Þjóðviljinn - 24.12.1955, Qupperneq 8
8) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 24. desember 1955
Noregur kommn með annan
fótinn úfúr A-bandalaginu
w------------------------
IMÖOVIUINN
títgefandi:
Sameiningarflokkur alþýðu
— Sósíalistaflokkurinn —
k—----------------------/
Tákn jólanna
/ kvöld hljóðnar hinn
langstœði glaumur um sinn
og hefst sú stund sem við
íslendingar höfum einkum
helgað börnunum, sú hátíð
sem við viljum gefa þeim.
Tákn jólahátíðarinnar er í
hugum okkar barn með
kerti í hendi og Ijóma í aug-
um, hamingjusamt, vel bú-
ið,' í góðu húsi, vafið um-
hyggju og kærleik; — getur
fegri sýn? Hljóðlát gleði
barns verður vítt um ísland
sönn umbun fullorðnum eft-
ir mikla önn við undirbún-
ing jólanna. Sú gleði er
nokkurt endurgjald hins
hávaðasama fyrirgangs sem
haldið er uppi margar vikur
fyrir jól. Þegar markaðsbar-
áttu sölumanna lýkur, koma
þó gleðileg jól.
Gleöileg jól — eru þá öll
börn með Ijóma í augum,
búa þau öll í góðu húsi, eiga
þau öll þeirri umhyggju að
fagna sem góður hagur
vandamanna einn má veita?
Er hið fagra tákn jólahátíð-
arinnar ekki einhverstaðar
nafnið tómt? Menn vilja
gjarnan leggja sig fram um
góðleik á jólunum; þess-
vegna ,eru þau einnig vel til
þess fallin að minnzt sé
þeirra sem bera skarðan hlut
frá borði á þessu landi. Huga
manns verður reikað í kjall-
araibúðir höfu&borgarinnar,
þar sem ekki er hœgt að
vera hamingjusamur fyrir
kulda sakir; hann leggur
leið sína í braagana, sem
eru ekki hið góða húsuxzði
sem um var rœtt í upnhafi;
hann gistir ótal heimili, þar
sem þröngvr liagur, jafnvel
sár fátœkt, marka um-
hyggjunni þröngan bás.
Helgislepjan er hið opinbera
og löghelgaða vörumerki
jólahátíðarinnar; en er jól-
unum nokkurt viðhorf verð-
ugra en samlíðan með lítil-
magnanum, samlíðan sem
örvar til baráttu fyrir betra
lífi hvern virkan dag sem
við lifum?
Hugurinn fer ennþá víðar.
Óvíða í svonefndum kristn-
um heimi er tákn jólanna
jafnsannverulegt og á fs-
landi. þrátt fyrir allt. Nær
öll. börn á íslandi eiga þó
eitthvert heimili, þó fátœkt
kunni að vera; en úti í lönd-
unum eiga þúsundir ekkert
athvarf nema þjóðveginn —
foreldrar þeirra eru dán-
ir. vandamenn tvndir. Það
eiga þau upp á þá styrjöld
sem villimenn háðu um vöid
oo nrmrkaði, sumir „í nafni
drottins vors JesúKrists“.
Þá fyrst verða jól gleðileg í
raun og sannleika begar sið-
ferði samfélagsháttanna er
þar komið að ekki einunais
verði stvrjaldir óhugsavdi,
heldur einnig vont húsnæði
oa sú óhamingja sem af fá-
tækt stafar. Það er draum-
urmn um skuggalausan
ljórrta í bornsauqum.
GLEÐILEG JÓL.
r^ERÐALAG Einars Gerhard-
A sens, forsætisráðherra Nor-
egs, til Moskva í vetur olli sem
vonlegt var miklum blaðaskrif-
um ó Norðurlöndum og reynd-
ar víðar. Menn fylgdust af mik-
illi athygli með því sem norska
forsætisráðherranum og for-
ustumönnum Sovétríkjanna fór
á milli. Gerhardsen er fyrsti
forsætisráðherra frá ríkjum
þeim sem stofnuðu A-banda-
lagið sem heimsótt hefur
Moskva. Þar að auki er Nor-
egur eina A-bandalagsríkið í
Vestur-Evrópu sem liggur að
Sovétríkjunum. Ekki má heldur
gleyma því að það var fyrir
frumkvæði norskra stjórnmála-
manna að A-bandalagið náði til
Norðurlanda. Viðræður stjómar
Danmerkur, Noregs og Svíþjóð-
ar um stofnun hlutleysisbanda-
lags Norðurlanda strönduðu á
Halvard Lange, þá og nú utan-
rikisráðherra Noregs í A-banda-
lagið. Hedtdft Hansen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, fór síðan
að dæmi flokksbræðra sinna í
Noregi, enda þótt hann hefði
heldur kosið að af stofnun Norð-
urlandabandalags yrði.
