Þjóðviljinn - 16.07.1955, Síða 8
Ályktun fiskifræðings eftir rannsóknarför:
Mælingar á sjávorhita gætu
gagnað íslenzkum fiskveiðum
tUÓÐVILIfNN
Laugardagnr 16. júlí 1955 — 20. árgangur — 157.. tölublað
Samkvæmt ákvöröun síðasta Alþingis var ríkisstjórn-
inni falið að láta framkvæma leit að nýjum fiskimiðum,
aðallega karfamiðum, fyi'ir Norður- og Noröaustuiiandi.
Atvinnumálráðuneytið fékk
togarann Harðbak frá Akur-
eyri til leitarinnar, sem var
undir stjóm skipstjórans, Sæ-
mundar Auðunssonar og Ing-
vars Hailgrímssonar, fiskifræð-
ings, frá Fiskideild Atvinnu-
deildar Háskólans.
Fór ieitin fram dagana 1.—
13. júní og var leitað allt vest-
an frá Strandagrunni og fyrir
Norður- og Austurlandi suður
til Þórsmiða.
Var oftast togað djúpt á
landgrunnshallanum milli 200
og 500 m. dýptarlínanna og
utan venjulegra fislcislóða. Víð-
ast hvar gekk vel að toga, en
lítið var um fisk á djúpmiðun-
um norðan- og austanlands á
þessum tíma, nema djúpt á
Strandagrunni, enda voru hita-
skilyrði við botn hagstæð þar.
Auk veiðitilraunanna með
botnvörpu var mældur botnhiti
á flestum togstöðvum eða í 22
skipti alls. í 16 skipti mældist
botnhitinn undir 3°C, en í 6
skipti yfir 3°C. Þegar athugað
er sambandið milli aflamagns-
ins og botnhitans, kemur í ljós,
að þorsks verður mjög lítið
vart þar sem botnhiti er undir
2,8° C. Kemur það vel heim
við reynslu Norðmanna, en við
Norður-Noreg heldur þorskur
sig aðallega í 3° heitum sjó.
Hins vegar varð ekki fundið
eins beint samband milli botn-
hitans og karfaaflans, en þó
varð aðeins einu sinni vart við
verulegt karfamagn þar sem
botnhiti var undir 2° C.
Má því gera ráð fyrir, að
mælingar sjávarhitans gætu
komið fiskiskipum að góðu
gagni við veiðamar.
I skýrslu sinni um leiðangur-
inn bendir Ingvar Hallgrims-
son, fiskifræðingur, á að botn-
hiti djúpmiðanna fyrir Norður-
og Austurlandi hafi verið ó-
Verður íslenzk stúlka fegurðar-
drcttning heisnsins í október n. k?
Keppandinn verður sú sem sigrar í feg-
urðarsamkeppninni í Tívolí 13.—14. ágúsf
í haust mun íslenzk stúlka keppa um titilinn fegui'ð-
ardi'ottning heimsins, en 20. okt. n.k. verður keppt í Lond-
on um þann titil. Þátttakandinn héðan verður sú sem
sigrar í feguröarsamkeppninni hér heima, og verður hún
í Tívolí dagana 13.—14. næsta mánaðar.
Það er fyrirtækið „Mecca
Dancing" er sér um heims-
keppnina í London, en Tívoli
eér um keppnina hér heima
sem u.mboðsaðili þess fyrir-
tækis. 1 fyrra tóku 16 þjóðir
‘þátt í keppninni, þ. á m. 3
Norðurlandaþjóðir. Sigurvegari
varð 19 ára egypzk stúlka,
Antigone Constanda.
Nú er það löngu vitað mál,
að íslenzkt kvenfólk þykir æv-
inlega hlutgengt, þegar um er
að ræða fegurð og yndisþokka,
og enginn vafi er á því, að
hér á íslandi eru fjölmargar
stúlkur, sem með prýði gætu
tekið þátt í slíkri keppni, og
er nú lýst eftir keppendum.
Prenn verðlaun í Tívoli.
Tívolí veitir hér heima þrenn
verðlaun: í fyrsta lagi fær sú,
er ber sigur af hólmi í keppn-
irmi, fría ferð til London og
heim aftur, vikudvöl og dag-
peninga í London, svo og sam-
kvæmiskjól, sundföt (ekki
„Bikini-sundföt") og cocktail-
kjól, en í slíkum klæðnaði
koma keppendur fram í keppn-
inni í London. í öðru lagi verð
ur vönduð vetrarkápa og i
þriðja lagi dragt, hanzkar og
skór.
