Þjóðviljinn - 27.09.1955, Page 9
Það fór að ýmsu leyti vel á
l^ví að síðasti stórleikur ársins
væri milli liða frá Akranesi og
Reykjavík. Er þetta að verða
góður fastur siður sem von-
andi lifir lengi. f raun og veru
ætti að gera ráð fyrir leik þess-
nm um leið og gengið er frá
leikjum sumarsins.
Að þessu sinni voru veður og
vallarskilyrði góð. Þó hafði
ekki verið þurrkaður upp leið-
inda pöllur við suðurmarkið, og
Virtist ekkert auðveldara.
Leikurinn byrjaði mjög byr-
lega fyrir Akranes því um það
bil, er hann hafði staðið í 20
sek. höfðu þeir skórað. Þeir
byrjuðu með knöttinn, Þórður
Þ sendir knöttinn til Ríkárðs,
Ríkarður til Halldórs sem
hleypur fram. Þórður er kom-
inn út hægra megin, fær
knöttinn, sendir hann fyrir én
þar er þá kominn Þórður Jóns-
son sem skorar. Leikur byrjar
aftur. Veita áhorfendur því þá
athygli að tveir úr Reykjavík-
urliðinu stóðu utan vailar og
höfðu orðið síðbunir. Voru það
þeir Haukur Bjarnason og
Þorbjörn. E.t.v. örlagarík seink-
un! Raddir heyrðust um það að
Hannes dómari hefði byrjað.
leik of snemma. í því sam-
bandi má geta þess að leikur
byrjaði 3 mín. eftir auglýstan
tíma, að komnir voru 9 menn
á völl til leiks úr liði Reyk-
víkinga. Virðist Hannes því
hafa fylgt settum reglum.
Það má segja að liðin liafi
skipt nokkuð á milli sín hálf-
leikjunum. Akranes átti mun
meira í fyrri hálfleik, sérstak-
lega þó hvað snertir góða
knattspyrnu með hraða og
markvissum hreyfanleik leik-
manna. Það fór lika svo að
þeir settu 3 mörk í þessum hálf-
leik. Gerði Þórður Þórðarson
annað markið eftir aukaspyrnu
á 35. mín. Þriðja markið kom
rétt fyrir lok hálfleiksins, kom
það líka eftir aukaspyrnu frá
hægri út yið, endamörk. Spark-
aði HáÍiSor veÍ'rfyrir og féfek
Ríkarður skallað í mark. Hörð-
ur Óskars reyndi að bjarga en
það var vonlaust, hann lierti
aðeins á knettinum í netið.
Akranes hafði cft skapað sér
tækifæri með skipulögðum sam-
leik en þau nýttust ekki.
Reykjavíkurliðið var oft all
nærgöngult við mark Akraness
og það svo að Magnús í mark-
inu varð í nokkur skipti að
verja í horn. En munurinn á
áhlaupum þeirra dg Akranes-
liðsins var sá a.ð þau komu flest
með löngum sendingum- fremur
skipulagslítið.
I síðari háifleik virtist sem
Akurnesingar hefðu ekki út-
hald og náðu ekki eins tökum
á leiknum og í fyrri hálf-
leik. Að sam skápi tóku Réyk-
víkingar leikinn meir og meir í
sínar hendur. Leikur þeirra mið-
aðist nú meir við það að finna
næsta mann, þó skorti hraða í
þá viðleitni og nákvæmni. Eigi
að síður var þetta hálfleikur
Reykvíkinga og gerðu þeir þá
þau tvö mörk sem þeir gerðu.
Fyrra markið gerði Sigurður
Bergsson með ágætum skalla
eftir góða sendingu frá Þor-
birni. Síðara markið gerði Hall-
dór Halldórsson með góðu og
Ólajur Eiríksson í höggi viö
einn af framherjum Akur-
nesinga.
fostu skoti eftir að hafa sem
framvörður skotizt fram í
fremstu skotlínu, en Gunnar
•Guðmanns sem kóminn var ýfir
á hægri gaf honum knöttinn
meistaralega. Bæði liðin höfðu
svonefnd opin tækifæri t.d.
Sigurður Bergsson á 30. mín.,
en var of lengi að átta sig.
Eða Halldór sem skallaði fram-
hjá opnu marki eftir mjög góða
sendingu frá Ríkarði. Þegar allt
kemur til alls höfðu Reykvík-
ingar fleiri tækifæri, en Akra-
nes náði að sýna betri knatt-
spyrnu í ',,sínum“ hálfleik.
Jafntefli 3:3 hefði verið nokk-
uð rétt mynd af leiknum sem
var nokkuð góður og á köfl-
um skemmtilegur, þrátt fyrir
það að hann bæri nokkurn
keim af haustþjálfun.
Þegar 25 mín. voru liðnar af
síðari hálfleik meiddist Sveinn
Benediktsson frá Akranesi svo
hann varð að yfirgefa völlinn.
Fór Jón Leósson þá aftur en
í hans stað kom Kristján Sig-
urvinsson. Framlina Akraness
var. sem fyrr aðalstyrkur liðs-
ins með Halldór, Þórð og Rík-
arð sem beztu menn. Ríkarður
byggði sérstaklega í fyrri hálf-
leik betur upp samleik en oft
áður. Framverðirnir Sveinn
Teitsson og Guðjón sérstaklega
áttu góðan leik. Magnús Krist-
jánsson var nú aftur í mark-
inu þó hann væri fyrir aðeins
mánuði síðan með hendi í gipsi,
og stóð sig vel.
