Þjóðviljinn - 16.12.1955, Blaðsíða 12
20. þmg Sveinasambaitds byggingaimanna
Lýsir eindregnum stuðningi við viðleitni
Á.S.Í. til myndunar vinstri ríkisstjómar
Niðrr-vidi meinsemd að starfa fyrir erlent setulið
20. þing Sveinasambands byggingamanna samþykkti
einróma tillögu þar sem lýst er eindregnum stuöningi við
viðleitni Alþýöusambands íslands til að mynda vinstri
stjórn í landinu, sem tryggi að íslendingar hafi alltaf nóg
að starfa við uppbyggingu íslenzkra atvinnuvega og skeri
burt þá niðrandi meinsemd að þvinga menn til starfa fyr-
ir erlent setuliö.
20. þing Sveinasambands
byggingamanna stendur nú yfir
og hafa þar verið rædd hin
ýmsu hagsmunamál samtakanna.
Meðal þeirra mál sem þingið
hefur afgreitt er eftirfarndi:
. 20. þing Sveinasambands
byggingamanna, 1955, lýsir yfir
eindregnum stuðningi við við-
.leitni stjómar Alþýðusambands
íslands til myndunar vinstri
stjórnar i landinu, enda þegar
vitað að værkalýður og milli-
stéttir um land allt myndu
fagna heiðarlegri ríkisstjóm,
sem virti og efldi hið skapandi
starf verkmannsins til sjávar og
sveita. Alþýðan mun fagna
hverri þeirri ríkisstjóm, sem
vinnur af alefli að þvi að íslend-
ingar hafi ávallt nóg að starfa
við uppbyggingu íslenzkra at-
Frá Lúcíu-hátíð Norræna félag-s-
ins, sem haldin var í Leikhúskjall-
aranum sl. þriðjudagskvöld.
Ætto
dagar eftir par til
dregið verður
1 dag er almennur skiladagur.
Tekiö er á móti skilum fyrir selda
happdrættismiða í skrifstofu Sósá-
alistafélags Keykjavíkur, Tjarnar-
götu 20, sími 7511; og afgreiðslu
l'.jóðviljans, Skólavörðustíg 19, sími
7500. Opið verður frá kl. 10-Í2 f.h.,
1-7 og 8:80-10 e.h. í Tjarnargötu 20,
en á venjulegum afgreiðslutíma í
afgreiðslu Þjóðviljans.
Takmarkið er að allar deildir s.kili
í dag. — Spurningin er hvaða
deild verður efst á blaði á morg-
un. — Röð deildanna er nú þessi:
vinnuvega og skeri í burtu þá
niðrandi meinsemd að þvinga
menn til starfa fyrir erlent setu-
lið.
Ennfremur beinir þingið þeim
tilmælum til félaganna innan
Sveinasambandsins, að þau taki
afstöðu til þessa máls á næsta
fundi hvers félags.
Húsnæðismál
20. þing Sveinasambands
byggingamanna mótmælir harð-
iega þeim árásum, sem gerðar
hafa verið á byggingariðnaðar-
menn að undanfömu og þó sér-
sfaklega í síðasta allsherjar-
verkfalli, af hálfu þeirra aðila
sem ábyrgð bera á því ófremd-
arástandi, sem nú ríkir í hús-
næðismálum þjóðarinnar og þá
fyrst og fremst hér í Reykjavík,
en eins og kunnugt er hafa þess-
ar árásir verið byggðar á þvi,
að kaupkröfur sveinafélaga i
byggingariðnaði eyðilegðu mögu-
leika fátækra einstaklinga til
þess að koma sér upp þaki yfir
Upp skal faldÍBii
draga
Ljóð eftir fóhann
J E. Kúld
Upp skal faldinn Araga heit-
ir ný ljóðabók eftir Jóhann J.
E. Kúld. Er það sjötta bók Jó-
hanns.
