Þjóðviljinn - 31.01.1956, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 31.01.1956, Qupperneq 4
4) — ÞJÓÐVIUINN — Þriðjudagur 31. janúar 1956 íslendiztgeir nota nteiri steinsteypu en aðrir en kunna verr með hana að fara Verkfræðingafélag íslands Jeggiir til að settar verði strangar regiwr um steinstcypugerð og fylgzt með framkvæmd þeirra 1 Eins og' kunnugt er hafa komið í ljós alvarlegir gallar ' á steinsteypu hér á landi. Verkfræöingafélag íslands 1 ræddi þaö vandamál á fundi s.l. haust, og hefur nú sent iönaöarmálaráöuneytinu, félagsmálaráöuneytinu og öll- um sýslu- og bæjarfélögum á landmu niöm’stööur sínai’. Fer hér á eftir ályktun verkfræðinganna og greinargerö þeirra: •$>- Fundur í Bygrgingaverk- fræðideild Verkfræðingafélags íslands, þ. 25. okt. 1955, telur, að ekki sé nógu vel vandað til steinsteypugerðar hér á landi og íninnir í því sambandi á þau mistök, sem áttu sér stað í Reykjavík síðastliðið sumar. Telur fundurinn þetta mál svo alvariegt, að við svo búið megi ekki sitja og skor- ar á stjórnarvöld ríkis og sveit- arfélaga að láta málið nú þeg- ar til sín taka með því: 1) að setja lög og reglur um steinsteypugerð, er fullnægi kröfum nútímans, 2) að koma á stöðugu eftirliti með steinsteypugerð, 3) að auka þekkingu fagmanna á steinsteypugerð. GREINARGERÐ. Steinsteypan er það bygg- ingarefni, sem mest er notað nú hér á landi. Árið 1954 mun kostnaðarverð þeirrar stein- steypu (án móta og járns), sem framleidd var hér, hafa verið náiægt 95 millj. króna. Sú steinsteypa var þýðingarmik- ill hluti af mannvirkjagerð sem orsakaði yfir 400 millj. kr. fjármunarnyndun. Innflutning- ur á sementi (cif)nam þá um 20 millj. króna og var sements- notkun vor á hvern íbúa hin hæsta í Evrópu. Af þessu má sjá, að það er mikilvægt fyr- ár þjóðarbúskap íslendinga, að steinsteypa sé gerð með hag- sýnum hætti. Mannvirki þau, sem nú eru gerð hér úr steinsteypu, eru til fjölbreyttra nota. Má þar nefna hafnarmannvirki, brýr, orkuver, geyma fyrir ýmis efni, leiðslur og hús. Steinsteypan þjónar því margvíslegum til- gangi og leiðir af því að mikil fjölbreytni er í því, hverjar kröfur eru gerðar til hennar hverju sinni sem efnis. Nútimatækni í steinsteypu- gerð stefnir einmitt að fram- leiðslu á steinsteypu með fyr- irfram ákveðnum eiginleikum, til þess að fuilnægja tilteknum en mismunandi þörfum. Eigin- leikarnir kunna að vera vatns- heldni, frostþol, brotþol, slit- þol, lítil tilhneiging til sam- dráttar eða sprungumyndunar o. fl.. Alla þessa eiginleika má yfir- leitt bæta með kunnáttu og vetrkhyggni eingöngu, en einnig með því að nota betri hráefni en ella, eða dýrari hráefni, t.d. meira af sementi og járni. Af þessu leiðir að oft má spara efniskostnað með kunnáttu og verkhyggni við framleiðslu steinsteypunnar. Þetta er sér- lega þýðingarmikið, þegar þess er gætt, að sement og járn Æru innflutt efni. Hitt er jafn víst, að ef kunnáttu skortir eða hráefni eru léleg eða göll- uð, verður hið steypta mann- virki gallað, endingarlítið eða jafnvel ónýtt. í þessu sambandi er rétt að geta þess, að áður héldu menn, að steinsteypa væri mjög var- anlegt byggingarefni. Reynsla og rannsóknir á síðari árum hafa sýnt að hún er ekki eins endingargóð og haldið var og að hún er því aðeins endingar- góð, að til hennar sé vandað. . Erlendis hefur steinsteypu- tækni fleygt áfram á síðari ár- um. Þar eru nú til víðtækar reglur um gerð steinsteypu. Henni er þar skipt í flokka ef tir gæðum og verður hún að fullnægja vissum lágmarks- kröfum um styrkleika í hverj- um flokki, en strangt eftirlit er með framkvæmdinni. Þar eru gerðar kröfur um þekkingu og hæfpi þeirra manna, er sjá um steinsteypugerð. Sá sem gerir áætlun um mannvirki, getur því valið til hvers hluta mannvirkisins þann steypu- flokk sem hagkvæmastur er, miðað við þörf, gæði og kostn- að og treyst því að verkið sé rétt framkvæmt. Því