Þjóðviljinn - 16.09.1955, Blaðsíða 9
— Föstu&igur 16. septei»b<?r 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (9
Frá þingi iþróttasambands Islands
Það þótti nokkrum tíðindum
sæta að skýrsla og reikningar
stjórnarinnar skyldu samþykkt-
ir gjörsamlega umræðulaust, og
var það í fyrsta sinn í þing-
sögu íþróttasambands Jslands.
En þetta logn stóð ekki nema
til kvölds. Þá höfðu menn átt-
að sig. Kom þá fram, tillaga. um
að hefja umræður aftur og var
það samþykkt. Hafði komið upp
alvarlegur misskilningur milli
fyrrverandi gjaldkera og núver-
andi eða réttara sagt, fyrrver-
andi gjaldkeri hafði misskilið
orð þess núverandi. Eftir nokkr-
ar umræður leiðréttist það sem
betur fór. Hófust síðan almennar
umræður og var komið víða við.
Haraldur Steinþórsson:
Það væru mér satt að segja
nokkur vonbrigði ef ekki væri
um annað rætt hér en peninga.
Eg vil því leyfa mér að ræða
nokkuð um íþróttir. ÍSÍ er sér-
samband fyrir nokkrar íþrótta-
greinar .Mér fyndist eðlilegt að
í skýrslu framkvæmdastjómar-
innar væri sagt frá íþróttastarfi
þessara greina, á svipaðan hátt
og sérsamböndin gera í skýrsl-
um sínum. Þá væri fróðlegt að
hafa fyrir sér tölu starfandi í-
þróttamanna. Hve margir hverfi
Körfuknattleikur
1'Argentínskt körfuknattleiks-
lið var á ferðalagi um Sovét-
ríkin í sumar og keppti pá
m. a. við lið frá Dynamó
í Moskuct. Myndin er frá
þeim leik.
EM í skotfimi
Evrópumeistaramót í skotfimi
stendur yfir þessa dagana í
Búkarest. Keppendur eru frá
Austurríki, Belgíu, Bretlandi,
Búlgaríu, Danmörku, Finnlandi,
Frakkl. Grikkl., ftalíu, Júgósl.,
Monaco, Noregi, Póllandi, Rúm-
eníu, Saar, Sovétríkjunum, Sviss,
Svíþjóð, Tékkóslóvakíu, Ung-
verjalandi og Þýzkalandi.
í þeim greinum sem þegar
hefur verið keppt í hafa Rúss-
arnir haft yfirburði. Þrír þeirra,
Tsjerkassoff, Sorokin og Nason-
off náðu í einni greininni á
mánudaginn 587 stigum, sem er
betri árangur en heimsmet
Kalinitjenkos.
að skólanámi loknu til íþrótta-
iðkana hjá félögunum. Persónu-
lega er ég hræddur um að okkur
mundi bregða í brún ef við
fengjum þær niðurstöðutölur.
Það er tilvalið tækifæri til að
ræða allt þetta hér. Við full-
trúarnir ættum að segja frá
reynslu okkar hver á sínum
stað. Þar sem ég þekki bezt til
er þörf úrbóta. Við þurfum að
finna úræði og ætti ekki að
saka að ræða málið.
Framkvæmdastjóm ÍSÍ á að
hefja nú þegar kynningár- og
útbreiðslustarfsemi. Hún gæti
unnið mikið að því með útveg-
un kvikmynda, erindrekstri o. fl.
Við þurfum að hjálpa hverjir
öðrum. Það hlýtur að vera hlut-
verk ÍSÍ að hjálpa ungum
starfskröftum til starfs, og að
skipuleggja málin. Við þurfum
að hafa meira samstarf við
skólana. Hafa menn hugleitt hve
það samband er lítið. Þetta á
ÍSÍ að skipuleggja og stjórna.
Sjálfsagt eru til áhugamenn
um þetta meðal skólamanna en
ég veit ekki hvort það er al-
mennt.
Tengslin milli íþróttakennara-
skólans og íþróttakennara eru
losaraleg. Margir kennaranna
geta ekki kennt mjög vinsæl-
ar íþróttagreinar svo sem
knattspyrnu og handknattleik.
