Þjóðviljinn - 09.08.1955, Page 7

Þjóðviljinn - 09.08.1955, Page 7
í>riðjudagur 9. ágúst 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (T Hans Kirk: 63. dagur — Nújá, þannig er það þá, sag'ði Grejs að lokum og leit reiöilega á soninn. Ég sagði þér um leið og þú byrj- aðir að vinna fyrir Þjóðverjana að svona samningar gerðu menn að óþokkum. Og það hefur reynzt orð að sönnu. því að þetta er óþokkaskapur, Tómas. — Kæri tengdapabbi, sagði Abildgaard. Tekjur fyrir- tækisins eru undir eftirliti dönsku stjórnarvaldanna. Allt er lagalega og siðferðilega rétt. — Jaeja, er það rétt, Þorsteinn, sagði Grejs og beindi hvössu augnaráðinu að honum. Er það rétt að taka ósanngjarnan ágóða, sem kemur í hlut þjóöfélagsins aö borga? Er það rétt að leyna hluta af hagnaðinum á efnis- reikningi? Því aö ég er ekki vitlausari en þaö, að ég sé vel að það hefur verið gert. Tómas hefur keypt vörubíl og dráttarvélar og steypuvélar og f jandinn má vita hvað fyrir þrjú til fjögur hundruð þúsund — ég þekki mitt eigið fyi’irtæki og veit hvað við áttum fyrir. — Þetta var bráðnauösynlegt, pabbi, sagði Tómas næstum biðjandi. Þetta eru risavaxin verk og vélar okk- ar og verkfæri nægðu ekki. — Og það lítur vel út á pappímum. Stjómarvöldin taka sennilega ekki eftii' því að þú hefur aukið eignir þínar. Og sjálfur hagnaðurinn? Ég segi enn einu sinni: Þetta er óþokkasapur. — Þetta eru hörð orö, tengdafaðir, sagði Þorsteinn. Mundu að við lifum á erfiðum tímum, þegar fram- kvæmdamenn með ábyrgðartilfinningu verða að sjá um að eignast varasjóði. Tómas vei’ður aö tryggja sig, eng- inn. veit hvað komandi ár bera í skauti sér. — Ef lög og réttui’ væm ríkjandi í þessu landi, ætti þetta bókhald að koma ykkur í tukthúsið, sagöi Gi’ejs. Þetta er þaö svívirðilegasta sem ég hef nokkum tíma séð. Ég hef reynt að innræta börnum mínum heiðarleik, en hver er áranguilnn? Og svo á að bendla nafn mitt við viðskipti af þessii tagi. — Já, en elsku pabbi, þú verður að skilja .... stamaði Tómas Klitgaai’d og þurrkaöi svitann af enninu. — Ég skil það alltof vel, drengur minn, sagði Gi’ejs í’ólega. Við lifum á tímum, þegar fjöldi manns hefur af- salað sér réttlæti og heiðarleik, og það hefur þú gert líka. Þú vinnur fyrir Þjóðvex’jana og þú heldur því fram að þú sért neyddur til þess, en enginn getur neytt þig tii að féfletta þitt eigið land. — Lagalega séö .... reyndi Abildgaard að malda í mó- inn. — Þegiðu, Þorsteinn, lögfræði þín hefur engin áhi'if á mig, greip Grejs fram í. Þetta er ekki mál sem lagarefur getur snúið sig út úr með lagaþvættingi. Þetta er alvai-a. — Ef stjómarvöldin fai’a þess á leit erum við fúsir til að endurgreiða hluta af hagnaðinum, sagði Tórnas. Ég hef ekki viljað féfletta neinn, en hef talið mér skylt sem forstjóri þessa gróna fyrirtækis að gera hagstæð við- skipti. — Þú hefðir átt að vera lögfræðingur, sagði Grejs Glitgaard. En nú ertu að tala við mig. Ég þekki þetta fyrirtæki, það er ég sem hef byggt það upp, og 1 því felst allt mitt ævistarf. Ég hef aldrei haft bókhald sem ég hef ekki getað sýnt hverjum sem var. En þessum skjölum — hann lagði höndina á skjölin — ættirðu ekki áð flíka. Ég endurtek: