Þjóðviljinn - 10.11.1955, Síða 11

Þjóðviljinn - 10.11.1955, Síða 11
Fimmtudagur 10. nóvember 1955 — ÞJÓÐVILJINN ■— (11 híaris Kirk: Hlitgaard og Synlr 37. dagur — Nú skiptir mestu a'ð vera rólegur, Klitgaard, sagði Seidelin. Þú átt ekkert á hættu. Og að’ minnsta kosti verðum við að sætta okkur við þetta. __Já, það er félegur fjandi, sagði Jóhannes Klitgaard beizklega. Það er af þessu og öðru eins sem menn verða kommúnistar. Fari það bölvað! Hann bölvaði, því að í anddyri dómshússins sat Eve- lyn. Hún leit vel út, hugsaöi Jóhannes, og hún var svo ósvífin að rísa á'fætur og ganga til hans til að heilsa honum, __Hvernig líður þér, Jóhannes? kvakaði hún, og hann fékk sting í hjartað við að heyra rödd bakaradótturinnar aftur. —O, svona eins og manni getur liðið á þessum tím- um, sagði hann. Og hvað er að frétta af þér, Evelyn? — Þakka þér fyrir, allt ágætt, sagði Evelyn. Ég vinn í útvarpsverksmiðju með fyrirtaks stúlkum. Launin eru auðvitaö ekki sérlega há, en það era peningar sem ég vinn fyrir sjálf, og það er reglulega gaman, eins og þú hlýtur að skilja, Jóhannes. Hann langaði mest til að nísta tönnum af reiði. Þarna stóð kvenmannskindin, sem var þó komin á fimmtugs- aldur, og Ieit svívirðilega vel út með stinn brjóst og blik í augnm eins og hún haföi haft frá fyrstu tíð. Og hún hafði íýst vanþóknun sinni á Jóhannesi Klitgaard og auðæfum hans og sofið hjá Þjóövei'ja, bannsett gæran. — Það er gott að þú ert ánægð, sagði hann, og nú sá hann fleiri málsaöila koma á vettvang. Þarna var Emm-f anúel, Oluísen málarameistari og Runge gamli skrifári. Það leyndi sér ekki að Olufsen kom beint af kránni. — Nú, jæja, þarna er stjórnin komin, sagði Seidelin. Og eftir nokkrar mínútur verður rétturinn séttur. Vertu nú bará rólegur, Jóhannes, reyndu umfram allt að stilla þig, þétta era aðeins smámunir .... — Þú getur svo sem talað digurbarkalega, hvæsti Jó- hannes Klitgaard. Dyrriar opnuöust aftur og inn kom Egon forstjóri og Fríða feita í fylgd með hörkulegum lögregluþjóni. Jóhannes leit þau illu auga, því aö maður vissi svo sem að Egon og Fríöa höfðu leyst dyggilega frá skjóðunni, þótt þeim hefði veriö sæmst að halda kjafti. En þetta fékk maður fyrir velvildina við þessa nasistablók og fituklessuna systur hans. — Æ, skelfing lítur hún aumkunarlega út, sagði Eve- lyn. Það er víst hreint ekkert skemmtilegt aö sitja í tukthúsi, eða heldurðu það Jóhannes? Heyröu annars, er það hugsanlegt að þú verðir settur inn, hvaö hefurðu eiginléga gert af þér? Hún var alveg stórkostlegur kven- maður þegar við hittum hana í Álaborg, eigum við ekki aðeins aö kasta á hana kveðju? — Þaö er víst óráðlegt, frú, sajgði Seidelin. Hún er undir lögreglueftirliti, og það væri hægt að líta svo á að þér væruð að reyna aö hafa áhrif á vitni. — Ég kæri mig sannarlega ekki um að hafa, áhrif á neinn, sagði Evelyn. Má ég ekki heilsa veslings Emman- úel heldur, hann er svo skelfing sorgmæddur á sviþ- inn? Jæja, en þá bíð ég þangaö til á eftir, ég vil ekki gera neitt sem ég má ekki. Dymar að réttarsalnum voru opnaðar og réttarhöldin hófust. Jóhannes Klitgaard varð þess vísari að hann var ákærður um hermang og vítavert fordæmi. Hann var mjög ófús á að viðurkenna sekt sína. Eftir réttarhöldin hitti