Þjóðviljinn - 18.01.1956, Page 6

Þjóðviljinn - 18.01.1956, Page 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 18. janúar 1956 J " ' ' ' “i' • 1 . ‘ : n . r----------------------------- gllÓOVIUINN Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaílokkurinn — L__--------------------------' Hlekkur, sem þarf að treysta Væri allt með felldu ætti Sjó- mannafélag Reykjavíkur að vera ásamt Dagsbrún í fylk- ingarbrjósti íslenzkrar verka- lýðshreyfingar. Félagið er lang- fjölmennasta sjómannafélag landsins og starfssvið þess hið þýðingarmesta. Það hefur öll ytri skilyrði til að láta að sér íkveða í kjarasókn og hags- munabaráttu íslenzkrar verka- lýðsstéttar á svipaðan hátt og Dagsbrún og við hlið þessara framsæknu og þróttmiklu sam- taka landverkamanna. Svefn- söm forusta og afturhaldssöm verkalýðsmálastefna hefur hins vegar lamað samtök sjómanna hér í Reykjavík og forustan í kjarabaráttunni og varðstaðan um hagsmuni sjómannastéttar- innar færzt í hendur fámennari sjómannasamtaka úti á landi. Áhugi forustu sjómannafé- Lagsins beinist hins vegar að öðrum viðfangsefnum. Á síðasta Alþýðusambandsþingi reyndust þeir þægustu þjónar þeirra út- sendara atvinnurekenda sem reyndu til síðustu stundar að hindra einingu vinstri manna og koma í veg fyrir að heildar- eamtök alþýðunnar yrðu óháð auðstéttinni og ríkisvaldi henn- ar. Sundrungaröflin biðu ósig- ur vegna framsýni og samheldni einingarmanna úr hinum ólík- ustu flokkum. En þjónar aftur- haldsins £ Sjómannafélagi Reykjavíkur eru enn við sama heygarðshomið. Þeir hafa engu glejTTit og ekkert lært þrátt fyr- ir ófarimar á sambandsþinginu. Enn standa þeir í daglegu sam- bandi við höfuðstöðvar atvinnu- rekenda, og hafa i yfirstand- andi stjómarkjöri í félaginu skorað bréflega á félagsmenn að veita sér brautargengi, og fært þau rök fyrir, að slík traustsyfirlýsing sé öraggasta leiðin til að koma í veg fyrir vinsti’a samstarf, nýja stjórnar- stefnu og ríkisstjórn sem ynni a.ð hagsmunamálum verkalýðs og launastétta og hefði nána samvinnu við alþýðusamtökin. Með slíkum málflutningi liafa forustumenn sjómannafélagsins lýst því yfir að þeir séu ráðnir í að halda þjónustustarfinu við afturhaldið áfram. Sjómenn hafa hins vegar önnur áhuga- mál. Þeir vilja efla alþýðusam- tökin og auka mátt þeirra og vald. Sjómönnum er ljóst að meðan þeirra f jölmenna stéttar- félagi er haldið í viðjum sundr- ungar og afturhaldsþjónustu er það veikur hlekkur í keðju sam- taka alþýðunnar. Þess vegna stefna þeir nú markvisst að því í yfirstandandi stjómarkjöri að taka forustuna í eigin hendur til þess að sjá um að félagið gegni stéttarlegu hlutverki sínu með sæmd og skipi um leið verðugan sess í þeirri fylkingu alþýðusamtakanna sem vinnur að því að trj'ggja áhrif vinnandi stéttanna á þróun íslenzkra efnahagsmála. Þrátt fyrir ‘allt m unni Utrillo nióð- ur sinni mjög heitt. Hann dáði fegurð hennar og glæsileik og gáfur. Ekki fara sögur af því að honum hafi verið nein- ar aðrar konur sérlega kærar, það er ekki til nein af þess- um venjulegu rómantísku ást- arsögum um liann sem tíðkast að bródera inn í ævisögur manna svo að þær verði selj- anlegri almúganum. Hin róm- antísku tilefni innblásturs eru sótt