Þjóðviljinn - 27.08.1955, Síða 4

Þjóðviljinn - 27.08.1955, Síða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Laugaxdagur 27. ágúst 1955 MARAÞONSKÁKIR MEÐ TILBRIGÐUM r----------------------- þlÓOVIUINN trtgefandi: \ Samoiningarflokkar alþýðu — Sósíalistaf lokkuri nn V.----------------------' Hirting, sem enn svíður undan Sigurður Bjarnason ritstjóri Morgunblaðsins og skjólstæð- ingur hans Bjarni Benediktsson dómsmálaráðherra virðast illa rugiaðir og miður sín ef dæma má af fori'.siugrein Morgun- blaðsins : g'er Vafalaust er greinin sett saman af stjórn- málaritstjóranum í samráði við ráðherrann, en þeir félagar eiga mjög í viik að veriasf um þessar mund'r. Allur almenn- ingur fordæmir framferði Bjarna Benediatssonar, ofsókn- ir hans og fautaskap gegn stjórnmá’aaudstæðingum, setn nú síðast hefvr birst í fang- elsun Magnúsar Kjartanssunar. í>á hefur orðstír Sigurðar Bjamasonar sízt aukizt við þá afstöðu sem blað hans liefur tekið í málinu. I ljósi þessara staðrevnda verður að skoða skrif Morgun- blaðsins í gær. Er þar reynt að verja athæfi Bjama Benedikts- sonar með þeirri fullyrðingu að ,,kommúnistar“ og Þjóð- viljinn viiji afnema prentfrels- ið og f jrist því illa að deila á framferði dómsmálaráðherrans og ofsóknir hans gegn andstæð- ingunum. Og haldreipið sem Sigurður Bjaraason grípur til máli sím tii stuðnings eru „rvimlega þrjátíu ára görou.!“ ummæli Þórbergs Þórðarsonar 1 snilld'irverkinu „Bréf tii Láru“. Gerir Þórbergur þar ráð fyrir þeim andlegu framförum með þjóðinni og þeirri menning- arlegu hreingerningu í landinua að forheimskunar.áróður íhalds- ins eigi svo erfitt uppdráttar að Morgunblaðið verði ekki lengur til. Finnst Sigurð Bjarnasyni þessi möguleiki sýnilega ekkert tilhlökkunar- •efni og snýi staðreyndunum þannig við að Þórbergur og „kommúnistar" séu fjand- menn prentfrelsisins og vilji banna Morgunblaðið! Ritstjóri stjómmálablaðs sem gripur til svona barnalegrar „röksemdafærslu" og aug- ljósra útúrsnúninga er illa á vegi staddur. Það er nefnilega sitt hvað að vilja banna for- heimskunarskrif Morgunblaðs- ins eða óska þjóð sinni þess þroska og ‘ andlegu upplýs- ingar að hjól lygaverksmiðj- unnar stöðvist af þeirri ástæðu og fáir eða engir líti við fram- leiðslunni. Hið síðara vakti fyr- ir ritsnillingnum sem veitti í- haldinu þá maklegu hirtingu í ,,Bréfi til Láru“ sem enn svið- ur svo undan að meira að segja aldursflokkur Sigurðar Bjama- sonar kveinkar sér, og var hann þó við vöggustokkinn þegar Þórbergur reiddi þann refsi- vönd að íhaldi og auðvaldi þess tíma. — En útúrsnúningar Sig- urðar Bjarnasonar bjarga .hvorki honum né Bjama Bene- diktssyni. Bjami situr með for- dæmingu heilbrigðs almenn- ingsálits fyrir misnotkun emb- ættisvalds og „drengskapur“ ■ fíigurðar verður til viðvörunar í .