Þjóðviljinn - 16.12.1955, Qupperneq 1
Föstudagur 16. desember 1955 — 20. árgangur — 286. tölublað
Fulltrúar meirihluta Reykvíkinga í bæjarstjóm:
Alarer sleínubreytina er nauðsynleg
Stórauka jbarf framlög fil IbúcSabygginga og verk-
legra framkvœmda og minnka skrlffinnsku-
bákniÓ og lœkka ónauSsynleg utgjöld
Þau tímamót gerðust í bæiarstjórn Reykjavíkur ber að sama brunni: alltaf
/ j- r > n ■ »ii . fi ii hækka útgjöld og reksturskostn-
i gær ao iulltruar allra minnmlutaiiokkanna — sem
eru íulltrúar meirihluta kjósenda í bænum — fluttu
sameiginlegar breytingartillögur við fjárhagsáætlun
íhaldsins- Ætti það að vera fyrirboði þess að styttast
fari sá tími sem íhaldinu helzt það uppi að stjórna
bænum gegn hagsmunum almennings í þágu fá-
mennrar auðstéttar.
Fjárhagsáætlun Rej’kjavíkur
var til síðarj umræðu og fullnað-
arafgreiðslu á fundinum. Gunn-
ar Thoroddsen borgarstjóri flutti
framsöguræðu fyrir fjárhags-
áætlunarfrumvarpi íhaldsins, og
stóð ræða hans í ca. 4 mínútur.
Guðmundur Vigfússon hafði
framsögu fyrir breytingartillög-
um minnihlutaflokkanna: Það
ætti ekki að þurfa að vera deilu-
mál að stefna sú í fjárhagsmál-
um sem fylgt er nú hér á landi
hefur mjög autin útgjöld í för
með sér fyrir bæjarfélagið. Jafn-
framt er þess að gæta að vax-
andi borg eins og Reykjavík
verður að hafa með höndum
miklar framkvæmdir, — og
þykir okkur í minnihlutanum
þær löngum ganga slælega, og
illa efnd kosningaloforðin.
I>að er stefna Sjálfstæðis-
flokksins í iandsinálum sem
fyrst og fremst ber ábyrgð á
aukniim útgjöldum vegna ört
vaxandi dýrtíðar.
Það er hlutverk bæjarstjórn-
arinnar að vega og meta hvern-
ig mæta beri vaxandi útgjöld-
um. Ætlun meirihlutans, íhalds-
ins er að hækka fjárhagsáætlun-
ina um 37% og útsvörin um
40%.
LÆKKUN TIL ÍBÚÐA-
BYGGINGA
Samtímis 40% útsvarshækkun
boðar íhaldið 19% Jækkun á
framlagi til íbúðabygginga, en
á engu sviði þarf bæjarfélagið
að taka eins rösklega til hönd-
um og i íbúðabyggingum, eink-
um yfir þær þúsundir Reyk-
víkinga er árum saman hafa
búið i heilsuspillandi og óhæfu
húsnæði, og þá sérstaklega þá
er búa i bröggum.
Hér þarf allt aðra stefnu. í
fyrsta lagi þarf að lækka öll
ónauðsynleg útgjöld og í öðru
lagi er það Jágmark að verja
a. m. k. hlutfallslega jafnmiklu
fé til íbúðabygginga og gert var
á s. 1. ári.
BORGARSTJÓRINN HEF-
UR GEFIZT UPP
Okkur er tjáð að „spaniað-
arnefnd“ íhaldsins hafi samið
þetta frumvarp. Einu sinni fékk
íhaldið „spamaðarsérfræðing"
alla- leið frá Chicago, en allt
aður bæjarins. Þau hækka ekki
aðeins i samræmi við aukna
dýrtíð, Iieldur langt fram yfir
það.
í fjárhagsáætluninni er gert
ráð fyrir stórauknum tekjuaf-
gangi. Hvað þýðir það? Það þýð-
ir að borgarstjórinn gerir sér
ekki vonir um að takast megi
að fá lánsfé til framkvæmcla
bæjarins. Það þýðir jafnframt
að borgarstjórinn hefur gefizt
upp við að innheimta þær 10—
20 millj. kr. sem bærinn á hjá
tíkinu í ógreiddum framlögum
til skólabygginga og heilbrigð-
isstofnana.
