Þjóðviljinn - 04.08.1955, Page 12
máli séra
iMSÍmars Iokið í bili
Búreikníngar skólastjórans gefa enga skýr-
ingu á fjárdrœftinum - Hafa veriS rannsök-
uS tengsl hans viS AlþySuprentsmiSjuna?
Rannsókn Þórðar Björnssonar, fulltrúa sakadomara, á smiðjunnar, en skólastjórinn var
iainu stórfellda fjárdráttarmáli séra Ingimars Jónsson- sem kunnugt er nánasti sam-
JÖÐVIUniN
ar er að mestu lokið, og fer málið nú í endurskoðun á
nýjan leik. Að henni lokinni hefjast yfirheyrslur enn, ef
endurskoðunin gefur tilefni til, en síðan verða niöur-
stöður rannsóknarinnar sendar dómsmálaráðherra sem
íekur ákvörðun um málshöfðun.
Þórður Björnsson var sem Austurbæjar hafa numið á aðra
milljón króna um langt - árabil,
en það er einhver stórfelldasti
kunnugt er skipaður rannsóknar-
dómari í mál þessu og skýrði
ihann Þjóðviljanum frá þessu í ■ þjófnaður sem upp hefur kom-
gær. Kvað hann nú unnið að því I ið hérlendis. Hlýtur það að
að vélrita málskjölin, siðan yrðu
bau send fjármálaendurskoðanda
skólamála, Aðalsteini Eiríkssyni,
og endurskoðunardeild fjármála-
ráðuneytisins. Kvað Þórður trú-
ilegt að endurskoðunin tæki
nokkurn tíma, því þetta væri að
sjálfsögðu mikið reikningsmál;
pyrfti að fara vandlega yfir öll
l'jármál Gagnfræðaskóla Austur-
bæjar um langt árabil.
Er Þórður var að því spurður
hvort rannsóknin hefði að ein-
hverju leyti snúizt um samband
séra Ingimars við Alþýðuprent-
smiðjuna, Alþýðuhúsið og Al-
þýðubrauðgerðina, svaraði hann
aðeins:
— Eg vil ekki segja neitt um
það að svo stöddu. Það mun
koma í ljós á sínum tíma.
Að öðru leyti kvaðst Þórður
ekkert geta um rannsóknina sagt
eða niðurstöður hennar á þessu
stigi málsins.
Eins og Þjóðviljinn hefur áður
skýrt frá mun fjárdráttur séra
Ingimars frá Gagnfræðaskóla
Listvinahúsið
hefur gluggasýningu hjá
Haraldi Árnasyni
Um þessar mundir eru liðin
25 ár síðan leirmunaverkstæði
Guðmundar Einarssonar mynd-
höggvara, Listvinahús, hélt
fyrstu sýningu sína, og í tilefni
þess hefur verið gefinn út
bæklingur með myndum af
ýmsum leirmunum sem gerðir
hafa verið á þessu tímabili í
Listvinahúsinu. Er frágangur
bókarinnar' allur hinn smekk-
Jegasti.
Listvinahúsið hefur að und-
anförnu tekið þátt í sýningum
víða erlendis, m.a. í Þýzkalandi,
Gautaborg, New York, Chicago
og San Fransisco. Hefur Guð-
mundur Einarsson nú látið af
forstöðu fyrir leirmunaverk-
stæðinu, en við er tekinn Einar
sonur hans sem hefur lagt
stund á leirmunagerð hérlendis
og erlendis. í dag opnar List-
vina.húsið gluggasýningu hjá
Haraldi Árnasyni, og verða þar
-sýndir munir sem Einar hefur
•gert að undanförnu, en hann
hefur tekið upp ýmsar nýung-
ar í þessari listgrein.
vera eitt meginverkefni rann-
sóknarinnar að kanna í hvað
þessu fé hefur verið varið, af
hverjum hvötum því var rænt
og hvort einhverjir aðrir hafa
verið í vitorði með séra Ingimari,
beint eða óbeint.
Eins og kunnugt er hefur séra
Ingimar jafnan verið talinn mjög
traustur fjármálamaður, ná-
kvæmur og gætinn. í plöggum
hans, sem tekin voru til rann-
sóknar, munu m. a. hafa fundizt
mjög nákvæmir búreikningar
þar sem færð voru öll útgjöld
hans sjálfs, konu hans og kostn-
aður vegna barna þeirra um
langt árabil. Mun ekkert það
hafa fundizt í búreikningum
þessum sem gæfi nokkra skýr-
ingu á fjárdrættinum mikla.