íslenzkri blaðamennsku um Janga framtíð. Sunnudagur 21. ágúst. I gær lauk aðeins einni skák i landsliði: Bent Larsen vann Kahra. Finninn er góður skák- maður, en hefur sjaldan teflt á erlendum skákmótum og er nokkuð mistækur. Hann veitti ekki mikið viðnám, enda vann Bent auðveldlega. Guðjón átti öllu betra gegn Martinsen í tafllokum, þar sem kóngarnir vom einir eftir- aðalmanna, en sjö peð voru eftir hjá hvomm. En i stað þess að láta sér nægja jafn- teflið sem hann átti á hendi, lagði Guðjón í leiðangur að peðabaki hjá andstæðingnum — en varð of seinn. Báðir vöktu upp nýja drottningu, en Martinsen var leik á und- an. Skákin fór að vísu í bið, en var auðrakin til taps. Þetta var önnur skákin sama dag- inn, sem fór á þessa leið, því að um morguninn hafði Guð- jón leikið sig í mát gegn Vest- öl, er átti í mesta lagi kost á jafntefli ella. Frammistaða Guðjóns á þessu móti er ólík því sem maður á að venjast frá honum, hann fær góðar taflstöður, en er orðinn þreyttur þegar að þvi kemur að vinna úr þeim og lætur þá tækifærin ganga sér úr greip- um. Ingi átti þunga skák við Stemer, sem teflir því betur sem lengra liður á mótið. Hallaði heldur á Inga, en þó ekki vemlega, og einu sinni átti hann þess kost að snúa taflinu algerlega sér í hag, en missti af því tækifæri. Stera- er stóð aðeins betur að vigi 1 biðstöðunni, en Ingi náði jafn- tefli. Og þá er komið að Friðrik, sem situr enn og teflir við Hildebrand þegar þetta er rit- að — skákin er búin að standa 71/2 klukkustund alls, en henni er nú loks að ljúka. Hilde- brand hafði grafið upp gamalt tilbrigði í Sikileyjarleik, og átti Friðrik um tvennt að velja: að hætta sér í ævin- týralegar flækjur, þar sem hann gat unnið á í bili en lagt sig í þeim mun meiri hættu á eftir, eða einfalda leið, er gaf lítið í aðra hönd — og valdi síðari kostinn eins og sjálfsagt var, ekki sízt vegna þess að búast mátti við að andstæðingurinn væri ná- kunnugur flækjunum. En fyr- ir bragðið var komið fram í tafllok áður en Friðrik gat nokkm áorkað sér í hag. í tímahraki í lok skakarinnar tókst honum loks að ná betra tafli og í biðstöðunni var skákin greinilega unnin, enda þótt vinningurinn taki svona langan tíma og sé talsvert vandtefldur. Vestöl vann Niemela, hann hefur bætt við sig tveimur vinningum í dag og er þá kom- inn aðeins upp fyrir miðjan flokk. Haave teflir maraþonskák við Axel Nielsen. Þegar hún fór í bið vom tveir hrókar og sex peð hvomm megin, en Axel átti aðeins betri stöðu. Nú er annað hrókaparið horf- ið og nokkuð af peðum, einu fleira þó frá Haave, og ég geri fastlega ráð fyrir að Ax- el vinni, þótt langt sé í land enn. I meistaraflokki em okkar menn að sækja sig, Ingvar og Láms unnu báðir, Arinbjöm gerði jafntefli, en Jón yfir- tefldi sig gegn sænska lands- liðsmanninum Lundh og tap- aði. ✓---------*-------------- Skákbréf frá Guðmundi Amlaugssyni -------------------------/ Mánudagur 22. ágúst. í umferðinni í gær gerðust óvænt tiðindi, og lítill friður var hér í blaðamannaher- berginu fyrir mönnum sem vom að síma blöðum sínum stórfréttir. Með