Þjóðviljinn - 18.08.1955, Page 10

Þjóðviljinn - 18.08.1955, Page 10
VíKítUlV ,Ht T,í';r.:, Ji'í Hnnum er fartð að svengja' n Margir lesendur munu minnast þess, þegar við vqrum að ræða um þágu- fallssýkina, sem er tölu- vert smitandi í ýmsum landshlutum. Við settum Bókin nm , 1 sland í>ví hefur verið beint til lesenda innan 16 ára aldurs, hvort þeir vildu taka þátt í að skrifa bók úm: ísland, senda átt- hagalýsingar o. fl. — Ekki leið á. löngu þar til fyrsta bréfið barst um þátttakanda. Það var úr^ Ámessýslu. Nánar í næsta blaði. þá í fyrirsögn: „Honum langar til að kyssa henni“, og þið hlóguð að ambögunni. Því var beint til lesenda, að þeir reyndu að hefta útbreiðslu þess- arar sýki eftir föngum. Nú skal birtur hér bréf- kafli um þetta efni frá Ásdisi á Bjargi, 13 ára. Hún segir meðal annars: „Þú minntist einu sinni á það, að við skyldum taka eftir, þegar fólk tal- aði vitlau^t. Hér í Flóan- um er fólkið ekki mikið að vanda málfar sitt finnst mér og má daglega heyra setningar eins og þéssar-. .Honum er fari# .. að svengjd', ,þeim lang- aði*, méT kennir svolítið til‘, ,ég sagði henni Únn- irr það‘, ^ég fór til henn- ar Björgu', og fleira þessu líkt Ég hef nú ekki skrif- að það niður eins og þú stakkst upp • á, en það væri áreiðanlega fróðlegt að gera það. En það versta er að fullorðna fólkið talar lítið réttara en bömin, en það er nú einu sinni svoleiðis, að ,það læra böm sem á bae er títt‘, svo að þau geta líklega lítið gjört að því, krakkagreyin, hvernig þau tala“. Þetta vár gott innlegg, Ásdís! : Að lesa úr greina- merkjum Reynið að leysa úr greinarmerkjum á réttan hátt í eftirfarandi visum: t Við Kriisus ríka sagði Sólon er sá hann allt hans veldi: Sjá allt þitt veldi er eins og ryk við enda lifsins. — — — og Þóroddur þjóna......Tonuna „ “ Guðmundur Gudda ; / Orðsendingar Ema Ólafsdóttir, Rvík. Þökk fyrir bréfið. Svo sem þú munt hafa séð birtum við ljóðið, sem þú óskaðir eftir. En þér láðist að geta um á hvern hátt ætti að ráðstafa 10 krónunum, sem þú lagðir inn í um- slagið. Sendu okkur línur um það. Um danslög — Óli Hörður Þórðarson, Kleppjárns- reykjum, Borgarfirði skrif- ar: „Ég hef mjög mikinn áhuga fyrir danslögum, og þessvegna vil ég koma með uppástungu um að efnt verði til keppni um bezta íslenzka danslagið og texta þess, og að les- endur Óskastundari nnar velji það". Ritstj. beinir þessari uppá- stungu til annarra lesenda til umhugsunar. I næsta bi.aði skulum við ræða una slíka keppni í framkvæmd. Kaupakona í Ámessýslu. Þú bi&ur um tiltekinn texta, sem Tónasystujr syngja. Vonandi færðu ósk þina uppfyllta áður en þú heldur heim úr kaupa- vinnunni. ★ Ásdís á Bjargi, sem skrif- aði blaðinu okkar í vor um sinubrunann o.fl., hef- ur nú sent Óskastundinni ágætt bréf og kærkomið. Hún kemur fram með ýmsar uppástungur, sem teknar verða til greina, auk þess leggur hún til ýmislegt efni, sem birtast mun á öðrum stað í blað- inu. Við sendum Ásdísi á Bjargi beztu kveðju og hyggjum gott til samvinnu við hana. Hvað geríst á hverri mínútu? Frá því er nýlega skýrt hverri mínútu 'séu réykt- í þýzku blaði, að Þjóð- verji nokkur hafi tekið sér fyrir hendur að reikna út hvað gerist í^. helminum í ýmsum grein- um að meðaltali á hverri mínútu. Hér eru nokkrar tölur úr útreikningum hans. Sá, sem rengir út- komuna, getur sjálfur reynt að safna skýrslum og reikna út! En Þjóðverjinn segir: — Á hVerri mínútu fæð- ast 5440 börn og 4630 mannS deyr. Mannkynið notar á hverri mínútu 60 þús, kg af kjöti, 500 þúsund kg af brauði og 1650 smálestir af sykri; það drekkur 25 þúsund lítra af víni og 25 þúsund litra af öli og um 835 þúsund kaffibolla. — Þá segir Þjóðverjinn að á ar um 1270 smálestir af sígarettum, vindlum og píputóbaki. 217 bílar eyðileggjast á hVettá ír.