Þjóðviljinn - 22.09.1955, Side 3
Fnmntadagnr 32. s?pt«nl»r 1S63 — WÓÐVILJINN
<3
Lausn loitlerðadeilunnor
er ntpstn verkefnið í —lnettum samgöng-
nm" mllll tslands og Skandinaviu
Heilsuhœlið í Hveragerði
hefur kosfað 1.6 millj. króna -
Þing Náttúrulækningaiélagsins krefst aS
hælið njéti sama réttar og stnðnings
í íyrrakvöld komu hingað til lands fulltrúar Skandi-
naviu til þess að vinna ásamt fulltrúum íslands aö bættum
samg'öngum milli íslands og annarra Norðurianda. Hefj-
ast nefndarstörfin í dag.
Eitt aðalverkefni nefndar þessarar hlýtur því að vera
að undirbúa lausn loftferðadeilunnar við Svía.
Á þriðja þingi Norðurlanda-
ráðsins í febrúar s.l. vetur var
samþykkt að kjósa milliþinga-
nefnd til að vinna að því ,,að
samgöngur verði bættar miili
Islands og annarra Norður-
landa, og bafi þær samvinnu um
þetta. í þessu skyni verði auk-
in fræðslustarfsemi og bætt hin
efnahagslegu skilyrði sam-
gangnanna í því skyni að auð-
velda ferðalög og auka kynni.
Sérstök milliþinganefnd verði
skipuð til að ná þessu marki“.
Á striðsárunum féllu niður
skipsferðir þær sem verið höfðu
milli íslands og Noregs og
hafa ekki verið teknar upp aft-
ur að stríði loknu. Ferðir þess-
ar voru mikill þáttur í að halda
uppi gagnkvæmum kynnum og
ferðalögum milli Skandinaviu
og íslands. .
Hr þessu samgönguieysi milli
Isiands og annarra Norðurlanda
en Danmerkur var verulega
bætt þegar Loftleiðir, og síðar
Flugfélag íslands hófu flug-
ferðir með viðkomu í Noregi og
Svíþjóð. En svo undarlega hef-
ur brugðið við að Svíar hafa
sagt upp loftferðasamningnum
við Island og verið ófáanlegir
til þess að gera nýjan samn-
ing. Verður það vart skilið á
annan veg en að þeir vilji leggja
ferðir þessar niður og skera
simdur þenna tengilið gagn-
kvæmra kjTina íslendinga og
Svía. Hefur þessi afstaða þeirra
komið Islendingum mjög á ó-
vart og valdið mikilli gremju.
Það hlýtur þvj að vera meg-
inverkefni þessa fundar nefnd-
arinnar sem kosin var til að
koma á bættum samgöngum
milli Islands og Skandinavíu,
að leysa loftferðadeilu Islend-
inga og Svía. Munu störf nefnd-
arinnar mjög verða metin eftir
því hvernig henni tekst i þessu
máli. Árangur nefndarstarf-
anna leiða einnig í ljós hvort
„norræna samvinnu" ber að
Samþykktir Austfirðinga
Framhald af 12. síöu.
tunnum og salti á öllum þeim
höfnum, sem síld er söltuð á.
Telur þingið að síldarsaltend-
um sé gert mjög mishátt undir
höfði, þar sem saltendur á
Siglufirði og víðar á Norður-
landi geta keypt tunnur af
birgðum nefndarinnar þegar
þéir þurfa á þeim að halda, en
saltendur á Austurlandi þurfa
að liggja með birgðir af tunn-
um og hafa af því óbærilegan
vaxta- og geymslukostnað.
Þingið skorar því á ríkis-
stjómina að láta sem allra
fyrst reisa afkastamikla síld-
arverksmiðju á Austurlandi
eins og mælt er fyrir í lögum.
