryggja það að afvopnunarsamn-
ingarnir væru ekki rofnir.
Molotoff gat sjö ráðstafana,
sem gera þyrfti til að lægja við-
sjár í heiminum og binda endi á
kalda stríðið:
Öllum stríðsáróðri sé hætt.
Stórvéldin semji sín í milli
um að leggja niður allar her-
stöðvar sinar í öðrum löndum.
Samningur sé gerður um af-
vopnun.
Allt hernámslið fari úr.
Þýzkalandi.
Samið sé um lausn ágrein-
ingsmálanna í Austur-Asíu.
Kjarnorkan verði hagnýtt til
friðsamlegra þarfa og þjóðum
sem skammt eru á veg komnar í
tækniþróun veitt aðstoð.
Létt verði hömlum af milli-
ríkjaviðskiptum og samskiptum
þjóða og þeim auðveldað að
kynnast hver annarri með
auknum ferðalögum.
Kína og SÞ
Molotoff kvað það augljóst, að
Kína yrði að vera aðili að hverj-
um þeim afvopnunarsamningi
sem gerður yrði. Vinda þyrfti
bráðan bug að því að veita Kína
sætið sem því ber meðal SÞ og
viðurkenna rétt þess til Taivan
og nálægra eyja.
Hann sagði að sovétstjórnin
vildi að á öndverðu næsta ári
Molotoff
yrði kölluð saman ráðstefna
allra ríkja til að semja um
afvopnun. Síðar þyrfti að koma
saman alþjóðleg viðskiptaráði-
stefna.
Um tvennt að velja
Öllum má vera ljóst, sagði
Molotoff, að ef haldið er áfram
að skipta heiminum í andstæð
hernaðarbandalög og ef vígbún-
aðarkapphlaupið stöðvast ekki
mun ný styrjöld dynja yfir þjóð-
ir heimsins.
Það hefur sýnt sig á síðustu
árum, að hægt er að leysa flók-
Hehru 09 Bulganín gefa
samelginlega yfirlýsfngu
Indland 09 Sovétríkin heita hvort öðru ^
góðri sambúð og samstarfi
Viö hátíölega athöfn í Kreml í gær undirrituðu forsæt- '
isráöherrar Indlands og Sovétríkjaxma yfirlýsingu um
sambúö og samstarf ríkja sinna.
Þeir Nehru og Búlganín und-
irrituðu yfirlýsinguna í Súlna-
salnum í Viðhafnarhöllinni í
Kreml, að viðstöddum flestum
æðstu mönnum Sovétrikjanna
og f}’lgdarliði Nehrus. Frétta-
menn voru viðstaddir.
Birt í dag.
Yfirlýsingin verður birt í
da.g í Moskva og Nýju Dehli
samtímis. Kvisazt hefur í
Moskva að meginefni hennar
sé að ríkisstjómir Indiands og
Sovétríkjanna lýsi yfir trú
sinni á friðsamlega sambúð
rikja með mismunandi þjóð-
skipulag og að þær muni gæta
í samskiptum sínum megin-
reglna slíkrar sambúðar, sem
settar hafa verið fram í samn- i
ingum milli Kína og Indlands
og Kína og Burma.
Talið er að sovétstjómin
heiti aðstoð við iðnvæðingu
Indlands og hagnýtingu kjarn-
orku til friðarþarfa þar í
landi.
: Skoðar kjarnorkurafstöð.
I í gær fékk Nehru fyrstur út-
lendinga að skoða kjarnorku-
rafstöð nærri Moskva, hina
fyrstu í heimi sem leggur at-
vinnulifinu til raforku. Hann
heldur frá Moskva i dag til
Varsjár og kemur síðan við i
Belgrad, Vínarborg, Róm og
ef til vill London áður en hann
heldur heim.
Búlganin, forsætisráðherra
Sovétríkjanna, fer til Indlands
í janúar í vetur í boði Nehrus.
in deilumál. Bundinn hefur ver-
ið endir á styrjaldirnar í Kóreu
og Indó Kína, gengið hefur verið
frá friðarsamningi við Austurríki
og sambúð Júgóslavíu og Sovét-
ríkjanna er komin í eðlilegt horf,
en sá atburður hefur verið rang-
færður skefjalaust í sumum
löndum, sagði Molotoff.
Hann kvaðst sannfærður um
að fundur æðstu manna fjór-
veldanna í Genf yrði hinn þýð-
ingarmesti ef allir aðilar sýndu
einlæga viðleitni til að draga úr
viðsjám og efla friðinn.
Fréttaritari brezka útvarpsins
sagði í gærkvöldi, að meira hefði
verið klappað fyrir ræðu Molo-
toffs en nokkurri annarri sem
haldin hefur verið á hátíðafund-
inum í San Francisco.