allri virðingu fyrir Friðrik hafa norsku blöðin talið Bent Larsen lík- legri til sigurs. Það hefur svo styrkt menn í trúnni að hann hefur unnið sumar af skákum sínum hér fljótt og auðveld- lega — hann hefur að vísu verið mjög heppinn oftar en einu sinni, en því veita menn ekki eftirtekt nema þeir fylg- ist vel með, Það er lokasigur- inn sem gildir. En í gærkvöldi lagði Finn- inn Niemela hann eftir öllum kúnstarinnar regliun, og þeg- ar við þetta bætist að Finninn er í neðsta sæti og þetta var fyrsta skákin sem honum tókst að vinna, geta menn í- myndað sér æsingu blaða- mannanna. Og í þessari sömu umferð stóð Friðrik höllum fæti í fyrsta skipti á mótinu. Hann átti svart gegn Axel Nielsen, en Axel var eini tefl- andinn sem Friðrik tapaði fyr- ir á síðasta Norðurlandamóti í Esbjerg fyrir tveimur árum. Friðrik valdi kóngsindverska vörn, en fékk fljótt öllu verra og mátti sækja á brattann alla skákina. Axel hélt sig eiga góðar vinningsvonir þeg- ar skákin fór í bið, en allar vinningstilraunir strönduðu á traustri vöm Friðriks. í þessari umferð áttust Ingi og Guðjón við. Sú skák varð jafntefli eftir harða baráttu, sjötta jafntefli Inga í röð. Hann er að verða leiður á jafnteflunum og vill ólmur breyta til. en það er hægar sagt en gert. Stemer magn- ast með hverri umferð og lagði landa sinn Hildebrand í ágætri skák. Skák Norðmann- airna Martinsens og Vestöls varð hádramatísk, Martinsen tefldi ágætlega og var kom- inn í vinningsstöðu, en svo varð taugaæsingin og tíma- hrakið honum um megn, hann lék eins og óviti, missti drottn- inguna og mátti gefast upp. Haave gerði jafntefli við Kahra. I meistaraflokki gekk okkar mönnum ágætlega í þessari umferð. I a-riðli unnu Ingvar og Arinbjöm og vom það verðmætir vinningar, ekki sízt Ingvars sem vann Tor Störe, norskan landsliðsmann og hættulegan keppinaut um verðlaun. 1 B-riðli vann Lárus en Jón gerði jafntefli. I meistaraflokki standa sakir þannig, að einn maður virðist bera af öðmm kepp- endum. Það er Daninn Börge Andersen, 21 árs verzlunar- skólamaður. Hann vinnur skákir sínar létt og leikandi og hefur aðeins tvívegis verið í hættu, fyrst móti landa sín- um Lie, er átti kost á jafn- tefli en ætlaði sér meira og tapaði, og móti Arinbimi. Sú Samtímis Norðurlandamót- inu í Osló fer fram annað skákmót á Norðurlöndum, sem vekur meiri athygli út um heim. Þetta mót er inter- zonalmótið í Gautaborg, næst- síðasti áfangi fyrir einvígið um heimsmeistaratitilinn. Þarna em saman komnir tafl- meistarar frq Evrópu og Ameríku, sem hafa unnið sér þátttökurétt með sigmm á öðmm mótum, zonalmótunum, en eitt þeirra var skákmótið í Prag, sem Friðrik Ólafsson og Guðmundur Pálmason sóttu fyrir okkar hönd. Interzonalmótið í Gautaborg fór af stað samtímis Norður- landamótinu með mikilli við- höfn: útvarp, kvikmyndir og sjónvarp kepptust um að sýna upphaf mótsins sem bezt. Fjöldi áhorfenda hefur fylgzt með skákunum, en ekki er laust