„Heimsdrottningar“-kepi>nin í
London
Sú, sem ber sigur úr býtum
í keppninni í Tívoli, en hún fer
fram þar dagana 13. og 14.
ágúst n. k., fer til alþjóða-
keppninnar í London, og verð-
ur hún að vera komin þangað
fyrir kl. 17 þann 15. október
n.k.
Aðalverðlaun í keppninni
verða 500 sterlingspund og silf-
urskál, sem blaðið Sunday
Dispatch gefur, og siðast en
ekki sizt nafnbótin „Miss
World 1955“. Síðan verða veitt
fimm verðlaun til viðbótar.
SUulu vera 17—30 ára
Um sjálfa keppnina í Lon-
don (og Tivoli) er þetta að
segja. Þátttakendur mega vera
á aldrinum 17—30 ára, ógiftar
eða giftar. Sú, sem héðan fer,
verður í för með islenzkum
fulltrúa og aðstoðarmanni frá
Tívolí, en úti i London fær
hún aðstoðarstúlku til þess að
vern. sér innan handar, svo og
hárgreiðsludömu. Séð verður
fyrir hótelherbergi á góðu
gistihúsi. Mecca Dancing greið-
it ennfremur nokkura dagpen-
inga meðan á dvölinni stend-
ur í London.
Skilyrði til keppninnar i Tivoli
verða betri en undanfarið, á-
horfendum skipað á palla svo
þeir geti sem bezt dæmt um
fégurðargyðjurnar. Tívolígestir
greiða at.kvæði, en dómnefnd
verður látin skera úr ef at-
kvæði verða jöfn.
Þáttakendur, eða þeir sem
telja sig vita um stúlkur er
til gTeina gætu komið, ættu nú
þegar að gera aðvart i P.O.
Box 13, eða i síma 6610 og
6056 hið allra fyrsta.
hagstæður á þessum tíma, en
hann leggur til að farinn verði
annar leiðangur jdir þetta
svæði að áliðnu sumri, þegar
upphitun sjávarins er orðin
meiri.
Skálholfshátíð á morgun
Elns og undanfarin ár gengst Skálholtsfélagið fyrir há-
tíð í Skálholti á morgun — sunnudaginn, sem næstur er
Þorláksmessu á sumri.
Skýringarmyndin sýnir afla-
magnið í kg. í klukkustundar-
togi við misniunandi botnhita.
Tilgangur Skálholtsfélagsins
með þessari hátíð er að vekja
athygli landsmanna á staðnum
og nauðsyn þess að bæta út-
lit hans, og gefa mönnum kost
á að koma þar saman. Jafn-
framt safnar félagið fé þennan
: dag með sölu merkjd, bæklinga
: og veitinga, og rennur allur á-
| góði til endurreisnar Skálholts.
! Biskupsmessa
| Hátíðin hefst á morgun kl.
1 með þvi að Lúðrasveit Rvik-
ur leikur en síðan ganga við-
staddir prestar í skrúðgöngu
til kirkju. Þá hefst messa, dr.
theol. Bjami Jónsson vígslu-
biskup messar og flytur pré-
dikun en kirkjukór Stóranúps-
sóknar i Gnúpverjahreppi syng-
ur undir stjóm Kjartans Jó-
hannessonar organista.
Að lokinni messu verður hlé
og fá þá gestir tækifæri til að
skoða sig um á staðnum og
hressa sig á þeim ágætu veit-
ingum, sem á boðstólum verða.
Það er Kvenfélag Eyrarbakka
sem annast um veitingaraar
að þessu sinni og hafa kon-
urnar sjálfar lagt fram allt
efni í baksturinn og alla vinn-
una.
Utisamkoma hefst með leik
lúðrasveitarinnar, en síðan set-
ur sr. Sigurður Pálsson, for-
maður Árnesdeildar Skálholts-
félagsins, samkomuna með
ræðu. Þá flytur dr. Árni Áma-
son héraðslæknir á Akranesi
ræðu, Ólafur Magnússon frá
Mosfelli syngur einsöng og
Jökull Jakobsson stud. theol.
segir frá ömefnum og fom-
menjum. Á milli þessara atriða
leikur lúðrasveitin.
Ferðir verða héðan úr bæn-
um á Skálholtshátíðina frá
Ferðaskrifstofunni.
ÆF
Fundur verður haldinn í
sambandsstjóm Æskulýðsfylk-
ingarinnar 1 dag kl. 2 síðdegis
að Tjarnargötu 20.
Framlivæmdanefnd
Mikil aðsókn að harna-
námskeiðum að Jaðri
Fræðslunámskeið lyrir fullorðna heist
þar 14. ágúsi n.k.
