Þjóðviljinn - 22.09.1955, Qupperneq 9
Fimmtudagur 32. september 1955 — ÞJCdDVILJINN — (9
# ÍÞRÓTTIR
RITSTJÓRI. FRtMANN HELGASON
Maður verður að leggja hart að sér til
ná míklumáranurír
seg/V danski hlauparinn Gun nar Nielsen
Gunnar Nielsen er nú sá mað-
tir danskur, sem mesta athygli
vekur fyrir afrek sín í frjálsum
íþróttum, enda er hann með
beztu millivegalengdahlaupurum
sem nú eru uppi. Hann var um
daginn á keppnisferðalagi um
Noreg, og átti „Sportsmanden“
þá viðtal við hann og fer það
liér á eftir.
— Hafið þér æft mikið þetta
keppnistímabil?
— Nei síður en svo. Ég hef
tekið árið 1955 sem millibils
tima sem ekki hefði svo mikið
að segja, þar sem í ár var lítið
af alþjóðlegum mótum.
Eftir að ég kom frá Bandaríkj-
Unum æfði ég alls ekkert í mán-
uð, en svo byrjaði ég léttar æf-
ingar, miklu léttari en ég er van-
ur. Frá ,1. júli iief ég yfirleitt
ekki æft.
— Þér hafði með öðrum orð-
um komizt i þjálfun með keppni?
Já, ég verða að álíta að
það hafi orðið þannig, þvi ég
hef siðan 1. júlí tekið þátt í 30
hlaupum og 6 boðhlaupum
(Hann hefur unnið 28 af þess-
um 30 hlaupum).
— Hvert er álit yðar á um-
sögn Iharos sem telur að 1500
m verði hlaupnir á 3.30.0?
— Ég held líka að einhver
muni í framtíðinni hlaupa vega-
lengdina á þeim tíma, og hvað
enertir þá hlaupara sem fremst-
ír eru í dag, þá munu þeir geta
við beztu hugsanleg skilyrði,
hlaupið þá á 3.35.0. Hlaupið á
Bislet um daginn mundi með
svolítið hraðari 3. hring, hafa
Verið hlaupið á 3.38.0.
— Ætlið þér að gera alvarlega'
tilraun til að ná toppi á 1500
m afrekaskránni í ár?
— Ég ætla að reyna það í
ICaupmannahöfn 1. okt. Þá hef-
ur Boysen lofað að vera með,
auk Bretans Derek Johnson. Þeir
hjálpa ábyggilega til — ef þeir
sigra mig þá ekki.
— Hversvegna hlaupið þér
beztu hlaup yðar á Bislet?
— Ástæðan er sjálfsagt sú að
brautirnar þar éru þær beztu
sem ég lief hlaupið á. Auk þess
eru áhorfendur þessa vallar
þannig að þeir örfa mig ákaf-
lega. Það er öðruvísi í Kaup-
mannahöfn. Þar er krafizt of
mikils af mér. Taugarnar verða
með öðrum orðum að vera sterk-
ari heima. Ef Kaupmannahafnar-
búar sjá mig ekki setja met,
fyllast þeir vonbrigðum. Slík1
hlaup eru ekki fyrir þá. Þess >
vegna þykir mér bezt að hlaupa
á Bislet, þar sem íþróttaafrekið
er metið meira en annarsstaðar ■
er gert.
Yður féll ekki áður að
keppa í Svíþjóð, en nú sjáum
vér að þér eruð byrjaður að
hlaupa þar aftur. Hvernig stend-
ur á því?
— Það stendur þannig á því
að áður varð ég að hlaupa inni
í miðjum hópnum, og af því
leiddi að ég varð fyrir pústr-
um, en í dag eru Svíar ekki
sterkari en það, að ég þarf ekki
að halda mig í miðjum hópnum,
ég hleyp frá þeim.
— Hvemig er það með dansk-
ar frjálsíþróttir, — koma fram
efni þar, eins og hér í - Noregi?
Á ég þar við menn eins og Boy-
sen og Strandli?
— Jú, jú. Við fáum við og við
fram efni líka, en þeir verða
Gunnar Nielsen —
aldrei annað en efni. Ég held
að flest alla vanti viljann til að
„pína sig“ eins og það er kallað,
í þjálfun og keppni. Það er að-
eins harka og vilji sem til þarf.
Ég held að þeir sem halda því
fram að þjálfun eigi að vera í
léikformi og maður skuli aðeins
æfa þegar maður hefur löngun
til þess, hafi ekki rétt fyrir sér.
Maður verður að pína sig áfram
til að ná árangri.
— Fólk saknar einvigis milli
Boysen og yðar?
— Það stafar af því að við
höfum sérhæft okkur á mismun-
andi vegalengdum. Áður hlup-
um við báðir 800 m, nú eru að-
stæðurnar þannig að Boysen er
800 og 1000 m hlaupari en ég
hleyp 1500 m og enska milu.