í drykkjuskaparólán hans, það er svo tilkomumikið að listamenn drekki frá sér vitið í hæfilegum fjarska. Áður en Suzanne Valadon dó afhenti hún son sinn fram- takssamri konu sem hélt Ut- rillo í varðhaldi, þar var hann geymdur eins og lifandi lík. Tímunum saman lá hann á knjám í einkakapellu og bað til ýmissa guðlegra persóna, en málaði stöðugt fyrir mark- aðinn á hægri bakkanum. Og svona liðu árin. Þangað til þessum þreytta písl- arvotti lilotnaðist hinn varan- legi svefp, og hafði þá enzt dapurleg ævi í 72 ár. Allt í einu mundu menn að það var einu sinni maður sem lifði með því nafni endur fyrir löngu. Það var svo afar langt síðan. Og nú var farið að fiska upp gamía karla sem líklegt þótti að hefðu ein- hneykslaður. Sumir vora jafn- vel svo blygðunarlausir að níðast á hinum dána með þeirri góðlátlegu fyrirlitiningu sem orðaðist svo: mon pauvre ami Maurice, veslings vinur minn Mauriee. Til hvers er þá að drekka frá Thor yilhjálmsson: Vinur minn furstinn/ Hugleiðing um Maurice Utrillo V. II. grein hvem tíma mætt manninum á götu á Montmartre upp úr aldamótunum áður en lista- mennimir fluttu sig til Mont- pamasse. Eða hefðu haft tækifæri til að hneykslast á veitingastofu yfir illræmdri fyllibyttu sem var ekki fyrr komin innan um annað fólk en hann flýtti sér að drekka frá sér allan grun um að með honum bærðust vitsmunir. Og gömlu mennirnir sem nú voru leiddir til vitnis höfðu farið svo varlega í sakirnar að þeir héldu ennþá nægilegri rænu til að vera vitnispontufærir og nú komu þeir fjálgir með vota hvarmana og sögðu: mon ami Maurice, vinur minn Maurice. Nú var þessi vinfái drykkju- maður sem kunni ekki að tala nema með því að mála hús og þá helzt þegar hann var lokaður inni svo að hann gæti ekki truflað aðra með drykkjulátum, nú var hann allt í einu orðinn: vinur minn Maurice. Og undir þeirri fyr- irsögn voru pteljandi greinar skrifaðar. Mikil ósköp. Allir höfðu þekkt Utrillo allir hÖfðu verið vinir Utrillo, enginn sér vit og æra ef yfir moldum mannsins standa hinir farsælu skynleysingjar og ausa sjálf- umglaðri fyririitningu sem kallast meðaumkun yfir þann náinn sem aldrei rís franiar að storka neinum, þann sem þeir munu aldrei framar þurfa að flýja skandalíserandi í öl- æði. Aldrei. Aðrir munu verða rómantísk- ir og sækja í ólánssögu þesea einmana snillings dæmilygi til að réttlæta dáðleysi sitt og tómleika og segja yfir eitur- bikari í háværam félagsskap og glaðhlakkalegu samsukki: skál fyrir Utrillo, lemjandi saman drykkjarkeram og sú skál mun rétttlæta hvert það full sem flytur þá andvara- lausa og innantóma frá einni veizlu til annarrar. Djöful- móðslausir letingjar í upp- gerðarhlutverki þeirrar lista- mennsku hverrar vettvangur er kaffihúsið og knæpan munu sækja í ævi Utrillo sína lognu afsökun og meðan enginn eldur brennir þá nema kann- ski koníak í tóman maga eða brennivín £ magasár segja þeir skál fyrir Utrillo. Og þjóð- sagan lifir óháð þeim snilld- arverkum sem voru sköpuð þrátt fyrir eitrið en ekki vegna þess. Montmartre. 