Þjóðviljinn - 18.01.1956, Síða 2

Þjóðviljinn - 18.01.1956, Síða 2
 SöUt • giú 2) —1 ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 18. janúar 1956 ★ ★ í dag er miðvikudagurinn 18. janúar. Prisca. — 18. dag- ur ársins. — Sólarupprás kl. 9:50. Sólarlag ld. 15:26. — Tungl í hásuðri kl. 16:34. — Árdegisháflæði kl. 8:18. Síð- degisháflæði kl. 20:37. ja S Fundur í kvöld kl. 8:30 á Kivl venjul. stað. — Stundvísi. ■ -á Kl. 8:00 Morgun- útvarp. 9:10 Veð- ^urfregnir. 12:00 Hádegisútvarp. — ! :50 Við vinn- una: tónleikar. 15:30 Miðdegis- útvarp. 16:30 Veðurfregnir. 18:00 Islenzkukennsla; I. fl. 18:25 Veðurfr. 18:30 Þýzku- kennsla; II. fl. 18:55 Fram- burðarkennsla í ensku. 19:10 Þingfréttir; tónleikar. 19:40 Auglýsingar. 20:00 Daglegt mál (Eiríkur Hreinn). 20.35 Þýtt og endursagt: Lækningaundrin' í Lourdes, írásögn bandarískr- ar blaðakonu; I. (Æ. Kvaran þýðir og flytur). 21:00 Tón- listarfræðsla útvarpsins: Björn Franzson talar um atriði úr sögu tónlistarinnar og skýrir með tóndæmum. 21:45 Hæsta- réttarmál (Hákon Guðmunds- son hæstaréttarritari). 22:10, Vökulestur (Broddi Jóhannes-! son),^ 22:25 Létt lög: a) Ray Martin, Norrie Paramor og hljómsveitir þeirra leika. b) Judy Garland ofl. syngja. 23:10 Dagskrárlok. Farsóttir í Reykjavík vikuna 1.-7. janúar: Kverkabólga ........ 24 ( 14) Kvefsótt ........... 80 (103) Iðrakvef ........... 10 ( 10) Kyeflungnabólga ... 3 ( 3) Hvotsótt ........... 1( 0) Mænusótt ........... 1 ( 0) Munnangur .......... 2 ( 2) Hlaupabóla ......... 6 ( 3) Hirði fjandmn alla lífsreynslu Ég segi: Hirði fjandinn lífs- reynslu allra gamalla skrögga! Eða hvenær hefur gamall mað- ur hugsað nokkuð eða sagt heiminum til viðreisnar? Hvað hafa gamlir menn yfirleitt unnið sér til frægðar í heim- inum nema misskilja oss æsku- menn og veita mótspyrnu því sem úngt er og gott? Ég neita því ekki að gamlir menn séu virðíngarverðir, en ég spyr: fyrir hvað ? Fyrir hrumleik sinn? Eða fyrir varúðarræður sinar, íhaldsemi, grútarhátt, kjarkleysi og sljóskyggni? Nei, ég skal ekki draga dul á^ fyrir hvað: þeir eru virðíngar- verðir fyrir það að þeir vóru einu sinni úngir menn eins og vér; fyrir það að einu sinni áttu þeir mátt og manntak; einu sinni börðust þeir atalt og djarft og trúðu á glæsilega sigra. Ilér er ellinnar land. Hund- gömul skoffín og uppgrónir nurlarar, sem aldrei tímdu að sjá af hundsfylli, eru kallaðir merkismenn, og kosnir á þíng. I íslenskum þíngsölum er haldin sýning á mönnum sem eru búnir að gleyma að hugsa. Hvarvetna setja gamalmennin svip á þjóðlíf vort, smásálir og úrþvætti, sem alla ævi hafa verið að bisa við að fórna sjálf- um sér á altari sjálfra sín, manneskjur sem ekki eiga annan helgidóm en eignir, eignarétt og eiginhagsmuni. Einginn hlýðir á æskulýðinn, menn hins helga elds; þeim er kend sú list að þegja, að bæla niður úngar guðlegar hvatir sínar til dáða Alltaf er verið að skattyrðast út af eignum og réttindum og daufheyrast við öllum nema þeim sem stagast á þvi. Og einmitt það hégóm- legasta og ómerkilegasta sem til er milli himins og jarðar, það eru eignir og réttindi. Ég segi: Hirði fjandinn alt gamalmennavit og alla lífs- reynslu, það kann að vera gott