Þjóðviljinn - 11.01.1956, Blaðsíða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 11. janúar 1956
Dætur hestasalansy Babro Larsson og Margareta Löwler, fá sér hressandi bað. Margir líta á baðmynd-
irnar sem eins konar vörumerki sænskra kvikmynda* en hinn kunni leikstjóri Ingmar Bergman segir
að bær eígi aS* sÝría'd'raum Norðurlandaþúans um bægilegt líf í landi hins eilífa sumars.
Frakkar um sænska tryggð
Franska kvikmyndatíma-
ritið Cinemonde birti
fyrir skömmu alllanga
grein um sænskar kvik-
Saga eftir Dosto-
jeiskí kvikmyiiduð
Aþessu ári, nánar til-
tekið 11. nóvember
n.k., eru liðin 75 ár síðan
hinn heimsfrægi rúss-
neski rithöfundur Fjodor
Mihailovitsj Dostojefskí
andaðist. Verður þess
minnzt á margan hátt í
Sovétríkjunum. Meðal
annars verður bráðlega
hafin kvikmyndun á einni
af skáldsögum hans, Fá-
vitanum, í myndatökusöl-
um Mosfilm.
myndir. I grein þessari
er meðal annars komizt
svo að orði að sænskir
kvikmyndagerðarmenn
hafi framar öllum öðrum
verið sjálfum sér trúir,
myndir 'þeirra endur-
spegli stöðugt bernskuár
sænsks kvikmyndaiðnað-
ar um 1920, þegar segja
megi að hann hafi verið
sá fremsti í heimi. Síð-
ast liðinn áratug hafi
myndir, sem gerðar hafa
verið í Svíþjóð, nær ein-
göngu snúizt um þrjú eða
fjögur efni — björgún
stúlkna af villigötum, al-
menn vandamál æsku-
lýðsins, meira og minna
umvöndunarsöm lýsing á
kynferðislífinu — en
Frakkarnir telja að Sví-
unum hafi þó jafnan tek-
izt að gera eitt snilldar-
verk árlega úr þessum
efniviði. Með grein þess-
ari fylgja allmargar
myndir og löng skrá yfir
nýjustu sænsku kvik-
myndirnar, sem fæstar
hafa enn verið sýndar
hér á landi.
Þama eru meðal ann-
ars myndir úr Sölku
Völku og einni eða tveim
öðrum kvikmyndum, sem
hér hafa verið sýndar.
Einnig er skýrt frá efni
nokkurra nýrra mynda.
Stúlka í í'iguingu er sögð
fjalla um stúlknaskóla,
þar sem telpurnar verða
ástfangnar af kennaran-
um (hann er ' leikinn af
Alf Kjellin). Dætur liesta-
salans segir frá tveim
Frönsk kvlkmyitd
tekin í jSovétrlkjun-
um í sumar?
Franski leikstjórinn Je-
an Dréville væntir
þess. að hann fái leyfi til
að taka nokkur atriði
nýjustu myndar sinnar í
Sovétríkjunum á næsta
sumri. Mynd þessi heit-
ir Herlúðrar við Beresina
og vill Dréville taka þau
atriði hennar, sem lýsa
.einni af frægustu orust-
um Napóleons í Rúss-
landi, í réttu umhverfi.
Aðalhetja myndarinnar
er hermaður, sem verður
viðskila við herdeildina
á leiðinni austur á bóginn
og lendir í ýmsu mis-
jöfnu áður en hann skilar
sér aftur.
Leit ekkl undir
borðið
Bandaríski leikstjórinn
A. Hitchcock á fyrir
nokkru að hafa tekið þátt
í veizlu í Róm og setið
við langborð beint á móti
þeirri frægu Soffíu Lor-
en Síðar, þegar hann var
að segja frá borðhaldinu
og lýsa m. a. fegurð leik-
konunnar, spurði einhver
viðstaddur:
— Hvemig var hún
klædd?
— Þú ættir að geta
skilið, svaraði Hitchcock,
að það hvarflaði aldrei að
mér að líta undir borðið.
ungum stúlkum, tilfinn-
jngum þeirra og um,-
hverfi. Loks má geta
myndarinnar Stúlkan
mín, sem leikarinn Arne
Ragneborn á að hafa sett
á svið.
Salt jarðar
Hér í Þjóðviljanum hef-
ur áður verið sagt
nokkuð frá efni kvik-
myndarinnar Salt jarðar
og hvernig hún varð til.
Verður sú frásögn ekki
endurtekin nú, væntan-
lega gefst síðar tækifæri
til að víkja nánar að
þessari einstæðu mynd,
ef hún verður einhvern-
tíma sýnd hér á landi. í
síðast liðnum mánuði var
slitið eintak myndarinnar
sýnt í Kaupmannahöfn,
ekki þó í einu hinna al-
mennu kvikmyndahúsa
heldur í fundarsölum.
Myndin er nefnilega ekki
allsstaðar sami aufúsu-
gesturinn og sumstaðar
hafa sýningar á henni
beinlínis verið bannaðar
eða gerðar óframkvæm-
anlegar, eins og til dæm-
is víða í Bandaríkjunum.