KR vann Akranes
Sjötti leikur Islandsmótsins
fór fram á íþróttavellinum í
gærkvöld og kepptu Akurnes-
ingar og KR. KR vann með 4
mörkum gegn einu. KR-ingar
voru mjög heppnir með mark-
skot en Akurnesingar óheppnir.
Kr-ingar skoruðu öll sín
mörk í fyrri hálfleik, en mark
Akurnesinga var sett ór víta-
spyrnu 3 eða 4 mínútum fjTir
leikslok.
Hækka íargjöld með S.V.R. 11111%
á kvöldin og helgidögum?
Aukaiunduf í dag um máiið í bæjaistjÓKn.
í dag verður haldinn aukafundur í bæjarstjórn Reykja-
víkur. AÖaldagskrármál fundarins eru skipulagsmál mið-
bæjarins sem frestaö var á síöasta fundi og breytingar á
gjaldskrá strætisvagnanna.
Bæjarráð ræddi breytingarn-
ar á gjaldskrá strætisvagn-
anna á fundi sínum í fyrradag.
Var þar samþykkt með atkvæð-
um Sjálfstæðisflokksins og
Þjóðvamarflokksins að leggja
til við bæjarstjórn að hækka
fargjöld strætisvagnanna á
helgidögum og frídögum svo og
eftir kl. 8 að kvöldi um 100%.
Guðmundur Vigfússon, fulltrúi
Sósíalistaflokksins í bæjarráði,
flutti eftirfarandi tillögu sem
ekki fékk nægan stuðning, þar
eð fulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins og Þjóðvarnarflokksins
sátu hjá við atkvæðagreiðsl-
una:
„Bæjarráð frestar að svo
stöddu að gera tillögu um
breytingu á fargjaldataxta
S.V.R., en ákveður að skipa
5 manna nefnd, einn frá hverj-
um stjórnmálaflokki í bæjar-
stjórn, til að taka til athugun-
ar þær röksemdir, sem færðar
eru fram fyrir nauðsyn auk-
inna tekna til handa S.V.R.,
svo og hverjar aðrar ráðstaf-
anir teljast nauðsynlegar til að
bæta starfsaðstöðu og rekstur
fyrirtækisins. Skal nefndin
hraða störfum og leitast við að
skila áliti fyrir næsta reglu-
legan bæjarstjórnarfund.'‘
Svipaða fargjaldahækkun og
hér er fyrirhuguð samþykkti
íhaldsmeirihlutinn í des. s. 1.
en hækkunin hefur ekki komið
til framkvæmda þar eð hún
hefur ekki fengizt staðfest a£
innflutningsskrifstofunni.
Flokksmenn Scelkcc
felMn stfórn hcms
Búizt við að stjórnarkreppan á ttalíu
verði torleyst.
Mario Scelba, forsætisráöhen'a samsteypustjórnar mið-
flokkanna á Ítalíu, lagöi í gær lausnarbeiöni sína fyrir
Gronchi forseta.
Hafði Scelba mistekizt að
lengja líf stjórnar sinnar með
því að endurskipuleggja hana.
Neituðu flokksmenn Scelha í
þingflokki kaþólska flokksins
að fallast á fyrirætlanir hans.
Gronchi forseti bað Scelba
að gegna stjórnarstörfum til
bráðabirgða meðan hann ræddi
við leiðtoga stjómmálaflokk-
anna.
Kaþólski flokkurinn, stærsti
flokkur Italíu, er margklofinn.
Vinstri armur flokksins vill
samvinnu við sósíalistaflokk
Nennis, hægri armurinn vill
stjórnarstarf við konungssinna
en þeir sem fylgja Scelba
að málum vilja halda áfram
að stjórna ásamt litlu mið-
flokkunum.
Fréttamenn í Róm segja að
borgarablöð á Italíu komizt
svo að orði, að stjómarkrepp-
an sé hin alvarlegasta sem
j
komið hafi síðan lýðræði komsti
aftur á í landinu. Vandséð er
að hægt verði að mynda ríkis-
stjóm sem hafi meirihluta
þings að baki sér og heyrist því
viða fleygt að eina úrræðið s§
að rjúfa þing og efna til nýrra
kosninga.
Lögregluórós
ó verkamenn
Til átaka kom í gær í frönsku
hafnarborginni St. Nazarire
milli lögreglu og skipasmiða í
verkfalli. Hafa þúsundir skipa-
smiða átt i kjaradeilu við
skipasmíðastöðvarnar í nokkr-
ar vikur.
í gær var lögreglulið látið
ráðast á fund verkfallsmanna
með þeim afleiðingum að í
bardaga sló og margir menn
hluti meiðsl.