Þetta er óþokkaskapur. Og haldið þið að mér sé Ijúft að segja þetta um mitt eigið fyrii’tæki og um minn eigin son? Emmanúel og Jóhannes höfðu varazt að blanda sér í samræöurnar. Þeir fundu báðir hvernig myndugleikur föðurins fyllti herbergið, og þeir vissu að róleg orð hans hittu í mark. — Æ, þessi ödipusarduld sem við veröum að bmðast með, hugsaði Emmanúel. Hann er gamall og líf hans er senn á enda, en hann hefur mótað okkur frá því fyrsta. Tómas reynir að fylla út í stólinn hans þarna við skrif- borðið, en hann veit að hann er enginn maður til þess. Jóhannes rekur litlu sóðafyrirtækin sín og ímyndar sér að hann sé Grejs. Og ég hef flúiö frá öllu saman inn í skuggaheim skáldskaparins og daglega kvelst ég af tilhugsuninni um það að ef til vill fyrirlíti hann mig. En Sara, hvaö hugsar hún? m BEZT-OTSALAN-BEZT Nýtt á útsölunni í dag: Eftirmi&dags- og samkvœmiskjólar Verð irá kr. 200.00 '1 VESTURGÖTU3 BEZT VESTURGÖTU 3 ■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■«■■■■■■■■! VÍTSÐ t NAGASAKI Framhald af 5. síðu. og erfiðlega vegna ' hinna særðu, er með okkur voru, og eftir tveggja stunda göngu náð- um við loks upp í þéttvaxinn bambusskóg, þar sem skjól var fyrir regni og við gáturn leynzt fyrir flugvélum, sem sveimuðu yfir héraðinu. Við urðum að láta hina særðu liggja á naktri jörðinni, en við reyndum að hjálpa þeim eftir megni. Við áttum lítið eitt af aspiríni handa :þeim er verst voru haldnir, en við höfðum aðeins smá pönnu með graut handa 70 mönnum. I>að fengu hinir 15 er veikastir voru. f þessum skógi höfðumst við við alla nóttina, þaðan sáum við alla borgina brenna. Það var ógnþrungin sjón, og varð okkur hugsað til tvö þús- und ára garnals fordæmis um bruna Rómaborgar, að fyrir- skipan Nerós keisara. Næsta dag var hitinn í borg- inni mikið farinn að minnka og hættum við því á að fara ofan af fjallinu. Því bet-ra var að hafast við í húsarústum stekibygginga, heldur en í hinu raka umhverfi í skógin- um. Nú gátum við gengið úr skugga um, að eldurinn hafði engu hlíft. Myndir dagblað- anna báru það einnig með sér. Án þess að hafa hugmynd um tilveru atómsprengju eða geislaverkanir af völdum henn- ar dvöldumst við í fimm daga undir beru lofti í borginni. Við sváfum undir zinkplötum á gangstéttunum samanhnipr- aðir vegna ótta við eld og hrynjandi kalkmylsnu. Á þessum fimm dögum urð- um við að þola hina ægileg- ustu flugnaplágu er hugsazt getur. Það gróf í öllum sárum, hversu lítil sem þau voru og hræðileg sjón var að sjá mest brenndu sjúklingana. Umbúðirnar limdust við líkamann, sem varð marglitur vegna graftarvilsu og óhrein- inda. Líkami sjúklinganna úði all- ur í flugum og engin von var að geta hlíft sér fyrir þessum vargi. Að berja þær frá sér var ekki mögulegt, því ekki var í annað en sár að berja. Óþefurinn var orðinn svo mikill þarna, að heilbrigðir menn ætluðu að yfirbugast og misstu matarlystina. Sjötta daginn yfirgáfum við þennan stað og fórum fótgang- andi til tjaldbúða í nágrenni Nagasaki, þar sem öryggi var að áliti japansks túlks, og tók ferðin 3 klst. Víða urðum við að fela okkur á leiðinni, vegna hættu á loftárásum. Auðvitað vissum við þá ekki að