Þjóðviljinn - 10.09.1955, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 10.09.1955, Blaðsíða 4
4) — ÞJÓÐVHJINN — Laugardagnr 10. september 1955 HEFUR OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN Hreyfill Danskt skip fast í xsmim við Græxtland Norskt skip á leið til Meistaravíkui með mestalla áhölnina 09 farþegana Danskt Grænlandsfar, Jopeter, hefur setiö fast í ísnum við Grænland undanfarna daga. 26 menn af áhöfn og far- þegum eru nú á leið til Meistaravíkur með norsku skipi. Norskia skipið, Tottan, var væntanlegt til Meistaravíkur í gærkvöld og verða þeir 26 menn af Jopeter sem það tók fluttir með flugvél þaðan yfir Reykjavík til Kaupmannahafn- ar. Um borð í Jopeter eru enn sex menn af áhöfninni, auk tmueiöcus si&uumoRrauð on Minningar- kortin eru til sölu í skrifstofu Sósí- alistaflokksms, Tjarnargötu 20; afgr. Þjóðviljans; Bóka- búð Kron; Bókabúð Máls og menningar, Skólavörðustíg 21 og í Bókaverzlun Þorvald- ar Bjamasonar í Hafnarfirði ’^rsrvrrsr^vr^srrsrrNrsrsr^-rrvrNrr^rNr^rsrrs^ Blöð Tunarit Frímerki Filmur SOLUTURNINN við Arnarhól skipstjórans. Danska fshafsfar- ið Kista Dan er nú á leið til Jopeters og er ætlunin að það dragi‘Jopeter út úr ísnum. # I San Marino 20.000 ferðamenn voru stadd ir í San Marino um síðustu helgi, þegar þetta minnsta lýð- veldi heims hélt hátíðlegt 1655 ára afrnæli sitt. Jarðneskar leifar heiiags Marxusar sem sagður er stofnandi lýðveldis- ins voru bomar um götur bæj- arins og fylgdi þeim allur her lýðveldisins, sem í eru 20 menn. 1 broddi fylkingar gengu ný- kjörnir þingmenn og stjóm landsins. Sósíalistar og komm- únistar hafa haft stjórn lýð- veldisins á hendi síðan stríði lauk og unnu sigur í síðustu kosningunum í sumar. 2900 timnur síldar í þremur síldveiðistöðvum hér syðra bárust á land rúml. 2900 tunnur síldar í gær. Þetta var afli 49 báta svo aflinn á bát er ekki ýkja mikill. 21 Grindavíkurbátur fengu samtals 1050 tunnur. Hæst var Steinunn gamla með 155 tunnur. 13 Sandgerðisbátar fengu 1055 tunnur. Hæst var Hrönn með 164. 15 Hafnarfjarðarbátar fengu 800 tunnur. Hæstur var Fagri- klettur með 140 tunnur. Verkföll verða tíðari í USA Verkföllum og verkfallsmönn- um fjölgar stöðugt í Banda- ríkjunum. I nýútkominni skýrslu bandaríska verkamála- ráðuneytisins segir, að í júlí hafi 900.000 verkamenn verið í verkfalli lengri eða skemmri tíma, en „aðeins“ 650.000 í júní. Mesta verkfallið í júlí var verkfallið í stáliðnaðinum, en auk þess lögðu m. a. 30.000 kopamámumenn og 18.000 vörubílstjórar niður vinnu í mánuðinum. Flest verkföllin stóðu þó að- eins skamman tíma, þar sem vinnuveitendur voru neyddir til að láta undan kröfum verka- manna. Verkfallsdögum fækk- aði því úr 3.400.000 í júní ofan í 3.200.000. Týndi hring sem metinn var á 301.000 krónur Indversk kona sem var á ferðalagi í Stokkhólmi í síð- ustu viku týndi platínuhring, settum dýrmætum gimsteinum. Hringurinn var metinn á um 300.000 krónur. Fjöldi lög- regluþjóna var gerður út að leita að hringnum, en daginn eftir kom maður með hann og hafði sá fundið hringinn á götu. Honum voru greiddar rúmlega 20.000 krónur í fundarlaun. m innirujcurófyfoU tó'i ->m"! í ■ ■ ! ★ Drengja- og telpu- ★ nærföt ic Buxur frá kr. 12 ★ Bolir frá kr. 11 ★ Síðar buxur frá kr. 16 j TOLEDO Fischersundi Sílakkunimi GREIÐIÐ FLOKKSGJÖLD