Þjóðviljinn - 23.09.1955, Blaðsíða 10
Framhald &f 7. sí3u.
írska móður, skírskotaði hann
til þess að hann væri amerísk-
ur ríkisborgari, og bandaríska
sendiráðið stuðiaði að því að
dauðadómnum var breytt í
fangelsi.
Árið 1918 fékk Sinn Fein 73
af 80 fulltrúum íra í enska
þinginu. En enginn þeirra
mætti, og 44 voru raunar í
fangelsi. Þess í stað komu þeir
saman í Dublin sem þjóðþing,
sóttu De Valera í fangelsið og
gerðu hann að forseta. Leyni-
herinn IRA hóf virka styrjöld
gegn ensku herjunum, og
næstu ár á eftir unnu báðir
aðilar hryðjuverk sem allan
heim hryllti við.
Leiðtogamir svikja
• Heimastjórnarlög Lloyd Ge-
orges, sem kváðu svo á að
Ulster væri hluti af Eng-
landi og mæltu fyrir um eitt
þing í Belfast og annað I Dubl- J
in, drógu lítið úr átökunum. í i
Suðurírlandi fékk Sinn Fein™
124 þingsæti af 128 í Dublin-|1
þinginu, en fjóra skipaði há-f
skólinn. Aðeins þessir fjórir
mættu við þingsetninguna.
Sinn Fein barðist enn.
En það var úti um eining-
una Forustumenn Sinn Fein
voru einkum úr stétt írskra
gósseigenda ög auðmanna. Þeir
óttuðust verklýðsstéttina, sem
sýnt hafði styrk sinn í Dublin-
uppreisninni. Þeir óttuðust
kröfur bændanna. Og 1921
sámdi hægri armur Sinn Fein
við Englendinga um stofnun
írska fríríkisins, en þó áttu
Englendingar að annast utan-
ríkismál, þeir héldu ýmsum í-
tökum innanlands, höfðu her-
stöðvar í frlandi, og írar áttu
að sverja enska kónginum trún-
aðareið.
De Valera lýsti þennan samn-
ing landráð og hóf tveggja ára
borgarastyrjöld og sóttl einkum
styTk til verkamanna og
bænda. Árið 1923 mælti De
Valera hins vegar svo fyrir að
baráttunni skyldi hætt og
vopnin slíðruð og hann lagði
blessun sína yfir ofsóknir
William Cosgraves gegn and-
spymuhreyfingunni og IRA.
Árið 1932 vann De Valera
sigur í kosningunum og riftaði
þegar trúnaðareiginum við
enska kónginn. Þegar Játvarð-
ur konungur sagði af sér 1938
sagði írland að fullu skilið við
England og tók upp nafnið
Eire. Árið 1938 voru gerðir
endanlegir samningar við Eng-
lendinga. Eftir er aðeins hið
óleysta vandamál um skipt-
ingu landsins.
Síðar vakti De Valera at-
hygli á sér fyrir mikla samúð
með nazistum og honum vannst
timi til að senda þýzku naz-
istastjórninni samúðarskeyti í
tilefni af daUða Hitlers áður en
stríði lauk.
Flokkur hans og aðrir flokk-
ar í Eire hafa það opinberlega
á stefnuskrá sinni að Ulster
sameinist Eire, en „með frið-
samlegu móti.“ Þeir beita sér
gegn IRA sökum þess að leyni-
herinn béitir enn ofbeldis-
verkum og hemaðaraðgerðum
í tilraunum sínum til að sam-
eina landið.
Blöð
Tímarit
\ Frímerki
^ Filmur
SOLUTURNINN
við Amaihól
ÍRA - írski leyniherinn
lð) — ÞJÓÐVTLJINN — Pöetudagur 25. eet>tein|>er 1656
Samtaka vinnandi alþýðu
Framhald af 4. síðu.
þess að vinna þau virki sem
afturhaldið .beitir nú skæð-
ast gegn þeim, en það er aft-
urhaldsmeirihluti á Alþingi,
ríkisstjórn afturhaldsins og
afturhaldsmeirihluti í mörgum
bæjarstjórnum landsins. Bet-
ur en nokkru sinni fyrr finna
íslenzkir verkamenn til þess
í dag að þeir eiga að standa
saman einnig á vettvangi^,
stjórnmálanna, gera bandalag
við félaga sína, þrátt fyrir
það sem á milli kann að bera
í stjómmálaskoðunum, treysta
samtök sín vegna þeirrar brýnu
hauðsynjar að tryggja verka-
lýðsstéttinni, tryggja vinnandi
fólki á íslandi það vald sem
því ber. Taka höndum sam-
an til að hnekkja því valdi
afturhaldsins, til að hindra að
stefna afturhaldsins, fjandsam-
leg málstað hins vinnandi
fólks, verði öllu lengur stefna
ríkisstjórnar fslands, stefna
meirihluta Alþingis, stefna
meirihluta bæjarstjómar
Reykjavíkur og margra bæja-
og sveitastjórna annarra.
