Þjóðviljinn - 03.12.1955, Síða 4

Þjóðviljinn - 03.12.1955, Síða 4
!4) — ÞJÖÐVTLJINN — Laugardagur 3. desember 1955 iUm dægurlög og texta — Kaíli úr bréíi — Sýnis-' horn — Ástarvella og brennivínsþankar BÆJARPÓSTINUM hafa enn borizt nokkur bréf um óslca lagaþáttinn, en við höfum ákveðið að ræða það mál ekki frekar hér í „Póstinum" að svo stöddu, og vona ég, að höfundar fyrrnefndra bréfa taki þá ákvörðun ekki illa upp. Aftur á móti fjalia sum bréfin um dægurlögin og text- ana við þau, og er vel þess vert að ræða það mál dálítið nánar. Hér er t. d. kafli úr ágætu bréfi frá G.G. — „Um lögin sjálf og textana má vissulega alltaf deila, enda eðlilegt. En íslcnzkir textar við íslenzk lög eru tvímæla- laust mikil framför frá því sem áður var, er öll dægur- íög voru sungin á erlendum málum, enda þau lög eriend að uppruna. Hitt er svo að sjálfsögðu staðreynd, að text- arnir eru mjög misjafnir að gæðum, það eru lögin reyndar j hka. En á það verður jafn- framt að líta, að ísl. texta- gerð og dægurlög eru ung að árum og eiga framtiðina fyr- ir sér, og eiga vafalaust eftir að þroskast mikið og mótast á komandi tímum. Að lokum vil ég segja það, að allir, 'sem íslenzkri menningu unna, geta verið á einu máli um það að allir þeir aðiljar, er unnið hafa að ísl. texta- og dægur- lagagerð, hafa unnið þjóðhollt brautryðjendastarf, og eiga að launum fyrst og fremst þakklæti allrar alþýðu þessa lands.“ — G.G. hefur tvímæla- laust mikið til síns máls, og afstaða hans til dægurlaga og ! texta við þau er að mínu á- liti skynsamleg. En ég er hór með lítið kver, sem ber heitið: 30 nýjustu danslagatextarnir, og undirtitill er: Urvals dans- lagatextar. Við lauslegan yf- írlestur kversins, komst ég að jþeirri niðurstöðu, að G.G. Ihefur, því miður, alveg rétt fyrir sér, þegar hann segir, að textarnir séu mjög mis- jafnir að gæðum. Eg leyfi mér að birta hér einn texta, sem ber lieitið: Eg bíð þín. (Höf- unda lags og texta er ekki getið). „Þótt öðrum þú lofist, ein ást mína átt. Þig ávalt ég elska, því treysta þú mátt. Þú kannt mér að gleyma, ég samt hugsa um þig. Líttu um öxl þér, þá sjá muntu mig. Þó að ég kyssi snót, lítt það gleður mig. Það er mín eina ósk að kyssa og faðma þig. TIL Hvar sem í veröld þig ber vina mín, veiztu að ást mín er óbreytt til þín. Og svo ef að lífið þreytt hef- ur þig. Líttu um öxl þér, þá sjá muntu mig.“ □------------------□ ÉG FÆ EKKI séð, að þessi harmkvælafuila ástarjátning verðskuldi fyrst og fremst þakklæti allraf alþýðu þessa lands, og í annan stað virðist mér einu gilda, á hvaða tungu- máli skáldskapur af þessu ...tseLfit rauiað.ur. Hinsvegar lái ég engum, þótt honum leiki nokkur forvitni á að sjá þá texta, sem ekki náðu því að kallast „úrvals danslagatext- ar“. Hins er skylt að geta, að í þessu sama kveri eru margir liprir og skemmtilegir text- ar, t. d. nokkrir eftir Loft Guðmundsson, Vilhjálm frá Skáholti o. fl. En uppistaðan í alltof mörgum danslagatext- um virðist mér vera lítt frum- leg ástai’vella, og ívafið leið- inlegir brennivínsþankar. — Skemmtilegri kímni bregður sárasjaldan fyrir, og skáldleg tilþrif eru því nær óþekkt fyr- irbæri. Vonandi stendur þetta til bóta, og einstaka höfundar hafa sýnt, að þeir geta ort prýðilega dægurlagatexta, sem tvímælalaust er nokkur feng- ur að, og eiga þeir vissulega þakkir skildar fyrir það. Sem sagt: Góðum textum þarf að fjölga, hinum þarf að fækka. 8 Tékkneskt bvggingareíni úr asbest-semenSi Ódýrt Varanlegt Oruggt gegn eldi Veggplötur, þilpiötur, bámplötur, þakhellur, þrýstivatnspípur, frárennslispípur og tengistykki EÍNKAUMBOÐ: MARS TRADING COMPANY Klapparstíg 20 — Sími 7373 CZECH0SL0VAK CEKAMICS. PHAC. TEKKÖSLÖVAKÍU • •■••luammiiiiiuaiai ÍIMIIIIIIIIII Bílahappdrœtti Þjóðviljons er vinsœlasta happdrœtti órsins regið nm tvo bíla 23. ÁSSIr eru jofn réffháir gngnvart heppn&nnl Drætti ekki frestað LIGGUR LEIÐIN Aðeins 10 kr. miðinn

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.