Þjóðviljinn - 18.09.1955, Page 12
Bændur á óþurrkasvæðinu hafa hirt
eða náð öllum heyjum sínum
Sumir eiga enn álohið fgrri slœtti
Bændur á óþurrkasvæðinu sunnan og vestan lands: ljúka, þá er nýting- hevja á ó-
hafa hirt eða náð upp öllum heyjum í þuiTkinum undan- þurrkasvæðinu töluvert misjöfn
fama daga.
Enn eru þó nokkrir bændur sem eiga ólokið fyrri
slætti — og verður sú taða mjög lélegt fóður, hve góður
þurrkur sem á hana fæst.
Þjóðviljinn hafði í gær tal af
Páli Zóphóniassyni búnaðar-
málastjóra og kvað hann óhætt
að fullyrða að bændur á ó-
þurrkasvæðinu hefðu hirt eða
náð upp öllum iheyjum sínum
' í þurrkinum undanfama daga.
Á þessu eru ekki nema fáar
undantekningar, sagði búnaðar-
málastjóri.
Eiga ólókið fyrri slætti
Nokkuð víða slógu menn það
sem eftir var af túnum sínum
í þessari viku og hafa þvi feng-
ið ágætan þurrk á þá töðu, en
margir mátu meira að þurrka og
hirða ,,gamla heyið“. Bæði aust-
ur um sveitir og uppi i Borgar-
firði eiga þvi nokkrir ólokið
fyrri slætti. Fyrir nokkrum dög-
úm voru t. d. 8 bændur i Kjós-
inni sem enn áttu nokkuð af ó-
slegnum túnum.
Lélegt fóður
Taða sem látin
hefur verið
Slysavarðstofan
flutt í Heilsu-
verndarstöðina
Slysavarðstofan hefur nýlega
verið flutt úr sínum gamla að-
setursstað í Austurbæjarskólan-
um í Heilsuverndarstöðina, og
verður hún þar framvegis. Jafn-
framt hefur verið tekið upp
það fyrirkomulag að helgidags-
læknar hafa aðsetur sitt þar
framvegis. Síminn er sem fyrr
5030.
spretta í allt sumar er vitan-
lega úr sér sprottin og trénuð
og verður aldrei nema mjög lé-
legt eða næstum ónýtt fóður.
Misjöfn nýting
Þrátt fyrir að mesta óþurrka-
sumri á þessari öld sé nú að
að því Þjóðviljinn hefur frétt.
Sumum bændum hefur tekizt
að ná nokkru af heyjum sín-
um lítið hröktum upp í gaita,
sem að vísu hafa orðið að bíða
vikum saman undir j-firbreiðsl-
um úti á túni og því skemmst
nokkuð, en samt sem áður veru-
legur hluti gott fóður. Hjá öðr-
um 'hefur taðan hrakLzt. í drýl-
um og smásætum svo vikum
skipti og orðið að lokum mjög
lélegt fóður.
þlÓÐVILllNN
Sunnudagur 18. september 1955 — 20. árgangur — 211. tölubl.
IJmsækjéndur um hjúkrun
arnám á tveggja ára biðlista
Verður húsmæðraskólinn á Akureyri —
sem staðið hefur auður í 2 ár — gerður
að hjúkrunarkvennaskóla?
Skortur á hjúkrunarkonum er slíkur að stundum
liggur næstum við borð að sjúkrahús úti á landi geti ekki
veitt sjúklingum viðtöku af þeim sökum.
Á sama tíma eru umsækjendur um hj úkrunamám
á biðlista til tveggja ára.
ÆFR byrjar hauststarfið með
alm. félagsfundi annaðkvöld
Æskulýðsfylkingin í Reykjavík heldur félagsfund í Tjarn-
arkaffi (uppi) annað kvöld, og liefxt hann kl. 9. Á fundlnum
verða kosnir fulitrúar á 14. þing ÆF, er hefst 30. þ. m., en
með þessmu fundi hefst annars hauststarfið.
Þess er að vænta að félagar um þessar mundir vegna árása
f jölmenni til þess að velja sér; afturhaldsblaðanna á félagið.
