Þjóðviljinn - 24.07.1955, Blaðsíða 5
Sunnudagur 24. júlí 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Kínverska þjóðín sækir
fram til velmegunar
Hinn 16. júni sl. flutti vara-
forsætisráðherra og fjármála-
ráðherra Kínverska alþýðu-
• lýðveldisins, Lá Sjan-n jan,
ræðu á þingi þjóðfulltrúa
Kínverska lýðveldisins og
ræddi um framkvæmd fjár-
laga 1954 og um fjárlög 1955.
X.5 Sjan-njan lýsti yfir að
iheildartekjur ríkissjóðs 1955
séu áætlaðar 31.192.520 þús.
júanar, 6,91 af hundraði
hærri en á siðastliðnu ári. —
TJtgjöld eru áætluð 29.736.720
þús. júanar, 20.72 af hundr-
hærri en árið 1954. Rekst-
•ursafgangur er áætlaður
1.455.800 þús. júanar.
Lí Sjan-njan benti á að
f járlög Kína fyrir 1955, þriðja
ár fimm ára áætlunar Kína,
,,þjóna því markmiði að þoka
jyjóðarbúskapnum í átt til á-
setlunarbúskapar, auka beint
og óbeint velmegun og menn-
ingu þjóðarinnar og efla
sjálfstæði og varnir lands
okkar“. — Grundvallaratriði
þessara fjárlaga, bætti hann
við, er auknihg framleiðslunn-
ar, framkvæmd sparnaðar til
þess að afla fjármagns til
efnahagsuppbyggingarinnar,
einkum þó til uppbyggingar
þungaiðnaðarins.
Af útgjöldum á fjárlögum
Kína 1955 fai'a 60,67 af
liundraði til uppbyggingar at-
vinnulífsins, en einnig til þjóð-
félagsmála, menningar- og
fræðsiumála, sagði varafor-
sætisráðherrann. Þetta ber
vott um það að Kína heldur
fram stefnu friðar og frið-
samiegrar uppbyggingar í
fullu samræmi við djúprætt-
ustu hagsmuni kínversku
þjóðarinnar.
Útgjöld til landvarna eru
24.19 af hundraði heildarút-
gjalda. Lí Sjan-njan lagði á-
lierzlu á að þessi fjárveiting
væri óhjákvæmileg, þar sem
lieimsvaldasinnar umkringja
ennþá Kína, sem verður þess
vegna að verja sjálfstæði
sitt og nýbygglngu atvinnu-
veganna, frelsa Taívan,
vernda fullveldi sitt og lands-
yfirráð.
Fjáiveitingar til hins hrað-
Vaxandi iðnaðar Kína eru
auknar um 11,32 af hundraði
•miðað við síðastliðið ár, en
89.20 af hundraði þessara
fjárveitinga fara til þunga-
iðnaðar. Til landbúnaðar,
skógarhoggs, áveitufram-
hvæmda og veðurþjónustu
fara 9,25 af hundraði þeirra
fjárveítinga sem renna til
•uppbyggingar atvinnulífsins.
Fjárveitingar til byggingar
undirstöðufyrirtækja i iðnaði
hækka um 10.43 af hundraði,
en fjárveitingar til þjóð-
félags-, menningar og fræðslu-
mála hækka um 11,28 af
hundraði.
Með nýjum fjárveitingum á
þessu ári, sagði varaforsætis-
ráðheirann, er tala stóriðju-
fyrirtækja sem hafin er bygg-
ing á og eru í byggingu sam-
tals 1079. Auk þess verður
hafin bygging nýrra iðnaðar-
borga.
1 samanburði við árið 1954
| eykst íramleiðsla raforku um
19,3%, kola um 14,7%, olíu
um 31,6%, hrájárns um
13,8%, stáls um 18,3, sements
um 21,7%, pappírs um 8,9%,
sykurs um 17,8%, salts um
50,1%.
Heildarverðmæti landbún-
aðarframleiðslu Kína er áætl-
að að hækki um 6,4 af hundr-
aði, þar af framleiðsla korns
um 5,3 af hundraði, bómull-
ar um 30,6 af hundraði, tób-
aks um 38 af hundraði, syk-
urreyrs um 16 af hundraði.
Hafnar verða nýjar áveitu-
framkvæmdir.
Nýjar járnbrautarlínur
verða lagðar, alls um 1000
kílómetrar að lengd, bílvegir
alls um 1300 km að lengd.
Magn smásöluverzlunar
eykst um 9 af hundraði. Hlut-
deild ríkis- og samvinnuverzl-
ana í smásöluverzluninni verð-
ur 51,7 af hundraði.
