Þjóðviljinn - 09.11.1955, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 09.11.1955, Blaðsíða 1
IVIiðvikudji.gitr 9. nóvember 1955 — 20. árgangur — 254. töinblað Frv. um almannatryggingar markar spor aftur á bak Heil sugæzlukaflinn felldur niður — Réttur ein- stæðra mæðra skertur — Nokkur hækkun á V mæðralaunum og ellilífeyri Prumvarp það til nýrra almannatryggingalaga, sem lagt hefur verið fyiir Alþingi felur í sér margskonar skerð- ingar á þeim réttindum, sem núgildandi lög ákveða. Þrátt fyrir það, þótt í því feiist nokkrar lagfæringar, má í heild sinni segja að það marki spor aftur á bak. Skulu nú raktar nokkrar breytingar, seni felast í frv. HeilsugæzlukafiinR felldur niður. Veigamesta breytingin er sú, að kafli núgildandi laga um heilsugæzlu er felldur niður. Sá kafli hefur raunar aldrei komið til framkvæmda, heldur verið frestað ár frá ári. Var tilætlun Alþingis, þegar- þau lög voru sett að skilyrði yrðu sköpuð til framkvæmda hans, en áður en til þess kæmi, var þróuninni beint í afturhaldsátt og nú er svo komið, að lýst er yfir full- kominni uppgjöf. Hér er því um mikla afturför að ræða. Einstæðar mæður missa rett. Önnur mjög veigamikil breyt- ing er sú, að felldur er niður réttur einstæðra mæðra til að fá barnsmeðlög greidd af Tryggingastofnuninni, heldur skuli sami háttur á hafður og áður var. Sama máli gegnir um 3ja mánaða styrk, er barnsmóð- ur hefur verið úrskurðaður. Hér er einnig um mikla afturför að ræða. Þessar mæður verða nú sjálfar að sækja sinn rétt í hendur barnsfeðra eða sveitar- stjóma. Aðairökin fyrir þess ari breytingu er sú, að þetta hafi reynst illa fyrir Trvgginga- stofnunina, þvl að það komi ó- sjaldan fyrir að framfærslu- sveit neiti endurgreiðsiu. Eiimig að stofnunin hafi ekki ástæður til eftirlits með að þetta sé ekki misnotað. Er helzt svo að sldlja, að einstæðax mæður hafi betri aðstöðu t.il Lýsir stuðningi vi§ vinstri sam- vinnu Á fundi Kvenfélags sósialista, sem haldinn var 2. nóv. s.l., var eftirfarandi tillaga samþykkt í að sækja sinn rétt 1 liendur einu bljóði: sveitarfélaganna heldur en Tryggingastofnunin. Flestnm mun þó finnast annað. Þetta er mikil afturför og mun áreiðan- lega verða til þess, ef að lögum verður að fjöldi mæðra nái ekki rétti sínum. Minnkaðar fjölskyldubætur. í fmmv. er gert ráð fyrir að fjölskyldubætur verði greiddar fyrst með 3. barni í stað 2. barni eins og nú er. Þetta er skýlaus réttarskerðing. Þegar síðustu ákvæði um fjölskyldu- bætur voru sett, var það gert sem einn liður í lausn desem- berverkfallsins 1952 og var þetta þá veitt sem launa/hækk- un. Þessi skerðing verkar því sem launalækktin og mun verða á hana litið' sem slílta. Framhald á 3. síðu. Kvenfélag sósíalista lýsir stuðningi sínum við viðleitni AI- þýðusambands íslands um sam- vinnu vinstri flokkanna til stjórnarmyndunar. Vilhjálmur Þór Nú á að skipuleggja atvlnnuleysíð Vilhiálmur Þór ber fram kröfur um sfór- felldan niÓurskuro á verklegum framkv. ;a sem fyrst Þjóðveldisflokkur Færeyja hefur krafizt þess að fær- eyska þingið vérði rofið nú þegar og efnt til nýrra kosn- inga í landinu. Þing flokksins stendur nú yf-f ir í Þórshöfn og samþykkti það í gær ályktun þar sem