Því fagna verkamenn frum-
kvæði Alþýðusambands fslands
til þess að fá úr því skorið,
hvort ekki sé hægt að fá nú
þegar þingfylgi fyrir breyttri
stjórnarstefnu í landinu, frum-
kvæði heildarsamtaka verka-
lýðsfélaganna til að tengja í
sterka baráttufylkingu alla þá
alþýðumenn, sem vilja nýja
stefnu, v'ilj'a jhnekkja aftur-
haldsvöldum á fslandi, vilja
heilbrigða nýsköpun atvinnu-
veganna, vilja sjálfstæði þjóð-
arinnar gegn erlendri ásælni,
vilja samhuga sókn þjóðar-
innar til blómlegs atvinnu-
lífs og velmegunar hins vinn-
andi fólks.
Það verður áreiðanlega
fylgzt vel með því hverjar
undirtektir stjómmálaflokk-
anna verða við tilmælum Al-
þýðusambandsstjómarinnar. Og
það er von og krafa verka-
manna, að svörin verði frem-
ur miðuð við þarfir nútíðar
og nauðsyn framtíðar en við
fornar væringar og misklíð-
arefni.
Kári
I s I e n z k
I e / kritu n
Framhald af 6. síðu.
á sér athyglisverða sögu víða
í útlöndum, einkum í Banda-
ríkjunum. Hin mikla útbreiðsla
bandarískra leikrita er einkum
því að þakka að höfundar þar
kunna til síns verks, byggja
sjónleiki sína upp í fyllsta sam-
ræmi við kröfur leiksviðs, kröf-
ur sem þeir þekkja út í æsar.
En þann varnagla ber að slá
að lokum að andagift, ímjmd-
unarafl og lífsskilningur verð-
ur ekki numið á námskeiðum
— ef einhver skyldi ganga upp
í þeirri dul. Jafnrétt er hitt að
þekkingin segir andagiftinni
til vegar, kunnáttan vísar í-
myndunaraflinu leið í farsæla
höfn.
B.B.
Lét loka götum
Framhald af 5. síðu.
maldaði í móinn en þorði ekki
annað en að klýða.
Og á samri stund fylltust
götumar af hestvögnum og
öðrum fomfálegum farartækj-
um og hundmð manna í
nítjándu aldar klæðum tóku að
spígspora á gangstéttunum.
Hafði ekkert Ieyf!
Dubois lögreglustjóri varð ó-
kvæða við þegar hann frétti af
þessu tiltæki Todds, en það var
um seinan. Bandaríkjamaður-
inn hafði haft sitt fram, enda
þótt lögreglan hefði neitað hon-
um um leyfi til að loka götun-
um, og kvikmyndatökunni var
lokið, þegar lögreglan kom á
vettvang tiL að reka Todd og
menn hans burt.
Iþróttir-
Framhald af 9. síðu.
fram, eins og áður hefur verið
gert, að unglingaráð ÍSl verð-
ur ekki nema nafnið eitt, þar
til íþróttalögunum hefur verið
breytt.“
Framanritað er úr skýrslu
unglingaráðs, en í bréfi til
framkvæmdastjómarinnar hafði
ráðið sagt, að það teldi engan
gmndvöll fyrir starfi sínu,
fyrr en 16. gr. íþróttalaganna
yrði afnumin eða breytt vem-
lega.
Til utankjorstaðakjósenda
í Kópavogi! *
Listi óháðra kjósenda í Kópavogi er
G-listi
Greiðið strax atkvæði, ef þér búizt ekki
við að geta kosið á kjördegi.
Glistinn
1 D&Q ERSHTLADAQUR
Skrifstoía Þjóðviljans er opin til kl. 7 í kvöld og veitir viðtöku uppgjörum fyrir selda miða
VINNINGAR:
1. Skoda-bifreið.... kr. 51.200
2. Pobeda-bifreið .. kr. 65.000
3. Skoda-bifreið ... kr. 51.200
HflPPDRfETTI ÞJÚÐIfMS Í9BS
ta■■■«■■■■■■•»•■
•■■•••••■•■••■•••••••■■■■• ••••••••••■••■■■■■•■■■••■•••••■•■■■■■•■■■■■••■••■■■■•■••■■•■■■■•■■■•■••■■i
vámiidmmiémiitímmmmkmmmmémm mmémmmmmmmmmrn •»»••*———■«i