Þjóðviljinn - 25.01.1956, Side 10

Þjóðviljinn - 25.01.1956, Side 10
10) ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 25. janúar 1955 Nýjar álögur stjórnarinnar Framhald af 1. síðu. ar verði uppiskroppa af dilka- kjöti í vor af þessum ástæðum! Og svo kemur Eysteinn með sinn venjulega hlut. Hann mun œtla að hirða í ríkissjóð 60 milijónir króna umfram það sem ráð var fyrir gert í fjár- lagafrumvarpinu. Og ekki staf- ar þessi hækkun af neinni fjár- þörf ríkissjóðs, heldur vill Ey- steinn aðeins sýna sem mestan tekjuaí'gang! Með þessu móti verða hinar nýju álögur sem næst 180 milljónir króna. Milliliðirnir eiga að græða meira Allt þetta fé — hátt á annað hundrað milljónir króna — á að taka af almenningi með nýjum álögum sem bitna þyngst á launafólki. RDcisstjórnin hróflar ekki við ofsagróða milliliðanna og er þar þó af nógu að taka. Þannig skýrði Lúðvík Jósefsson irá því á fundi í Sósíalistafélagi Reykjavíkur fyrir skömmu, og hefur þvi ekki verið mótmælt. að olíuhringarnir selji olíu þá sem Ia.nd.snieuii nota á ári á 50 milljónum króna liærra verði en teldð er í Vesturþýzkalandi fyrir sama magn, þrátt fyrir alveg sam- bærilegan tilkostnað. Á sama tima og togaraolían kostaði hér 413 kr. á tonn var hún seld í Þýzkalandi á 347 kr.; munurinn var 66 kr. eða 20%. Á sama tíma og báta- olío og olía til húskyndingar var seld liér á 924 kr. tonnið kostaði hún í Þýzkalandi 548 kr.; munurinn var 376 kr. eða 70%. Samt er gróði olíu- félaganna af benzínsölimiii langtum meiri. Þau félög yrðu áreiðanlega ekki gjald- þrota þótt þau væru látin greiða allt l»að fé scm nú er talið þurfa -tii að koina flot- anum á veiðar. Og það eru fleiri aðilar sem græða, eins og oft hefur verið ' rakið hér i biaðinu. Bankarn- 1 ir hirða 50—60 milljónir króna á ári hverju, og vextimir sem þeir taka. af sjávarútveginum jafngilda livorki meira né minna en 10 aurum á hvert fiskkíló miðað við venjulegan geymslu- tíma á afurðunum. Og enn má minna á skipafélögin, váti-ygg- ingaifélögin, viðgerðarstöðvarn- ar — að ógleymdri sjálfri af- urðasölunni, sem er eitt ó- hemjulegasta f járplógsfyrirtæk- ið. En þessir aðilar eiga að sleppa, af þeim skal ekkert tek-1 ið — meira að segja munu þeir eflaust nota tækifærið til að ná til sín drjúgum hlut af fé því sem almenningi er gert að greiða ,,til styrktar útgerðinni“. Flett ofan af... Framhald af 3. síðu. Þessi málflutningur Ásgeirs Bjarnasonar og Steingríms Steinþórssonar sannaði að hér væri mál sem erfitt væri að styðja réttum rökum. Kjarni þessa máls sagði Ein- ar að væri sá, hvort ætti að af- henda einkaaðiljum ríkisstofn- arnir og veita þeim einkasölu- I . leyfi og einkaleyfi til innflutn- s Framhald af 3. síðu. Upptökiiheiinilið í Elliða- hvammi: í ársbyrjun voru 11 böm, á árinu komu 59 og í árslok voru 5 börn. Dvalardagar voru alls 1.852 og meðaltalsfjöldi á dag allf árið 5,1 börn. Vistheimilið í Gumiarsholti: I ársbyi-jun voru 9 vistmenn, á árinu komu 48 og í árslok voni 16. Dvalardagar voru alls 4.387 og meðaltalsfjöldi allt ár- ið 12,0. í framangreindum heildartöl- um ríkisspítalanna er Upptöku- heimilið og Vistheimilið ekki tal- ið með. 'Ur isw tmiJDl6€U0 simímxscwxamatt j Minningarkortin eru til sölu | í skrifslofu Sósíalistaflokks- ! ins, T.jarnargötu 20; afgreiðslu I Þjóðviljans; Bókabúð Kron; ; Bókabúð Máls og menningar, | Skólavörðustíg 21; og í Bóka- ! verzlun Þorvaldar Bjarnason- ar í Hafnarfirði. ings. Það væri með öllu óverj- andi. Hér væri ennþá ein til- raun á ferðinni til að ræna eignum úr höndum ríkisins og bera rétt hinna almennu þegna fyrir borð. Slíkt mætti ekki tak- ast. Krafizt frestiinai- Þá stóð upp Sigurður Guðna- son og óskaði eindregið eftir því að náð væri í landbúnaðar- ráðlierra svo að liægt væri að ræða við hann. Forseti up-lýsti að þess væri ekki kostur. Ösk- aði Sigurður þá eftir að um- ræðu yrði frestað og þegar aðr- ir þingmenn tóku undir það varð forseti að láta undan, þó treg- ur, og var