Jóhannes Klitgaard fyrrver- andi eiginkonu sína og lögfræðing sinn og þau héldu inn á Café a Porta. — Viö ættum að geta fengið okkur einhverja hress- ingu, sagði hann. Og hvernig fannst þér þetta ganga, Seidelih? — Það er ekki gott að segja um það enn, sagöi héraðsdömslögmaðuiinn. Þetta vora fyrstu réttarhöld og allt er undir því komið hve mikið rétturinn leggur upp úr vitnisburði Egons og systurinnar. Þau era ekki bei-'Iínis neinir dýrlingar, og ég skil ekki hvernig í fjand- anum þú fórst að hafa samneyti við þau? — Það er vandalaust að vera vitur eftir á, hvæsti Jó- hannes Klitgaard. Ég gat ekki vitað þá, hvernig þetta færi allt saman. — Hann er nasisti og hún er Þjóöverjamella, sagði Seidelin. Þaö er hvimleitt í meira lagi að þú hefur haft þau bæði í þjónustú fyrirtækisins. Og lögregluskýrslan frá Álafoorg var ekki beinlínis uppörvandi. — Og'svo kemur þaö sjálfsagt fram líka að eiginkona mín hefur haldið við Þjóðverja, og það kemur niður á mér, sagði Jóhannes Klitgaard illgirnislega. — Það er vissulega komið fram nú þegar, kvakaði Evelyn. Lögreglan hefur líka heimsótt mig og yfirheyrt mig; það hofðu borizt fréttir frá Álaborg. Og ég sagði þeim að þaö væri alveg laukrétt, að ég hefði verið milli- göngumaður fyrir byggingafulltrúa sem var andnasisti og sendi uppdrætti af hernaðarmannvirkjum til secret service gegnum danskt heimilisfang. Og þeir eru búnir að rannsaka málið, þeir komu aftur og báðu mig afsök- unar, svo aö það verður þér alls ekki til tjóns. Hún brosti ástúðlega og- Seidelin horfði á hana ást- föngnum augum. Hefði maður átt svona konu, hefði maöur sannarlega gætt hennar eins og sjáaldurs auga síns. En vitaskuld, aulabárðurinn hann Jóhannes .... — Var þaö þess végna? spurði Jóhannes Klitgaard og hallaöi sér aö henni. Vorað þið bara saman í frelsishreyf- ingunni? — Nei, það veit hamingjan að það var annað og meira, sagði Evelyn. Qg það veiztu líka, því að ég hef aldrei dregiö dul á n'eitt. Mér þykir svo skelfing vænt um hann, þótt hann sé langlíkastur hrossi, og einn góöan veður- dag kemur hann og sækir mig eins og hann er búinn að lofa. — Æ, kvenfólk, kvenfólk, hugsaði Seidelin en upp- hátt sagöi hann: — Hinn ófrýnilegi á sér þá einhverja von kvenfólkinu hjá. — Menn geta verið mjög fallegir, þótt þeir séu mjög ófríðir, sagði Evelyn dreymandi, og veslings Jóhannesi fannst hún aldrei hafa veriö eins falleg og nú. Hún hafði verið ung og fersk, þegar hann uppgötvaöi hana í brauð- sölubúðinni, en nú var hún upptendruö af ást og ljóm- LIGGUR LEIÐIN Líkbornið Framhald af 4. síðu. gerum, ef við nennum að athuga aðstöðu okkar. Okkar hlutverk er það fyrst og fremst að vita um legu líkþornsins og hvar það er aumast hverju sinni, stíga á það, því- gólið er.sá ahsherja r viti í kjara- og menningarmál- • um, ‘Sem - geftWí-til Jk-y»«a-hva<r við erum stödd og hvemig við eigum að bregðast við til að gera skyldu okkar við land og þjóð. Við erum sem oft fyrr stödd á krossgötum. Sá sem. lætur heillast af gólinu og bítur í flokksskjöldinn er glat- aður, en hinn sem gerir sér grein fyrir því að gólið merkir það, að hann er á réttri leið„ hann stígur fastar á likþorn- ið og heimtar að stígið sé á það, þar til seinsemdin spring- ur eða er burtu skorin, en. þá