Þessvegna keppum við sjaldan
saman. Ég mun ekki hlaupa
nema 1500 m í Melbourne en
Boysén hleypur 800 m. ásamt
Moens.
— Hafið þér ekki hugsað yður
að hlaupa lengri vegalengdir í
ár?
— Allt bendir til að ég hlaupi
3000 m í Osló 4. okt. til að
reyna að hnekkja danska meti
Plancks sem er 8.14.0. Ég hef
hlaupið þá áður á 8.17.0. Mér
fellur ekki að hlaupa 3000 m.
því að það „skeður ekkert“ í
slíku hlaupi.
Uddebom 16,15
Sviinn Erik „Myggen“ Udde-
bom, sem keppti hér á íþrótta-
vellinum í sumar, náði ágætum
árangri í kúluvarpi s.l. sunnu-
dag, kastaði 16.15 metra. Er það
bezti árangur Sví í kúluvarpi á
þessu ári. Þess má og geta að
á sama móti sigraði Leif Christ-
erson i 100 m hlaupi á 10.7 sek.,
en hann keppti einnig í Reykja-
vík í sumar.
Ekkert verSur ur
Balkfndeikjunum
Nú mun fullvist talið að ekk-
ert verði af keppni Norðurlanda
og Balkanlandanna í frjálsum
íþróttum.
Keppni þessi átti að fara
fram í Aþenu 15.—16, okt. n.k.
og var búið að velja norrænu
keppendurna (þ. á. m. 2 íslend-
inga), er keppa áttu við beztu
frjálsíþróttamenn Júgóslavíu,
Grikklands og Tyrklands.
— Eruð þér þreyttur eftir ÖH
þessi hlaup?
Audun Boysen
— Ekki líkamlega, en það get-
ur orðið of mikið af íþróttum
og umræðum um íþróttir og
það grefur undan sálarþrekinu.
— Hvernig er þjálfuninni hag-
að?
— Ég nota æfingabrautina á
íþróttavellinum heima. Hún er
um 3 km. löng. Fyrst hleyp ég
með litlum hraða en síðan eyk
ég hann nokkuð. Því næst fer ég
inn á malarbrautina og hleyp
200 m, síðan 300 m og þá 400
m eins hratt og ég get, og end-
urtek þetta yfirleitt, en alltaf
í fullum hlaupum. Þetta endur-
tek ég svo hvern einasta dag.
B a
iaSand
Sovétríkin og Ungverjaiand
heyja landsleik í knattspyrnu
á sunnudaginn kemur. Fer leik-
urinn fram í Búdapest.
Ungverska útvarpið mun
senda út lýsingu á leiknum (á
ensku) milli kl. 4,30 og 6,30
(ísl. tími) á 30,5 metrum —*
(9,8 kílócycles).
láls bætir l@insne!>
Hl}óp á 13.46.8U
Sovézki hlaupagarpurinn Vladimir Kúts setti nýtt- heimsmet
í 1500 metra hlaupi á alþjóðlegu íjjróttamóti í Belgrad s.l. suniui-
dag. Hljóp hann á hinum ótrúlega góða tíma 13.46.8 mín. og
bætti því met það, sem Ungverjimi Iliaros setti fyrra laugardag,
um hverld meira né minna en 4 sek.
derek johnson
Kúts var í algerum sérflokki
í hlaupi þessu, tók forystuna
þegar í upphafi og hljóp mest-
an hluta leiðarinnar langt á
undan hinum keppendunum.
Ungverjinn Beta varð annar í
hlaupinu á 14.19,Omín. og Strit-
off, Júgóslavíu, þriðji á 14.21,0.
Eins og kunnugt er vakti Kúts
fyrst verulega athygli á sér er
hann sigraði í 5000 m hlaupinu
á EM í Bern í fyrra og hljóp
á iheimsmettima, 13.56,6. Met
þetta stóð í nokkra mánuði eða
þar til Chataway bætti það á
móti í London. Viku seinna
hljóp Kúts samt á enn betri
tíma, 13.51,2 sem var heimsmet
þar til fyrra laugardag er Ihar-
os hljóp 5000 metrana á 13.50,8.
Sltrá yfir beztu afrek í 5000 m
hlaupi:
13.46.8 V. Kúts Sov. 1955
13.50.8 S. Iharos Ungv. 1955
13.51.6 C. Chataway Bretl. 1954
13.55.2 J. Chromik Póll. 1955
13.57,0 E. Zatopek Tékk. 1954
13.57.6 Kovacs Ungv. 1955
13.58.2 G. Hagg Svíþj. 1942
13.58.8 Anúfréff Sov. 1953.
Kraftajötuninn á myndinni er brezkur og heitir Ken
McDonald. Hann er einn bezti lyftingamaður Breta.