Þjóðviljinn - 19.08.1955, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 19.08.1955, Qupperneq 7
Föstudagur 19. ágúst 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (T Hans Kirk: fór aS stika fram og aftur um gólfið. — Trúði hún mér, eða fann hún að ég laug að henni? hugsaði hann. Hún trúði mér, vegna þess að hún hefur alltaf getað treyst mér. En hún treystir ekki- börnunum síniun, og ef til vill er það þess vegna sem hún vill deyja. Jú, ef til vill treystir hún Söru, en hún er gift lögfræðingnum sínum. Æjá, svona fór það allt saman. Hann hélt áfram að ganga um gólf, eirðarlaus og þungt hugsandi, og ööru hverju læddist hann að svefn- herbergisdyrunum til að hlusta. En þar var steinhljóð og hún svaf sjálfsagt, gamla, þreytta konan hans sem vissi að dauöinn var í nánd. Þannig leið dagurinn, aðeins andartak fór hann iim til hennar og settist hjá rúminu. Hún opnaöi augun og reyndi aö brosa til hans, svo féll hún aftur í mók. Hann læddist út, fór í frakkann sinn og gekk um garð- inn. Það var liðið aö sólsetri og brátt kæmi læknirinn og ef til vill væri bezt að biðja hann að ná í sérfræðing. Og sennilega yrði hann aö tilkynna börnunum hve veik Kjestín væri. Hann gekk inn og var búinn að taka upp heyrnar- tólið á símamrm til að hringja í Söru, þegar hjúknmar- konan kom þjótandi og þreif það úr hendi hans. Hún bað um númer læknisins — en fljótt, í guðs bænum! Hún hafði skilið svefnherbergisdyrnar opnar og Grejs flýtti sér þangað inn. Hann sá strax að hér gat læknir ekkert gert. Kjestín var horfin frá honum. 21. KAFLI Kjestín er jörðuð en lífið heldur úfram.— Ný og mik.il- væg verkefni bíða fyrirtækisins og pað verður líka að rœkja fulltrúaskyldurnar Böm Kjestínar og hálf sóknin fylgdu henni til grafar. Það voru fáir sem ekki vissu deili á Grejs Klitgaard sem hafði orðið mikill verktaki og auðugur maöur og á Kjesínu sem hafði verið honum dygg og góð kona. Nánustu ættingjar hennar og Grejs vom látnir og Grejs þekkti ekki marga af kirkjugestunum. Og þó þekkti hann þá. Það vom sömu vinnulúnu, veðurbitnu mennirnir og sömu þreytulegu konmmar í svörtum síðtreyjmn og með Góðaksturskeppni Bindindisfé- lags ökumanna fór fram í gær í góðaksturskeppni Bindindisfélags ökumanna í gær tóku þátt rösklega 20 bílstjórar úr Reykjavík og Hafnar- firöi, og er þetta fyrsta keppni þessarar tegundar hér á landi. Mikill undirbúningur hafði farið fram undir þessa keppni, m. a. hafði félagið fengið norsk- an mann, Steinar Hauge, til að stjórna henni. Er ekki tóm að sinni til að lýsa því nákvæm- lega hvernig keppninni var hag- að. En í stuttu máli má segja þetta: Ekin var ákveðin leið. Henni var skipt í nokkra áfanga. Var bílstjórunum uppálagt að aka hvern áfanga á tilteknum hraða, \ en breitt var yfir mælaborð hverrar bifreiðar, svo að öku- menn urðu eingöngu að fara eftir hraðaskyni sínu. Þá voru þeir látnir aka aftur á bak inn í „bílskúr", lagt var fyrir þá að aka öðru framhjólinu yfir keilur sem lagðar voru í boga, þeim var fenginn í hendur uppdrátt- ur af torgi með bílum þar sem sumir óku skakkt, og áttu þátt- takendur að finna skekkjumar. Þetta gerðist suður í Hafnar- firði, og er hver bílstjóri kom út frá prófinu var búið að koma fyrir hálmpoka við annað afturhjól bílsins, en hann átti að aka aftur á bak fyrir hús- horn. Gert var ráð fyrir að bíl- stjórarnir mundu ganga þm- hverfis bíl sinn er þeir komu út til að ganga úr skugga um að ekkert væri til fyrirstöðu að aka burt — en fimm fyrstu bílstjór- arnir, sem blaðamenn fylgdust með, létu þetta undir höfuð leggjast og óku allir yfir