Það nær vitanlega ekki nokk-
urri átt að bærinn leggi rik-
issjóði til rekstursíé með slík-
um hætti og afli í þess stað
sjálfum sér rekstursfjár með
siauknum álögum á bæjarbúa.
ALGERT ÁBYRGÐAR-
LEYSI
Bæjarstjórnarmeirihlutinn hef-
ur valið þá leið að stórauka
álögur á bæjarbúa. Við í minni-
hlutanum lögðum hinsvegar til
að fela bæjarráði að endurskoða
fjáihagsáætlunina í því augna-
miði að lækka öll ónauðsynleg
felldi slíka endurskoðun. Þegar
hækka á fjárhagsáætlunina um
37% og útsvörin um 40% er
algert ábyrgðarleysi að hafna
með öllu að bæjarráð athugi um
ráð til lækkunar.
IBUÐABYGGINGAR
Breytingartillögur okkar
alger stefnubreyting frá áætl-
un íhaldsins. Við leggjum til að
lækka ýmis ónauðs.vnleg útgjöld
en leggja til ný eða aukin fram-
Framhald á 9. siðu.
Alþingi hélt áfram fund-j
um fram eftír kvöldi tíl að \
ræða frumvarpið um launa-j
lögin. Allmargar tíllögur j
hafa eim verið bornar framí
tíl brejiingar, bæði tíl lag- ‘
færingar hvað snertí lág-j
tekjumenn og um að minnkaj
kauphækkun hátekjumamui.
í umræðunum fluttí Sig-j
urður Guðnason ágæta ræðuj
og gerði grein fyrir sjónar-j
miði sínu og stefnu verka-
manna.
Verður nánar sagt frá;
umræðunum og atkvæða-1
gretðslu á morgun.
Óveður á höfum
Mikið óveður hefur geisað
undanfarna sólarhringa á norð-
urhöfum, á norðanverðu Atlanz-
hafi, Norðursjó og Eystrasalti
eru og nokkur skip verið í sjávar-
háska. Norskt skip strandaði 1
gær við Svíþjóð, og sovézkur
togari norðan Þórshafnar í
Færeyjum. Áhöfnunum var
bjargað.
Nasser hótar hörðu ef árásum
ísraelsmamia linnir ekki
Eg-yptar munu beita öllum hernaöarmætti sínum gegn
ísraelsmönnum ef árásum þeirra. á sýrlenzkar og egypzk-
ar landamærahersveitir linnir ekki.
Nasser, forsætisráðherra Eg-
yptalands, lýsti þessu yfir í
gær i Kairó og hafði áður látið
sendiherra. Bretlands og Banda-
ríkjanna vita af Jþessari
ákvörðun. Tilefnið er árás ísra-
elsmanna á Sýrlendinga aðfara-
nótt mánudagsins. Stjórn Sýr-
lands hefur kært árásina fyrir
Öryggisráðinu og verður kær-
útgjöld. Meirihlutinn, íhaldið, an tekin fyrir á fundi ráðsins
í dag. Brezka stjórnin hefur til-
kynnt stjórn ísraels að full-
trúi hennar muni greiða atkv,
með því að Öryggisráðið taki
kæruna á dagskrá.
Forseti ísraels sagði í gær að
Vesturveldin gerðu sér ekki
fyllilega grein fyrir því hve
hættulegt ástandið væri fyrir
botni Miðjarðarhafsins.
BE
Ríkisstiórnin
guggnar
Ríkisstj. hefur nú guggn-J
að á því að berja fram hiði
sérstaka frumvarp sem húnj
bar fram um hækkun ráð-i
herralauna í 65 þúsund kr. j
grunnlaun. Er nú lagt til aði
launin verði í hinum ai- í
mennu launalögum.
