Þjóðviljinn - 03.12.1955, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 03.12.1955, Blaðsíða 7
Laugardagur 3, desember 1955 — ÞJÓÐVILJINN :— (7 Bjami Einarsson, skipasmiður: Nokkur orð rekstursgrundvöll Nú þessa haustmánuði er mjög rætt um vaxandi verð- bólgu, gjaldeyrisskort, vaxta- okur, of mikla fjárfestingu, ásamt skorti á lánsfé, og síð- ast en ekki sízt, um rekstrar- grundvöll sjávarútvegsins. Þegar rætt er um rekstrar- grundvöll atvinnugreinanna, verður að taka með í reikn- inginn þá fylgiíiska er leiða af núverandi stjórnarstefnu. Fyrir rösklega ári síðan, varð stjórnarblöðunum tíð- rætt um ráðstafanir til að ná „jafnvægi í byggð landsins.“ Ríkisstjórnin ákvað að lækna þessa jafnvægiskveisu með því að leyfa innflutning á 50 fiskíbátum. Miðað við þá þögn, sem rikt hefur í stjórn- arblöðunum um „jafnvægi í byggð landsins" síðan, virðist lækningin hafa tekizt. Nú- vii'ðist aftur á móti jafnvægið í peningamálunum hafa farið úr skorðum. Hin árlega um- ræða um rekstrargrundvöll bátaútvegsins er nú að hefj- ast fyrir alvöru. Ekki verður komizt hjá því að gera sér grein fyrir þeim breytingum, sem orðið hafa á stofnkostn- aði nýrra báta, ásamt við- haidskostnaði liinna gömlu, og þá sérstáklega hin tíðu véla- skipti. Síðastliðin tvö ár hefur vélaafl í fiskibátum verið auk- ið gífurlega. Sem dæmi má nefna að áður þótti vel í lagt að áætla 4 liestöfl á hverja rúmlest í ca. 50 rúmlesta fiskibát, en nú þykir lítið ef ekki er gert ráð fyrir 6—7 hestöflum á hverja rúmlest. Á meðalstórum fiskibáti nemnr þessi aukning vélaafls- ins ekki minna en 100 hest- öflum. Það dylst engum, að reksturskostnaður vex við aukna olíueyðslu, fyrir utan stóraukin stofnkostnað við stækkun vélanna. Hestaflið í bátavélum kostar núna frá 1000—1300 kr. eftir tegund- um. Það sorglega við þessa þróun er það, að hún gefur enga von um meiri afla fyr- ir heildina, en hinsvegar ör- ugga vissu um meiri rekst- urskostnað. Þessum aukna reksturskostnaði hefði verið hægt að bægja frá útgerðinni, með bættu skipulagi á fiski- miðunum, að hætti annarra fiskveiðiþjóða. Því fyrr en seinna verður ekki komizt hjá því að grípa til róttækra aðgerða, til að forða stór- slysum. í stórum verstöðvum eins og t. d. Keflavík og Akranesi heíur keppnin um ganghraða bátanna verið mjög hörð. Og þeir útgerðarmenn sem ekki vilja taka þátt í hraðalceppn- inni, eru í reyndinni dæmdir úr leik, því svo erfiðlega sem gengið hefur að fá mannskap á gangbetri bátana má telja ógerlegt að fá mannskap á þá gangtregu á línuvertíð. Þó ber öllum saman um að aukning ganghraðans gefi eklii meiri aflavon þegar á heildina er litið. Margur skyldi nú ætla að skipasmiðir og aðrir iðnaðar- menn, sem byggja atvinnu sína á því, að þjóna útgerð- inni, væru ekki mótfallnir þessari þtróun. En í því efni er ýmislegt að athuga. Hér er í rauninni ekki um eðlilega þróun að ræða, held- ur stökkbreytingu, er kemur engum að gagni, nema um- boðsmönnum vélanna og olíu- sölunum. Að hinu leytinu, er þessu svo vísindalega fyrir komið í okkar litla þjóðfélagi, Bjarni BöSvarsson Ég kynntist lionum aðeins lítið eitt, því okkar vegir konm lítið saman. Enn fann þó vel hve