Myndin sem fylgir
þessum línum, er af
mexíkönsku leikkonunni
Rosaura Revueltas, en'
' X
hun leikur aðalkvenhlut-^
verkið í Salti jarðar. Hún -
var meðal gesta á kvik-|
myndahátíðinni í Karlovyl'
Vary í Tékkóslóvakíu ál
s.l. ári og var þessi mjmd
tekin þá.
Konu ofaukið
Innan skamms verður
byrjað á töku kvik-
myndar, sem byggð er á
leikritinu Konu ofaukið
eftir Knud Sönderby, en
leikrit þetta sýndi Þjóð-
leikhúsið fyrir nokkrum
árum. Myndin verður
gerð í Danmörku.
í GÆR mætti Bæjarpósturinn
þremur smástrákum á Hverf-
isgötunni, og þar eð einn
þeirra reyndist að vera hann
frændi hans, þá nam hann stað
ar og spjallaði dálítið við þá.
Strákarnir voru með lítinn
sleða, hlaðinn snjó og Póstur-
inn spurði heimskulega, hvert
þeir væru að fara með þennan
snjó. — Heim, sögðu strák-
arnir, og frændinn bætti því
við til frekari útskýringar, að
þeir væru að byggja snjóhús.
— Er ekki nógur snjór heima
hjá ykkur?, spurði Pósturinn.
Strákarnir töldu að það væri
jú nógur snjór heima hjá
þeim, en það var bara svo
vondur snjór, sem ómögulegt
var að byggja úr. — Hvert
sækið þið snjóinn?, spurði þá
Pósturinn. Þeir kváðust sælcja
hann í stóra skaflinn þarna
og bentu niður eftir Hverfis-
götunni. Svo fóru þeir að tví-
stíga óþolinmóðlega og nenntu
sýnilega ekki lengur að halda
uppi ómerkilegu hjali við for-
vitinn Bæjarpóst. Þó tókst
Póstinum að fá þær upplýs-
< ingar að þeir styngju upp
snjóhnausa með skóflunum
sínum, og þeir þyrftu að fá
gríðarlega marga hnausa, því
að húsið átti að vera talsvert
stórt. Og þeir voru ákaflega
• vinnuglaðir á svipinn og Póst-
urinn hafði ekki brjóst í sér
að tefja þá frekar, heldur
Snjóflutningar á sleða — Vinnuglaðir strákar —
Sleðaferðir á Arnarhóli — Ráðningar verða birtar
á næstunni
kvaddi þá með beztu óskum
um að húsbyggingin mætti
vel takast. en á eftir hló Póst-
urinn með sjálfum sér, að
þessu uppátæki strákanna, að
flytja snjó heim til sín á sleða.
Á ARNARHÓLNUM er daglega
fjöldi barna að renna sér á
sleðum, fjölum eða bara á
rassinum. Stundum, þegar ég
hef farið ,þar um, hefur mig
furðað á því, að krakkarnir
skuli ekki oft meiða hvert
annað iililega, þegar þau
renna sér á fleygiferð niður
hólmn og lenda á þeim sem
komin voru niður. Oft verða
líka harðir árekstrar í brekk-
unni, því að krakkarnir sjást
lítt fyrir, en renna sér bara
beint af augum. Stundum
renna börnin sér beint á ein-
hvern vegfarandann og fá þá
heldur betur skömm í hattinn.
Ekki finnst mér þó liægt að
amast við því, að þau leiki sér
þarna með sleðana sína; það
er lítið gaman að eiga sleða
og mega livergi renna sér á
honum. En börnin verða að
hlýða öllum umferðarreglum,
og ekki renna sér á vegfar-
endur né leikfélaga sína.
ÞAÐ HAFA margir verið að
spyrja Bæjarpóstinn hvenær
birtar verði ráðningar á
myndagátu og krossgátu
liappdrættisins. Það verður
sennilega gert um næstu
helgi, en ráðningar eru eim
að berast utan af landi, og
hefur þeim vafalaust semkað
eitthvað vegna erfiðra póst-
samgangna upp á siðkastið.
Auglýsið í Þjóðviljanum
Frá Sundhöllinni
Sund skólanemenda eru hafin í Sundhöll Reykjavíkur
og verða eins og undanfarna vetur 5 daga í viku,
mánudag til föstudags frá kl. 10 árd. til kl. 4 siðd.
Fullorðnir fá þó aðgang, en frá kl. 1—4 síðdegis geta
þeir aðeins komizt í bað.
Börn fá ekki aðgang frá kl. 9.30 árd. til kl. 4 siðd.
Sund íþróttafélaga verður sömu daga frá kl. 7—8.30
siðdegis, en fullorðnir geta þó komizt í bað þami tíma.
Sértímar kvenna verða tvö kvöld í viku, þriðjudaga og
fimmtudaga og hefjast kl. 8.30 síðdegis.
Sundhöll Reykjavíkur
Skrifstofur og afgreiðsla
okhar eru fluttar I
Garðastrœti 17
Kosaitgas
umboðið
umboðs- og
heildverzhm
3BBsscsssnssss=s5BESsss:5s=assssE.5aassss3sasiiS5áS5556BBsasssasaaaaaai