En í plöggum séra Ingimars
fundust einnig kvittanir fyrir
fjárframlögum til Alþýðuprent-
verkamaður Stefáns Jóhanns
Stefánssonar og hægri klíkunnar
í Alþýðuflokknum og sérfræð-
ingur hennar í fjármálum. Munu
fjárframlög séra Ingimars til Al-
þýðuprentsmiðjunnar hafa verið
svo rífleg að hann eignaðist
þannig eina setningarvélina í
prentsmiðjunni. Verður ekki
öðru trúað en að rannsókn fjár-
dráttarmálsins hljóti að veru-
legu leyti að snúast um þessi at-
hyglisverðu tengsl, enda þótt á-
hrifaríkir menn vilji að sjálf-
sögðu umfram allt forðast að þau
viðskipti komi fram í dagsljósið.
Fimmtudagxir 4. ágúst 1955 — 20. árgangur — 172. tölublað
iiilii helinsmeti
m hnekkt
Nýtt mei í þiístökki sett i Varsjá
Tveir keppeada á íþróttamóti í Osló hnekktu í gær 18
ára gömlu heimsmeti í 800 metra hlaupi.
Keppnina á Bislet leikvangin-
um vann Belgíumaðurinn
Moens. Hljóp hann 800 metr-
ana á 1.45.7 en næstur var
Norðmaðurimi Boysen á 1.45.9.
Gamla metið, 1.46.6, átti
Þjóðverjinn Harbig. Setti hann
það í keppni á Italíu sumarið
1939. Það var eitt af fáum fyr-
irstríðsmetum sem ekki hafði
verið hnekkt.
Á íþróttamótí á Heimsmóti
æskunnar í Varsjá setti Sérba-
koff frá Sovétríkjunum nýtt
heimsmet í þrístökki í gær.
Stökk hann 16.35 m. Fyrra met-
ið, 16.23 m, átti hann sjálfur.
Meðalhiti júlímánaðar á
Héraði var 13.8 stig
Heitasti mánuðuí sem þai helui venS
síðan veðusathuganir hóiust, árið 1937
Héraði í gær. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Júlímánuður varð hlýjasti mánuður sem hér hefur
verið mældur síðan veðurathuganir hófust, en það var
árið 1937. Meðalhitinn reyndist 13.8 stig, en meðalhiti
júlímánaðar þessi 18 ár hefur verið 11 stig.
Hlýjasti mánuður áður á þessu
tímabili var ágúst 1939, en þá
varð meðalhitinn 13,2 stig'. En
Tunnulaust á Siglufirði
Siglufirði í gærkvöld. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Héðan hafa verið fiuttar þúsundir síldartunna undanfama
daga til annarra síldarbæja norðanlands, og má nú lieita tunnu-
laust á Siglufirði.
ráðsmennsku að láta hana ekki
starfa lengur en gert er. Hafa
máttarvöld ríkis og bæjar lít-
inn sóma viljað sýna þessari
verksmiðju, og hafa á undan-
förnum árum fellt eða svæft
margar tillögur sósíalista um
starfrækslu hennar.
Nokltur skip komu hingað i
gær með dálitla veiði, en aðeins
1 skip í dag með tæpar 100
tunnur, er veiðzt liöfðu hér úti.
Allar síldarhafnir norðan-
lands hafa verið tunnulausar
um skeið, og hefur þá gengið
ört á tunnubirgðirnar hér á
Siglufirði. Mun horfa til vand-
ræða um sildarsöltun mjög
fljótlega, ef ekki koma tunnur
annarsstaðar frá einhvern
næsta - daginn.
Tunnuverksmiðja starfar hér
hluta úr ári, og kemur nú
glöggt í ljós afleiðing þeirrar
eins og hitinn núna varð langt
yfir meðallagi varð úrkoman
langt undir því: varð 14 mm,
en meðaltalið mun vera tæpir
50 mm. Hefur verið afarmikið
sólskin sér allan mánuðinn.
Mestur hiti hér varð sunnudag-
inn 24. júlí: 26 stig.
Töðuslætti er nú lokið að
mestu, og hefur verið afbragðs
verkun á heyjum. Hinsvegar
voru tún ekki sérstaklega vel
sprottin, og veidur því klaki í
jörð fram eftir vori, svo og
þurrkar miklir.
