Þjóðviljinn - 31.01.1956, Page 11
Þriðjudagur 31. janúar 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (11
NEVIL SHUTE:
LHNDSYN
3. dagur
Hann hafði töglin og hagldirnar og hann vissi það.
Með semingi teygði Chambea's jsig í startarann, og vél-
in fór í gang. Flugmaðurinn tók handlegginn af öxl
stúlkunnar. „Þarna lék hann á okkur“, sagði hann.
„Við verðum að fara.“
Hún kinkaöi kolli. „Sá er frakkur,“ sagði hún lágri
röddu. „Þetta kemur honum ekkert við.“
Chambers svaraði í lágum hljóðum: „Það tekur því
ekki að pexa viö hann. Auk þess hefur hann rétt fyrir
sér með þessa vegi. Það stendur á spjöldunum.“
Bíllinn ók af staö. Stúlkan vafó'i teppinu að sér og
rétti dálítið úr sér. Þau óku inn í Portsmouth í kola-
myi'kri, borg án götuljósa og upplýstra glxigga. Þaö glitti
a'ðeins í dauft framljósið; axmars var allt dimrnt og
þögult.
Loks fann hann húsið sem hún átti heima í, byggingu
á fremur ótótlegu götuhorni. Þai'na virtist vera vei'zlun
með notuð húsgögn; hann nam staðar við hliðardyr.
Hún sagði: „Þetta hefur veiið indælt kvöld, reglulega
skenmitilegt. Þakka þér fyiir heimkejn.'sluna“.
Hann sagði: „Þaö var gott að Ginger Rogers gat ekki
komið. Þú dansar miklu betur“.
„Þú ert mjúkmáll“.
„Eigum við að endurtaka þetta?“
„Allt í lagi“.
„Hvað segii’ðu um annað kvöld?“
„Ef þú vilt. Á sama, tíma 1 samkomuhúsinu?“
„Ég verð að losa mig við Lorettu Young, en það ætti
að vera hægöaiieikur. Ég segist vera með bólusótt.
Klukkan hálfellefu?“
„Ágætt“.
„Og er þá ekki komið aö kveðjukossinum?“
„Ég held nú ekki“.
„Jú, víst.“
Eftir andartak fór hún út úr bílnum og stóð um stund
1 skuggalegum innganginum, grönn og beinvaxin, og
veifaöi honum í kveðjuskyni. Hann setti litla ski'jóðinn
aftur í gang, ók út úr borginni og út á þjóöveginn.
Stúlkan lokaði dyrunum á eftii' sér og dró lokuna
fyrir, slökkti flöktandi gaslogann og gekk upp þröngan
stigann a'ð hei’bergi sínu. Hún gekk hljóölega og lokaði
dyrunum varlega á eftir sér, þvi a'ð hún vildi ekki vekja
mömmu sína. Móöir hennar skipti sér aldi'ei af því hverj-
um hún var með, en hún vildi að hún kæmi heirn fyiir
miðnætti.
Hún hafði eigið hei'bergi, því að hún var hiö eina af
systkininum sem enn var heima. Beii bróðir hennar var
í sjóliðinu, var á Firedrake einhvers staðar fjarii Eng-
landi. Þau héldu aö hann væi'i einhvei’s staðar í suöur-
hluta Atlanzhafsins; þau höfðu ekkexi fi'étt af honum
í.sex vikiu'. En svona var það í sjóliöinu. Faðir hennar
hafði verið' í hei’þjóiiustu í því nær þrjátíu ár og enda'ð
sem einhvei’s konar yfirmaöur. Hann hafði dálítil eftir-
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
PÉTUR SÖEBECH,
verður jarðsunginn fimmtudaginn, 2. febrúar frá Foss-
vogskapellu kl. 1.30 e,h.
Eiginkona, börn, tengdabiirn og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát
og jarðarför
INGIGERÖAE ÁRDÍSAK BJÖRNSDÓTTUK,
Bjarkárgötu 12.
