Þjóðviljinn - 23.06.1955, Page 7

Þjóðviljinn - 23.06.1955, Page 7
Fimmtudagur 23. júní 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (7 Hans Kirk: 25. dagur En eins og þið vitið hefur hann sagt skýrt og skorinort að hann væri kominn í próventu, eins og hann kallar það. Auðvitað fer ég til hans strax og tími minn leyfir og tala við hann, en það veröur ekki aftur snúið. Það varð að taka skjóta ákvöröun og ég leit svo á aö mér bæri að verða við óskum ríkisstjórnarinnar. Það vannst ekki heldur tími til að ná í ykkur, þótt þið séuð meöeig- endur í fyrirtækinu. Ég vona að þið misvirðið það ekki við mig, en það þurfti að hafa hraðan á, mjög hraðan á. Og eins og þið vitið hefur pabbi ætlazt til þess að ég liefði úrskuröarvaldiö í þeim málum sem varðar rekstur fyrirtækisins. — Nei, vitaskuld var hið eina skynsamlega að taka að sér verkið, ef eitthvaö er þá upp úr því aö hafa, sagði Jó- hannes. Annars verður einhver annar til að hremma bit- ann. Auk þess lítur út fyrir að þeir ætli að ganga með sigur af hólmi. Og þá er sjálfsagt að koma sér vel viö þá. — Ég get þá slegið því föstu að þið samþykkið gerðir mínar, sagði Tómas. Á þessum erfiðu tímum er mér það mikill styrkur að vita systkinin standa meö mér. — Og það gerum við, Tómas, þú ert slyngur fjármála- maöur og hefur bein í nefinu, sagði Jóhannes. Við treyst- um því alltaf að þú stjórnir fyrirtækinu með prýði. — Þakka þér fyrir, Jóhannes. Og hvað um þig, Emm- anúel? — Jú, mikil ósköp, ég viöurkenni dugnað þinn, sagöi Emmanúel vandræðalega. Eins og þú veizt hef ég ekki mikiö vit á viðskiptum og ég treysti þér fullkomlega. En að byggja hernaðarmannvirki .... er það ekki næstum eins og að berjast með Hitler í styrjöldinni. Ég á við .... það eru ekki friðsamlegar farþegaflugvélar sem fara um þessar flugbrautir. Og Þjóöverjarnir hafa þó hertekið okkur með vopnavaldi .... — Þetta mál hef ég rætt við sjálfan forsætisráðherra landsins í gær sagði Tómas gramur. Ég hef í höndum skriflega yfirlýsingu hans um það, að okkur beri að taka verkið að okkur. Við erum, eins og þú kemst réttilega að orði, þjóð sem hernumin hefur verið með vopnavaldi, og við getum þvi viðurkennt þá staðreynd að við erum fáir og smáir og verðum að hlýða. Þetta er álit ríkisstjórnar- innar og ég taldi mér skylt að beygja mig fyrir því sem sannur Dani. — Þú mátt ekki reiðast mér, Tómas, ég efast ekki um hinn heiðarlega tilgang þinn, því fer svo fjarri, sagði Emmanúel. En væri það ekki sanngjarnast og virðuleg- ast ef við létum hjá líða að hagnast á þessari vinnu fyrir Þjóðverjana, sem við erum neyddir til aö takast á hend- ur? — Þetta er nú sú brj álæöislegaSta uppástxmga sem ég hef nokkru sinni heyrt, sagöi Jóhannes reiðilega. Viltu að við vinnum fyrir ekki neitt? — Já, svaraði Emmanúel og Tómas Klitgaard brosti. — Heyrðu nú, Emmanúel, þú lifir ekki á loftinu einu, sagði hann. Þú tekur sjálfur út þokkalega upphæð úr fjárhirzlu fyrirtækisins. Þú styrkir á göfugmannlegan hátt nútíma skáldskap og listir, þú hefur áhuga á menn- ingarlífinu og einhver verður að hafa það. En ef við megum' ekki ætla okkur sanngjaman — taktu eftir að ég segi sanngjarnan — hagnað, þá verðurðu að gera svo vel að segja upp þessari vistlegu íbúö og ráða þig í vinnu sem skrifara ef þú getur þá fengið nokkra atvinnu á þessum tímum. Tillaga þín ber vott um göfugt hugar- far, en hún er óframkvæmanleg. Okkar á milli sagt er- um við fólk í góðum efnum, en án hagnaðar, sanngjarns hagnaðar .... nei, kæri