aðeins að vandað sé til steinsteypunnar og treysta megi því, að hún sé jöfn að gæðum, er hægt að nota sér að fullu burðarþol hennar. Leyfilega áreynslu má þá hækka og sparast þá efni. Ný- ir byggingarhættir hafa komið fram á síðustu árum, þar sem efnið, steypan og stálið, er notað til hins ýtrasta. Hvernig er þessu nú háttað hér á landi? Því verður að svara þannig, að vér erum eft- irbátar annarra í steinsteypu- gerð, þrátt fyrir hina miklu notkun steinsteypunnar. Þetta veldur því að: 1. Mörg mannvirki eru gölluð og hafa ekki það gildi, sem ætlast er til. Aðeins í fæst- um tilfellum koma gallarnir fljótt í ljós. 2. Ýmsir byggingarhlutar eru gerðir efnismeiri og þarmeð dýrari en vera þyrfti, ef treysta mætti vandvirkni í framkvæmd. 3. Ýmsar nýungar, sem miða að sparnaði í efnisnotkun, með þvi að notfæra til hins ýtrasta styrkleika efnisins, eru nú sem stendur útilok- aðar hér. í þessu sambandi skal bent á eftirfarandi atriði: 1. Hér eru ekki til aðrar regl- ur um steinsteypugerð en ó- fullkomin ákvæði í nokkr- um byggingarsamþykktum nokkurra _ sveitarfélaga. Nauðsynlegt er að settir séu staðlar (normur) um stein- ' steypu, í líkingu við það sem annarsstaðar tíðkast. 2. Eftirlit með steinsteypugerð er mjög lítið hér á landi. Það er þó helzt þegar opin- berar stofnanir standa fyrir mannvirkjagerð. í Reykjavík eru járnlagnir „teknar út“ áður en steypt er, en með sjálfri steinsteypugerðinni er eftirlitið lítið eða ekkert. Þar sem bezt lætur annars- staðar á landinu er þetta Svipað, en víðast hvar er þó eftirlitið minna eða ekk- ert. Þetta er þeim mun var- hugaverðara, þegar það er íhugað, að steinsteypan er eina byggingarefnið, sem er búið til á Sjálfum byggingar- staðnum og við misjafnar aðstæður. 3. Samkvæmt þeim ákvæðum, sem nú gilda, er það hlut- verk 'múrara að standa fyr- ir steinsteypugerð við hús- byggingar. Múrarar líta samt fyrsf og fremst á múr- húðun húsa sem sLna fag- vinnu og þeir þurfa ekki að sýna fram á sérstaka þekk- ingu í steinsteypugerð tS þess að öðlast meistararétt- indi. Steinsteypan er tiltölu- lega nýtt byggingarefni og fylgir henni lítið af reynslu, sem gengur frá manni til manns, svo sem í ýmsum öðrum iðngreinum. Mjög lít- ið er til ritað um stein- steypu á íslenzku. í iðn- skólanum er mjög lítið kennt um gerð hennar. 4. Hér á landi er sandur, möl og grjót miklu misjafnara að gæðum fyrir steinsteypu en í öðrum löndum, sem vér þekkjum til. Þegar af þeirri ástæðu einni er nauðsyn- legt að viðhafa sérstaka að- gát við fr.amleiðslu á stein- steypu. Áður en steinsteypan kom til sögunnar var lítið sem ekkert byggt úr varanlegu efni hér , á landi. Skortur varanlegs byggingarefnis var eitt af mestu vandamálum liðinna alda. Hver kynslóð varð að byggja allt upp að nýju. Óþarft er að rekja hver áhrif þetta hafði á efnahagsþróun þjóðar- innar. Nauðsyn þess að byggja til frambúðar getur engum dul- izt. Steinsteypan er endingargott byggingarefni, en þó því að- eins, að til hennar sé vandað. Það er í senn menningaratriði og hagsmunamál fyrir þjóðfé- lag vort, að hér þróist hin bezta tækni á þessu sviði, sem völ er á. Aumlegur „Áhorfandi44 í grein sem ég ritaði í Þjóð- viljann hinn 10. janúar sið- astliðinn gaf ég Helga Sæ- mundssyni kost á að birta greinina Holtsnúp í Alþýðu- blaðinu, svo að lesendur blaðs- -$> Afmælisdagskrá í útvarpinu — Viðtal við Sigurð Guðnason — Orðsending til hagyrðinganna — — Fyrripartur HINN 26. janúar átti Verka- mannafélagið Dagsbrún hálfr- ar aldar afmæli. Þessa afmæl- is var minnzt á ýmsan hátt. Hátíðarfundur var haldinn í Austurbæjarbíói, og á föstu- dagskvöldið var samfelld dag- skrá í útvarpinu, heiguð af- mælisbaminu. Ég hef heyrt á mörgum, að þeim líkaði þessi dagskrá mjög vel, og hér er stutt bréf um það efni: ★ ★ ÚTVTRPSHLUSTANDI skrif- ar: Ég hlustaði mér til mikill- ar ánægju á afmælisdagskrá Dagsbrúnar í útvarpinu