Þjóðviljinn - 31.01.1956, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 31. janúar 1956 — ÞJÓÐVTLJINN (5
Nefndarálit Karls Gudjónss.
Endurskoðun í málum Blöndals
og Vatneyrarbræðra enn ólokið
Framhald af 12. síðu.
rök fáist fyrir hinum háu álög-
um, sem jafnframt eru bornar
fram. Skai þetta nú skýrt nánar.
Með útgjöldum framleiðslu-
sjóðs er talinn styrkur til síldar-
saltenda í Faxaflóa, áætlaður
10 millj. kr. Þessi útgjöld eiga
ekki heima í framleiðslusjóði af
þeirri ástæðu, að þegar hefur
verið lagður á sérstakur tóbaks-
skattur til þess að mæta þess-
um útgjöldum og ríkisstjórnin
hefur samið við útvegsmenn
um þennan styrk. Þessar 10
milljónir ber því að draga frá
áætluðum útgjöldu'm framleiðslu-
sjóðs.
Þá er gert ráð fyrir því að
greiða úr framleiðslusjóði 26
millj. kr. til kaupa á B-skírtein-
um. Hér er einnig um óþarfa
útgjöld að ræða og ekki í sam-
ræmi við óskir útvegsmanna.
Óskir útvegsmanna voru um
það, að þeim yrði útvegað fé
til bráðabirgða tii þess að flýta
fyrir uppgjöri ó bátagjaldeyris-
Fjárlögin
Framhald af 3. síðu
nesi og leikfimishús kr. 300
jbús., og að veitt verði til vega-
lagningar á landi ríkisins í
Kópavogi kr. 60 þús.
Þá flytja þeir Finnbogi og
Guðmundur í. tillögur um að
íramlag til Sandgerðishafnar
hækki úr 200 þús. í 300 þús.
og að ríkissjóður greiði drengn-
um Garðari Brynjólfssyni,
Minna-Knarrarnesi, Vatns-
leysuströnd, hæfilegar bætur
vegna slyss, er hann varð fyrir
15. júlí 1946 af völdum
sprengingar við bæinn Minna-
Knarrarnes á Vatnsleysu-
strönd.
Akranes
Framhald af 12. síðu.
sunnudagsmorgun og þokaði þá
nokkuð í átt til samkomulags,
bótt samningar tækjust ekki.
Á sunnudaginn hélt stjórn
Sjómannafél. Reykjavíkur fund
með bátamönnum til þess að
ræða kjarasamningana svo og
fiskverðssamninginn og eftir
að hafa skýrt frá hvernig mál-
in stæðu og nokkrar umræður
farið fram var samþykkt. með
atkvæðum allra fundarmanna
ályktun sú er hér fer á eftir:,
,,Fundur haldinn 29. jan. 1956
með bátamönnum í Sjómanna-
félagi Reykjavikur, telur, að
þar sem fiskverðssamningur sá
er gerður hefur verið, inniheld-
ur hvergi nærii þá fiskverðs-
hækkun er vænzt hafði verið,
sé ekki unnt að samþykkja
kjarasamning bátamanna með
þeim breytingum er útgerðar-
menn, á síðasta samningafundi
töldu sig geta gengið að, og
lýst hefur verið.
Felur fundurinn stjórn fé-
lagsins að halda áfram samn-
ingaumleitunum og þá jafn-
framt, að nota þá heimild er
hún hefur til þess að lýsa yfir
vinnustöðvun.
Fundurinn lýsir sig óánægð-
an með fiskverðssamninginn,
en telur að ekki sé rétt að taka
afstöðu til hans að öðru leyti,
fyrr en séð verður hvaða
kjarabætur nást með kjara-
samningunum.“
réttindum. Bentu þeir á, að
gjaldeyrisbankarnir gætu auð-
veldlega lánað fé í þessu skyni
með veði i bátaréttindunum. Við
sósíalistar leggjum til, að farið
verði í þessu eftir tillögum út-
vegsmanna og er þá hægt að
fella niður þessi útgjöld fram-
leiðslusjóðs, og um leið þarf
ekki að gera ráð fyrir sérstakri
skattlagningu þeirra vegna.
Með þessum tveimur breyting-
um má lækka útgjöld sjóðsins
um 36 milljónir án þess að
skerða á nokkurn hátt stuðning
við útgerðina,
Þá eru eftir útgjöld, sem nema
116 milljónum. Upp í þau útgjöld
eru fyrir í styrktarsjóði togar-
anna lö miiljónir, og fullvíst
má tglja, að aukaálagið á inn-
fluttar bifreiðar muni gefa á
þessu ári að minnsta kosti 16
milljónir. Þegar tiilit hefur verið
tekið til þessa', eru eftir 85'
milljónir, sem framieiðslusjóður
þarf að greiða á árinu og afla
þarf sérstakra tekna á móti.
