Þjóðviljinn - 22.09.1955, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 22.09.1955, Blaðsíða 2
2) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 22. september 1955 ★ í dag er fimmtudagurinn 22. september. Mauritius. — 265. dagur ársins. — Haust- máuuður byrjar. Hefst 23.- vika surnars. .— Tungl lægst á lofti; í hásuðri Itl. 18.14. — Árdegis- háflæði kl. 9.47. Síðdegisháflæði ki. 22.14. Morgunblaðið birt- ir í gær svohljóð- andi frétt undir fyrirsögninni: Kom knéskoti á franska íhaldið: „París 20. sept. — Ólga hefur verið í frönskum stjórnmálum vegna afstöðu Faures forsætis- ráðlijerra í Marokkómálinu. Ilann hefur viljað láta Mar- okkóbúa fá sjálfstjórn í fjöl- möfgum málum, en franska í- haldið hefur barizt gegn því með kjafti og klóm. — Nú hef- ur forsætisráðherra náð sam- komulagi við alla stuðnings- flokka stjórnarinnar um málið, svo að búast má við því, að það sigli heilu í höfn“. Þessi frétt stóð sem sé í gærá Mórg- únblaðinu — málgagni íslenzka íhaidsins!! mEi'j ihn kjeijí Septemberhefti Sjómanna- blaðsins Vík- ings er komið út. Guðbjart- ur Ölafsson skriíar um fyrirhugaðan Odds- vita í Grindavík. Guðmundur Guðmundsson skrifar endur- niinningar: Sótt í togara. Sig- úrjón Einarsson skipstjóri: Nökkur orð í fullri meiningu. Grein er um skipsbruna og or- sakir þeirra. Sigurður Guðjóns- son skrifar ferðasögu: Hekla í höfuðdagsstormi. Grein er um öryggi sjómanna, og Júlíus Havsteen ritar framhald ferða- sögu til Miðjarðarhafslanda. — Margt fleira er í heftinu, svo sem þátturinn Á frívaktinni ofl. Söfnin eru opin ÞjóðminjasafnlB á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögúm. ÞjóSskjalasafnlB á virkum dögum kL 10-12 og 14-19. LandsbókasafniB kl. 10-12, 13-19 og 20-22 alla virka daga nema laugardaga kl. 10-12 og 13-19. NáttúrugripasafnlB kl. 13.30-15 á sunnudögum, 14-15 é þriðjudögum og fimmtudögum. BæjarbókasafniB Lesstofan opin alla virka daga kl. kl. 10-12 og 13-22, nema laugardaga kl. 10-12 og 13-16. — Útlánadeildin opin alla virka daga kl. 14-22, nema laugardaga kl. 13-16. Lokað á sunnudögum yfir sumarmánuð- ina. Listasafn Einars Jónssonar Opið sunnudaga og miðviku- daga kl. 1.30 til 3.30 frá 16. september til 1. desember, síðan verður safnið lokað vetrarmán- uðina. Næturvarzla er í Ingólfsapóteki, sími 1330. LFFJABtTÐIB HoltsApótek | Kvöldvarzla ti) {gjjp- | kl. 8 alla dags Apótek Austur- j nema laugar- bæjar j daga tll ki. 4 Bilbug fann engan á hehni Auglýsið í Þjóðviljanum Stóra-Hólmfríður bjó að Efri- Holtum undir Eyjafjöllum um 1820 og síðkr, afrekskona að kjarki og burðum. Löngum var þröngt í búi hennar og sætti hún hverju færi, sem gafst til að afla heimili sínu bjargar. Fór hún einatt á fjöru, þegar út á tók að líða, til að leita fiskifangs, sem þar slæddist stundum á land. .... Snemma morguns á ein- mánuði 1822 labbaði Hólm- friður í Efri-Holtum á fjöru, ein sins liðs að venju. Var þá fjöruveður vænlegt og rekaátt, hafræna og brimsúg- ur nokkur. Kom hún fram á kamb í birtingu og skyggnd- ist um. Sá hún þá þúst fram- an í fjörunni, sem hún átti ekki von á. Brátt gekk hún þó úr skugga um, að þar lá stærðar selur og steinsvaf. Fýsti hana mjög að bera banaorð af honum, en átti úr vöndu að ráða, því að bar- efli var þar okkert