Aðeins einn hjúkrunarkvenna-
skóli er til í landinu, hér í
Reykjavík. Að hjúkrunarkonur
eru of fáar stafar ekki af því
að stúlkur vilji ekki læra hjúkr-
un, heldur þvert á móti. Um-
sóknir um hjúkrunarnám eru
svo margar að þeim verður ekki
fullnægt í þessum eina hjúkr-
unarkvennaskóla nema á tveim
árum.
Heilbrigðisyfirvöld landsins
voru nýlega á ferð á Akureyri,
m.a. til að athuga hvernig Krist-
neshæli yrði bezt notað í fram-
tíðinni. En jafnframt kom það
tii orða að taka húsmæðraskól-
ann á Akureyri undir hjúkrunar-
kvennaskóla, því húsmæðra-
skólahúsnæðið hefur staðið autt
í tvö ár! Húsmæðraskólinn mun
heldur ekki starfa næsta vetur,
en fyrirhugað að bamaskólinn
fái eitthvað af húsnæði hans til
afnota í vetur. Verði horfið að
því ráði að breyta húsmæðra-
skólanum á Akureyri í hjúkr-
unarkvennaskóla er talið að
hann geti rúmað 30—10 nem-
endur.
fulltrúa á sambandsþingið, en
það verður líka margt ileira á
dagskrá- Þeir Gunnar Guttorms
son og Hannes Vigfússon munu
segja frá Varsjármótinu, og
einnig verður sýndur kafli úr
kvikmynd er þegar hefur ver-
ið gerð af því. Þessi mynd
mun síðar sýnd í heild á vegum
Varsjárfara, en ekki ei að efa
að marga muni fýsa að sjá
nú þegar þennan kafla er sýnd
ur verður annaðkvöld.
Þá mun Jón Grimsson kaup-
félagsstjóri tala um KRON, en
það er mörgum ofarlega í huga
Tregur afli á Akra-
nesi og Grindavík
Til Grindavíkur komu í gær
24 bátar með 1850 tunnur. Hæst-
ur var Ársæll SigurðSson með
219 tunnur.
Fjórtán Akranesbátar fengu
aðeins 500 tunnur samtals. —-
Á Akranesi hafa nú alls verið
saltaðar 3700 tunnur og fryst-
ar 5600 tunnur, en beitusíldar-
þörf Akranesbáta á næstu ver-
tíð er talin 8000—9000 tunnur.
Rætt verður um happdrætti
Þjóðviljans og möguleika Æsku
lýðsfylkingarinnar að taka öfl-
Gunnar Guttormsson
— segir frá Varsjármötínu
ugan þátt í miðasölu; og síðast
en ekki sízt verða almenn fé-
lagsmál á dagskrá.
Þess er vænzt að félagar
fjölmenni á þennán fyrsta fund
haustsins. Hann er í Tjamar-
kaffi og hefst klukkan 9.
iptajöfmiðurimi orðinn
óhagstæður um 251.6 millj. kr.
í ágúst s.l. vom fluttar inn vörur fyrir
107 millj. en út fyrir 61 millj.
Samkvæmt bráðabirgðayfirliti Hagstofu íslands varð vöru-
skiptajöfnuðiiriiin í ágústmánuði s.l, óhagstæður um 45.5 millj.
króna. Það sem af er árinu hefur vöruskiptajöfnnuðurinn verið
óhagstæður um rúmlega 251.6 .millj. kr.
vSamkomulag í bíl-
jtjóradeilimm á
Sií
I s.l. mánuði voru fluttar inn
Vörur fyrir 107,2 milljónir kr.
en utflutningurinn nam 61,7
millj. I ágúst mánuði í fyrra
var vöruskiptajöfnuðurinn óhag-
stæður um- 46,6 millj. kr., þá
vorú fluttar út vörur fyrir 49,4
inillj. en inn fyrir 96,1 millj.
'Átta fyrstu mánuði þessa árs
Iiefur útflutnngurinn numið alls
tæpum 500 millj. kr. en inn-
flutningurinn 750 millj., þar af
hafa verirt flutt inn skip fyrir
5 'miJlj. 544 þús. krónur.
