Þjóðviljinn - 16.10.1955, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 16.10.1955, Blaðsíða 10
30) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 16. október 1955 MEMINGARSKIL 1 KÍM Framhald af 7. síðu. hefur svo að segja í einu vet- fangi svipt af sér steinrunnu lénsvaldi og sópað gírugum arðræningjum og innrásarlýð á brott úr landi sinu. Þetta land sem fyrir örfáum árum var bitbein vestrænna heims- valdasinna og í algerri ný- lenduafstöðu hefur nú óum- deilt tekið sér sæti meðal fimm mestu stórvelda heims, enda þótt sumir reyni að hundsa þá staðreynd meðan má. Þetta sýnir hvilíkt ofur- vald alþýðuvakningin getur orðið þar sem henni er beint að jákvæðum markmiðum. v Eftir aldalanga óheyrilega nið- urlægingu stendur nú hinn kínverski alþýðumaður hnarr- reistur í einföldum blástakki sínum gagnvart hverju sem vera skal. Framtíðin glóir honum í auga, friðarviljinn skín af svip hans — en þús- undær þolinmæði og seigla býður hverju því valdi byrg- inn sem dirfist að vaða inn í hinn nýja helgidóm. 1 menningarsókn slíkrar þjóðar verður ekki spurt um dóma hinna dæmdu. List- sköpun hennar mun fara að eigin lögum, hvað svo sem vestrænir fagurkerar vilja vera láta. Þar er hvorttveggja reynt í senn: að seilast nið- ur til dýpstu róta alþýðunnar um innihald og upp til hæstu toppa fornrar hámenningar í formi. Hvorki æsilist vestur- landa né bölmóður þeirra eða tómhyggja samsvara hug- myndum og þörfum eðlilegs og blátt áfram fólks sem hef- ur ógrynni jákvæðra vanda- mála að leysa. Því er alltof mikið niðri fyrir til þess að geta unað sér við rómantík flóttans eða glæpsins. Það hefur enga þörf fyrir þá dramatísku stríðsspennu sem virðist orðin vestrænum taug- um svo nauðsynlegt áfengi. Það þarf ekki hærri spennu en sitt eigið óbrotna líf í sól- skini- og regni, sínar eigin starfshetjur, sína eigin menn- ingarsigra, sinn eigin gullna draum um friðsæla framtíð. Fánaberar nýkínverskrar menningar eru flestir komnir beint úr hörðustu eldraun lénskúgunarinnar og síðan frelsisbaráttunnar og vita þessvegna gerla hvað orð eins og lýðfrelsun og friður tákna. Skáldkonan Lí Feng-ljang er gott dæmi. Faðir hennar var leiguliði í Sjangsífylki og svo örsnauður, eins og margir fleiri, að hann neyddist til að ' selja landsdrottni dóttur sína þegar á bamsaldri. Átta ára gömul var hún svo látin gift- ast syni eigandans, krypplingi með samgróna fótleggi. Duttl- ungum þessa vanskapnings varð hún að lúta, milli þess sem hún var látin þræla við heimilisstörf og uppskeru. Oft hneig hin unga eiginkona nið- ur af hungri og þreytu, enda gaf tengdamóðirin henni stundum engan mat í tvo eða þrjá daga samfleytt. Þannig liðu nokkur ár. En þá breytt- ist allt i einni svipan: bænd- ur og verkamenn héraðsins ráku Kúómíntangböðlana af höndum sér og tóku upp al- þýðustjóm. Mynduðu sumir skæruliðahópa til vamar hinni nýju skipan og varð þá Lí Feng-ljang eldabuska hjá ein- um þeirra, en gerðist síðan sendiboði hans og tók þátt í bardögum. I skæruliðahópnum hlaut hún sitt fyrsta uppeldi og þar næst í verksmiðju einni í Jen- an, en þangað fluttist hún með þjóðfrelsishernum. Þar tók hún þátt í kvöldnámskeiði og öðlaðist þannig hlutdeild í þeim vemleika sem hún hafði aldrei þorað að láta sig