Ennfremur skorar þingið á
Síldarútvegsnefnd að hafa jafn-
an fyrirliggjandi á öllum sölt-
unarstöðvum birgðir af tunn-
um og salti. Þingið lýsir óá-
nægju yfir því, að ekki skuli
greitt jafnhátt verð fyrir síld
veidda í Austurdjúpi og greitt
er fyrir Faxasíld, sem þó mun
ekki talin eins góð vara. Þetta
misræmi veldur því, að út-
gerðarmenn og sjómenn utan
af landi sjá sér hag í því að
stunda síldveiðar í Faxaflóa og
afleiðingin verður sú, að síld-
veiðar í ’Austurdjúpi stöðvast
og þorpin fara á mis við þá at-
vinnuaukningu, sem þeim veið-
um gæti verið samfara.
4. Kaup nýrra fiskibáta. Hrá-
efnisskortur stendur frystihús-
unum á Austfjörðum mjög fyr-
ir þrifum og atvinna við fisk-
iðnað er minni en ætla mætti af
þeim sökum. Eitt allra brýn-
asta hagsmunamál austfirzku
sjávarþorpanna er að frysti-
húsunum verði tryggt nægilegt
hráefni. Að öðrum kosti hljóta
þau að verða rekin með halla
og tekjur verkafólks af rekstri
þeirra óviðunandi lágar, en það
skapar aftur hættu á brott-
flutningi.
Flesta eða alla þessa. staði
skortir tilfinnanlega fiskibáta
af hentugri stærð. Vill þingið
sérstaklega vekja athygli á því,
að innan skamms tekur til
starfa á Seyðisfirði myndarlegt
og afkastamikið fiskiðjuver,
sem væntanlega á eftir að
verða mikil lyftistöng fyrir
það byggðarlag. En Seyðfirð-
inga vantar mjög tilfinnanlega
fiskibáta af hentugri stærð og
verði ekki úr bætt má ætla að
fiskiðjuver þeirra komi ekki
að tilætluðum notum.
Þingið telur nauðsynlegt að
hið opinbera greiði fyrir því, að
Austfirðingar eigi þess kost að
eignast fiskibáta af hentugri
stærð, þ.e.a.s. af þeirri stærð,
sem ætla má að fyrst og
fremst verði gerðir út frá
heimahöfnum og leggi afla
sinn þar upp að staðaldri.
5. Togaraútgerð. Hafinn er
á vegum Austfirðings hf. und-
irbúningur að samtökum um
kaup á nýjum togara og er
ráðgert að auk þeirra þorpa, er
eiga bv. Austfirðing, taki Stöð-
firðingar og Djúpavogsmenn
þátt í þessum samtökum.
Þingið telur mjög þýðingar-
mikið ef tekizt gæti að útvega
þessum byggðarlögum togara
og vænta að ríkisstjórnin greiði
fyrir málinu sem með þarf“.
Stjórn Fjórðungsþingsins var
endurkosin, en hana skipa:
Gunnlaugur Jónasson, Seyðis-
firði, forseti; Lúðvík Ingvars-
son, Eskifirði; Bjarni Þórðar-
son, Neskaupstað; Kristján
Benediktsson, Einholti; Þor-
steinn Sigfússon, Sandbrekku.
Mikill samhugur ríkti á fund-
inum og voru allar ályktanir
samþykktar í einu hljóði.
ríkisins og önnnr sjúkrahús
Fimmta landsþing Náttúrulækningafélags íslands var
sett í Guðspekifélagshúsinu s.l. sunnudag. Um 40 fulltrú-
ar sóttu þingiö, stóð þaö í 2 daga og var síðari þingfundur-
inn haldinn í hinu nýja heilsuhæli félagsins í Hvera-
gerði.
skilja sem mjúkar skálræður
eða raunhæft samstarf.
Islenzku fulltrúamir í nefnd-
inni eru alþingismennimir Páll
Zophoniasson og Magnús Jóns-
son frá Mel og ritari þeirra er
Jón Sigurðsson skrifstofustjóri
Alþingis. Norsku fulltrúamir
em Petterson fyrrv. sam-
göngumálaráðherra og Arthur
Sundt. Ritari þeirra er Odd
Gjelsvik skrifstofustj. Dönsku
fulltrúarnir em þingmennirair
Kaj Bundvad og Ejnar P. Foss,
ritari Sven Garde skrifstofu-
stjóri. Sænsku fulltrúamir em
þingmennimir Birger Anders-
son og Valdemar Svenssón.