Börn, tengdabörn ög barnabörn.
laun og verzlunin gaf dálítið í aðra hönd, svo aö þau
höfðu nóg fyrir sig að leggja.
Millie systir hennar hafði haft herbergi með henni
þangað til í sti'íðsbyrjun; hún hafði unniö í lífstykkja-
verksmiðjunni. Skyndileg fækkun á starfsfólki varð til
þess að Millie og hundrað og fimmtíu stúlkur aði*ar stóðu
uppi atvinnulausar; þá hafði hún gengi'ð í A.T.S. og
vann nú í Bordon herbúöunum. Henni fór kakíein-
kennisbúningurinn mjög vel; stundum iðraðist Mona
þess að hún hafði ekki fariö að dæmi hemiar. En það
vai' skemmtilegi’a að vinna á snai’lbarnum þar sem allir
vom að skemmta sér, liðsforingjarnir fengu sér hi’ess-
ingu með dömunum sínum og þvíumlíkt.
Þaö var kalt í herbei’ginu; hún flýtti sér að hátta og
stökk upp í rúmiö. Hvað var bh, ekki nema þaö þó!
Auövitaö var hann bara að stríða henni. Hún hafði aldr-
ei fyrii'hitt annan eins spaugara, en það var gaman að
skemmta sér með honum. Hún var fegin að hann skyldi
bjóða henni út aftur. Hann var mjög hár, að minnsta
kosti einn og níutíu; síða, bláa úlpan og litli báturinn
á skakk á höfði hans gerðu hann enn stærri. Hún hélt
hann væri eldri en hún, tuttugu og þriggja eða tutt-
ugu og fjögra. Hann var með unglegt andlit og* rjóðar
kinnar.
Henni féll vel við hann. Hún var fegin því að eiga að
hitta liana aftur; það var tilhlökkunarefni.
Jeriy var hann kallaöur.
Eftir andartak var hún sofnuö.
Tíu mílur í burtu ók Chambei's litla, hávæi'a bílnum
inn um hliðið að áðsetri lið’sforingjanna og lagði honum
í stói’um skúr sem var opinn á hliðinni. Harui breiddi
teppið yfir vélina af ótta við frost og fór inn í húsiö.
Þetta var gott hús, traustleg bygging úr raúðmn múr-
steini, teiknuð af góðum ai'kitekt og byggð fyiir aðeins
tíu árum. Nú var þarna yfirfullt; það voi*u það voru
fþrótttr
Framh. af 9. síðu
að missa af sér annað skíðið;
hún gat ekki varizt gráti er
hún var komin að marki.
Úrslit: 1. Ossi Reichert,
Þýzkal., 1.56.5; 2. Josefine
Frandl, Austurr., 1.57.8; 3.
Dorothea Hoehleiter, Austurr.,
1.58.2; 4. Aiulrea Mead-Laivr-
ence, Bandar. íog Madeleine
Berthod, Sviss, 1.58,3; 6. Lu-
cile Wheeler, Kanada, 1.58.6;
7. Borgliild Niskin, Noregi,
1.59.0; Marysette Angel, Frakk-
land, 1.59.4; 9. Regina Schopf,
Austurr., 2.00.6; 10. Josette
Neviere, Frakld. 2.00.8.
Bæiarpóshirinn
Framhald af 4.. síðu.
fyrriparturinn við það, að nú
er varla um annað talað en
skák, en auðvitað þarf botn-
inn ekki að vera af sama
tagi:
Sóknarþunginn sífellt vex,
senn verða góðu ráðin dýr“.