Reykjavíkurliðið var nokkuð
sundurlaust, en eins og fyrr seg-
'Sundmeistaramót Kína var háð í fyrra mánuði í ný-
hyggöri sundhöll Shanghai- öorgar, og er myndin paöan.
Hún er af sveitinni sem sigraöi í 4x100 m boösundi kvenna
á nýju kínversku meti, 5 mín. 22.7 sek.
Þriðjudagur 27. september 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (9S
Sigurður Bergsson (lengst til vinstri á myndinni) skorar
fyrra mark Reykvíkinga með ágætum skalla.
— Ljósm.: Bjarnl. Bjarnleifsson.
ir sótti það sig í síðari hálfleik.
Framherjunum tókst ekki að
finna hvern annan. Gunnar
Guðmanns var bezti maður líh-
unnar, Gunnar Gunnars virðist
vera að jafna sig eftir meiðslin
í sumar. Sigurður Bergsson
vann mikið. Hilmar Magnússon
var óþekkjánlegur frá.. Vals-
leiknum og gerði ýmislegt lag-
lega. Þótt framverðirnir Hall-
dór og Sigurhans jöfnuðust .ekki
á við Akranesframverðina voru
þeir oft vel mcð og gri.pu vel
inní og hindruðu mörg áhlaup
Skagamanna.
Af öftustu vörninni var Einar
beztur og enda Ólafur Eiríks-
son í markinu sem vár .vel jneð
úti á vellinum.
Dómari var Hannes Sigurðs-
son og slapp vel frá því.
Áhorfendur voru um 3000.
Með tilliti til þess hve frá-
sagnir af knattspyrnuleikjum er
vinsælt útvarpsefni hefði átt að
t.aka þennan síðasta stórieik
ársins á band og útvarpa honum
síðar. Það var nú ekki gert hvað
sém veldur og ber að harma
það, hvort sem hér er um að
ræða gleymsku eða áhugaleysi
útvarpsins.
Sj.aldan hafa önnur eins ó-
tíðindi duníð ; á Morgunblaðinu
og fréttin um það að Sovét-
ríkin hefðu afsalað sér her-
stöð sinni á . Porkkalaskaga 40
árum áður en samningstíminn
var útrunninn,. og ’ að'forsætis-
háðherra Sovétríkjanna hefði
skorað á önnur stórveldi að
.gera slíkt hið sama. Dögum
saman kom Morgunblaðið ekki
upp neinu orði,. en síðan hefur
það birt daglegar greinar og
lýst þessum atburði sem hin-
um verstu umskiptum fyrir
Finna. Sérstaklega hefur það
ólmazt gegn þeirri kenningu
að róðabreytni Sovétríkjanna
væri öðrum stórveldum til
fyrirmyndar — við slíka til-
hugsun sortnar Morgunblaðs-
mönnum fyrir augum.
Viðbrögð Morgunblaðsins
hafa að vonum vakið mikla
undrun meðal óbreyttra les-
enda, sem árum saman höfðu
séð það í blaði sínu að Finnar
væru vinir okkar og bræður
og félagar, að málstaður Finna
væri málstaður okkar. En nú
kom sem sagt í ljós að því
aðeins eru Finnar hjartfólgn-
t dag leggja fjórir íþrótta-
menn — 3 keppendur og farar-
stjóri — af stað til Búkarest,
þar sem þeim er boðið að taka
þátt í alþjóðlegu móti.
Það var íþróttasamband Rúm-
eníu, sem bauð Frjálsíþróttaráði
Islands að senda fjóra menn eft-
ir eigin vali til mótsins. Þeir
sem fara eru: Valbjörn Þor-
láksson KR stangarstökkvari,
Hallgrímur Jónssno Á kringlu-
kastari og Svavar Markússon
KR hlaupari. . Fararstjóri er
Guðmundur Sigurjónsson.
ir Morgunblaðsmönnum að •
þeir hafi erlenda herstöð í
landi sínu; þegar þeir eru
orðnir herstöðvarlausir er
þeirra hagur ekki lengur okkar
hagur.
1 fyrradag rifjaði svo Morg-
unblaðið upp hvers vegiía það
hafði haft ást á Finnum
áður fyrr, í Finnagaldrinum
alræmda. Þa . miðuðu Finnar
utanríkisstefnu síriá við það
að troða illsakiþ við 'grann-
ríki sitt og geröust peð í ref-
skák .afturhaldskurfa og • fas-
ista. Sú stefna færði Finnum
aðeins þungbær styrjaldarár
og herstöðina á Porkkala í
kaupbæti, og engir íordæma
þá póiilík nú meir en Finnar
sjálfir.
Þannig eru viðhorf Morg-
unblaðsins algjörlega rökrétt
er betur er að gáð. Því aðeins
eru Finnar frændur og vin-
ir að þeir fjandskapist við
granna sína, hvað svo sem það
kostar. Á sama hátt á það
að vera hlutverk íslendinga
að taka upp þann þráð sem
Finnar hafa sleppt, hvað svo
sem það kostar. Hatrið á
Sovétríkjunum er leiðarljós
Morgunblaðsins, og í birtunni
frá því verða jafnvel hin kyn-
legustu viðbrögð blaðsins auð-
skilin.