1 Hlíðadei:d . . 71,8 %
2 Þingholtsdeild .. 67 —
3 Skerjafjarðardeild . . . . 66,2 —
4 Sunnuhvolsdeild .... . . 63,4 —
5 Boiladeild . . 63,2 —
5 Laugarnesdeild . . 63,2 —
6 Skuggahverfisdeild . . . 62,5 —
7 Njarðardeild . . 62,3 —
7 K'eppsholtsdeiJd .... . . 62 3 —
7 Múladeild . . 62,3 —
8 Túnadeild . . 62,1 —
9 Hjafnardeild .. 62 —
10 Vesturdcild . . 61,2 —
10 Háteigsdeild —
11 Meiadeild . . 611 —
12 Via'ladeild . . 60,8 —
12 Langholtsdeild ..60 8 —
13 Nesdei'd .. 60,3 —
14 Skóiadeild .. 60 —
14 Barónsdeild .. 60 —
14 Vogadeild . . 60 —
14 Sogadeild .. 60 —
14 Bústaðadeitd .. 60 —
í bókinni eru nær sextíu ijóð.
Jóhann velur sér einkum yrk-
isefni í lífi og baráttu alþýð-
unnar, kveður um dagleg störf
hennar og vandamál, þjóð-
félagsmál. Nokkur kvæðaheiti
nægja: Róður; Á Halamiðum;
Barningur; Dorgað á miðum; í
skipalest; Arnarfjarðarsölvi;
Eyjólfur Eyjajarl; Á afmæli
verkamanns; FJakkarinn; Saga
okrarans; Verkfall; Á miðin;
Síldin. En Jóhann horfir held-
Framhald á 3. síðu.
höfuðið. I því sambandi þykir
þinginu rétt að taka fram eftir-
farandi:
Það er ekki forsvaranlegt,
heldur fullkomið ábyrgðarieysi
af hálfu hins opinbera að ætlast
til þess að einstaklingar með
venjulegar tekjur byggi sér hús,
sem eiga að geta staðið í marga
Frh á 10 síðn
Búlganín kominn
til Afganistans
Þeir Búlganín og Krústjoff
komu í gær til Kabúl, höfuð-
borgar Afganistans, en þar
munu þeir dveljast í tvo daga.
Komu þeir degi seinna þangað
en ætlað var, vegna slæms veð-
urs gat flugvél þeirra ekki lent
í Kabúl í fyrradag og lenti í
staðinn í Stalinabad í sovézka
lýðveldinu Tasjikistan.
En hvað þa<1
var skrýtið
Komin er út ofurlítil bók,
sem yngstu börnin munu hafa
gaman af: hið kunna kvæði
Páls J. Árdals: En hvað það var
skrýtið, með myndum eftir
Halldór Pétursson. Bókaútgáf-
an Gimbill gefur bókina. út,
en „Litbrá offsetprentaði.“
,,Nú ætla ég að segja sögu
þér“ — þannig hefst kvæðið;
og þar er lítil telpa á 1. blað-
síðu að nudda stírur úr aug-
unum, en önnur er komin hálfa
leið í kjólinn sinn. Svo kemur
nú amma gamla til sögunnar,
sólin á himninum, fleiri krakk-
ar, allt eftir efni kvæðisins —
haninn, hundurinn, kötturinn,
lambið, spóinn. Það er allt sam-
an mjög skrýtið og skemmti-
legt, og gaman fyrir yngstu
börnin að fá bók sem sérstak-
lega er ætluð þeim.
Frá steinaldar-
mönnum í Garpa-
gerði
Út er komin barnabók eft-
ir Loft Guðmundsson og nefn-
ist Frá steinaldannönnum í
Garpagerði. Hefur Loftur flutt
sögu þessa sem framhaldssögu
í útvarpið í haust, en hún seg-
ir frá tveimur drengjum úr
Reykjavík er liggja úti i tjaldi
uppi í sveit að sumariagi og
lenda í ýmsum ævintýrum. Loft-
ur hefur áður skrifað nokkrar
barnabækur sem hiotið hafa vin-
sældir.
Þessi nýja barnabók er skreytt.
teikningum eftir Halldór Pét-
ursson, hún er 222 síður, prent-
uð i Féiagsprentsmiöjunni og
gefin út af Bókaverziun Sig-
íúsar Eymundssonar.