fyrir annað líf, það er einskisvirði fyrir þetta líf, líf vort, líf vaxtarins og íturleik- ans! Mætti sú stund koma að vér stæðum saman, hin únga þjóð, og spryttum fíngrum að fulltrúum ellinnar, eignanna og réttindanna: Kirk jugarð- arnir standa opnir, þar getic þér eignazt jörð, þar er föður land yðar og heimil öll rétt- indi! — gerið svo vel að stíga inn. Vér, hinir úngu, höfum lagt undir oss heiminn! (Halldór Kiljan Laxness: Heiman ég fór, siálfsmynd æskumanns). nni» Jú, Helena, vitaskuld vex barninu hár á kollinn. Þegar ég var lítill hafði ég held- ur ekkert hár. Bindindissýningi n í Listamannaskálanum er op- in daglega kl. 14-22. Kvikmynd á hverju kvöldi. Aðgangur ó- keypis. Friðrikssjéður Undirritaður hefur fallizt á að greiða kr..... í sjóð þann, sem stúdentaráð Háskóla ís- lands hefur stofnað til að styrkja Friðrik Ólafsson, skák- mann. .............. janúar 1956 Samúðarkort Slysavarnafélags íslands kaupa flestir. Fást hjá slysa- varnadeildum um land allt. f Reykjavík í Hannyrðaverzl- uninni í Bankastræti 6. Verzl- Gunnþórunnar Halldórsd. og í skrifstofu • félagsins, Grófin 1. Afgreidd í sima 4897. C,ien"isskráninga Saupgengl (Nafn og heimilisfang) Um þessar mundir fer frain fjársöfnun í Friðrikssjóð; geta menn klippt út þetta eyðu- blaðsform, útfyllt það eins og formið segir til um, og sent það síðan til einhvers af þrem- ur eftirtöldum mönnum: Ólafs Hauks Ólafssonar Hringbraut 41, Jóns Böðvarssonar Grjóta- götu 9, Axels Einarssonar Víði- mel 27. Það er síðan samnings- atriði hvermg hver og einn greiðir þá upphæð sem hann Næturvarzla er í Laugavegsapóteki, sími 1618. Næturlæknir LæKTm/élags Reykjavíkur er í læknavarðstofunni i Heilsu- verndarstöðinni við Barónsstíg, frá kl. 6 að kvöldi til kl. 8 að morgni, sími 5030. ... gry.y rm-' pSjSpV; JjJIT st.erlingspund ... 45.55 l bandarískur dollar . ... 16.26 Kanada-dollar ... 16.50 100 svissneskir frankar .. 373 30 100 gyllini ... 429.70 too danskar krónur ... ... 235.50' 100 sænskar krónur ... 100 norskar krónur too belgískir frankar ... 32.65 too tékkneskar krónur . ... 225.72 L00 vesturþýzk mörk ... ... 387.40 1000 franskir frankar ... ... 46.4S L000 lírur ... 26.04 mm Félagslíf Þjóðdansafélaff Reykjavíkur Æfingar í Skátaheimilinu í dag. Börn: Byrjendur, yngri, kl. 4,20 Framhaldsfl. yngri, kl. 5. Byrjendur eldri, kl. 5,40. Framhaldsfl. eldri, kl. 6,20. Unglingafl. kl. 7. Fullorðnir: Byrjendur í gömlum dönsunf kl. 8. Framhaldsfl. í gömlum döns- um kl. 9. Framhaldsfl. í þjóðdönsum kl. 10. Upplýsingar í sima 82409. Þjóðdansafélagið. Millilandaflug Hekla er vænt- anleg kl. 18.30 í dag frá Ham- borg, Kaupm.- höfn og Gaulaborg; flugvélin fer klukkan 20.00 til New York. — Guiifaxi er væntan- legur til Rvíkur kl. 16.30 í dag frá London og Glasgow. Innanlandsflug í dag er ráðgert að fljúga til Akureyrar, Isafjarðar, Sands og Vestmannaeyja. Á morgun er ráðgert að fljúga til Akur- eyrar, Egilsstða, Fáskrúðs- fjarðar, Kónaskers, Neskaup- staðar og Vestmannaeyja. uyáíͧf: GÁTAN Einn er kari, i eldi hann situr; oft hans svannar fylla kvið. Uppköst fær lmnn af því bitur, allt fer það um nefgreyið. Ráðning síð gátu: BÓK ; Minning' | í skrifsío I ins, Tjar ; Þjóðvilj' ; Bókabú' ! Skólavövó ! verzlun ar €US TöRðOfR eru til sölu! síalistaflokks- j 20; afgreiðslu j kabúð Kron; I " menningar. 