Á sama tímabili í fyrra var
vöruskiptajöfnurtur landsmanna
óhagstæður um 213,8 millj. kr.
Þá voru fluttar út vörur fyr-
ir 500,7 millj. en inn fyrir 714,6
millj.
Merkjasala
Blindravinafelags
íslands
í dag efnir Blindravinafélag
íslands til merkjasölu til ágóða
fyrir starfsemi sína. Börn og
unglingar, sem selja vilja merk-
in, mæti á einhverjum eftir-
talinna staða: Blindraiðn Ing-
ólfstræti 16, fordyri Langholts-
skóla, fordyri Melaskóla (aust-
ur d.vr), Mýrarhúsaskóla.
Reykvíkingar ættu að minnast
þess merka starís, sem BJindra-
vinafélagið hefur unnið á und-
anförnum árum, með því að
kaupa merki þess í dag.
Guðmundur Jónasson og&
snjóðíll hans hafa oft komið
við sögu á síðustu árum, allt
frá því hann var lengst við
matar- og heyflutninga til
innifenntra Austfiröinga. Á
heimleiðinni þaöan kom
hann við á Vatnafökli, - en
þar var þá verið aö bjarga
bandarískri „björgunarflug-
vél“. Guðmundur er nýkom-
inn af Vatnajökli, og er sagt
frá leiöangri haris á 3. síðu. |
Guðmundur og snjóbíll hans
sjást hér fyrir ofan.
Léleg uppskera
Kartöfluuppskera hefur verið
léleg sunnanlands undanfarið.
Þó ihafa menn vonað að betri
uppskera myndi fást úr sand-
görðum, en þar sem mold er
eingöngu, 1 gær tjáði Sand-
gerðingur Þjóðviljanum að
uppskera í sandgörðum þar væri
léleg.
AnÉit afli Said-
geríisbáta
Sandgerði. Frá fréttaritara
Þjóðviljans.
í gær komu tl bátar með
1300—1400 tunnur. Aflahæstur
var Dux með 250 tunnur. Næst
var Hrönn tneð 170 tunnur og
Sæmundur og Jón Stefánsson
höfðu 140—150 tunnur. Allir
hinir bátarnir voru með um og
yfir 100 tunnur nema tveir.
Heildarsöltun i ' Sandgerði í
haust er nú rúntlega 5 þúsund
tunnur og alis hafa verið fryst-
ar rúml. 7 þus. tunnur. Alls
hafa því veiðst í Sandgerði
12000—13000 tunnur síldar í
sumar og haust.
Samkomulag hefur nú náðst
í bilstjóradeilunni á Siglufirði.
Ríkisverksmiðjurnar og'nökkr-
ir fleiri sömdu í upphafi deil-
unnar, eða skömmu eftir 'að
hún hófst, m.a. sagði einn at-
vinnurekandinn sig úr Vinhu-
veitendafélaginu til þess að geta
samið við bílstjórana.
Vinnuveitendafélag Siglufjarð-
ar vísaði málinu til sáttasemj-
ara, sem er Þorsteinn M. Jóns-
son á Akureyri. Hafa samn-
ingaumleitanir staðið á Akur-
eyri undanfarið og lauk þeim
með því að í gærmorgun undir-
rituðu báðir aðilar samning, —
með þeim fyrirvara að hánn
éerði samþykktur af Þrótti og
Vinnuveitendafélaginu á Siglu-
firði.
Tveir á togveiðuni
Akureyri. Frá fréttaritara
Þjóðviljans.
Tveir Akureyrarbáianna, Snæ-
fell og Súlan, eru á togveiðum.
Eru bátar þessir nú í fyrstu
veiðiferðinni. Akraborg mun
vera við Austfirði, en Garðar
og Gylfi eru á síldveiðum við
Suðurland. Einn bátur, Auðtir,
liggur, og' tveir bátar, Sæfinnur
og Njörður, voru seldir burt
úr bænum í sumar.