Föstudagur 16. desember 1955 — 20. árgangur — 286. tölúblað
Ríkisstarfsmenn fái
samnings- og verkf aílsrétt i
Einar Olgeirsson flutti í gær eftirfarandi breyt-
ingartillögu við' launalagafrumvarpió'. í lögin verði
sett svofellt ákvæöi:
„Ríkisstjórninni er heiviilt að undirrita launa-
samning við Bandálag starfsmanna ríkis og bœja
um laun samkvæmt lögum pessum og komi samn-
ingur sá til framkvæmda frá og með 1. janúar
1956 og gildi í eitt ár, en framlengist óbreyttur
í eitt ár í senn, sé honurn ekki sagt upp með mán-
aðarfyrirvara.
Jafnframt öðlist Bandalag starfsmanna ríkis og
bæja svo og einstök félög innan pess rétt til vinnu-
stöðvunar samkvæmt lögum nr. 80/1938 um stétt-
arfélög og vinnudeilur.“
Sagöi Einar aö í frmnvarpinu eins og líklegt
væri aö þaö yrði bariö fram af stjórnarliöinu fæl-
ist óréttlæti gagnvart ýmsum lágt launuöum
starfshópum. Frumvarpið markaöist af því aö há-
tekjumennimir hefðu haft aöstööu til aö ota sín-
um tota. Nú væri kominn tími til aö Alþingi gæfi
opinberum starfsmönnum fullan rétt til samninga
mn sín kjör. Meginhluti þeirra á samstööu með
öörum launastéttmn og þeim ber réttur og skylda
til aö taka fullan þátt í baráttunni fyrir hinum
sameiginlegu hagsmunum. Það er höfuönauðsyn
aö veita þessum starfsmömium fullan rétt til
vinnustöövana og samninga.
Iá
Kýpur í gærdag
100 skólapiltar og stúlkur og 15 kennarai
þeirra handtekin í Famagusta
Róstusamt var á Kýpur í gær og uröu víð'a blóðug á-
tök milli Kýpurbúa og brezkra hermanna og lögreglu.
Brezkir hermenn hleyptu
upp fundi sem haldinn var í
Famagusta til að mótmæla
banni landstjórans við starf-
semi verkalýðsflokksins og
handtöku leiðtoga. hans. Beittu
þeir táragasi og kyifum. Um
100 skólapiltar og stúlkur og
15 kennarar þeirra sem. tóku
þátt í fundinum voru hand-
tekin.
I Nicosia var ráðizt á brezk-
an lierbíl og féll einn árásar-
mannanna í viðureigninni en
Annast raflýsingu
í kirkjugarðinum
Undanfarin ár hefur það tíðk-
azt mjög að fólk lrefur lýst
upp leiði ástvina sinna í Kirkju-
garðinum um hátíðarnar og not-
að til þess rafgeyma sem bæði
hafa verið dýrir og reynzt mis-
jafnlega vel. Nú hefur raftækja-
vinnustofa Jóns Guðjónssonar í
Kópavogi (sími 82871) tekið upp
það nýmæli að ’eggja rafkerfi
um hluta af garðinum og mun
taka að sér að annast lýsingu
íyrir fólk fyrir mun vægara
gjaid en unnt hefur verið að
undanförnu.
tveir voru handteknir, og brezk-
ur hermaður særðist til ólífis.
Siðar kom í ljós að sá sem
Bretarnir felldu var ungur
prentari, frændi Makarios bisk-
ups, sem Bretar segja að hafi
verið einn helzti leiðtogi skæru-
liða á Kýpur. Höfðu þeir heitið
250.000 kr. hverjum þeim sem
færði þeim hann, lifandi eða
dauðan.
Árás var gerð á sprengiéfna-
geymslu við námu eina nálægt
Nicosia, árásin misheppnaðist,
en eftir hana gerðu Bretar leit
að árásarmönnum í nálæg-
um þorpum og handtóku fimm
menn.
Kekkonen fagnar
samþykkt SÞ
Kekkonen, forsætisráðherra
Finnlands, lýsti í gær fögn-
uði sínum og þjóðar sinnar yf-
ir því að Finnlandi hefur nú
verið veitt innganga í SÞ, 8
ántm eftir að það sendi sam-
tökunum inntökubeiðni. Þetta
væri síðasti hlekkurinn í keðju
gleðilegra ávinninga finnskrar
utanríkisstefnu á síðustu mán-
uðum.
ASmennur skiladagur er í dag. Skilastaðir
Skólavörðustígur 19 og Tjarnargata 20.