nærtækt. Samt var hún ekki á því, að gefa vilja sinn frá sér að ó- reyndu. Vaðmálshyrnu var hún með yfir sér og þreif hún nú til liennar og fetaði svo sem varlegast að selnum, sem Krossgáta nr. 690 Lárétt: 1 ljósgjafi 3 líkams- partur 6 skst 8 tveir eins 9 taka ófrjálsri hendi 10 knatt- spyrnumeistarar Norðurlands 12 boðháttur 13 muna 14 for- setning 15 forskeyti 16 efni 17 skip. Lóðrétt: 1 hallandi 2 band 4 hvem einasta 5 á reiðing 7 stíf 11 vesældarlega 15 „Bláa band- ið“ Lausn á nr. 689 Lárétt: 1 sakka 6 strokks 9 VÓ 9 T.T. 10 aka 11 sá 13 a.m. 14 skaðaði 17 alina. Lóðrétt: 1 stó 2 ar 3 kokkaði 4 kk 5 akt 6 Sviss 7 stami 12 Áka 13 aða 15 al 16 an. G Á T A N Ot gekk yglan vigla, imaði, vimaði, skimaði; þakin þyrnikvistum, þikaði, vikaði, dikaði; óx upp með efstu eikum, iprið, tiprið og niprið. Þessi gáta er sýnilega ort rims- ins vegna að verulegu leyti, og satt að segja er hæpið að gera því skóna að nokkur maður ráði hana. Við birtum hana mest til gamans, og spáum því að einhver ykkar muni raula hana fyrir munni sér í fram- tíðinni, löngu eftir að þið hafið gleymt ráðningunni, sem kem- ur á morgun. En hér kemur svo ráðning síðustu gátu, sem er REYKHÁFUR. einskis varð var, fyrr en Hólmfríður vatt sér á bak honum. Hyrnu sinni brá hún um háls honum og hugðist hafa þar allgott taumhald. | Selurinn vaknaði við vondan1 draum og brá fast við, en var nú ekki lausbeislaður. Þó þokaðist hann af stað í átt til sjávar. Kom þar fyrir ekkij þótt Hólimfríður spyrnti fót-j um í fjörusandinn og hamlaði för hans með hyrnunni. Bilaði hana ekki kjark þótt svo horfði og var ákveðin í að gefast ekki upp fyrr en kom- ið væri á fremsta hiunn. Maður var á reio fram á fjöru, meðan þessu fór fram. Það var Guðmundur Tómas- son frá Eitru undir Eyjafjöll- um, sem þá var vinnumaður í Efra-Hól. Bar það heim, að Guðmundur reið fram af há- kambinum og Hólmfríður á reiðskjóta sínum njður'tí' fiæð- armálið. Var Guðmundur þá .jsaar 4 snúningum, vatt sér af baki, skar annáð ístaðið frá hnakki sínum og hljóp til j liðs við Hólmfríði. Mátti, hann ekki seinni vera, því að brimlöðrið var þá að því kom- ið að flæða um hanas en bil- bug fann engan á henni. Rot- aði Guðmundur selinn með ístaðinu og skar hann svo á háls með vasahníf sínum. Rann þá vígamóðurinn af Hólmfríði og bað Guðmund að njóta heilan handa. Varð Hólmfríður fræg af þessu af- reki sínu. (Þórður Tómasson: Eyfellskar sagnir). IiEIÐRÉTTING í smáklausu í Þjóðviljanum í gær um nýja útgáfu Þorpsins hefur misprentazt setning, átti að vera svona: „Ef útgefendur — eða einstaklingar, með því að gerast áskrifendur — vildu stuðla að þessu, bið ég þá að tala við mig í síma 5046“ osfrv. J. ú. V. SKIÞAttTGCRO RIKISINS HEKLA austur um land i hringferð hinn 27. þ.m. Tekið á móti flutn- ingi til Fáskrúðsfjarðar, Eski- fjarðar, Norðfjarðar, Seyðis- fjarðar, Þórshafnar, Raufar- hafnar, Kópaskers og Húsavík- ur í dag og á morgun. Farseðl- ar seldir á; mánudag. fer til Vestmannaeyja á morg- un. Vörumóttaka í dag. 'liíinri in íf ar.y>i o ' SjJJ.S. Fastir liðir eins og venjulega. Kl. 19.30 Lesin dag- skrá næstu viku. 20.30 Erindi: Ró- ið út á Stóra-Skæling (Jónas Árnason). 20.50 Tónleikar pl.: Oktett fyrir blásturshljóðfæri eftir Stravinsky (Franskir lista menn leika). 