á honum að skilja að hann teldi óvíst að Stein- grimur yrði við næsta dag. Er honum líklega kunnugt að ráð- herra sé óljúft að taka aftur þátt í umræðum um málið. Verður það væntanlega á dag- skrá í dag eða á morgun. Framhald af 12. síðu. í árlegum hoðskap forsetans um efnahagsmál, sem Eisen- hower sendi Bandaríkjaþingi í gær. Þar segir, að framleiðsla á síðasta ári í Bandaríkjunum hafi verið meiri en nokkru sinni fyrr, en ekki sé hægt að búast við óslitinni framleiðslu- aukningu. Spá ráðunautar for- setans um efnahagsmál að nokkurs samdráttar muni gæta í ýmsum greinum atvinnulífs- ins á árinu sem nú er að hefj- ast. Mikil áherzla er lögð á það í boðskap Eisenhowers, að á- framhald á velmegun í Bandaríkjunum velti að veru- legu leyti á því að útflutningur til annarra ríkja, bæði á vör- um og tfjármagni, sé &em mestur. jar um ÍÖÖJ ára mannabyggð Merkilegir fornleifafundir hafa átt sér stað á bökkum Syr-Darja í Tadsjikistan í Sovétríkjunum. Munirnir, sem fundizt thafa, bera þvi vott, að menn hafi lifað þarna fyrir 100.000 árum og jafnvel fyrr. Oddmjó steinverkfæri mjög haglega gerð, hafa fundizt.næf- urþunnar örvar, diskar, sköfur o.m.fl. Þessir fundir eru ein- hverjir þeit’ merldlegustu sinn- ar tegundar, sem átt hafa sér stað í Miðasíu. Paðreimsflokkur frá Moskva sýnir í Belgíu Hinn heimskunni paðreimur í Moskva er nú að senda flokk í sýningarför til Vestur-Evrópu. Mun flokkurinn hefja sýningar í Briissel 1. febrúar og standa þær til 4. marz. Heimsfrægð paðreimsins byggist á kvik- myndum þeim sem teknar haía verið í honum og sýndar um allan heim, m. a. hér á landi. ' ÚTBREIDIÐ rjt j * * ÞJÓDVILJANN * öKi jarnorkukmiiiin ísbrjótur eftir fimin ár Sovézkir kjamorkufræðingar vona að áður en firntn ár eru liðin verði fyrsti kjamorku- knúði ísbrjóturinn kominn á flot. Sovézki prófessorinn Sam- arin skýrði fréttamönnum í Oslo frá þessu í gær. Kvað hann menn í Sovétríkjunum binda miklar vonir við kjara- orkuknúða ísbrjóta. Samarín dvelur i Noregi í boði noi-skra vísindamanna ásamt tveim öðr- um sovézkum kjarnorkufræð- ingum. Grikkir setja Tyrkjum Ikostl Gríska ríkisstjórnin skýrði frá því í gær að hún hefði fallizt á að hefja á ný störf í Balkanbandalaginu með Tyrk- landi og Júgóslavíu ef ákveðn- um skilyrðum væri fullnægt. Bandalagið hefur legið í dvala síðan i haust, er ráðizt var á Grikki í tyrkneskum borgum. Skilyrði grísku stjómarinnar fyrir að endurlífga bandalagið er að tyrknesk stjómarvöld bæti grískum mönnum svo vel tjón þeirra að sambúð Grikklands og Tyrklands kom- ist í eðlilegt horf. Bandaríkin og Kína Framhald af 1. síðu. breyta um stefnu gagnvart Kína svo að dragi úr viðsjám í Aust- ur-Asíu. Einkum er brezku stjóminni umhugað um að Bandaríkjamenn knýi Sjang Kai- sék til að yfirgefa eyjamar Kvimoj og Matsú, sem eru uppi í iandsteinum meginlands Kína. Einnig ætlar Eden að sögn King að hvetja Eisenhower til að hætta að hindra það að alþýðu- stjómin taki við sæti Kína hjá SÞ. ÚT UM ÞÚFUR? í Genf í Sviss, þar sem sendi- herrar Kína og Bandaríkja- manna hafa ræðzt við tvisvar í viku síðan um mitt sumar, lýsti kínverski sendiherran Vang Pingnan yfir í gær, að Banda- ríkjastjóm bæri ábyrgðina ef viðræðurnar færu út um þúfur. Það væri orðið Ijóst að sendi- herramir gætu ekki komið meiru til leiðar að óbreyttri af- stöðu Bandaríkjastjómar til Tai- van. Ef halda ætti viðræðunum áfram yrðu utanríkisráðherrar að taka við. m uininyarApfol TÉKKNESKU ZETA ferða-ritvélamar hafa dálka-stilli og sjálfvirka spássíu- stillingu. 44 lyklar. Eru jafn sterkar og vanalegar skrif- stofuritvélar, en vega aðeins 6 kg. Einka-umboð MARS TRADING C0MPANY, Klapparstíg 20. Sími 7373. ti'tsala: BÖKfiBOÐ ( tROf) .•t»»«f*»«f«5*BB*»p*«sssaBFS*BBaaassssra5S5a3S5asBSSsaffaaap=ss55aH?aBa5sat5Bas5BaBaBSBSR3BBRss=isacs55i5aBS=s==asa-ass5Bss« KasasssasssaszsaasassBssssassassassaasaBassBssssssBBsaaaasassaassaaaasssaaaaaaP

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.