AÐ SEM mesta athygli vakti
á heimsókn Gerhardsens til
Moskva var yfirlýsing hans um
að Norðmenn myndu ekki leyfa
erlenda hersetu í landi sínu
nema á það væri ráðizt. Sænska
blaðið Afton-Tidningen, mál-
gagn sænska Alþýðusambands-
ins og annað aðalblað sósíal-
Einar Gerhardsen
— ræddi við Búlganín.
demókrata, gerði þessa heit-
strengingu Gerhardsens frammi
fyrir Búlganín að umtalsefni í
ritstjórnargrein. Ritstjórinn
taldi engan vafa á því lengur
eftir ummæli Gerhardsens í
Moskva, að norska sósíaldemó-
kratastjórnin væri að fjarlægj-
ast A-bandalagið smátt og smátt.
Hann benti á að samkvæmt sátt-
mála A-bandalagsins eru banda-
ríkin skuldbundin til að koma
til aðstoðar ef eitthvert annað
úr þeirra hópi lendir í styrjöld.
Ómögulegt er að skilja orð Ger-
hardsens öðru vísi, segir Afton-
Tidningen, en að norska ríkis-
stjórnin hafði ákveðið að Nor-
egur skuli því aðeins taka þátt í
styrjöld að árás hafi verið gerð
á landið. „Ef svo er hefur utan-
ríkisstefnu Rússa orðið mikið
ágengt, því að það þýðir að Nor-
egur er kominn með annan fót-
inn útúr A-bandalaginu“, segir
hið sænska blað að lokum.
CJÍÐASTLIÐINN þi'iðjudag
^ flutti blaðið Verdens Gang
í Osló frétt, sem styrkir mjög þá
skoðun að afstaðan til A-banda-
lagsins sé á ný orðið deiluefni
í innsta hring norska Verka-
mannaflokksins. Eins og kunn-
ugt er lá við að flokkurinn
klofnaði þegar inngangan í
bandalagið var a döfinni og þó
nokkrir af þingmönnum hans
greiddu atkvæði gegn ríkis-
stjórn síns eigin flokks þegar til
atkvæðagreiðslu kom í Stór-
þinginu. Um nokkurt skeið hafa
blöð í Osló skýrt frá því, að
djúpstæður ágreiningur sé inn-
an ríkisstjómarinnar. Verdens
Gang hefur orðið fyrst til að
flytja nákvæmar fregnir af
deiluefninu og gangi málsins.
Frásögn þess hefur ekki verið
mótmælt í málgagni rkisstjórn-
arinnar enn sem komið er.
TfcULIN stjórnarkreppa hefur
** í raun og veru ríkt í Noregi,
segir Verdens Gang. Hún hefur
nú verið leyst í bili, án þess að
til breytinga á ríkisstjórninni
hafi komið, en allt bendir að
dómi blaðsins til þess að aftur
sæki í sama horfið þegar frá
líður. Það sem veldur deilunum
innan ríkisstjórnarinnar eru út-
gjöldin til landvarna og þar með
afstaðan til A-bandalagsins.
Þegar uppkast að nýju fjárlaga-
frumvarpi var lagt fyrir ríkis-
stjórnina gerði Mons Lid fjár-
málaráðhelrra það að tillögu
sinni, að dregið skyldi verulega
úr ríkisútgjöldunum með því að
lækka fjárveitinguna til her-
mála svo um munaði. Meisdals-
hagen landbúnaðarráðherra,
sem lengi hefur barizt fyrir
lækkun á hernaðarútgjöldum,
fylgdi Lid að málum. Þá risu
upp þeir ráðherrar, sem taka
beinan þátt í fundum og ráð-
stefnum A-bandalagsins, og
mótmæltu skerðingu á hernað-
arútgjöldunum. Voru þar fremst-
ir í flokki Lange utanríkis-
ráðherra og Handal landvama-
ráðherra. Þeir lýstu yfir, að þeir
hefðu gefið A-bandalaginu og
öðrum stofnunum þess ákveðin
loforð um framlag Noregs til •
hermála. Ef »nú ætti að gera ■
■
þá ómerka orða sinna gætu þeir [
ekki setið lengur í ríkisstjórn- •
■
inni.
