Þjóðviljinn - 15.12.1955, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 15.12.1955, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 15. desember 1955 — ÞJÓÐVILJINN — [(9 RnSTJÓRl FRtMANN HELGASON Erlent knattspymulið hingað ' næsta sumar á vegum Fram Aðalíuitdui félagsins var haldinit 28. nóv. s.l. og Haraldur Sfeinþórsson kosinn formaður Aðalfundur Knattspyrnufé- lags Fram var haldinn í fé- lagsheimili félagsins mánudag- inn 28. nóvember s.l. Fundarstjóri var kosinn Böð- var Pétursson og fundarritari Guðni Magnússon. Jörundur Þorsteinsson, frá- farandi formaður flutti ítar- lega skýrslu um félagsstarfið á liðnu ári. Knattspyrnumenn félagsins tóku þátt í öllum knattspyrniunótunum s.l. sum- ar og alls sigraði Fram í þrem kappmótum. Auk þess eru sveitir félagsins í úrslitum í 3 flokkum, sem keppni er enn ekki lokið í og frestað ' verið til næsta árs. Handknatt- leiksflokkar félagsins tóku þátt í flestum mótum ársins og vann Fram sigur í 1 hand- knattleiksmóti. Mikill áhugi ríkti á . um fyrir því að félaginu yrði sem fyrst fengið í hendur nýtt athafnasvæði í Kringlumýri, sem það hefur sótt um að fá í stað svæðisins fyrir Sjómannaskólabygginguna i frá upphafi var of lítið og i nú mjög farið að há öllum frekari viðgangi félagsins. Þá er ráðgei’ð á næsta sumri utanför 2. flokks knattspyrnu- manna úr félaginu og fyrsta er- ienda knattspymuliðið sem hingað kemur næsta sumar verður á vegum Fram. Ennfremur var Hallur Jóns- son, þjálfari 4. flokks og yngri drengja, sæmdur silfurmerki Fram fyrir frábærlega gott starf í þágu yngri kynslóðar- innar í félaginu. I stjórn voru kosnir: Haraldur Steinþórsson, for- maður, Hannes Þ. Sigurðsson, varaformaður, Jörundur Þor- steinsson, gjaldkeri, Sigurður Jónsson, formaður knattspyrnu __Kristinn Jónsson, for- maður handknattleiksnefndar, Haukur Jónasson, form. skíða- nefndar, Jón Sigurðsson, kaup- maður ritari, Ragnar Jónsson, fjármálaritari. Fréttir frá ÍSf Mimúngasjóður iþróttamanna. Minningasjóðurinn var stofn- aður 1952 af íþróttasambandi íslands til minningar um fyrr- verandi forseta Lslands Svein Björnsson fyrrverandi vemdara ÍSl. Tilgangur sjóðsins er að styrkja éfnilega iþróttamenn til íþróltanáms og má eigi veita fé úr sjóðnum fyrr en upphæð hans nemur kr. 25.000,00. ViII framkvæmdastjóm ISl vekja athygli á minningasjóði þessum og að minningagjöfum er veitt móttaka í skrifstofu ÍSl. ÍSÍ aðili að Landssambandi gegn áfengisböli. íþróttasambandið var eitt af þeim félagasamtökum er gerð- ust aðilar að stofnun Lands- sambands gegn áfengisbölinu og voru þeir Ben. G. Waage og Stefán Runólfsson fulltrúar ÍSl á stofnfundi þess. Sendikennari tSI Axel Andrésson, sendikennari ÍSÍ, hefur nýlokið námskeiði á Hvanneyri, voru þátttakendur 74 og mun Axel næst fara til Reykholts í Borgarfirði og halda námskeið þar. Axel Andrésson varð sextug- ur 22. nóv. s.l. og í tilefni ' var honum haldið samsæti á Hvanneyri, voru þar :________ fluttar og árnaðaróskir og af- mælisbarninu færðar gjafir. Bárust Axel árnaðaróskir vjðsvegar að af landinu frá vin- um, kunningjum og gömlum nemendum. Axel Andrésson réðst sem sendikennari í þjónustu ÍSÍ ár- ið 1941, en áður hafði hann kennt knattspyrnu allt frá ár- inu 1917, og verið einn af for- vígismönnum íþróttahreyfing- arinnar. Á þeim tíma er Axel hefur yerið sendikennari ISÍ hefur hann haldið 155 íþróttanám- skeið á 48 stöðum á landinu og kennt samtals 17.452 nemend- um. (Frá Í.S.Í.) ■ i-d-í’C'ss- if í 4 es* 6 ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Auglýsið í Þjóðviljanum ■ ■■■■■■■■■■«■■■ «■■■■«_■_■_■ ZETA ferSaritvélar fyrirliggjandi Hér á síðunni hefur áður verið skýrt frá landsleik í knatt- spyrnu milli Ungverja og Aasturríkismanna á s.l. hausti Leikurinn fór fram í Búdapest og lauk með sigri heirna■ manna 6:1. Efri myndin er frá leiknum og sýnir austur- ríska markvöröinn Szanwald grípa knöttinn af tám Kocs- is. Eins og menn muna var Szanwald tekinn fastur í Ung- verjalandi fyrir að smygla um 100 gvllurum og síðar úti- Lokaður frá állri keppni af aicsturriska knattspyrnusam- bandinu. —Neöri myndin er af bílastœðunum við Nep leikvanginn, par sem landsleikurinn var háður. BÖKABÍIÐ BANKASTRÆTI 2 — SÍMI 5325 Af bókum íslenzkra höfunda sem komiö liaía út nú fyrir jólin hafa þættir Halldóni B. Björitsseu Eitt er það land vakiö óskipta athygli listunnenda, fyrir nýstárleik og fágaðan þokka Smekkleg bók og fögur er minjagjöf er minnzt verður lengi. HLADBÚÐ ■■■■■■■■•■■■■•■■■>■■■■■■■■■■■•■■■■.■■■■■■■«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■*, ■»»•■•»■••••■■■■■■•■••••■■■■■«■■••■■■■•»■■■■■■•••••■■•••■■■•■■■■••■»■■■ ■■■■» ••■■■•■■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■•«■••■••■•■■•••■■■•■■•••■»» s Nú er hver siðastur að sjá heimilistækja- og lampasýning- una í ListamannaskáSanum Hún verður opin daglega frá kl. 2—10 til föstudagskvölds Ökeypis aðgangur Okeypis happdrætti Sf-- EKLA H.F. l «■■■■•’*» MNvNMWNfffMtNNHSn *

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.