21.05 Erindi: Á ferð um sögustaði Njálu í Rangárþingi (Magnús Finn- bogason frá Reynistað). 21.30 Tónleikar: Búlgörsk þjóðlög sungin og leikin af búlgörsk- um listamönnnm pl. 21.45 Upp- lestur: Ragnar Jóhanneason skólastióri les frumort kvæði. 22.10 Lífsgleði njóttu, saga e. Sigrid Boo; XIV. (Axel Guð- mundsson). 22.25 Sinfónískir tónleikar: Sinfónían Die Harm- onie der Welt (Samhljómar veraldar) eftir Hindimith (Fíl- harmoníska- .hljómsveitin i -Ber- Un leikur undir stjórh höfund- ar^ií‘’'?3-10- -Dagskráriofc.H Átv8- Millilandaílug :i: „Saga er væntán- leg til Rvíkur kh 9 árd. í dag frá N. Y. Flugvelin fer áleiðis til Stafangurs, Kaup- mannahafnar og Hamborgar kl. 10.30. Einnig er væntanleg Edda kl. 17.45 í dag frá Ósló og Stafangri. Flugt'élin fer á- leiðis til N. Y. klukkan 19.30. Innanlandsflug 1 dag eru áætl- aðar flugferðir til Egilsstaða, Akureyrar (2), Hellu, Horna- fjarðar, ísafjarðar, Sands og Vestmannaeyja: -— Á morgun er ráðgert að fljúga til Ak- ureyrar (3), Egilsstaða, ísar fjarðar, Kópaskers, Sauðár- króks og Vestmannaeyja. Frá Kvenfélagi Halígrímskirkju í Reykjítvík Hin árlega kaffisala félagsins verður í Góðtemplarahúsinu næstkomandi sunnudag. Fé- lagskonur. og aðrir velunnarar eru vinsamlega beðnir að gefa kökur og senda þær milli kl. 10 og 12 á sunnudagsmorgun 1 Góðtémplarahúsið. Treystum ykkur til að bregðast vel við svo að kaffisalan verði ókkur til sóma eins og að undan- fömu. Hóíninn!* Sambandsskíp Hvassafell er i Hangö. Amar- fell er í Helsingfors. Jökulfell átti að fara 19. þm frá N.Y. áleiðis til Reykjavíkur. Ðísar- fell er í-Rotterdam. Litlafell er í Reykjavík. Helgafell er í Rr vík. St. Valborg fór 18. þm frá Stettin áleiðis til Hvamms- tanga. Orkanger er í Rvík. Eimskip Brúarfoss fer frá Reykjavík í dag til Austur-, Norður- og Vesturlandsins. Dettifoss og Tröllafoss eru- í Reykjavík. Fjallfoss fór frá Reykjavik í gíer til Rotterdam og Hamborg- ar. Goðafoss fór frá Eskifirði 18. þm til Hamborgar, G-iynia pg-. Ventspils. Gullfoss fór frá Kaupmannahöfn í gær til Leith og Reykjavikur. Lagarfoss fór frá Siglufirði 20. þm til Vest- fjarða, Vestmannaeyja og Faxa flóahafna. Reykjafoss er í Ham- borg, Selfoss hefur væntanlega farið frá Flekkefjord 20. þm til Faxaflóaliafna. Tungufoss fer frá Hamborg á morgun til Reykjavíkur. Ríkisskip Hekla fer væntanlega frá Akur- eyri í dag á vesturleið. Esja fer frá Reykjavík í kvöld vest- ur um land í hringferð. Herðu- breið kom til Reykjavíkur í gærkvöld frá Austfjörðum. Skjaldbreið er á Húnaflóa á leið til Akureyrar, Þyrill er á leið frá Reykjavík til Noregs. Skaftfellingur fer frá Reykja- vík síðdegis á morgun til Vest- mannaeyja. Baldur fór frá Rvík í gær til Búðardals og Hjalla- ness. Waldhorift —■ F — TIL SÖLU ★ Sími 7506 Þjóðviljann vantar ungling tíl blaðburðar í Langholfshveifi Talið við aígreiðsiuna — Sími 7500. Trésmiðir! Trésmiðir! j : ■» ) ■ Trésmiðafélag Reykjavíkur heldur fund í Bað’- s stofunni sunnudaginn 25. þ.m. kl. 5 síðd. Fyrir : fundinum liggur m.a. tillaga um úrsögn úr Lands- É sambandi iðnaðarmanna. J ■ ■ ■ Stjórnin ■ w ■ •••■•••■■***■*■■■■■•■■■■■■•■■■■■■■■■*■■■•■■■■■*■•■■■■•■■*•■■■•■■■■■■■■ ■■■■■**»■• ■■■■,■■■■■•■■*■

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.