Þjóðviljinn - 28.10.1955, Qupperneq 1
Shiludagur í 1
v
huppdrætt-
Ifiii er I dug \
Halldór Kiljan Laxness fékk bók-
menntaverðlaun Nóbels 1955
Stórsigur fyrir íslenzkar nútímabó kmenntir,
menningu þjóðarinnar og sjálfstæðisbaráttu
Halldóri Kiljan Laxness voru í gær veitt bók-
meimtaverðlaun Nóbels. Þessi atburður er „stórsig-
ur íyrir íslenzkar bókmenntir, íyrir íslenzkar nú-
tímabókmenntir sérstaklega" — eins og Kristinn E.
Andrésson kemst að orði á öðrum stað í blaðinu —
„stórsigur íyrir íslenzku þjóðina, sjálistæði hennar
og menningaraístöðu í heiminum — og stórsigur
fyiir Halldór Kiljan Laxness persónulega, list hans
og snilldargáfu".
......... > ■ <wr» n*~ ' jr_____ ^ *■. .
Halldór Kiljan Laxness
Fréttia um að Halldór Kiljan
Laxness hefði fengið bók-
menntaverðlaun Nóbels í ár
barst frá Stokkhólmi skömmu
eftir hádegi í gær, en sænska
akademían sem úthlutar verð-
laununum hafði þá á stuttum
fundi tekið þessa ákvörðun.
Akademían segist hafa veitt
honum verðlaunin „fyrir hin
litauðugu epísku verk hans sem
hafa endumýjað íslenzka
sagnalist".
Halldór Kiljan Laxness sem
hefur dvalizt erlendis undanfar-
ið var í gær staddur í Gauta-
borg og bjó þar á Hotell Park
Avenue, en bjóst við að fara til
Kaupmannahafnar í dag. Hann
mun verða á Hotel d’Angleterre
í Kaupmannahöfn í dag, en tek-
ur sér ferð með Gullfossi til ís-
lands á morgun og er væntan-
legur heim á fimmtudaginn.
Alfred Nobel, hugvitsmaðnr og
iðjnhöldnr.
hugvitsmaðurinn og iðjuhöldur-
inn Alfred Bernhard Nobel var
fæddur árið
1833. Hann
ólst upp í
Rússlandi, þar'
sem faðir
hans hafði að-1
setur, stund-;
aði nám þar
Alfred Nobel og í ýmsum
öðrum löndum, m. a. í Banda-
ríkjunum. Þegar hann var þrí-
tugur að aldri fann hann að-
ferð til að framleiða sprengi-
efnið nítróglycerín í stórum
stíl og þrem árum síðar bjó
hann til dýnamít.
60 milljón sænskra króna
sjóður.
Hann kom upp dýnamítverk-
smiðjum í ýmsum löndum og
varð stórauðugur maður. Hann
lézt árið 1895, en hafði árið áð-
ur ákveðið að allur auður hans
skyldi renna í sjóð, sem bæri
hans nafn. Stofnfé sjóðsins
Utnmæli Einars I
■
■
Olgeirssonar |
Einar Olgeirsson formaður [
Sósíalistaf lokksins komst j
svo að orði í gær, er I*jóð- [ j
viljimi skýrði honum frá því
að Halldór Kiljan Laxness
liefði fengið bókmenntaverð-
laun Nóbels:
Það er gott að öll ver-
öldin viti að ísland er ann-
að og meira en amerísk
herstöð, — að ísland á
bezta núlifandi sagnaskáld
heimsins.
Það er gott að Halldór
Kiljan Laxness öðlast að
lokum þá viðurkenningu
sem hann jyrir löngu
verðskuldaði.
Það er vonandi að öll
þjóð vor geti nú samein-
azt um það að meta til
fulls sitt mesta skáld.
var 30 milljón sænskar krónur,
en í sjóðnum munu nú vera
tæpar 60 milljón sænskar
krónur. Af vöxtum sjóðsins er
á ári hverju úthlutað verðlaun-
um til manna sem hafa skarað
fram úr á sviði eðlisfræði, efna-
fræði, læknisvisinda og bók-
mennta eða hafa unnið afrek í
þágu friðarins. Þessi verðlaun
eru í ár rúml. 190.000 sænsk-
ar krónur eða um 600.000 ís-
lenzkar. Sænska akademían út-
hlutar bókmenntaverðlaunun-
um, en konungur Svía afhendir
þau eins og hin verðlaunin á
dánardegi sjóðsstofnanda 10.
desember.