við að mótið hafi valdið þeim vonbrigðum, lit- laus jafntefli em allt of al- geng. Það er blendin ánægja að kaupa sér aðgang til að horfa á tvo víðfræga sóknar- meistara eigast við þegar allt sem gerist er að þeir sitja andspænis hvor öðmm nokkra stund og leika leikjum sem standa í hverri kennslubók, en svo þegar taflið á að hefjast fyrir alvöru, er staðið upp — samið jafntefli. En stundum slær þó neistum, einkum hjá yngri mönnunum eins og í skákinni hér á eftir, þar sem eftirlætisbam áhorfenda, Júgó- slafinn Fuderer, sigrar sinn bandaríska keppinaut, sem ekki er heldur beygður af elli. SikileyjarleUiur Bisguier —- Fuderer skák er llklega harðasta skáit beggja á mótinu. Börge fóm* aði hrók fyrir biskup en kom í staðinn peði é 7. reitaröð. Eftir það var skákin lengi tvi- sýn og átti Arinbjöm einhver vinning.ifæú um tínva, en að lokum tóksr. Börge að snúa ská'ciuui s' r i hag. Böi ge er nú rr.eð !■'> vinning af 8 mög"r.egui.'>, og er bið frábær frammistaí... Ingr'ar er nú kominn í annað sæti með 5!^ vinni’g al 7 mögulegum, en hættulegustu keppinautar hans eru Svíinn Johan Nils- son með 5 af 7 og Thor Störe með 4 af 7. í B-riðli er sænski lands- liðsmaðurinn Uno Körling efstur með 6 vinninga af 8 mögulegum, en næstir honum koma Láms Johnsen og Finn- inn Heilimo, sem var skák- stjóri á olympíumótinu í Hel- sinki 1952. I þessum riðli er annar Finni, Ojanen, sem get- ur orðið jafnhár þeim eða jafnvel hálfum vinning hærri, en hann á ö'ðskák, sem deilur hafa risið út af. Dómur hefur fallið á þá leið að skákina skuli teíla — andstæðingur Ojanens hafði ekki mætí cil leiks vegna misskilnings og var skákin því fyrst dæmd unnin fyrir Ojanen — en ekki hefur unnizt tími til að tefla hana enn. Jón Pálsson hefur 4i/2 vinning af 8, svo að ekki er útilokað að hann fái verð- laun líka, og verður þá tæp- ast annað sagt en að meist- araflokksmenn okkar hafi staðið sig eftir vonum. 1. e2—e4 c7—c5 2. Rgl—f3 d7—d6 3. g2—g3 Rg8—f6 4. d2—d3 b7—b6 5. Bfl—g2 Bc8—b7 6. 0—0 g7—g6 7. Rf3—h4 Bisguier hefur stýrt fram hjá. þeim leiðum sem oftast eru tefldar í Sikileyjarleik, og ætlar sér nú að fá f-peðið fram. Sænski meistarinn. Lundin, sem ég hef þessa skák eftir, mælir með b2—b3 og Bb2. 7. . . . Rb8—c6 8. f2—f4 Bf8—g7 9. Rbl—d2 o—o 10. c2—c3 Rf6—d~ 11. a2—a4 Rökréttara var f4—f5 og Rd2 —f3. Eins og hvítur teflir hleypir hann svarti af stað drottningarmegin, en kemur sókn sinni kóngsmegin ekki i gang. 11. . . . a7—a6 12. f4—f5 b7—b5 13. a4xb5 a6xb5 14. HalxaS Dd8xa8 15. f5xg6 h7xg6 16. Rd2—f3 Da8—a2! 17. Hfl—f2 Da2—bl 18. Rf3—d2 Da2—al 19. Ddl—c2 Rd7—e5 20. Bg2—fl Rf6—g4 21. Hf2—e2 b5—b4 22. Rd2—b3 Da2—a7 23. c3—c4 Da7—al 24. Rh4—f3 Hf8—a8 25. Bcl—g5 Bb7—c8 26. He2—el Hótunin Hal lítur vel út, e» svartur er gmnsamlega á* hyggjulaus. 26. . . . Rg4—e5 27. Hif3xe5 Bg7xe5 Framhald á 7. BÍðu. j Frá interzonalmótinu í Gautaborg

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.