Bandaríkjamenn voru hætt- ir loftárásum. Hinar nýju tjaldbúðir máttu teljast sæmilegar, því þar var skjól, vatn og góð rúm. Hérna gátu hinir særðu loksins feng- ið nokkra hvild. Hér voru einn- ig fáanleg meðöl, svo hægt var að hefjast handa um aðhlynn- ingu sára þeirra. Nokkrir voru þó að þrotum komnir og dóu við dyr frels- isins. Hinn 19. ágúst siðdegis, var frelsið tilkynnt, og nokkrum dögum síðar komu flugvélar frá Sajpano og vörpuðu niður til okkar matarbögglum! Hinn 23. sept. tóku Ameríkanar okk- ur. Loksins vorum við frjálsir! Víti Nagasaki tilheyrði for- tíðinni! K. G. þýddi úr hol- lenzka eperantoblaðinu la Praktiko. elmUisþáÉtur Heyrnardauf börn komast oft of seint undir læknishendur Deila má um það hvort sjón eða heyrn sé mikilvægara skiln- ingarvit, en gagnstætt sjóninni er heyrnin skilyrði þess að mál- ið nái að þroskast. Öll smáböi’n hvar sem er í heiminum fram- leiða sams konar hjal sem smám saman þróast upp í tal- mál — svo sem mamm-mamm og babba. Þessi hljóð þróast svo smám saman upp í mamma og pabbi eða samsvarandi orð í öðrum málum. Smátt og smátt lærir barnið að mynda stutt-ar setningar og fer því næst að tala. Þessi þróun gengur ósjálf- rátt og fyrirhafnarlaust fyriv sig hjá börnum með eðlilega heyrn, en hjá heyrnardaufu barni er þetta langvinnt og erf- itt nám. — Þetta skrifar yfir- læknir dönsku heyrnarstofnun- arinnar í mánaðarrit danskra lækna, og hann hvetur foreldra til að fylgjast vel með því hvort heyrn barna þeirra sé eðlileg frá því fyrsta. Hægt er að uppgötva lélega heyrn hjá missirisgömlu barni og stundum jafnvel fljótlega eftir fæðingu. Foreldrarnir fá grun um að barnið bregðist ekki eðlilega við háum hljóðum. Ef hálfs til eins árs gamalt barn tekur ekki eftir hrópum eða háværu tali fyrir aftan sig er eitthvað athugavert við heyrn þess og nauðsynlegt er að það sé rannsakað. Nauðsynlegt er að heyrnar- dauf börn noti heyrnartæki frá því að þau eru l-2ja ára svo að þau Iæri að heyra áður en þau ná skólaaldri. En það útheimt- ir að foreldrarnir taki ríkan þátt í þessu vandamáli og þeir fá fyrirhöfn sína ríkulega borg- aða þegar þeir uppgötva að barnið fer að hafa stjórn á rödd sinni, verður ekki eins há- vært og andlegur þroski þess vex. Það verður auðveldara að ala barnið upp og það á hægara með að bjarga sér upp á eigin spýtur. Nauðsynlegt er að læknar skilji þetta vandamál og t.aki heymardauf börn til meðhördl- unar þegar frá unga aldri, e'r.k- um er nauðsynlegt að þau k«n- ist í hendur sérfræðinga áður Framhald á 6. siðu '?Jg 19. Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkux-inn. — Ritstjðrar: Magnús Kjartansson, Sigurður GuSmundsson (áh’i — Fréttastjóri: Jón Bjarnason. — Blaðamenn: Ásmundnr Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, Guðmundur Vigfússon, Ivar H. Jónsson, Magnús Torfi Ólafsson. — Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. — Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: SkólsvRríh* Sími: 7500 (3 línur). — Áskrvftarverð kr. 20 ó mán. í Rvík og nágrenni; kr. 17 annars staðar. — Lausasölnverð kr. 3- — Prentsmið.ia Þjóðviljans h/

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.