Þessi viðbrögð stjórnar- i
innar sýna að hún hefurj
orðið þess vör að almenn- i
ingur fordæmir hinar gífur-j
legu hækkanir tíl hátekju-2
manna. Hún er orðin hrædd.j
Próf. Ólafur Lár-
usson heiðurs-
dokior við
Helsinkiháskóla
Ölafur Lárusson prófessor
hefur verið kjörinn heiöurs-
doktor í lögum við háskólann í
Helsinki. Var doktorskjörinu
lýst við hátíðlega atliöfn í Hcls-
inki í fyrradag og veitt.i Erik
Juuranto, aðalræðismaður ís-
lands þar í borg, doktorsbréfinu
viðtöiku fyrir hönd Ólafs, sem
ekki gat þegið boð háskólans
um að vera viðstaddur athöfn-
ina. — Þetta er í fyrsta skipti
sem íslenzkur maður er sæmdur
doktorsnafnbót við finnskan
háskóla.
Aldrei meiri hætta en nix al
hernaðarmætti Sovétríkianna"
Ályktar A-bar>dalagsrá8ið sem ákveSur
að .samrœma' ratsjárkerfi aSildarrikjanna
„Hættan sem aðildarríkjum Atlanzbandalagsins stafar
af hernaöarmætti Sovétríkjanna, er meiri nú en nokkru
sinni áöur.“
Þannig er komizt að orði í á-
lyktun sem samþykkt var í gær
á fundi ráðherranefndar Atlanz-1
bandalagsins í París. Ályktunin
var lögð fyrir nefndina af hern-,
aðarráði bandalagsins.
í ályktuninni segir, að ekkert i
bendi til aö Sovétríkin hafij
dregið úr vígbúnaði sínurn. Þó!
er viðurkennt a.ð Sovétríkm. hafi \
fækkað í her sínum um 640.000 j
manns, en sagt, að sú fækkun!
hafi ekki haft i för með sér
að dregið hafi að ráði úr her- j
styrk beirra, þa r'scrn betri vopn
og búnaður hersins hafi meira
en vegið upp á móti henni.
Sérstök áherzla er lögð á að
floti og flugher Sovétríkjanna
hafi stórum eflzt og segir að
flugherinn ráði nú yfir sprengju
flugvélum sem geti flogið til
fjarlægustu staða í ríkjum
bandalagsins og heim aftur, án
millilendingar.
Hernaðarráð bandalagsins, þ.
e. hinir bandarísku liershöfð-
ingjar sem því stjórna, kvartar
yfir því að mikið skorti á að
fullkomin samvinna sé með her-
stjórnum hinna einstöku aðild-
arríkja, einkum um loftvarnir,
og einnig milli flugherstjórna
bandalagsins. Þær eru fjórar,
ein í Osló fyrir norðursvæði
bandalagsins, önmir í Fontaine-
bleu í Frakklandi fyrir miðsvæð-
ið, þriðja í Napólí fyrir suður-
svæðið, og sú fjórða í Bretlandi.
Verður reynt að bæta. samvinnu
milli þessara fjögurra svæða-
stjórna.
,, Sam ræming“ rat sjá rkerfa
Hernaðarráðið kvartar enn-
fremur yfir því að viðvörun-
arkerfi bandalagsins vegna loft«
árása sé ófullkomið og leggur
til að ratsjárstöðvum í ríkjum
bandalagsins verði stórum fjölg'
að og starfsemi þeirra sam-
ræmd.
Þetía kemur heim við þá yf-
irlýsingu yíirmanns bandaríska
hersins á íslandi, White hers-
höfðingja, í riðtali við blaða-
meim á Keflavíkurflugvelli fyr-
ir nokkru, að í ráði væri að
byggja margar nýjar ratsjár-
stöðxar hér á landi, þannig að
þær nœðu umhverfis allt land-
ið.
Eins og áður segir, var á-
lyktun herráðsins samþykkt af
ráðberranefnd bandalagsins og
er þsss ekki getið að fulltrúar
Islands, þeirra á meðal er dr.
Kristinn Guðmundsson utanrík-
isráðherra, hafi vakið máls á
að Islendingar væru mótfallnir
byggingu fleiri bandan’skra
ratsjárstöðva.