Meiri ferðamannastraumur er
nú austur hingað en nokkru sinni
fyrr. Gistihúsin á Hallormsstað
og Egilstöðum hafa verið fullset-
in að undanförnu, og er gert ráð
fyrir að svo verði fram um miðj-
an þennan mánuð.
Ferðum til tunglsins og Mars
fyrir næstu oldamót spáó
Sumir geimsiglingafræðingar eru þeirrar skoðunar að
ferðalög til tunglsins og jafnvel reikistjörnunnar Mars
muni eiga sér stað áður en tuttugustu öldinni lýkur.
Prófessor frá Stuttgart í Vest-
ur-Þýzkalandi lét þá skoðun í
ljós á þingi Aiþjóða geimfara-
sambandsins í Kaupmannahöfn
í gær, að þessar ferðir yrðu
farnar innan 30 ára.
Bandaríkjamaðurinn Frederic.
Durant, forseti Geimfarasam-
bandsins, taldi að ef tæknifram-
farir yrðu jafn örar framvegis
og síðustu ár myndu menn geta
lent geimförum á tunglinu áður
en öidin er úti.
Þjóðverjinn Kraft-Ericke, sem
nú starfar í Bandarikjunum,
gerði grein fyrir áætlun sem
hann hefur gert um að senda
út í geiminn kúlu fyllta vísinda-
tækjum, sem yrði fylgihnöttur
reikistjömunnar Venusar. Myndu
skeyti frá hinum sjálfvirku tækj-
um g'eta veitt mönnum vitneskju
um yfirborð Venusar, sem aldrei
sést fyrir gufuhjúp sem umlyk-
ur stjömuna.
Bandarískur prófessor kvaðst
hafa komizt að þeirri niðurstöðu,
að likamir manna muni þola
flugtak og lendingu geimfara, en
engin vörn sé enn fundin við
áhrifum geimgeislanna. Ekki
nægi að hafa með sér súrefni
á geymum, heldur verði að
framleiða eðlilegt andrúmsloft í
hinum loftþéttu geimförum.
Nýbýlsð lendir
í uppistöðunni
Héraði í gær.
Frá fréttai'itara Þjóðviljans.
Nú verður brátt hafizt handa
um virkjun Grímsár, eins og
getið hefur verið áður. Myndast
mikil uppistaða ofan við stífluna.
Var í fyrra reist nýbýli skammt
ofan við þann stað þar sem stífl-
an verður steypt. Samkvæmt
teikningum á nú nýbýli þetta
að lenda í lóninu — og þykir
mönnum hér þetta athyglisvert
dæmi um skipulagið á íslandi:
Landnám ríkisins lætur byggja
nýbýli á einum stað; síðan koma
Rafmagnsveitur ríkisins og segja:
þetta nýbýli á að fara í lónið
sem myndast hérna ofan við
stífluna!
Flugvél ferst á
Keflavíkurvelli
Mannbjörg varð en á-
höfnin hlaut nokkur
meiðsli
Könnunarflugvél úr banða-
ríska flotanum fórst í lendingu á
Keílavikurflugvelli um kl. 4 e, fa,
á þriðjudag.
Mannbjörg varð, en loftsigl-
ingafræðingur flugvélarinnar
brenndist á andliti og höndum.
Aðrir úr áhöfninni hlutu lítils-
háttar meiðsli er þeir stukku út
úr flugvélinni.
Sjálf flugvélin eyðilagðist
með öllu, Rannsókn á orsökum
slyssins stendur yfir.
Nær 15 þúsund
tunnur saltaðar
á Dalvík
Dalvík í fyrrakvöld.
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Hér er nú búið að salta í sum-
ar milli 14 og 15 þúsund tunnur,
og er það miklu meira en á sama
tíma í fyrra. Mestallur afli sem
berst hingað á land er saltaður;
þó hefur kaupfélagið dálitla
fiskimjölsverksmiðju, sem gétur
unnið úr allt að 200 málum á
sólarhring; geta bátar sem veiða
smáslatta af ósöltunarhæfri síld,
lagt þá veiði sína upp hér, í stað
þess að neyðast til að fara lengra
með hana.
Nokkrir bátar stunda hand-
færaveiðar héðan, en þorskafli
er tregur.
Mikil atvinna er nú á Dalvík,
og hefur nokkuð borið á því að
fólk hafi vantað til vinnu.