Margir beztu höfundar
aldarinnar.
Enda þótt sænska akademí-
an hafi oft veitt bókmennta-
verðlaun Nóbels mönnum sem
fæstir gátu talið að ættu þau
skilið og hafi gengið fram hjá
öðrum sem ótvírætt hefðu átt
að fá þau, er þvi ekki að neita
að í hópi þeirra sem þau hafa
fengið síðan Sully-Prudhomme
fékk þau fyrstur manna árið
190i hafa verið margir beztu
rithöfundar tuttugustu aldar-
innar. Nægir þar að nefna nöfn
eins og Kipling, Rolland, Ham-
sun, France, Yeats, Shaw,
Thomas Mann.
Þrátt fyrir róttækni.
Úthlutun nóbelsverðlaun-
anna féll niður á striðsárun-
„Ég hafði ekki
biiizl við því.
Fréttaritari Þjóðviljans i
Kaupmannahöfn átti símtal
við Halldór Kiljan Laxness
í Gautaborg í gær. Haildór
komst þannig að orði:
„Það kemur mér algerlega
á óvart að ég skyhli fá nó-
belsverðlaunin. Ég hafði satt
að segja eldd búizt við því,!
Jjó að mikið hafi verið uni j
J»að talað. Þetta gleður mig i
mikið, ekki aðeins sjálfs
mín vegna heldur eiimig af
öðrum ástæðum, ekM sízt
fslands vegna.“
<8--------------------------4>
um, en árið 1944 fékk danska
skáldið Johannes V. Jenseia
þau og síðan þessir rithöfund-
ar: Gabriela Mistral (Chile),
Hermann Hesse (Sviss), Andre
Gide (Frakkland), T. S. Eliot
(Bretland), William Faulkner
(Bandaríkin), Bertrand Russell
(Bretland), Par Lagerkvisfc
(Svíþjóð), Francois Mauriae
(Frakkland), Winston Chur»
chill (Bret'and) og Ernesfc
Frh. á 10. síðu.
Forseti
I s 1 a n d s
i a g n a r
Forseti íslands hefur sent
Halldóri K. Laxness satnfagn-
aðarskeyti i tilefni af þyi,' að
honum voru í dag veitt bók-
menntaverðlaun Nóbels.
(Frá skrifstofu forseta
Islands).
Sænski verkfræðingurinn,
----------------------------------------------- • ------G>
Við þökkum snilld orðs þins
Miðstjóm Sósíalistaflokksins sendi Halldóri Kiljan
Laxness eftirfarandi skeyti í gær:
„Við öskum þér hjartanlega til liamingju og sam-
gleðjumst þér vegna veitingar bókmenntaverðiauna Nób-
els til þín.
List orðsins liefur frá uppliafi Jijóðar vorrar verið
liið beitta, glæsilega og sigursæla vopn í allri frelsis-
baráttu Islendinga. Það varð J»itt göfuga hlutverk að
draga úr slíðrum, gljáfægja og skerpa þetta foma vopn
þjóðarinnar og fá henni J*að beitt og skínandi í hendur,
tíl þess að hún gæti einnig sigrað í hinni nýju sjálf-
stæðisbaráttu sinui. Um leið og við þökkurn J»ér snilld
orðs Jiíns í þágu þjóðarinnar, óskum við íslenzku þjóð-
inni til hamingju með þann son sinn, sem hefur hafið
hina fornu J»jóðlist tii nýrrar og æðri frægðar og fært
um leið öllum J>jóðum heims dýrustu gjafir IslendLnga.
Miðstjórn Sameiningarflokks alþýðu —
Sósíalistaflokksins“.
Vlnnum að sölu happdrættislns - Ellum Þjóðviljann