■
• - ■
■
■
■
■
T ENGI VEL lagði Gerhardsen ■
forsætisráðherra ekkert til [
málanha, en þegar sýnt var að ■
■
stjórnin myndi springa ef fjár- [
málaráðherrann hefði sitt mál j
fram kvað Gerhardsen upp úr ■
með að haxm teldi ekki tíma- *
bært að skera niður hernaðar-
útgjöldin sem stendur. Verdens
Gang segir að deilan innan rík-
isstjórnarinnar hafi verið svo
hörð að lengi muni eima eftir
af henni. Ljóst sé að nýjum
ágreiningsefnum geti skotið upp
á hverri stundu. Það er altalað
meðal Verkamannaflokksþing-
manna, segir blaðið, að Ger-
hardsen muni bráðlega skipta
um menn í ýmsum ráðherraem-
bættum. Nokkrum ráðherrum
verður gefin lausn í náð, og ný-
ir menn látnir taka við störfum
þeirra, aðrir ráðherrar verða
látnir skipta um störf.
yFIRLÝSING Gerhardsens í
Moskva og deilan innan
norsku ríkisstjórnarinnar eru
aðeins tvö af mörgum merkjum
þess, að víða í A-bandalagsríkj-
unum eru valdamenn teknir að
endurskoða afstöðu sína til
hernaðarbandalagsins. Þegar
það var stofnað hafði tekizt að
telja fjölda manna trú um
að sovétstjórnin biði eftir tæki-
færi til að láta her sinn leggja
undir sig Vestur-Evrópu. Ekkert
nema samstaða undir forustu
Bandarikjanna gæti forðað
slíku. Nú hafa A-bandalagsríkin
rembzt við í sex ár eins og rjúp-
an við staurinn að hervæðast. Á
síðasta fundi A-bandalagsráðs-
ins koma svo hershöfðingjar
bandalagsins og lýsa yfir að öll
þessi hervæðing hafi verið unn-
in fyrir gýg, hernaðaryfirburðir
Sovétríkjanna yfir A-bandalag-
ið séu meiri en nokkru sinni
fyrr. Jafnframt leggja hershöfð-
ingjarnir fram áætlun, þar sem
gerð er grein fyrir að A-banda-
lagsríkin þurfi að minnsta kosti
að tvöfalda hernaðarútgjöld sín
ef þau eigi að geta gert sér
von um að standast Sovétríkj-
unum snúning ef í odda skerst.
Þegar ráðherrarnir í A-banda-
lagsráðinu höfðu virt fyrir sér
tölurnar sem hershöfðingjarnir
lögðu fyrir þá hristu þeir höf-
uðin mæðulega og sögðu, að því
miður væri ekkert við þessu a'ð
gera, ef þeir ættu að hækka
hernaðarútgjöldin eins og hers-
höfðingjarnir vildu myndi þafí
kosta ríkisgjaldþrot. Hershöfð-
ingjarnir tóku þessum svörum
eins og sjálfsögðum hlut og
kváðust myndu reyna að basl-
ast áfram með svipuð fjárráð og
hingað til, þegar allt kæmi til
alls væri ekki víst að sovét-
stjórnin væri eins landvinninga-
sinnuð og sumir vildu halda.
Eftir önnur eins málalok er
ekki nema von að ýmsir telji
tímabært að endurskoða afstöðu
sína til A-bandalagsins.
M.T.O.
!■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■*■■■■■■■■■■■«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Nýju og gömlu
dansarnir
Á ANNAN í JÓLUM KL. 9
Jóladansleikur
Hljómsveit Carls Billich leikur.
Söngvarar:
Valgerður Bára og Skafti Ólafsson.
Aögöngumið'ar seldir frá kl. 5—6 og eftir kl. 8.
Sími 3355.
MIÐGARÐUR
Þórsgöttt 1
Lokað í dag klukkan 2 e.h.
Lokað allan jóladag
Opnað kl. 9 í. h. á annan í jólum
GLEÐILEG JÓL!
'•■■■••'■•••••■■■■••■••■■•■■••■■■■■■■■■■■■■■•■■•■•■■■■■••■■■•■■■■■■■■•■••■■■■••■■••■^■■•■■■B