Fundinn sótti um 30 kennar-
ar víðsvegar að af landinu.
Á fundinum fóru fram venju-
leg 'aðalfundarstörf, en óuk
þess var rætt um kennsluað-
ferðir og fleira viðkomandi
kennslustarfinu. Hlýtt var á fyr-
irlestra, haldin námskeið. Loks
var haldin merkileg sýning
kennslutækja og handbóka.
Rómuðu fundarkonur það hve
fundurinn var ánægjulegur og
lærdómsríkur.
Léleg launakjör
kennara
Eitt af aðalumræðuefnum
fundarins var launamál hús-
mæðraskólakennara. Voru fund-
arkonur á einu máli um það,
að launakjör þeirra væru orð-
in óviðunandi, enda er þeg-
ar farið að bera á því, að
erfitt er að fá kennara að hús-
mæðraskólunum.
Sýning kennslutækja
og bóka
Sýning kennslutækja og bóka
þótti takast mjög vel,
Félagið hafði sýningardeild á
uppeldismálaþinginu á s.l. vori
Þessi sýning var með svipuðu
móti, en þó aukin og endur-
bætt með tilliti til þess, að
hún var hér ætluð húsmæðra-
kennurum sérstaklega. For-
maður félagsins, Halldóra Egg-
ertsdóttir, sá um báðar sýn-
ingarnar. Fundarkonur voru á
einu máli um það, að nauðsyn-
legt væri að skólarnir gætu sem
fyrst aflað sér fleiri kennslu-
tækja og handbóka. Er ætlun-
in að vinda bráðan bug að því.
Námskeið
í sambandi við fundinn var
haldið námskeið í ýmsu, er við-
kemur viðhaldi heimilisins, svo
sem dýnugerð og skermasaum.
Einnig í tágavinnu, tauprenti
Þingforsetar voru kosnir þeir
Klemens Þorleifsson kennari og
Kristján Dýrfjörð eftirlitsmað-
ur, en ritarar Steinþór Bjöms-
son efnisvörður og Njáll Þór-
arinsson stórkaupmaður.
í skýrslu stjórnarinnar er
þess getið að félagatala hafi
aukizt um 329 manns á öllu
landinu frá því á síðasta lands-
þingi og 5 félög bætzt í hóp-
og nýrri aðferð við handavinnu
og sniðkennslu.
Stuttir fyrirlestrar voru haldn-
ir um ýmislegt viðvíkjandi
kennslunni í húsmæðraskólun-
um: Aukna kennslu í vefjar-
efnafræði og híbýlafræði, skyld-
ur húsmæðraskólanna til þess
að bæta smekk nemendanna,
ekki aðeins í skreytingu íbúð-
anna heldur einnig í skreytingu
á mat o.þ.h.
Fyrirlestrar
Fundarkonur hlýddu á tvo
fyrirlestra. Bjarni Rafnar, lækn-
ir hélt stórfróðlegt og skemmti-
legt erindi um mataræði van-
færra kvenna. Jóhann Ingimars-
son, forstjóri flutti fyrirlest-
ur um gerð og meðferð hús-
gagna og hélt smásýnikennslu
um viðgerðir.
Gott að dvelja að
Laugalandi
Fundarkonúr skoðuðu verkl-
smiðjur Gefjunar og KEA. f
fundarlok var farin skemmti-
ferð út í Höfðahverfi og í Vagla-
skóg. Þegið var kvöldboð hjá
prestshjónunum, frú Jónínu
Björnsdóttir og sr. Benjamín
Kristjánssyni. Dvölin að Lauga-
landi var öll hin ánægjulegasta,
og færa fundarkonur skóla-
stjóranum Lenu Hallgrímsdótt-
ur og kennurum skólans beztu
þakkir og kveðjur.
í stjórn félagsins voru kosn-
ar Halldóra Eggertsdóttir form.
Sigríður Arnlaugsdóttir, Katrín
Helgadóttir, Helga Sigurðardótt-
ir, Vigdís Pálsdóttir, allar end-
urkjörnar, og Bryndís Steinþórs-
dóttir og Guðrún Jónasdóttir.