VKKAR SKILVlSLEGA. Þriðji ársfjórðungur féll í gjalddaga 1. júlí. Skrifstofan Tjarnargötu 20 er opin dag- lega kl. 10—12 og 1—7. Gler er tU margra 'hluta nytsamlegt. Það er meira að segja hœgt að nota það í plógjárn, og var sú nýstárlega notkun kynnt ,á sýningu ilandbúnaðartœkja í Austur- Þýzkalandi fyrir skömmu. Glerplógarnir sjást á myndinni hér fyrir ofan. Ben Júsef sagður hafa fallizt á nýskipan Faure í Marokkó Frá því var skýrt 1 París í gær, að Ben Jússef,fyrrverandi soldán í Marokkó, hefði fyrir sitt leyti fallizt á saxnkomu- lag það sem gert var milli frönsku stjómarinnar og full- trúa sjálfstæöismanna Marokkó í Aix-les-Bains. Auglýsing um lausar lögregluþjónsstöður í Reykjavík Nokkrar lögregluþjónsstöður í Reykjavík eru lausar til umsóknar. Umsækjendur skulu vera á aldrinum 22-28 ára og 178-190 cm á hæð. Víkja má þó frá þeim skilyrðum, ef umsækjendi hefur sérstaka kunnáttu til að bera, sem nauðsynleg er talin fyrir lögregluna. Umsóknarfrestur er til 1. október n.k. Lögreglustjórinn í Reykjavík, 9. september 1955. í gær komu til Parísar þrír fulltrúar sjálfstæðismanna í Marokkó frá Madagaskar þar sem þeir höfðu rætt við Ben Júsef, fyrrverandi soldán, sem dvelst þar nú í útlegð. Leiðtogi Uta n ríkisráðher r- ar ftala eg Breta ræðast við Martino, utanríkisráðherra Italíu, er nú staddur í London Hann ræddi í gær við Macmill- an, utanríkisráðherra Bret- lands. Macmillan lofaði stuðn- ingi Breta við umsókn Italíu um upptöku í SÞ. Stjórnarbyltingí Brasilíu? Framhald af 12. síðu. ir, sakaðir um vopnastuld úr vopnabúrum hersins. Ætlun þeirra var að nota vopnin til að taka völdin og hindra kosn- ingar. Einn þeirra hefur að sögn játað að hafa stolið 20 vél- byssum, 84 rifflum og 26 skamm- byssum í þessu skyni. Vopn lögð fram á þingi Allt komst í uppnám á þinginu í Rio de Janeiro í gær, þegar einn af stuðningsmönnum Kubit- sheks opnaði pakka, fullan af vopnum, sem hann sagði að lög- reglan hefði fundið við rannsókn í húsi einu þar sem einn af keppinautum Kubitscheks hefur aðaibækistöðvar sínar. þeirra, fyrrverandi pasha af Se- frou, sagði fréttamönnum við komuna, að soldán hefði fallizt á samkomulag það sem franska stjórnin gerði við sjálfstæðis- flokka Marokkós í Aix-les-Bains. Helztu atriði þessa samkomulags voru, að Ben Arafa yrði vikið úr soldánssessi, Ben Jússef fengi að setjast að í Frakklandi, ríkisráð tæki við soldánsvöld- um og kæmi á fót ríkisstjórn sem sjálfstæðismenn ættu full- trúa í. i Ben Arafa þrjóskast við Allt þetta átti að vera komið í höfn fyrir 12. september, svo að nú er naumur tími til steínu. Ben Arafa hefur enn ékki feng- izt til að segja af sér, þrátt fyr- ir ítrekaðar tilraunir franska landstjórans, de la Tour, til að neyða hann til þess. Þeir soldán ræddust við enn einu sinni í gærkvöld. Mikillar óánægju með seina- ganginn í þessum málum gætir meðal sjálfstæðismanna í Mar- okkó Æ.F.R. Félagar eru vinsamlega minntir á að greiða ársgjald sitt á skrifstofunni Tjamargötu 20. Markið er að allir félagar verði skuldlausir þegar ársþing ÆF verður haldið um næstu mánaða mót. Skrifstofan er opin sem hér segir: alla virka daga nema laugardaga kl. 6.30—7.30, en laugardaga kl. 3—5. Og bregð- izt þið nú vel við þessari á- minningu okkar. /

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.