Emmanúel, það er óhugsandi. — Aldrei hef ég heyrt aðra eins fjarstæðu, þú ert hreinasti hálfviti, Emmanúel, hvæsti Jóhannes og af svip hans var helzt að sjá sem hann langaði til að kyrkja með eigin hendi þennan fáráð sem hann átti að bróður. Svo sannarlega eigum við aö græða sem allra mest á því. — Þar skjátlast þér, Jóhannes, sagði Tómas. Við eig- um alls ekki að græða sem allra mest á því, vegna þess j aö við tökum ekki þátt í því að hagnast á óláni okkar i í gegn um járnljaldið Framhald af 5. síðu. hjónin bjuggum í og farin að athuga töskuna mína. Þar var allt í röð og reglu, en einn hlut vantaði þó, það var blokk- in sem ég hafði skrifað í upp- lýsingar þær er við fengum á hinum ýmsu stöðum sem við heimsóttum í Ráðstjórnarríkj- unum, hana hafði tollverðinum í Prestwick þótt varlegra að taka. Sinfóníutónleikar Framhaid af 4. síðu. Hér er á ferðinni hljómsveitar- stjóri, sem kann til hlítar sitt starf. En það verður líka að viðurkenna, að hann liefur til umráða ágætt hljóðfæri, þar sem Sinfóníuhljómsveitin er. María Markan-Östlund söng óperulög eftir Verdi, Wagner, Mozart og Weber með sinni háu, björtu og skæru sópran- rödd. í tveinmr fyrri lögunum, Aríu Leonóru úr óperunni “Vald örlaganna” eftir Verdi og Drauini Elsu úr óperunni “Lohengrin” eftir Wagner naut söngkonan sín ekki tii fullnustu. Miklu fastari tökum náði hún á Kavatínu greifa- frúarinnar úr “Brúðkaupi Fig- arós” eftir Mozart og ekki sízt Aríu Agötu úr “Töfraskyttuni” eftir Weber. Hljómsveitin að- stoðaði söngkonuna með ágæt- um undirleik. B. F. NIÐliRSUÐU VÖRUR TIL Herra- regnkápur Verð kr. 90.00. Toledo Fishersundi SÖL’JTURNINN viS Ainaihól Rafvirkjtsr Viljum- ráða 1 — 2 góða rafvirkja. Gott kaup. SKINFAXI h.f. Klapparstíg 30. DðOUN VFIR AFRlKU liefnist litkvikmynd, sem Emanuel Petersen frá Austur- Afríku sýnir í Aðventkirkjunni föstudaginn 24. júní kl. 8.30 e. h. AUir velkomnir. Tilboð óskast í 2 tengivagna burðarmagn 14—20 tonn. — Vagnarnir eru til sýnis hjá Sæmundi Jónssyni, Keflavík, sími 466. Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri föstud. 24. þ. m. klukkan 11 f. h.. Sala setuliðseigna ríkisins. Pan Ámerican World Airways UGGUR LEIÐIN i: i: FlugVél frá PAN AMERICAN mun í þessum mánuði fljúga 50.000. ferð flugvéla félagsins yfir Atlanzhafið. PAN AMERICAN flugfélagið notar aðeins hinar heimsfrægu Douglas DC—6B og Boeing Stratocruiser flugvélar með loftþrýstibúnum (pressurized) farþega- klefum, svo að hjartveikt fólk finnur ekki til neinna óþæg- inga, þótt flogið sé í 22000 feta hæð. PAN AMERICAN hefur vikulegar ferðir um Kefla- víkurflugvöll til Norðurlanda og New York. Fargjöldin má greiða í íslenzkum krónum. Útvegum endurgjalds- laust hótelrými fyrir þá, er þess óska. AÐALUMBOÐSMENN veita allar upplýsingar og annast farmiðasölu. G. Helgason & Melsted h.f. SlMAR 80275 — 1644. HAFNARSTRÆTI19 stíg 19. Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. — Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb) — Fréttastjóri: Jón Bjarnason. — Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, Guðmundur Vigfússon, ívar H. Jónsson, Magnús Torfi Ólafsson. — Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. — Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðu- Sími: 7500 (3 línur). — Áskriftarverð kr. 20 á mán. í Rvík og nágrenni; kr. 17 annars staðar. — Lausasöluverð kr. 1. — Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. þJÓOVIUINN

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.