í»- útu í heiminum. Þá tjþlur hann, að á hverri ípúiútu séu seld 117 þúsund frí- merki á bréf og póstkbrt og síminn afgreiði 1917 símskeyti. Læknirinn: Hafið þér gert eins og ég ráðlagði yður og drukkið soðið vatn svona klukkutíma áður en þér borðuðuð miðdegismatinn ? — Já, svaraði sjúk- lingurinn, ég reyndi það, en ég hélt það ekki út nema í tíu mínútur. Og nú er þurrkurinn kominn. Ferð um fagrar sveitir Framh. af 1. síðu. um við Goðafoss. Þótti okkur tnikið til koma hans hrikalegu fegurðar. Þótti okkur verst, að þá var ekki nógu1 bjart veð- ur til að taka myndir. Það var hálfgerð rigning og súld. Að öðru leyti var alltaf yndislegt veð- ur. Einnig skoðuðum við Dimmuborgir. Þar er mikið af sérkennilegum hraundröngum og hellum. Þar fórum við í Trölla- kirkju, sem er stór hellir. Á einum stað voru göng. Við fórum eftir þeim og enduðu þau á syllu í hellinum. Það var ræðu- stóllinn. Þegar við kom- um inn í hellinn, varð okkur starsýnt á litlar, hvítar skellur á veggjun- um og í loftinu. Við fór- um að athuga þetta og voru það þá miðar, sem fólk skrifar nafn sitt á. Jæja, nú héldum við lengra í austur og kom- um brátt austur að Mý- vatni. Þar var mjög fal- legt og dáðumst við mik- ið að hinu fjölbreytta fugla- og dýralífi. Við gátum nú lítið stanzað þarna, en héldum austur í Námaskarð. Okkur þótti mjög gaman að skoða hverina þar. Þama snerum við til baka heim á leið. Nú stönzuðum við lítið. Við vorum komin að Laugtim aftur um hádegi og snæddum þar hádegis- verð. Síðan héldum við áfram þar til við kornum til Akureyrar um ki. 4. Þar máttum við vera frjáls ferða okkar tii kl. 6V2. Sum fóru í sund- laugina, sum skoðuðu sig um í bænum og fóru í búðlr, og enn önnur að heimsækja kunningja og skyldfélk. Klukkan hálf sjö lögðum við af stað heim. Vorum við nú kát og glöð og sungum mik- ið. Einn strákurinn hafði með sér harmoniteu og spilaði hann undir. Við stönzuðum á íal- legum stað í Blönduhiið- inni og dönsuðum. Þegar við komum heim seint um kvöldið, glöð og ánægð yfir þesjari skemmtilegu ferð, var sólin í þann veginn að setjast, og það var mjög fallegt að sjá er hún varpaði gullroðr.um bjarma sínum yfir fjörð- inn og byggðina. 30) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 18. ágúst 1955 nnnaamaaiiiiiiniiiiHuii AÐST0ÐARMENN vantar á veðurstofumar á Reykjavíkurflugvelli og Keflavíkurflugvelli. Umsækjendur þurfa að hafa góða heilsu og góða sjón og heym. Aldur: 17-25 ára. Menntun: Gagnfræðapróf eða hliðstætt próf. Skýr og lipur rithönd nauðsynleg. Kunn- átta í vélritun æskileg. Umsóknir sendist til Veðurstofunnar, Sjó- mannaskólanum, Reykjavík fyrir 1. sept. n.k. Blöð Tímarit Frímerki Filmur *■■■■■■■■■*■■■■■■■■»»•■■•■■■■■•' Tvær stulkur óskast til að starfa í STRAUSTOFU þvottahúss Lands- spítalans. Upplýsingar gefur þvottaráöskonan, sími 1776. Skriístola ríklsspítalanna Staða 0. aðstoðarlæknís í handlækningadeild Landspítalans er laus til um- sóknar frá 1. okt. næstkomandi að telja. Umsóknir sendist stjórnamefnd ríkisspítalanna, Ingólfsstræti 12, fyrir 20. sept. 1955. Skrifstofa ríkisspítalanna SÖLUTURNINN við Arnarhó! ■ ■■■■■■■■■■■•■■■*■■■■■■■■■*■ ■■■■■■■*■■■■■■■■■■■■■■■■*■■■■■■■■■■■■■■■•■•■■■■■■■>>•■••••: Orðsending frá Byggingarfélagi alþýðu í Hafnarfirði Ein þriggja herbergja íbúð til sölu. Félagsmenn, sendi skriflegar umsóknir til stjómar félagsins fyrir 1. september n.k. Stjórnin sóltjöld Gluggar h.f. Skipholti 5. Sími 82287 Húsgagnasmiður sem gettir tekið að sér verkstjóm, og maður, sem vill venjast vélavinnu á verkstæði, geta fengið atvinnu hjá trésmíðafyrirtæki nú þegar. Tilboð með nafni og heimilisfangi leggist inn á afgreiðslu blaðsins fyrir 20. ágúst, merkt „Innréttingar“ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■•■■■, Frá Tjarnargolfinu lí Opið alla virka daga frá kl. 2—10. Á helgum dögum frá kl. 10—10, ef veður leyfir Tjaruargolfið Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og jarð- arför eiginmanns, föður, tengdaföður og bróður okkar Gísla Pálssonar, læknis Svana Jónsdóttir, börn, tengdabörn og systkini

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.