Anna Gísladóttir og Elsa E.
Guðjónsson gengu úr stjórn-
inni með hlutkesti.
í varastjórn voru kosnar
Dagbjört Jónsdóttir og Hall-
dóra Einarsdóttir.
inn. Áskrifendum að Heilsu-
vernd hafi fjölgað um 107.
Til byggingarframkvæmda á
heilsuhælinu í Hveragerði hef-
ur félagið varið rúmlega einni
og hálfri milljón kr. eða nánar
tiltekið 1.610.000 kr. fyrir utan
innbú.
Meðal annarra tillagna sem
þingið samþykkti eru þessar
helstar:
5. þing NLFÍ. ítrekar þá
kröfu 4. þings, að heilsuhæli
NLFÍ. njóti sama fjórhags-
stuðnings af hálfu ríkisins og
önnur sjúkrahús, sem byggingar-
stuðnings hafa notið, og felur
stjórninni að vinna að því, að
sú krafa nái fram að ganga.
5. landsþing NLFÍ. skorar á
stjórn NLFÍ. að vinna að því
við Tryggingarstofnun ríkisins
og sjúkrasamlögin í landinu að
þau greiði dvalarkostnað sjúk-
linga á hæli félagsins í Hvera-
gerði, svo sem þeir sjúklingar
verða aðnjótandi, er dvelja á
öðrum sjúkrahúsum landsins.
Felur þingið væntanlegri stjóm
NLFÍ. að vinna ötullega að því,
að Tryggingastofnunin viður-
kenni heilsuhælið eins og önn-
ur sjúkrahús.
5. þing NLFÍ. lítur svo á, að
gera verði matreiðslukennslu
að föstum lið í starfsemi félags-
samtakanna, og felur því vænt-
anlegri stjórn NLFÍ. að vinna að
því, að koma slíkum námskeið-
um á sem víðast um landið £
samráði við deildir samtak-
anna.
5. þing NLFÍ. telur ástæðu
til að þakka framkvæmdastjóra
NLFÍ. sérstaklega fyrir mikil
og vel unnin störf í þágu sam-
takanna og lýsir þeirri von sinni
að þau fái sem lengst notið ó-
skiptra starfskrafta hanS.
í stjórn voru kosnir Jónas
Kristjánsson læknir forseti sam-
takanna, og varaforseti Hjörtur
Hansson stórkaupm. Meðstjórn-
endur: Marteinn Skaftfells kenn-
ari, Óskar Jónsson útgerðarm.
og Pétur Gunnarsson tilrauna-
stjóri. Varastjórn: Steinþór
Björnsson, Klemens Þorleifsson
og Kristján Dýrfjörð.
Þingið fór hið bezta fram og
ríkti mikill áhugi hjá fulltrúum
fyrir stefnumálum samtakanna,
sem eru þau meðal annars að
stuðla að hreysti og heilbrigði
og útbreiða þekkingu á lögmál-
um heilbrigðs lífs og heilsusam-
legum lifnaðarháttum.
Jörundur seldi vel
Á s.l. ári stundaði Akureyr-
artogarinn Jörundur síldveiðar í
Norðursjó og seldi aflann til
Þýzkalands. Togarinn hefur nú
hafið þessar veiðar aftur og
selt fyrsta aflann.
Aflann seldi hann í Hamborg
í fyrradag, 160 lestir fyrir 55
þús. mörk. Auk Jörundar stunda
nú tveir íslenzkir vélbátar síld-
veiðar í Norðursjó. j
Laun húsmæðraskóla-
kennara óviðunandi
Þörf fleirí nýrra kennslutækja og
handbóka til húsmæðraskólanna
Aðalfundur Kennarafélagsins Hússtjórn var haldinn í
Húsmæðraskólanum að Laugalandi, dagana 24.—29. ágúst
s.l.
í félaginu eru nú liðlega 100 me'ölimir, þar af um 30,
sem nú eru starfandi við húsmæöra- og gagnfráéða-
skóla.