Þjóðviljinn - 18.09.1955, Side 4
J|) — MÓÐVILJTNN — Sunnudagur 18. Beptemher 1955 -
»■
Á sýningu um friðsamlega notkun kjarnorkunno.r, sem haldin var í Genf í sambandi
við kjarnorkuráðstefnuna í sumar, sýndu Snvétríkin m. a. líkan það af kjarnorku-
ofni, sem hér sést á myndinni. Eru sovézkir og svissneskir verkamenn að „afhjúpa“
líkanið.
Karlamir á
Nokkrir menn hér í bænum
hafa þann hátt á að stíga
stundum upp á kassa á Lækj-
artorgi og halda þrumandi
ræður yfir samborgurum sín-
um. Ræður þessar eru mjög á
eina lund; kassamenn segjast
vera frelsuð guðs böm og eiga
vísa himnaríkisvist en allir
aðrir séu syndugir og spilltir
og muni fara beina leið til hel-
vítis og kveljast þar um ófyr-
irsjáanlega framtíð. Er greini-
legt að kassamenn hafa af því
mikla ánægju að útmála fyrir
sér þessi ánægjulegu fyrirheit;
þá fyrst verður einveran á
himni sæl þegar hægt er að
una sér við kvalir fordæmdra
í neðra. Kunna sálfræðingar
sérstakar nafngiftir um það
hugarástand sem felst bak við
slík ræðuhöld.
En það eru víðar til kas'sa-
merin en á Lækjartorgi. í póli-
tíkinni hefur þeirra einkum
orðið vart í Þjóðvamarflokkn-
um, og þar eru tveir menn
mjög þungt haldnif; Bergur
Sigurbjömsson og Þórhallur
Vilmundarson. Einu sinni í
•^■•■■■■■■•■■■■■■■■•■■■■■•■■••••••■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■•■■•••■■••■■•••••■••■■••■■•■■■■•ab-
BAZAR
Húsmæðraíélags Reykjavíkur
verður sunnudagirm 18. þ. m. kl. 2 i Borgartúni 7.
Mikið af fallegum bamafatnaði og prjónavörum. j
Rúmfatnaður o. m. fl. Komið og gerið góð kaup. j
Bazamefndin
S
■■•»•■■■■■■■■•■■»■»■■••■■•■■»■■■■■■■■■■■■■■■■»■■•■—■■•■•■■■■■■■■■■••■■•■■■■■——■■■»■»■»»»■»»•
Ungversk-þýzk eða ungversk-ensk
0 R Ð A B Ó K
óskast til kaups eða láns.
Upplýsingar á ritstjóm Þjóðviljans
sími 7500, og í síma 7369.
Gömlu dansarnir í
( kvöld klukkan 9.
Hljómsveit Svavars Gests
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 8
Sovétríkin afsala sér Porbkala
Framhald af 1. síðu.
stjómmálamanna til að ræða
gleðítíðindin frá Moskva. Sagði
ihann að Sviar hlytu að sam-
fagna Finnum með þau, en þetta
væru gleðitíðindi fyrir allar
þjóðir heims, til þess fallin að
hæta sambúð þjóða og draga úr
stríðsóttanum.
39 ár eflir af samnings-
tímanum
Þegar samið var vopnahlé
milli Sovétríkjanna og Finn-
lands árið 1944, fengu Sovétrík-
in umráð yfir Porkkalaskaga til
50 ára og eru þvá eftir 39 ár af
samningstímanum nú, þegar
Tjöldin fennti
Framhald af 3. síðu.
kaðla meðferðis til að geta sig-
ið í gjána og tók það þá 3
klst. að ganga að enda sprung-
unnar.
Farinn í Tungnaárbotna
Allt frá því Guðmundur
fann vað það á Tungnaá sem
við hann er kennt, hefur hon-
um orðið tíðfarið inn á öræfin
í grennd Tungnaár, oftast með
skemmtiferðafólk. Hann dvaldi
ekki lengi í bænum að þessu
sinni, því í gær lagði hann
aftur af stað áleiðis austur í
Tungnaárbotna, og enn var
hann að flytja fólk.
Sovétríkin afsala sér herstöð-
inni.
Porkkalaskagi er um 20 km
frá höfuðborg Finnlands, Hels-
inki, og landsvæði það sem Sov-
étríkin hafa haft til umráða er
um 1.800 ferkílómetrar. Það var
eitt frjósamasta landbúnaðar-
hérað Finnlands og bjuggu þar
um 12.000 manns, þegar Sovét-
ríkin tóku við iherstöðinni 29.
september 1944. Þeir voru all-
ir fluttir á brott og komíð fyrir
í öðrum héruðum Finnlands og
fengu skaðabætur greiddar úr
finnska ríkissjóðnum. Sovétrík-
in hafa hinsvegar greitt 5 millj.
finnsk mörk í leigu fyrir her-
stöðina á ári.