dreyma um: að hún — kín- versk aiþýðustúlka — fengi að læra að lesa og skrifa. Ekki alls fyrir löngu heim- sótti hún föður sinn heima í átthögunum. Þá var það hann sem leiddi hina ungu skáld- konu um sína eigin landar- eign, gaf henni mjólk úr sinni I eigin kú, og sagði svo við hana að skilnaði: Ef rússar hefðu ekki gert októberbylt- inguna mundi ég hafa dáið án þess að fá að sjá þig aft- ur. Lí Feng-ljang bætir við: Og víst hafði hann þúsund sinnum rétt jyrir sér hann pabbi gamli — þessi einfaldi kínverski bóndi. Þetta er svo sem engin háleit speki í vestrænum skiln- ingi. Samt er þetta sú mikla list sannleikans sem er að sigra heiminn. Slíkt fólk spyr ekki í bili um hina hvítu lilju dauðans, handan allrar raun- skynjunar, heldur rautt lifs- blómið í venjulegu manns- brjósti. Og það blóm mun verða bæði stórt og fagurt áður lýkur þar austur í rík- inu mikla undir himninum. Höium opnað á Vesturgötu 4 með f jölbreyttu úrvali af nýkomnum enskum fataefnum. Vigfús Guðbrandsson & Co. Vesturgötu 4 (hús V.B.K.) .1 Kópavogsbúar Opnuðum í gær á Digranesvegi 2 tírval af rafmagnsheimilistækjura, svo sem: Kæliskápar — Þvottavélar — Eldavélar Strauvélar — Hrærivélar — Brauðristar Straujárn — Hraðsuðukatlar — Strau- bretti — Hárþurrkur — Bökunarofnar Suðuplötur. og auk þess Ijósaperur, öryggi og aðrar rafmagnsvörur, sem hvert heimili þarfnast. MIÐSTÖÐ Dlgranesveg 2 — Sími 80480 Orðsendíng Frá og með mánudeginum 17. þ.m. verður afgreiðslutími Matvælageymslunnar þannig: Mánudaga Þriðjudaga Miðvikudaga Fimmtudaga Föstudaga Laugardaga kl. 5—7 kl. 5—7 kl. 5- -7 kl- 5- -7 kl. 5—7 kl. 11—2 Matvælageymslan hJ. Auglýsið í Þjóðviljanum Fró GaqnfrœðaskóSum Reykjavíkur Þar sem heilbrigðismálastjórnin hefur ekki talið á- stæðu til að fresta framhaldsskólum sbr. bréf frá land- lækni til fræðslumálastjóra, dagsett 13. október siðast- liðinu, komi nemendur í skóla gagnfræðastigsins, sengliér segir: mánudag 17. ohtóber: Gagnfræðaskóli Austurbæjar og Gagnfræðaskóli Vest- urbæjar 3. og 4. bekkir kl. 10 f.h. Gagnfræðaskóli Austurbæjar, Gagnfræðaskóli Vestur- bæjar, Gagnfræðaskóliim við Hringbraut, Gagnfræðaskól- inn við Lindargötu, gagnfræðadeild Laugarnesskóla og gagnfræðadeild Miðbæjarskóla, 2. bekkir kl. 1 e.h. 1. bekkir kl. 3 e.h. Nemendur Gagnfræðaskóla verknáms mæti sama dag kl. 2 e.h. Nemendur Gagnfræðaskólans við Vonarstræti (Lands- prófsdeildir) mæti kl. 3 e.h. í Iðnó. Ef einhverjir nemendur geta ekki komið á þessum tíma þurfa forráðamenn að tilkynna forföll. Hverfaskipting verður óbreytt frá síðasta skólaári. Skólastjórar ! ■ ■ : D ■ ■ ■ « : !■(■■ ■IMKIfllllflllllllllMti »»■■«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■««>■■•■■■■»■»•■1 ■■■■■■■■•■■»»■■■■ '■■■*■■■•■■■■■■■■■■■■■ ■■■■•■•■■■■■■■■!« II '■•■■•’ Karlakór Reykjavíkur efnir til glæsilegrar HLUTAVELTU UG HAPPDRÆTTIS í Listamannaskálanum kl. 2 í dag Fjöldi ágœtra muna á hlutaveltunni 1 happdrættinu er flugíerð til útlanda og ferð á 1. farrými með m.s. Gullfossi til Hafnar og m.m. fl. Fjölmennið á glæsilegustu hlutveltu ársins! ..■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■••■■■■■■■■■■^■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•••■■•■■■■■i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.