Ég tel tekjuöflun þá, sem
frumvarpið gerir ráð fyrir, frá-
leita. Ef sú leið yrði farin til
tekjuöflunar, mundi allt verðlag
i landinu stórhækka og' þá um
leið kaupgjald, og færi þá að
draga úr ávinningi útflutnings-
framleiðslunnar af þessum ráð-
stöfunum. Ég legg til, að fram-
leiðslusjóði verði afiað tekna
með aukaskatti á þá aðila, sem
2 Rússar um
sama heimsmet
í gær var keppt í 1500 m
skautahlaupi á ÓL í Cortina
og urðu úrslitin þau að tveir
keppendur frá Sovétríkjunum,
Grisjin og Mikhailoff, urðu
fyrstír og jafnir á nýjum
heims- og ólympíumettíma, 2
mín 8,6 sek, Hlutu þeir báðir
gullverðlaun. Bronsverðlaun
lilaut Finninn Salonen, sem
hljóp á 2:09,4.
Norðmaðurinn Brenden vann
15 km skioagönguna á 49 mín
39 sek. Annar var Sviinn
Jerneberg á 50,14 og þriðji
Kolsjin frá Sovétríkjunum á
50,17.
Svissneska stúlkan Colinar
vann svig kvenna á 1 min 52,3
sek. Austurrisk stúlka varð
önnur og sovézk þriðja.
Bandaríkjamenn unnu Þjóð-
verja í íshokkey með 7 gegn
2, sovézka liðið vann Svía með
4 gegn eirai.
Eden í
Washmgion
Eden, forsætisráðherra Bret-
lands, kom í gær til Washing-
ton og hóf þegar í stað við-
ræður við Eisenhower forseta
og Dulles utanríkisráðherra.
Lloyd utanríkisráðþerra er í
för með Eden. Forsætisráðherr-
ann sagði fréttamönnum við
icomuna til New York, að sér
væri einkum umhugað um að
þeir Eisenhower yrðu sammála
um samræmdar aðgerðir í mál-
um landanna við botn Miðjarð-
arhafs.
sannanlega hafa grætt á við-
skiptum við útgerðina og bezta
aðstöðu hafa til þess að standa
undir slíkum álögum.
Ég legg til, að skattlagðir
verði í þessu skyni bankarnir,
sem grætt hafa um 50 milljónir
á ári undanfarin ár, olíufélögin,
sem nú selja bátaolíu 70% hærra
verði hér en hliðstæð olía er
seld í nálægum löndum. Þá legg
ég til, að skattlögð verði flutn-
ingaskipafélög, vátryggingarfélög
og verktakar þeir, sem nú græða
mest á jStórframkvæmdum á
vegum hersins og soga til sín
íslenzkt vinnuafl frá framleiðsl-
unni. Skattlagning þessara aðila
er réttlát, og hún mundi ekki
kalla á neina verðhækkun í land-
inu.
Ég legg því til, að gerðar verði
á frumvarpinu breytingar til
samræmis við það, sem hér er
sagt, óg"fhun‘'flytja þféyt'fligáf-
tillögur þess efnis á sérstöku
þingskjali.
Alþingi, 30. jan. 1956
Karl Guðjónsson“
DauScidómur
á Kýpur
Brezkur herdómstóll á Kýp-
ur dæmdi í gær tvítugan
Grikkja, Andreas Dimitriu, til
dauða fyrir að særa brezkan
kaupmann með byssuskoti. Er
dómurinn kveðinn upp sam-
kvæmt því ákvæði herlaga
Breta á Kýpur, sem leggur
dauðarefsingu við því að ó-
breyttir borgarar beri skot-
vopn.
Brezkt herlið réðst í gær
með táragasi og bareflum á
hóp skólabama í bæ á vestan-
verðri Kýpur. Hlutu mörg
barnanna áverka.
Brezka útvarpið segir að
lokaboð Breta til Makariosar
erkibiskups, foringja hinna í-
lialdssamari Grikkja á Kýpur,
sé að Bretar séu ef til vill til-
leiðanlegir til að ræða við full-
trúa eyjarskeggja um sjálfs-
ákvörðunarrétt þeim til handa
einhverntíma síðar meir.
Þjóðviljinn var í gær beðinn
að birta eftirfarandi yfirlýsingu
frá skrifstofu sakadómara:
„Vegna endurtekinna blaða-
skrifa nú undanfarið um seina-
gang rannsókna í málum þeim,
sem kennd eru við Ragnar Blön-
dal h.f. og Vatneyrarbræður,
þykir hlýða að taka þetta fram:
1. Rannsókn hins svonefnda
Blöndaismáls hófst 19. marz
s.l og héldu yfirheyrslur
áfram fram á sumar. Með
bréfi, dagsettu 30. marz s.l.,
Hinir skattglöðu
ráðherrar
Menn minnast þess ekki, að
hafa séð þá Eystein Jónsson
og Ólaf Thors glaðari í bragði
né ánægðari með sjálfa sig og
verk sín en s.l. laugardag, þeg-
ar Alþingi var að ræða og af-
greiða skattafrumvörp þeirra.
Þeir iðuðu af kátínu og ham-
ingjan ljómaði í svip þeirra
eins og þeir sætu dýrlegan
fagnað í minningu afreks, sem
lifa myndi um aldir.