Samkvæmt niðurstöðu um
framkvæmd ríkisáætlunarinn-
ar fyrir 1955, sagði Lí Sjan-
njan, mun heildarframleiðsla
iðnaðar og landbúnaðar Kína
samkvæmt heildarverðmæti
aukast um 7 af hundraði, en
hlutdeild nútíma iðnaðar í
heildarverðmæti iðnaðar- og
landbúnaðarframleiðslunnar
nær 33,7 af hundraði. Hlut-
deild rikisfyrirtækja í heild-
arverðmæti iðnaðarframleiðsl-
unnar eykst upp í 59,3 af
hundraði. Fleiri einkafyrir-
tæki munu heyra undir áætl-
anir rikisins. Tala samvinnu-
félaga handiðnaðarmanna nær
22.800 en samvinnufélög í
landbúnaði munu halda áfram
að eflast að eigin frumkvæði
bændanna og á grundvelli
gagnkvæms hags. Á síðast-
liðnu vori var tala þessara
samvinnufélaga 670 þús.
Vinnulaun verkamanna og
starfsmanna í mismunandi
fyrirtækjum og í mismunandi
greinum atvinnulífsins hækka
að meðaltali um 3,3 af hundr-
aði á þessu ári, sagði Lí Sjan-
njan. Hin ýmsu ráðuneyti
ríkisstjómarinnar bvggja fyr-
ir verkamenn og starfsmenn
11 millj. ferm. nýs íbúðarhús-
næðis.
Á þessu ári munu æðri
menntastofnanir taka við 12,9
af hundraði fleiri stúdentum
en í fyrra, miðskólar 7,77 af
hundraði fleiri og barnaskól-
ar 6,6 af hundraði fleiri nem-
<D
endum. Tala sjúkrarúma í
sjúkrahúsum sem tilheyra
heilbrigðismálaráðuneytinu
eykst um 10,7 af hundraði.
Tala vísindastarfsmanna eykst
um 36,3 af hundraði. 169
kvikmyndir verða teknar til
sýninga með kínversku tali og
út verða gefnar 933.700 þús.
bækur.
Er Lí Sjan-njan minntist á
tekjulindir ríkissjóðs sagði
hann að 69,47% ríkistekn-
anna komi frá hinum þjóð-
nýtta hluta þjóðarbúskapar-
ins. Tekjur sem teknar eru
með skattheimtu af bændum
lækka úr 14,23 af hundraði
ríkisteknanna niður í 11,76 af
hundraði, þar sem ríkið hefur
ekki hækkað skatt á bændum
síðan 1952.
„Höfuðmarkmið fjárlaga
1955 er að einbeita og beina
stóru fjármagni til þess að
tryggja framkvæmd áætlun-
arinnar fyrir 1955, en það er
mjög mikilvægt fyrir fram-
kvæmd fyrstu fimm ára áætl-
unarinnar“.
Er Lí Sjan-njan vék að
framkvæmd fjárlaga 1954
sagði hann að heildartekjur
hefðu orðið 30.745.830.000 jú-
anar. Af þessari upphæð eru
raunverulegar tekjur á árinu
1954 26.236.830.000 júanar,
en afgangurinn yfirfærsla frá
fyrra ári (og fyrri árum)
4.509 millj. júanar. Raunveru-
legar tekjur voru 113,15 af
hundraði af áætlaðri tekju-
upphæð í fjárlögum.
Árið 1954 voru tekjur af
ríkisfyrirtækjum, ágóði og
skattar, 65,24 af hundraði
heildartekna ríkisins. „Þetta
sýnir hversu mikilvægt hlut-
verk tekjur af ríkisfyrirtækj-
um hafa á hendi við öflun
fjármagns til uppbyggingar
sósíalismans í landi okkar“,
sagði Lí Sjan-njan.
Af heildarupphæð ríkisút-
gjalda 24.632.440.000 júanar
fóru 50,17 af hundraði til
efnahagslegrar uppbyggingar,
en fjárframlög til hennar
skipa fyrsta sæti allra ákvæða
um útgjöld. Heildarupphæð
fjárfestingar í Öllum grein-
um grundvallaruppbyggingar
hækkaði 1954 um 15%, miðað
við 1953. Fjárfesting í grund-
vallaruppbyggingu af hálfu
iðnaðarmálaráðuneytanna
jókst um 31% móts við 1953
og var 48% af heildarfjár-
festingu í grundvallarupp-
byggingu árið 1954.