á föstudagskvöldið. Dagskráin var að mínu viti prýðilega tekin saman og vel flutt. Mað- ur fékk nokkuð greinargott yfirlit yfir sögu og starf þessa stærsta verklýðsfélags hérlend is og var fróðari um baráttu þess í fimmtíu ár eftir en áð- ur. Mig minnir að Bæjarpóst- urinn hafi einhvern tíma bor- ið fram þá tillögu, að verk- lýðsfélögin sæju öðru hvoru um dagskrár í útvarpinu, og það finnst mér ágæt tillaga. Verklýðsfélögunum hefur á síðustu árum vaxið svo mjög fiskur um hrygg, að þau eru orðin langsterkas.ti aðilinn í baráttunni við afturhaldsöfl- in, og starf þeirra' og saga þyrfti að vera sem flestum kunnug. tJtvarpsdagskráin á föstudagskvöldið og önnur há- tíðahöld í sambandi við þetta fimmtugsafmæli, sýndi Ijós- Iega, að það er rétt, sem einn verklýðsforingi sagði í ávarpi til Dagsbrúnar, að íslenzki verkamaðurinn hefur öðlazt trúna á mátt sinn og virð- ingu fyrir störfum sínum. Sér- staklega kom þetta greinilega í ljós í viðtalinu við Sigurð Guðnason, sem var með af- brigðum gott. Heilbrigður hugsunarháttur og mannleg sjónarmið óspilltrar alþýðu, kom svo greinilega fram í öllum svörum þessa ástsæla vérklýðsforingja, að unun var að heyra. Það vottaði ekki fyrir hátíðlegri hræsni eða tilgerð í neinu svari. Og þeg- ar Sigurður var spurður eitt- hvað á þá leið, hvoii; hann teldi störf verkamannanna vera þjóðinni til heil.la, svar- aði hann aðeins: Líttu í kring um þig, maður; sjáðu göt- urnar, sjáðu húsin....... Á svona einfaldan og sannfær- andi hátt vakti fyrrverandi formaður Dagsbrúnar athygli alþjóðar' á því, að það eru fyrst og fremst verkamenn- irnir í Dagsbrún, sem hafa reist okkar ágætu höfuðborg. —■ Að lokum þakka ég svo öllum sem að þessari ágætu dagskrá unnu fyrir góða skemmtun og hollan fróðleik. — Útvarpshlustandi. ★ ★ EN NÚ langar mig til að segja fáein orð við þá, sem reyndust vera ágætir hagyrð- ingar fyrir áramótin. Ég vænti þess fastlega, að hag- mælska ykkar hafi ekki horf- ið „í aldanna skaut“ með ár- inu 1955. Það var nefnilega alltaf meiningin að þið hélduð áfram að yrkja á árinu 1956, og þótt það hafi ekki verið hér í Póstinum neinn vísu- helmingur núna langa lengi, þá megið þið ekki skilja það svo að hann sé búinn að fá ofnæmi fyrir rímuðu máli. Og hér kemur þá fyrripartur, sem ég bið ykkur vinsam- legast að botna, helzt sem fyrst. Það skal tekið fram, að frá minni hendi miðast Framhald á 11. síðu. ins mættu sjá svart á hvítu, að hann hafði gert mér upp orð, sem hvergi er þar að finna, hamazt síðan gegn hin- um uppdiktuðu skoðunum eins og þær væru runnar undan rifjúm minum. Kempan þekkt- ist ekki boðið, en birti í þess stað á dögunum langa rollu í blaði sínu, þar sem forðazt er að víkja einu orði að sjálfu tilefni greinar minnar í Þjóð- viljanum (í von um að les- endur séu búnir að gleyma því?), en reynt af veikum mætti að berja í áþekka eldri bresti í keri ritstjórans, sera hafa aðeins þýðingu samheng- isins vegna. Greinin er undir- rituð ,,Áhorfandi“. — Þegar menn reka upp ramakvein og hlaupa í felur, hef ég ekki geð til að elta. þá í skúraa- skot: með feluleik sínum dæm- ir greinarhöfundur sig fyrir- fram óverðugan að vera virt- ur svars (hvort sem það er Helgi isjálfur, eða einliver hefur hlaupið í skrápana fyr- ir hann), endá má segja að hann leiki Helga. Sæmundsson svo grátt með kátlegum mann- jöfnuði við Einar Benedikts* son, Halldór Kiljan Laxness og fleiri að ómannúðlegt væri að höggva öðru sinni í sama hnérörið, eins og pípulagn- ingameistarinn orðaði það á fagmáli. Mishermt er í grein Áhorf- anda, að ég sé ritstjóri Birt- ings. Við erum fimm í rit- stjórn Birtings með jöfnura réttindum og skyldum. Hins vegar hef ég verið ábyrgðar- maður ritsins gagnvart prent- frelsislögunum, og virðist nauðsynlegt að benda höfund- inum á að það er annar hand* legaur. — EinarBragi.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.