Eg hef ekki neinar sérstakar
tiilögur í þessum málum, en
vænti þess að allsherjamefnd
taki þetta mál upp í tillögu-
formi. E.t.v. þykir þetta ekki
tímabært og bið ég þá afsökun-
ar á þessu spjalli. Það sem fyrir
mér vakti var að vekja athygli
á þessu til framdráttar íþróttun-
um og íþróttalífi landsmanna. —
Hermann Guðmundsson:
Því miður er ekki hægt að
gefa ítarlega skýrslu um íþrótta-
starfið, þar sem íþróttahéruðin
öll senda ekki skýrslur. Það er
það veikasta í starfi okkar að
geta ekki haft nánara samband
við félögin, farið til þeirra til
að vekja þá eldri til nýrra starfa
og finna nýja menn, en allt kost-
ar það peninga. Það verður að
komast betra og meira samband
á milli til að blása lífsanda í
félögin, ef með þarf. Útbreiðslu-
starfsemi er því nauðsyn til að
efla starfsemi ÍSÍ.
Jón Stefánsson:
UMS Eyjafjarðar hefur um
langt skeið hjálpað til með í-
þróttakennslu í skólum. íþrótta-
salir eru því miður ekki til á
sambandssvæðinu en samkomu-
hús eru notuð. í flestum tilfell-
um hefur þetta gengið vel og
sambandið fengið þakkir fyrir.
Við tökum íþróttastarfið hjá
okkur meira sem leik en stjörnu-
uppeldi. Núna stendur yfir t. d.
knattspyrnumót 5 félaga þem
lýkur í dag. Við viljum fyrst og
fremst sýna þá viðleitni að full-
nægja leikþörf og fylla upp í
aðra starfsemi.
Það væri mikilsvirði fyrir
okkur ef fræðslumálastjómin
réði fastan farkennara í skólana
samkv. fræðslulögunum.
Við getum ekki státað af úr-
valsmönnum, og ef þeir yrðu til
eru þeir höfuðsetnir af öðrum
sem reyna að ná þeim til sín.
Þetta getur gert það að verk-
um að menn hafa takmarkaðan
áhuga fyrir að ala upp menn
til að keppa fyrir félög í Reykja-
vík.
Eg undirstrika það að hvert
héraðssamband þarf að hafa
fastráðinn kennara til að leið-
beina.
Félögin vinna mikið gagn þó
þau komi ekki fram með marga
afreksmenn.
Sigurður Brynjólfsson:
Eg er sammála um að áróður
fyrir íþróttastarfseminni í heild
er nauðsynlegur. Það er rétt að
aðgreina verður fréttir frá
fræðslu. Eg vil benda á hvort
ekki sé rétt að koma íþróttafrá-
sögnum í bamatíma, fá snjalla
íþróttamenn til að segja frá
reynslu sinni og gefa ráðlegg-
ingar.
Við sitjum með eftirvæntingu
þegar íþróttafréttapistlamir
byrja en fræðsluna vantar.
Eg fullyrði að við glötum
mörgum góðum efnum frá okk-
ur. Það er alvarlegra mál en þið
haldið. Það hefur neikvæð áhrif
á starf okkar. Við höfum fengið
blóðtöku, sem er síður en svo til
að lyfta starfsemi okkar. Það
verður að gæta hófs í því að
innbyrða í önnur félög beztu
krafta okkar. Ekki sizt vegna
þess að við eigum unga menn
sem eru að vaxa. Þeir hætta að
sjá meistarann sinn, hann kepp-
ir með öðru félagi langt í burtu.
Það er ekki lengur gaman að
koma og horfa á.
Upp úr öllum þessum umræð-
um sem urðu alllangar komu svo
fram tillögur um útbreiðslu-
starfsemi og var veitt til þess
10.000 kr. á fjárhagsáætlun
ÍSÍ.
„íþróttaþing ÍSÍ, haldið í Hlé-
garði í Mosfellssveit 10—11.
sept. 1955 felur framkvæmda-
stjórn ÍSÍ í samstarfi við stjóm-
ir sérsambandanna að efna til
leiðbeinenda- og leiðtoganám-
skeiða í samvinnu við íþrótta-
kennaraskóla íslands“.