Er Lí Sjan-njan minntist á
árangur ýmissa greina at-
vinnulífsins, sagði hann að
framleiðsla iðnfyrirtækja rík-
isins hefði aukizt um 27. af
hundraði á sl. ári. Hlutdeild
þjóðnýtts iðnaðar, samvinnu-
fyrirtækja og sameignarfyrir-
tækja ríkis og einstaklinga í
heildarverðmæti iðnframleiðsl-
unnar var 75,1 af hundraði,
en hlutdeild einkarekins iðn-
aðar lækkaði úr 36,8 í 24,9
af hundraði. Hlutur fram-
leiðslutækja í heildarverðmæti
iðnframleiðslunnar hækkaði
úr 41.2 af hundraði í 42,3 af
hundraði, en hlutur neyzlu-
varnings lækkaði úr 58,8 í
57,7 af hundraði. Að magni
til jókst þó framleiðsla neyzlu-
varnings.
Þrátt fyrir tjón af völdum
náttúruhamfara 1954 var
verðmæti landbúnaðarvöru-
framleiðBlunnar á þvi jári
meira en 1953.
Magn smásöluverzlunar
1954 var 12 af hundraði hærra
1954 en 1953. Hlutdeild ríkis-
og samvinnuverzlunar í smá-
söluverzluninni jókst úr 41%
1953 í 58 af hundraði 1954.
Utanríkisverzlun jókst að
heildarmagni um 4,5 af hundr-
aði. Innflutningur og útflutn-
ingur stóðust á.
Lí Sjan-njan tilfærði mörg
dæmi sem sýndu að þróun
iðnaðar og landbúnaðar og
bætt vinnuafköst bæta lífs-
kjör þjóðarinnar. Tala verka-
manna og starfsmanna hjá
ríkisfyrirtækjum, samvinriu-
fyrirtækjum og blönduðum
ríkis-einkafyrirtækjum jókst
um h.u.b. 500 þús. á árinu
1954, en heildarupphæð vinnu-
launa um 19 af hundraði.
Tala verkamanna og opin-
berra starfsmanna sem njóta
almannatrygginga -var alls
meir en 5.380.000, 11 af
hundraði meira en 1953. Árið
1954 byggði ríkið 13 millj.
fermetra íbúðarhúsnæðis, sem
540 þús. verkamanna- og
starfsmannafjölskyldur hafa
fengið til umráða. Innlegg í
sparisjóði hækkuðu um 26 af
hundraði, miðað við heildar-
upphæð í lok árs 1953.
Útgjöld til félags- menning-
ar- og fræðslumála voru 14,05
af hundraði heildarútgjalda
ríkissjóðs.
Til þess að fullnægja þörf-
um þjóðernisminnihluta var
veitt til vegabygginga í hér-
uðum þeirra, til heiisuvernd-
ar og fræðslumála alls 255.
360.000 júanar.
Útgjöld til landvarna voru
23.6 af hundraði heildarút-
gjalda ársins 1954.
Er Lí Sjan-njan dró sam-
an niðurstöður af hinni far-
sælu framkvæmd fjárlaga
1954, sagði hann að fjárlögin
hefðu trj'ggt uppbyggingu at-
vinnuveganna undir þeim
kringumstæðum er þjóðarbú-
skapurinn á við stöðugt betri
hag að búa. — (Sinhua).
Sélfaxi íendir á
Egilsstöðum I
Framhald af 8. síðu
Sveinn bóndi á Egilsstöðum.
Sigurður Jónsson var ennfrem-
ur einn hinna fyrstu til að
fljúga þangað og lenti fjögurra
farþega Waco flugvél frá Flug-
félagi íslands árið 1940 á 400
m langri braut, sem þar hafði
verið gerð. Síðan 1940 hefur
Flugfélag Islands haldið uppi
flugferðum til Egilsstaða, og I
sumar hefur verið flogið þang-
að alla virka daga.
Nýi flugvöllurinn á Egils-
stöðum, sem tekinn var í notk-
un fyrir þremur árum, er nú
1500 m langur og 50 m breiður.
Er hann talinn af kunnáttu-
mönnum mjög sæmilegur vara-
flugvöllur fyrir millilandaflug-
vélar, en ferð „Sólfaxa" í fyrra-
dag var aðallega farin til þess
að kanna allar aðstæður þar að
lútandi. Með því að geta notað
Egilsstaðaflugvöll sem vara-
flugvöll fyrir millilandaflugvél-
ar í framtíðinni skapast aukið
öryggi fyrir allt flug milli Is-
lands og annarra landa. — Með-
al farþega í fyrstu ferð „Sól-
faxa“ til Egilsstaða voru ýms-
ir af forráðamönnum flugmála-
stjórnarinnar og fulltrúar frá,
Flugfélagi Islands. — Ráðgert
var, að senda „Gullfaxa“ með
60 farþega til Egilsstaða síðT.
degis í gær, og var heþþingur,
farþeganna á vegum ferðaskrif-
stofunnar Orlof. .