handtakið var heitt; því hefðu meiri kynni verið gaman. Handtak reynist stnndum stærri gjöf en stundarhagsins nægð á vegferðiiuii, og jafnvel þó það valdi tíma-töf við tökum launin full í kynningunni. Það reynist títt til yndis amastund að yfirvega handtak fyrstu kynna og blessa þá sem geyma gull í mund að gefa þeim seni snertinguna, finna. Hans liönd var full af gleði og gæðayl sem göfugt lijarta veitti í ríkmn mæli við sanna mannsins innra urulirspiþ svo óralangt frá tvöfeldninnar væli. Þv í er það sárt að eiga ei aftur von á einu slíku föstu handabandi þínu, kæri Bjarni Böðvarsson, því betri hönd var ekki á þessu lnndi. JÖRUNDUR Á HELLU. að ein vitleysan er látin toga i aðra. Þegar útgerðarmaður- inn á ekki annarra kosta völ, en talca þátt í hraðakeppn- inni, þá kemur ríkisvaldið og býður honum tvo kosti. Ann- arsvegar að sigla með bátinn til litlanda og sleppa við að greiða ca. 30 þús. kr. í tolla og söluskatt af vélinni í ríkis- sjóð, og íá jafnframt úthlut- að ca. 100 þús. kr. i gjald- eyri til að greiða erlendan kostnað við vélaskiptin. Hins- vegar að láta framkvæma vélaskiptin liér heima, en þá skal greiða ca. 30 þús. kr. i ríkissjóðinn í tolla og sölu- skatt af vélinni. Á tímum verðbólgu og láns- fjárkreppu eru 30 þús. kr. líka peningar. Þannig togar tví- björn í einbjörn og þríbjörn í tvíbjörn, og nú dvelja 10— 15 íslenzkir fiskibátar erlend- is, þeirra erinda að skipta um vélar ásamt viðgerðum. íslenzkar skipasmíðastöðvar hafa frá fyrstu tíð talið það grundvöll starfsemi sinnar að sjá bátaflotanum fyrir við- gerðarþjónustu. Þær liafa háð harða baráttu fyrir innlendri nýsmíði, til þess að brúa tima- bilin milli viðgerðanna, svo hægt væri að tryggja þjálfað . starfslið þegar vertiðum lýk- ur og viðgerðartímabil hefst. Ráðherrar í núverandi ríkis- stjórn gáfu fyrirheit um að tryggja skipasmíðastöðvunum rekstrarfé til nýsmíða á fiski- bátum. öll þau fyrirheit hafa reynzt tálvonir einar, en hins- vegar leyfður nær ótakmarkað ur innflutningur á fiskibát- um. Þegar það einnig bætist of- aná, að ríkisvaldið stuðlar að því, að öll stærri viðgerðar- þjónusta fari fram erlendis, þá er algjörlega búið að kippa starfsgrundvellinum undan skipasmíðastöðvunum. Rekst- ur þeirra hlýtur að stöðvast, og er það bein afleiðing þeirr- ar stefnu sem ríkisstjórnin hefur svo greinilega markað. Þessar niðurstöður eru byggð- ar á raunhæfum sannindum. 1 skýrslu sem Iðnaðarmála- stofnun Islands gaf út í fe- brúar 1954 er tafla um árleg- ar viðbætur bátaflotans frá 1938—1953. Þar sést greini- lega, að innlend nýsmíði leggst algjörlega niður, eftir hvern stórinnflutning á bát- um. Og ennfremur ef athug- uð er skýrsla Fiskiveiðasjóðs er nær til 31. október 1955, þá er þar skýrt frá þvi að Fiskiveiðasjóð skorti fé til að fullnægja lánbeiðnum í skipa- byggingar, sem nú þegar eru hafnar, að upphæð 32 millj- ónir króna. Flestum er enn í fersku minni ræða Vilhjálms Þór bankastjóra, um fjármál þjóð- arinnar almennt, Ekki var sú ræða til að auka bjartsýni manna á núverardi stjórnar- stefnu. Enda margt líkt með henni og stefnu utanþings- stjómarinnar á árunum 1943 og 1944 í innfiúíningi fiski- báta. Það