pok- ann. Ekki er Vitað hvernig hinum reiddi af. Gerðar voru skýrslur yfir þetta allt jafnóðum, og verður unnið úr þeim nú um helgina. Mus sennilegá verða skýrt frá niður- stöðum keppninnar þegar þær liggja fyrir. Silfurfiskurinn Framhald af 5. síðu. ins. Sumir sögðu reyndar að Færeyingarnir hefðu ekki séð síldina umræddan dag heldur einhvem annan dag en hefðu ekki komið því í verk 'að til- kynna um hana fyrr en allt1 var um seinan. Aðrir sögðu | að það hefði verið ufsi sem j Færeyingarnir sáu. En hvað j sem þvi leið var mikið talað í um Færeyingasíld í lrinum ýmsu talstöðvum þetta sumar og flestir voru sammála um að þessi merkilega síld veidd- ist nálega aldrei. Stundum var bræla á síld- armiðunum og þá sást hvorki flugvélasild eða Færeyinga- síld. Þá lá flotinn stundum í vari við Grímsey og þá þökk- uðu þeir guði sem eitthvað höfðu að lesa.. En jafnvel þó engin síld sé á miðunum, getur norð- lenzk sumamótt bætt fyrir marga bræludaga undir Grímsey. Að minnsta kosti þekki ég mann sem lifað hef- ur stórfenglegustu augnablik ævi sinnar á Grímseyjarsundi. Það var um kvöld og sólin varpaði geislum sínum á hinn silfurslétta hafflöt og fjalla- hringinn frá Skaga að Rauða- núpi. Það ríkti dauðakyrrð á hafinu, en úr erlendri út- varpsstöð bámst tónar 7. sin- fóníu Beethovens. Þetta hlýt- ur að hafa verið stórkostlegt augnablik; það koma enn tár í augu mannsins þegar hann segir frá þessu og þó era liðin mörg ár síðan. Og þrátt fyrir allt aflaleys- ið undanfarin ár lokkar síld- arævintýrið ennþá og menn ráða sig á síld upp á trygg- ingu og hina duldu von um mikinn og skjótfenginn gróða. Nú, í byrjun ágúst, er stór hluti flotans að búa sig til iheimferðar af síldarmiðunum. Síldin virðist hafa bragðizt einu sinni ennþá. En þrátt fyrir það sjá víst fæstir eftir því að hafa eytt tveim sumar- mánuðum á miðunum fyrir Norðurlandi. Skólabuxur á drengi, margar teg. Toledo Fischersundi Dívanar ódýrir divanar fyrirliggjandi Fyrst til okkar — það borgar sig. Verzl ÁSBRC, Grettísgötu 54, simi 82108 limiHaimilMMUIMIIIMMlllllMIHHI Otbreiðið Þjóðviljann! Aukin og bætt þjónusta við félags- Sendum menn og vörurnar aðra við- heim strax skiptavini 09 pöntun eru hjöroxl ©kkar er gerS Matvörubúð Bræðraborgarstíg 47. — Sími 3507. o VkRoy HSALW heldur áfram í dag Allt að 75% afslóttur MARKAÐURINN Bankastræti 4. Innilega þökkum við börnum okkar, tengdabörnum, barnaböraum og öllum öðrum vinum fjær og nær, sem glöddu okkur með gjöfum, skeytum, blómum eða hlýj- um handtökum á 60 og 65 ára afmælum okkar þann 12. og 13. ágúst s.l., og gerðu okkur dagana ógleyman- lega. Sérstaklega þökkum við séra Jóni Thorarensen heim- sókn og hlý orð. Guð blessi ykkur öll. ðlafía Kristjánsdótfiir Hringbraut 80, Reykjavík Þóruim Kristjansdóttir Strandgötu 35B, Hafnarfirði. Eginkona mín _ Stella árnadóttir frá ísafirði andaðist 17. þ.m. í Danmörku. Fyrir hönd vandamanna Guðmundur Guðmundsson. Uleefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. — Ritstjójar: Magnús Kjartamsson (áb), Sigurður Guðmundsson — Fréttarit- i^ H ■■miM st'óri: Jón Bjamason. — Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni BeræcKktsson, Guðmundur Vigfusson, ívar H. Jónsson, Magnús Torfi IjpÍÍfwdWIU1PBÓiafsson. — Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. — Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skðlavörðustíg 19. — Sími: 7500 (3. linur). — Áskriftarverð kr. M á máauði í Reykjavík og nágrenni; kr. 17 annars staðar. — Eausasöluverð kr. I. — Prentsm. Þjóðviijans h.f,.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.