1 t; og í Bcka- >r Bjarnascn-J 'arfirði. Esperantistafélagið Auroro heldur fund í Edduhúsinu Lindargötu 9A (uppi) í kvöld og hefst hann klukkan 8.30 Alþýðublaðið birt- ir á sunnudaginn stutta æviferiis- skýrslu þeirra sem skipa framboðslist- ana í sjómannafélagskosningun- um og setur „Nokkrir starfandi sjómenn“ imdir þennan sam- setning sinn. Ekki reynist höf- undur þó betur að sér en svo að formannsefni starfandi sjó- manna er tvisvar í greininni kallaður HÓLMGEIR Magnús- son. Myndi varla liópur sjó- manna reynast svo illa að sér að geta ekki birt nafn Hólmars Magnússonar rétt, svo þekktur sem hann er meðal stéttar- bræðra sinna. Sannar þetta að æviferilsskýrslan er samin í skrifstofu Alþýðublaðsins og sennilega af manni eða mönn- um sem aldrei liafa komið um borð í skip nema ef vera skyldi á skemmtiferðalagi. Það styður og að þessari grunsemd að þrátt fyrir ósoör hólsvrði um alla frambióðendur A-listans er Jón klofningur Sigurðsson sagður þeirra fremstur og mestur sjó- maður! en Jón hefur sem kunn- ugt er ekki komið á sjó á þriðja áratug! Eimskip iBrúarfoss fer frá Hamborg 25. þ.m. til Antwerpen, Hull og Reykjavíkur. Dettifoss fór frá Reykjavík í fyrrinótf til Vents- pils, Gdynia og Hamborgar. Fjallfoss fer frá Reykjavík kl. 8.00 árdegis í dag til Gufuness, Grundarfjarðar, Patreksfjarðar, Þingeyrar, Flateyrar, Isafjarð- ar, Skagastrandar, Sigluf jarðar, Húsavíkur og Akureyrar. Goða- foss fór frá Antwernen 13. þ.m. Væntanlegur til Reykjavíkur um hádegi í dag. Gullfoss fór frá Reykjavík kl. 24.00 í gær- kvöld til Leith og Kaupmanna- hafnar. L-agarfoss fór frá Reykjavík kl. 23.00 í gærkvöld til New York. Reykjafoss kom til Hamborgar 15. þ.m., fer það- an til Rotterdam og Reykja- víkur. Selfoss er í Reykjavík. Tröllafoss fór frá Norfolk í fyrradag til Reykjavíkur. Tungufoss fór frá Flékkefjord 14. þ.m. til Keflavíkur og Reykjavíkur. Skipadeild SÍS Hvassafell er á Akureyri, Arn- arfell er í Rvík. Jökulfell fór 16. þm frá Rotterdam til R- víkur. Dísarfell er á Akureyri. Litlafell er í Reykjavík. Helga- fell fer í dag frá Riga áleiðis til Akureyrar. Appian væntan- legur tif Rvíkur 24. þim frá Brasilíu. Havprins er í Rvík. Ríkisskip Hekla er væntanleg til Rvjkur árdegis í dag að vestan og norðan. Esja er á Austfjörð- um á suðurleið. Herðubreið er væntanleg til Rvíkur í dag frá Austfjörðum. Skjaldbreið fer frá Rvík á föstucfeginn vestur um land til Akureyrar. Þyrill er norðanlands. Skaftfellingur fór frá Rvík í gær til Vest- mannaeyja. Krossgáta nr. 763 Lárétt: 1 bjánar 6 skefur 8 eins 9 guð 10 kvennafn 11 öðl- ast 13 hvað! 14 samhaldssemi 17 erl. heiti Lóðiétt: 1 virðing 2 ending 3 ekki eins fast 4 fréttastofa 5 sjaldgæfur 6 kás 7 skipað í roð 12 hrópa 13 sjór 15 fyrir hádegi 16 samhljóðar Lausn á nr. 762 Lóðrétt: 2 skass 7 um 9 óræk 10 kól 12 ala 13 aáb 14 ilt 16 ans 18 sanm 20 úú 21 irrar Lóðrétt: 1 aukvisi 3 KÓ 4 Araba 5 r'æk 6 skarsúð 8 mó 11 latur 15 LAR 17 nú 19 MA ★ ** • ~ *•■■■■■■■■■ ■MWI

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.