vekur hinsvegar furðu, þegar skýrsla Fiskveiðasjóðs er athuguð, að íslendingar hafa keypt gamla báta er- lendis frá á svo til sama verði og þá nýju. Þegar það er enn- fremur haft í huga að aldur þeirra er allt uppí 11 ár, þá gengur þetta þjóðsögu næst. Hinsvegar kann það að vera nokkur skýring á fyrirbrigð- inu, að 1953 var boðin út bygging á 35 tonna fiskibát til að kanna verð á innlendri og erlendri smíði, að tilhlutan Fiskifélagsins. Þá kom greini- lega í ljós, að öll dönsku til- boðin að einu undanteknu, Framhald á 11. síðu. Áriegar viðfeætur bátaílotans með ísIenzkbygglBm ©g inníÍHttmn bátnm árín S938-'53, yfir 15 rúmi. en undir 109 rúml. Innlend sldp Innfiutt skip Samt. árl. vsðb. Stk. Samt. Stk. Samt. Stk. Saint. Ár fjöldi róml. fjöldi rúnil. fjöldi rúml. 1938 .... 8 187 6 268 14 455 39 .... 22 524 10 489 32 1.013 40 .... 10 278 2 77 12 355 41 .... 0 0 1 49 1 49 42 .... 22 524 0 0 22 524 43 .... 24 1.104 0 0 24 1.104 44 .... 12 729 0 0 12 ,729 45 .... 2 89 14 890 16 979 46 .... 18 845 62 4.137 80 4,982 47 .... 19 962 14 1.035 33 1.997 48 .... 4 151 3 257 7 ::408 49 .... 4 181 0 0 4 181 50 .... 0 0 0 0 0 0 51 .... 0 0 5 307 5 307' 52 .... 0 0 3 145 3 145 53 .... 1 39 7 304 8 343, Alls: 146 5.613 127 7.958 273 13.571 Stofnfé Fiskveiðasióðs Islanás 31. ©kt. 1955 Fisltveiðasjóður Islands hefur þegar veitt loforð um lán, sem afgreidd verða á næstu mánuðum: Til skipabygginga ............................. kr. 8.000.000 Til vélakaupa í skip ......................... kr. 6.000.000: Til verbúða- og vinnslustöðva................. kr. 4.000.000 Kr. 18.000.000 Aðrar fyrirliggjandi lánbeiðnir eru: 1. Til skipabygginga, (sem flestar eru þegar hafnar og verður lokið á þessu og næsta ári) um ........................................ kr. 32.000.000 2. Til verbúða- og vinnslustöðva, um.......... kr. 9.000.000 Kr. 59.000.000 Handbært fé sjóðsins er um.................... kr. 16.000.000 Mismunur (fjárþörf) Kr. 43.000.000 Lán úr Fiskveiðasjóði íslands til til sa og kaupa á fiskibáfum 1. fan. 1554. 31 okt. 1955 Opnir vélbátar ........... Opnir vélbátar ........... Þiljaðir vélbátar undir 12 rúmlestum ........... Þiljaðir vélbátar undir 12 rúmlestum ........... Þiljaðir vélbátar yfir 12 rúml., innlend smíði Þiljaðir vélbátar yfir 12 rúml., innlend smíði Þiljaðir vélbátar yfir 12 rúml., erl. eikarskip Þiljaðir vélbátar yfir 12 rúml., erl. eikarskip Þiljaðir vélbátar yfir 12 rúml., erlend stálskip Gömul skip, innflutt .... Gömul skip, innflutt .... Ár Skipa- fjöldi Rúml. Kostnaðarv. Mcðalv. á rúml. Lan alls kr. Meðallán pr. rúml. 1954 31 105 1.278.300 12.174 572.600 5.453 : 1955 40 158 2.545.000 16.108 1.142.300 7.230 1954 9 71 1.334.100 18.790 585.500 8.246 1955 8 60 1.339.000 22.318 742.500 12.375 1954 9 391 7.958.700 20.355 5.475.000 14.003 ; 1955 5 174 3.676.000 21.127 2.530.500 14.543 1954 3 117 2.035.300 16.538 1.365.000 11.666 1955 10 534 8.731.000 16.350 5.650.000 10.580 1955 2 127 2.240.000 17.639 1.430.000 11.260 1954 5 x 262 4.320.300 16.489 1.935.500 . 7:387 1955 3 128 2.020.000 15.781 886.500 6.926 125 2127 37.477.700 22.315.400

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.