„fþróttaþing ÍSÍ haldið í Hlé-
garði 10,—11. sept. 1955 beinir
þeim tilmælum til framkvæmda-
stjómar ÍSÍ að senda fulltrúa
sinn til sambanda þess til þess
að örfa og styrkja hið félagslega
starf.“
Bandaríski lyftingamaðurinn Paul Andersson varð fyrstur
manna til að lyfta meir en 500 kg. samanlagt (hann lyfti 528
kg.) I olympískri þríkeppni. I sumar ferðaðist hann um Sovét-
ríkin ásamt fieiri löndum sínum og keppti við sovézka lyftinga-
menn. Á myndinni sést Andersson lyfta 182,5 kg.
Eviópukeppnin i knaltspyinu
Mörg sterkustu félaganna;
skerast úr leik
Það virðist ganga á ýmsu um
undirbúning keppni þeirrar milli
beztu knattspymuliða Evrópu,
sem franska íþróttablaðið
l’Equipes átti hugmynd að en
FIFA tók síðar að sér að sjá um.
Ýms fél., sem upphaflega voru
valin til keppninnar, hafa nú
sent afboð. Þannig mun hið
kunna ungverska lið Honved
ekki keppa heldur Vörös Lobogo;
í stað Chelsea, meistara ensku
deildakeppninnar í fyrra, kem-
ur pólska liðið Gwardia, danska
liðið AGF keppir í stað KB og
Philips Eindhoven í stað Hol-
lands Sports.
Ekki hefur enn verið ákveðið
„Iþróttaþing ÍSÍ, haldið í Hlé-
garði í Mosfellssveit 10.—11.
1955 þakkar þá fréttaþjónustu,
sem Ríkisútvarpið veitir um
íþróttamál og væntir þess, að sú
starfsemi haldist. Um leið ítrek-
ar ÍSÍ áskorun sína frá 6. nóv.
1954 til útvarpsráðs um að láta
íþróttasambandinu og sérsam-
böndum þess í té útvarpstíma
einu sinni í viku til útbreiðslu
og kynningarstarfsemi um
íþróttamál.“
Síðar verður getið annarra
tillagna sem samþykktar voru.
j Fjértmgur |
Arsenaí
\ \
wersnmr
\ :
[ Dvínandi áhugi Engleiid- :
: inga fyrir knattspyrnu sést j
! gTeinilega á yfirliti því sem j
: nýlega var birt um f járhag [
j Arsenal á s.l. keppnisári,
j Hagnaður félagsins minnk- j
j aði á því ári um 35 þús. £, j
! var 14.436 £ í stað 49.882 :
■ ■
j árið áður, og hefur aldrei :
; verið minni síðan 1947.
■ ■
■ Bæta má því við að Arse- ;
■ ■
* nal er eitt af tekjuhæstu :
■ ■
■ knattspyrnuliðum í Englandi *
■ ■
■ og hefur verið það lengi. ■
I !
hvenær leikirnir Milan—Saae*
bríicken og Rapid—Philips Eind-
hoven fara fram en aðrir leikir
í undirbúningskeppninni verða
sem hér segir:
Sporting Club (Lissabon) —
Partizan (Belgrad); liðin munu
hafa leikið saman í fyrri viku
í Lissabon en síðan keppa þau
aftur hinn 12. okt. í Belgrad.
Vörös Lobogo — Anderlecht
(Belgíu): fyrri leikurinn í sept
í Búdapest og sá síðari 19. okt.
í Brussel.
Servette (Genf) — Real (Mad-
rid): fyrri leikurinn í þessum
mán. í Genf, sá síðari í Madrid
12. okt.
Rot Weiss (Essen) — Hibe'>
nian (Skotland): fyrri leikur um
miðjan þennan mán. í Essen, sá
síðari í Edinborg 12. okt.
Pramhald á 10. síðu.
Þrír Íslendingar
keppa í Búkarest
íþróttamenn 14 þjóða muns
taka þátt í alþjóðlegu íþrótta-
móti í Búkarest dagana 1.—3.
okt. Keppendur verða frá Belgíq,,
Búlgaríu, Tékkóslóvakíu, Sovét-
rikjunum, Austur- og Vestur-
Þýzkalandi, Englandi, íslandj,
Júgóslavíu, Lúxemborg, Austur-
ríki, Póllandi, Ungverjalandi og
Rúmeníu. íslenzku keppendurnir
munu verða þeir Hallgrímur
Jónsson, Svavar Markússon og
Valbjörn Þorláksson.
% ÍÞRÓTTIR
RITSTJÓRJ FRÍMANN HELGASON
.. ,,,,-- - . ----
n
*