<í>-
eiinílisþáttnr
Ævintýralegir hjartauppskurðir
Það er ótrúlegt hvað skurð-
læknar geta g«rt. í enska lækna-
tímaritinu ,,Lancet“ birtist fyr-
ir nokkru frásögn af hjarta-
uppskurðum sem gerðir voru á
litlum bömum, sem öll voru
með meðfædda lijartasjúkdóma,
svo alvarlegs eðlis að þeim var
ekki hugað líf. Gerðir voru.
hjartauppskurðir á þessum
börnum, og meðan á uppskurð-
inum stóð var blóðrás barn-
anna tengd blóðrás fullorðins
blóðgjafa. I raiminni var hjarta
blóðgjafans nokkurs konar
,,varahjarta“ meðan á upp-
skurðinum stóð. Eitt af vand-
kvæðunum við hjartauppskurði
hefur einmitt verið það að
hjartað er fullt af blóði. Með
þvi að láta hjarta hins full-
orðna vinna fyrir hjarta barns-
ins er hægl að framkvæma
flóknari uppskuroi, vegna þess
að skurðlæknamir geta næstum
tæmt hjartað meðan þeir fást
við það. Gerðir hafa verið 38
skurðir af þessu tagi, 27 þeirra
heppnuðust vei og börmn sem
enga lífsvon höfðu geta nú lif-
að. Blóðgjaramir, sem urðu að
lána bömunum bæði blóð og
hjarta, lifðu alla uppskurðina
af, og 1 rauninni má kalla þetta
ævintýralega uppskurði.
Bindindismálakvöld
Framhald af 3. síðu.
ars:
Stórtemplar Brynleifur Tob-
íasson flytur ávarp, lOGT-kór-
inn syngur undir stjórn Ottós
Guðjónssonar, Magnús Jónsson
alþingismaður og foiTnaður
Landssambandsins gegn áfeng-
isbölinu, flytur ræðu, Guð-
mundur Jónsson óperusöng\’ari
syngur. Þá verður sýnd íslenzk
kvikmynd -í litum og loks flyt-
ur svo Lára Guðmundsdóttir
þingvaratemplar nokkur kveðju
orð.
Kvöldvakan hefst kl. 8.30
stundvíslega og verður í Góð-
templarahúsinu eins og áður
segir og er öllum heimill ó-
keypis aðgangur.
AVMAHHÓL
n
Krepnælo
Krepnælonsokkar eru ofnir úr
þrem þráðum, sem eru með-
höndlaðir á sérstakan hátt, svo
að þeir líkjast uppraki. Sokkur-
inn er prjónaður úr þráðun-
um teygðum, og . þess vegna’
dregst sokur-inn saman, þegar
hann er tilbúinn, Þvkkir crep-
sokkar eru einkenndir með 3x20,
sem táknar þrjá þræði sem hver I
er 20 denier að þykkt. (Deni-
er lýsir grófleik þráðarins en
gauge táknar lykkjuf jöidann).
Krepnælonsokkar geta líka verið
þynnri, svo sem 2x20 eða 1x20.
Það geta komið lykkjuföll á
nælonsokka, nema á þeim standi
að þeir séu lykkjuekta eða „nön
run“.
Komið reglu á biöð og límarit .
|j|| ||||í Æg :: ý', Wjgm ®
Eigi maðiir mikið af blöðiim og tímaritum er gott að geta haft
dálítið taumhald á þeim. Hér er mynd af tveim snotrum tímarita-
hillum, sem fingFafimir feður eða synir ættn liæglega að geta
smíðað
Útgefandl: Sa)neiningarilok.kur alþiðu — SóslaliBtaflakkurinn. — Ritstjórar: Magnús Kjartanssoa
■ (ábj,; Sisurður Guðmuiidsson. — Préttaritsfcjóri: Jön Bjarnason. — Blaðamenn: Ásmundur Sisur-
;Önsson. Eiarni Bcnodiktsson, Guðmundur Vigfösson, ívar H. Jónsson, Maernús Tórfi Ólafson. —
AuglýslngajstJóri: Jónstelnn Haraldsson. — Hitstjórn. afgreiðsla. auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. — Sími 7500 (3
línur>. — Áskriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 17 annarsstaðar. — Lausasöluverð kr. 1. — Prentsmiðj*
Þjóðvlljans h.f.