I Ameríku er talað um
menn, sem séu „trigger happy“
og aðra sem séu „atom happy“.
Hér liöfum við menn, sem eru
skatt-„happy“, toll-„happy“.
En þetta getur allt saman
verið dýrkeypt hamingja og
áður en lýkur munu hinir
skattglöðu ráðherrar finna
það, að almenningur þessa
lands er ekki jafn glaður yfir
sköttunum og þeir.
Súng Sjingllng
í Pakistan
Súng Sjingling, ekkja Sún Jat-
sen, stofnanda kínverska lýð-
Jatsen, stofnanda kínverka lýð-
veldisins, er komin í opinbera
heimsókn til Pakistan. Hún er
einn af varaforsætisráðherrum
Kína.
var hrl. Ragnari Ólafssyni,
löggiltum endurskoðanda, íal- ‘
in bókhaldsendurskoðun í
sambandi við rannsóknina og
er því verki eigi enn lokið.
2. Rannsókn í máli Vatneyrai'-
bræðra hófst 29. nóvember
1954 og héldu yfirheyrslur á-
fram fram í febrúar s.l. Með
bréfi, dagsettu 23. febrúar s.l.
var löggiltum endurskoðend-
um, þeim Eyjólfi í. Eyjólfs-
syni og Sigurði Stefánssyni,
falin bókhaldsendurskoðun í
sambandi við rannsóknina og
er því verki ekki >enn lokið.
Um bæði þesSi mál skal það
tekið fram að bókhaldsendur-
skoðun í þeim er mjög mikið
verk og því eigi að undra þótt
hún standi lengi yfir. Meðan
henni er eigi lokið liggja yfir-
heyrslur — eðli málanna sam-
kvæmt — að mestu niðri.“
Men ntaskél a lei k-
urinn í kvöld
Menntaskólaleikurinn 1956
verður frumsýndm- í Iðnó í
kvöld. Er það Uppskafningminn
eftir Moliére; leikstjóri er Bene-
dikt Árnason.
Meðal leikenda eru Bernharð-
ur Guðmundsson, Hólmfríður K.
Gunnar.sdóttir, Auður Inga
Óskarsdóttir, Ragnar Arnalds,
Atli H. Sveinsson, Brynja Bene-
diktsdóttir og Ragnheiður Torfa-
dóttir. Atli Sveinsson hefur einn-
ig æft söng og hljóðfæraleik, en
Bryndís Schram æft dansana.
Leiksviðsstjóri er Sibyl Urbancic.
í leiknefnd eru þessir nem-
endur:
Magnús Sigurðsson, Styrmir
Gunnarsson, Jakob Möiler, Ól-
afur B. Thors og Sibyl Urbancic.
Nemendur hafa gefið út mynd-
arlega leikskrá, og birta þar
nokkrar stuttar greinar.
Ræða Brynjólfs
Framhald af 1. síðn.
villst, að hún þolir engum það
að hann setji pólitíska brask-
hagsmuni sína ofar heildarhags-
munum alþýðunnar og þeirri
einingu hennar, sem er nauð-
synleg til þess að sigra aftur-
haldsöflin.
Barátta Sósíalistaflokksins I
áratug, hefur nú borið ávöxt í
þeirri sterku samstarfs- og sam-
fylkingaröldu, sem nú er að
rísa. Það þýðir ekkert að loka
augunum fyrir því,' hvaða af-
stöðu sem menn annars hafa
til Sósialistaflokksins, að fram-
tíð þessarar hreyfingar, sem
heill íslands er undir komin,
fer fyrst og fremst eftir s'tvrk-
leika hans. Alþýðan hefur
reist þessa öldu með þvi að
fylkja sér um þá stefnu, sem
Sósíalistaflokkurinn hefur alla
stund barizt fyrir. Nú vantar
aðeins herzlumuninn til þess
að dugi til að bjarga þjóðinni
úr niðurlægingu 10 ára óstjórn-
ar. Hvenær sem kosningar
verða, verður fólkið því að
fylkja sér um Sósíalistaflokk-
inn og aðra þá, sem verða í
bandalagi við hann um stefnu
Alþýðusambands íslands. Það
mun verða sá herzlumunur sem
dugar.“
Oddviti útlagastjórnar snýr heim
Maöurinn meö blómvöndinn á myndinni heitir Hugon
Hanke, og hann var til skamms tíma forsætisráöherra
útlagastjórnar tandflótta Pólverja, sem situr í London.
Myndin var tekin þegar Hanke kom til Varsjár fyrir
skömmu eftir 16 ára dvöl erlendis. Hann kvaöst hafa snú-
iö lieim vegna þess aö hann heföi sannfœrzt um aö ú tlaga-
stjórnin œtti sér engan tilverurétt. „Þaö er köllun sér-
hvers Pólvei-ja aö lifa og starfa í fööurlandi sínu'(, sagöi
Hanke. Meö honum á myndinni eru kona hans, dóitir og
tveir synir.