1 því • hverfi fæddist Ut- rillo og ólst upp og málaði sínar beztu myndir. Nafn þessarar hæðar hafa ýmsir misskilið og í landafræði sem mér var ætlað að læra í skóla minnir mig hún hafi verið kölluð Marðarhæð sem er al- rangt. öllu réttara er að hún sé kennd við píslarvotta sem þarna voru teknir af ein- hverju sinni á dögum frum- kristni og var hin kristilega tóra svo þaulsætin í líkama blessaðs sánkti Denis að hann gekk með höfuð sitt afsniðið i höndunum góðan spöl áður en hann féll niður og var örendur, svo var hann fróm- ur sá góði mann. Og hæðin tók nafn af því pislarvætti: Mont des Martyres. Impressionistamir leiddu þetta hverfi í tízku sem hafði ver- ið eins og lítið sérstætt þorp og það varð aðalaðsetur þeirra og listamannahverfi Parísar. Það hélzt nokkuð fram á þessa öld unz allskonar að- skotalýður var farinn að þrengja listamönnunum kosti og æ sótti meira í það horf að þarna yrði skemmtistöð fyrir ferðamenn og allskyns lausingjalýð sem átti lítið skylt við listir. Það varð of dýrt að vera þama og lista- mennirnir hrökkluðust smám saman burt yfir á aðra hæð á vinstri bakka Signu Mont- parnasse sem nú varð lista- mannahverfið. Og píslarvott- ur skemmtanalífsins varð hinn ítalski starfsbróðir Utrillo: Modigliani. En Utrillo hélt tryggð við Montmartre. Svo er sagt að hann hafi æfinlega saknað Montmartre. En hann fékk sjaldan leyfi til að koma þangað hin síðari ár og var ævinlega vandlega gætt þau fáu skipti sem svo bar undir. Margir miklir málarar bjuggu á Montmartre, einkum £ tíð impressionistanna. En enginn hefur ort svo ódauðlega um það hverfi sem Utrillo’ gerði i myndum sínum þaðan. Þær beztu rísa hátt í sögu franskr- ar málaralistar. Þar lifir ekki einungis hvert hús sérstæðu lífi heldur eru sprungur og skellur á göml- um húsveggjum gæddar svo raunverulegu og riku lifi að hrópar til okkar úr þessum myndum djúpum og fullum af þjáningu, sál. 1 Hið gamla torg þorþsins sem eitt sinn var þarna Pláce du Tertre er nú orðið samkomu- staður reisuflakkara áem eru leiddir þangað misjafnlega á- hugasamir og vakahdi og skilja kannski ekki allir hvað við er átt þegar umbjóðendur ferðaskrifstofanna flytja þeim hefðbundnar tölur um im- pressionista og Utrillo, þó flestir rumski ‘þegar bent er á gamalt hesthús og sagt: þarna málaði Picasso, og sjá þá kannski gjarnan eftir svo sem tvö glös af pernod vængj- að hrossastóð stíga upp af sköllóttum hvirflinum á Pi- casso. Gömlu húsin standa þar enn og á veggjum veitingahús- anna era letraðar aldagamlar dagsetningar og þar er andi iöngu liðinna tíma seldur á flöskum. Og þegar þessi hús hrynja þá munu þau standa áfram — í málverkum Maur- ice Utrillo V. I skugganum frá hinni hvítu kirkju Heilags Hjarta, Sacré Cæur, sem horfir yfir gráa húsabreiðu Parísar renná út í óendanleikann, þar á marg- ur eftir að minnast Utrillo sem fann meiri næringu sál sinni í svip gamalla húsa en fólkinu í kringum sig. Maurice Utrillo V. Q sem aldrei fékk málið, tignaði þá móður sem hirti lítt um hann barn en enga konu aðra, málaðí ódauð- legar myndir vitfirrtur af hrópinu um eitur til að tor- tíma sér þegar hann var læstur inni af þeim sem þótt- ust vera að bjarga honum en mútuðu honum stundmn með víni til að mála myndir, seldu myndirnar og urðu rik og fræg; var afhentur konu til eignar og varðveizlu af móð- Framhald á 11. slðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.