krafizt er þingrofs og kosninga. Sú krafa er rökstudd með því að landstjórnin og meirihluti henn- ar á þingi hafi haldið þamiig á málum í Klakksvíkurdeilunni að hún hafi misst allt traust þjóðarinnar. Yfirheyrslum þeirra manna sem handteknir hafa verið sambandi við Klakksvíkurdeil- tina hefur verið hraðað og hefj- ast sjálf réttarhöldin í dag. Vilhjálmur Þór, bankastjóri Landsbankans, flutti í fyrrakvöld erindi „um efnahagsmál“ í útvarpið og var það ómengaður áróður fyrir stórfelldum árásum á lífskjör ahnennings. Vilhjálmur lýsti fyrst óstjóm- inni í íslenzkum efnahagsmálum, hóflausri sóun á gjaldeyri í lúx- usbíla og fánýtt skran. Var sú lýsing ófögur skýrsla um dug- leysi og ráðleysi stjórnarflokk- anna. En afstaða bankastjórans var síðan sú að úr þessu þyrfti að bæta — ekki með þvi að af- nema sukkið og svindlið og ó- reiðuna, heldur með stórfelldum árósum á lífskjör vinnaiidi fólks. Nokkrar hclztu tillögur Vil- hjálms Þórs voru þessar: 1. Það þyrfti enn stórlega að draga saman útlán bankanna og hækka vexti þeirra. sem þó eru nú þegar hæstir í heimi. Israelsmenn og Egyptar berjast Talsmaður ísraelsstjórnar tilkynnti í gær, að egypzkir hermenn hefðu ráðizt inn yfir landamærin, en verið hraktir aftur eftir stutta viðureign. Talsmaður egypzku stjómar- innar sagði að 4 brynvarðir vagnar frá fsrael hefðu hafið skothríð á egypzka hermenn í nágrenni bæjar eins við Aqaba- flóa og heíðu 4 þeii-ra fallið. EinstœSur menningar- og HstviSburSur 2. Það þyrfti að skera niður allar verklegar framkvæmdir að niikium muu, sérstaklega hús- byggingar. 3. Ríkið þyrfti að hæftka skatta og tolla verulega og draga auk þess úr útgjöldum sín- um til verklegra framkvaémda, 4. Það þyrfti með þessuni og öðrum ráðstöfunum að koma á. „jafnvægi" milli framboðs ogr cftirspurnar á vinnuafli, það er hæfilegu atvinnuleysi, til þess að hægt væri að halda kaup- gjaldi í skefjum og lækka það raunverulega. Ræða bankastjórans var þann- ig einhver ómengaðasti aftur- haldsboðskapur sem nokkru sinni hefur heyrzt á íslandi, hún er almenningi visbending þess hvað afturhaldsflokkarnir ætlast nú fyrir. Hinsvegar er það maka- laus ósvífni að Vilhjálmur þói' skuli fá leyfi til að flytja slíkaö stjómmálaáróður í þágu auð- manriastéttarinnar í ríkisútvarp- inu, algerara brot er ekki hægfi að hugsa sér á „hlutleysis“-regl-> um þeim sem mest er flíkað. i Bums, formaður eftirlitsnefnd- ar SÞ í Palestínu ræddi í gær við forstjóra utanríkisráðuneyt- isins í Telaviv, Sjang Hsin-jung og Lí Sjín-hung í Jaði-armbandinu, einu atriðinu sem Peking- óperan flytur hér í Þjóðleikhúsinu. (Sjá frétt á 12. síðu). HflPPDBETTI PJÚfHIMIií 3dagar eru þangað til dregi® verðnr. Nú er hver dagur skiladagu® og meira en það, því aö nú eJP bezta tækifærið, sem gefst, tilt að selja miðana. Gerum nú öflugt átak og ryðj^ um blokkunum út og þeir scnft þegar eru búnir að koma. Sínuna miðum í verd, þurfa að takat meira. Ef allir eru samtaka^ verður árangurinn áreiðanlega. góður, og það þarf liann nauð- sy«lega að verða. Drætti verður ckki frestað. Aðeins 3 dagar eru þar til dreg ið verður — notið tímann vel til sölu happdrættisins

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.