er gróandinn og græðslu- tíminn framundan. Halldór Pétursson- etimlisþáÉÉiir Garho hefur erm áhrif a fizkuna Greta Garbo er enn umræðu-j efni, margar þykkar bækur hafa. verið skrifaðar um hana' og margir blaðadálkar voru1 notaðir undir greinar í sam- bandi við fimratugsafmæli þess- arar frægu konu. Og í tízku- heiminum hefur hún einnig skilið eftir merki sín, sem sjá má enn þann dag í dag. Það virðist næstum vera kaldhæðni örlaganna að Garbo, sem hefur sjálf engan áhuga á fötum og stendur alveg á sama um útlit sitt, hefur haft áhrif á klæða- burð kvenna um allan heim, ekki aðeins um stundarsakir heldur árum saman. Slétt, frjálsleg hárgreiðsla hennar og alpahúfan fræga er Garbo-tízka eins og flestum mun kunnugt. En þegar við förúm í þykka og þunga göngu- skó og erum harla ánægðar með útlit þeirra, er ekki víst að við vitum að þá tízku eigum við einnig henni að þakka. Á þeim árum þegar kvenfólkið tróð tánum niður í támjóa og hælaháa skó sem voru því of litlir, klæddist hún flatbotna þægilegum skóm. Það voru sagðir brandarar um hvað hún væri fótstór, en í rauninni var hún alls ekki fótstór, heldur sýndust fætur hennar stórir í samanburði við skógrýturnar sem áður eru nefndar. En'húri gerði lághæluðu skóna vinsæla og hún innleiddi þá venju að konur keyptú það skónúmer sem þeim var mátulegt. Hún var einnig fyrst til að nota síðbuxur, Marlene Dietrich tók upp þá tízku og notaði hana. í auglýsingaskyni, en það breytir ekki þeirri staðreynd að það var Garbo sem inn- leiddi þá tízku. Einnig hefur hún gert sólgleraugu að tízku. Áður fyrr fannst engum það fallegt að nota sóigleraugú, en Garbo gerði það og síðan öpuðu aðrar leikkonur það eft- ir henni. Almenningur byrjaði á þessu líka og nú finnst öílúm það éðlilegt og sjálfsagt að notá sólgleraugu þegar þörf krefur. Þegar Garbo dró sig' í hlé frá kvikmyndum hefði mátt ætla að hlutverki hennar sem tízkufrömuðs væri lokið, en sú hefur ekki orðið raunin á. Tízkuatriði eins og lausi hálsklúturinn sem bundinn ' er utan á kápu eða jakka er ótvíræð Garbo-tízka sem tízku- húsin í París tóku upp á síná arma fyrir þrem eða fjórum árutn. Peysur hennar með rúllu- kraga í hálsinn eru orðin si- gild tízka, sem við vildum ógjarnan án vera núna. Og sameiginlegt öllum þeim tízku- atriðum sém liún hefur komið á framfæri er að hún he-ur val- ið hentug föt og klæðzt þeim.. Hún á eklti veigalítinn þátt i þeirri staðreynd að tízkan I dag' er hentug og nytsamleg og' lúx- ustízkan megnar ekki að’ ná útbreiðslu, Og fýrir þá sök eina hefðum við fulla ástæðu til lað vera henni þakklátar. fiSðOVIUINN Utgefandi: Sameiningarflokkur albýSu — Sósialistaílokkurinn. — Ritstjórar: MagtitiS' Kjartansson íáb.), Siguróur Ouðmundsson. — Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason. — Blaó'a—f; menn: Ásmundúr Sigurjónssón,'' Bjarnl Benediktsson, Guðmundur Vigfússon. ívar H- Jónsson, Magús Tórfi Óláfssöri.. - AuBlýSiligastJóri: Jónsteinn Haraldsson. — Ritstjó®ti, i| afgreiðsla, auglýsingar. prentsmiðja: Skólavörðustig 19. — Sími: 7500 (3 línur). — Áskrjlt— arverð kr. 20 á mánuðl í Reykjavík og nágrenni: kr. 17 annarsstaðar. — LausasöiuvtrOí kr. 1. — Prentsmiðja ÞjóðVilians h.f.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.