„Lengstu jarðgöng
í Evropu
Ein helzta járnbraut Finn-
lands, milli Helsinki og Turku,
liggur um Porklcala. í samn-
ingnum frá 1944, sem siðar var
staðfestur með friðarsamning-
unum 1947, var ekki gert ráð
fyrir að Finnar fengju að nota
járnbrautina, en frá áramótum
1947—1948 fengu Finnar rétt
til þess, þó með ýmsum skilyrð-
um. Þannig varð að skipta um
eimreiðir þegar ekið var inn í
herstöðina og út úr henni,
gluggar ailir voru byrgðir og
vopnaðir sovézkir hermenn
gætu hvers vagns. Sögðu Finn-
ar að í Porkkala værú „lengstu
járnbrautargöng í Evrópu".
kössunum
viku stíga þeir upp á kassa
sína og halda mjög svipaðar
ræður og þær sem stundum
hljóma niðri í miðbæ. Þeir
segja. Við erum hinir einu sönnu
hernámsandstæðingar á ís-
landi; allir aðrir eru óheiðar-
legir og spilltir. Þótt aðrir
menn segist vera á móti her-
stöðvum er ekkert mark tak-
andi á því, þeir vilja aðeins
rússneskar herstöðvar í stað-
inn. Við einir erum hreinir,
við einir erum sannir; það eru
ekki til og verða ekki til og
hafa aldrei verið til aðrir her-
námsandstæðingar en við. (Og
í raddhreimnum má greina
sömu gleði yfir syndum ann-
arra og þá sem hljómar af
kössunum á Lækjartorgi).
Þjóðviljinn benti þeim tví-
menningunum : ‘■'’það’” fyrir
nokkrum dögum að slík óp
væru sízt til gagns málstað
hemámsandstæðinga. Einnig
sýndi hann þeim fram á það
að það væri fölsun og sízt
greiði við íslenzkan málstað
að leggja að jöfnu herstöðvar
Bandaríkjamanna á íslandi og
rússnesku herstöðina Porkkala
á Finnlandi eða aðrar þær
byrðar sem nazistar og banda-
lagsþjóðir þeirra hefðu orðið
að taka á sig eftir ósigurinn L
styrjöldinni. Einnig ítrekaði
blaðið þá stefnu sósíalista frá
upphafi að „berjast fyrir þvi
að hvers konar herstoðvastefna
verði niður felld, hvar sem er
í heiminum; að hver þjóð ráði
örlögum sínum sjálf, óháð er-
lendu valdi.“
Það kemur stundum fyrir áð
yrt er á ræðumennina á köss-
unum á Lækjartorgi og esp-
ast þeir þá um allan helming,
brýna raustina og tvinna fár-
yrði sín um syndir annarra, Á
nákvæmlega sama hátt fór fyr-
ir kassamönnumFrjálsrar þjóð-
ar. Þeir komast upp á falsettu
í ákafa sínum í síðasta blaði;
sósíalistar eru „hemámsflokk-
ur“ og „Porkkalaflokkur“,
Þjóðviljinn er blað „sem ekki
vill né má amast við herstöð,
ef hún er rússnesk". Og síðan
kemur gamla hrinan: Við erum
einu hemámsandstæðingamir á
íslandi, við einir erum hreinir,
við einir erum heiðarlegir, við
einir erum drengilegir, við ein-
ir. . . .
Slík fyrirbæri eins og Berg-
ur og Þórhallur geta orðið háð-
fuglum til dægradvalar, á sama
hátt og Reykvíkingar staldra
stundum við á Lækjartorgi og
hlýða á hás hrópin af kassan-
um. Að öðru leyti standa þeir
utan við mannlegan veruleika;
í hæsta lagi gætu þeir orðið
landlækni tilefni í nokkrar lín-
ur í næstu heilbrigðisskýrslum,
> 4 ‘ ÚTBREIÐJÐ *
* * ÞJÓDVILJANN *
\
■
■
:
■
Tekst
í DAG KL. 2 FER ÚRSLITALEIKURINN
FRAM. ÞÁ KEPPA
KR-VALUR
Val að vinna íslandsmeistarana? Eða verður KR tvöfaldur meistari? Komið og sjálð spennandi lelk.
Mótanefndin
• ■■•••••••••••••••••■■■■•■•■•■■■■•••■••^•■■•■•■■■••■■■■■•^■••••••••••••■***,,-,,í,í#'