Þingstúka Reykjarikur gengst sem kunnugt er fyrir nokkr-
um háifsmánaðar námskeiðum barua og unglinga að Jaðri í
snmar. Verða námskeiðin alls fimm og er þrem þegar lokið en
það fjórða hófst í fyrradag. Þegar fimmta barnanámskeiðinu
lýkur að Jaðri um iniðjan ágúst hefst þar bindindis- og fræðslu-
námskeið fyrir fullorðna.
Blaðamönnum var boðið upp
að Jaðri s.l. fimmtudagskvöld
til að kynnast hinu merka
starfi þar. Þegar upp eftir
kom stóð yfir kvöldvaka barn-
anna, þar sem þau önnuðust
öll skemmtiatriði sjálf. Sýndur
var leikþáttur, litill snáði söng
einsöng, telpa las upp þulu
eftir langömmu sína og önnur
lék tvö lög á píanó. Þessari
prýðiiegu skemmtun lauk svo
með almennum söng og var þá
rösklega tekið undir.
Mjög mikil aðsókn.
Forstöðumaður námskeiðanna
að Jaðri er Ölafur Haukur
Árnason, ungur maður, sem
stundaði nám i uppeldisfræði
í Kaupmannahöfn að loknu
stúdentsprófi, en er nú kenn-
ari í Stykkishólmi.
Ölafur sagði blaðamönnum
að gert væri ráð fyrir 52 börn-
um á hvert námskeið, þó voru
þau 55 á þvi síðasta. Aðsókn-
in hefur verið mjög mikil og
var fullskipað i öll námskeið-
in áður en það fyrsta hófst.
Börn og unglingar á aldrinum
8—18 ára hafa rétt til þátt-
töku í námskeiðunum en hing-
að til hafa þó ekki sótt þau
eldri börn en 14 ára.
Bindindis- og fræðslunám-
skeið fullorðinna hefst að
Jaðri 14. ágúst og stendur til
26. Þátttökugjald í því er 25
krónur á dag og er þá allt
innifalið, húsnæði, matur og
kennsla.
Námskeiði þessu verður hag-
að þannig, að á morgnana
milli kl. 10 og 12 verða
kennslustundir. Kennslugreinar
eru fundarstjórn og siðir, saga
Góðtemplarareglunnar og lög,
árangur af starfi reglunnar á
Islandi, unglingastarf og al-
menn bindindisfræðsla. Timan-
um kl. 1.30—3.30 verður varið
til útivistar, kl. 4—7 er frjáls
tími en kl. 8.30 á kvöldin
hefjast fyrirlestrar. Verða
fiuttir tveir fyrirlestrar á
hverju kvöldi um hin marg-
víslegustu efni og sérfróðir
menn fengnir til að flytja þá.
Þess skal getið að fyrirlestrar
þessir eru ekki eingöngu fyrir
þátttakendur í námskeiðinu
heldur opnir almenningi.
Ferðalög munu verða skipu-
lögð um nágrennið, t. d. til
Gufuness, Reykja, Reykja-
lunds, Bessastaða, Krýsuvíkur
og víðar.
Farið veríur í Þjórsárdal í dag kl. 2
frá Tjamargötu 20. Þátttakendur em be'ðnir að
mæta stundvislega. — Á morgun verður farið kl.
8 f.h. frá sama stað um Rangárvelli. — Skiifstof-
an í Tjamargötu 20 er opin frá kl. 10 til 12 f.h.
og kl. 1 til 3 e.h.
Ferðanefnd sósiálistafélagamw í Reykjavík.
Sumarhótíð Lúðra-
sveitarinnar í dag
Miösumarhátíö Lúðrasveitar Reykjavíkur, sem frest-
aö var vegna veöurs s.1. sunnudag fer fram í dag og á
morgun í Tívolí.
Skemmtiatriði verða sömu og
fyrirhuguð voru síðustu helgi
og áður hefur verið frá sagt.
M.a. aka þeir Davíð og Golíat,
ásamt syni í skrautvagni um
bæinn. Margskonar skemmti-
atriði verða í Tívolí. Fyrir dans-
iniuu leikur 12 manna hljóm-
sveit, auk hljómsveitarinnar frá
Hótel Borg. Flugvél mun fljúga
yfir og varpa niður mörgu eigu-
legu. — Aðgöngumiðarnir eru
allir tölusettir og er vinningur-
inn farmiði með flugvél Loft-
leiða til Kaupmannáhafnar.
Aðgangur er ókej’pis fyrir börn,