Þjóðviljinn - 20.03.1956, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 20.03.1956, Qupperneq 5
— Þriðjudagur 20. marz 1956 — ÞJÓÐVILJIXN —- (5 10 millj. barna hafa verið Ul“* Z "A " bólusett við lomunarveiki AlþjóSleg lœknaráSstefna telur áráng- ur góSan þegar rétt er crð fariS Tíu milljón börn hafa nú verið bólusett gegn lömunar- veiki (polio) og' þegar frá eru dregin tvö' óhöpp. sem bæöi áttu sér stað í Bandaríkjunum, bendir ekkert til áð bólu- setningin geti veriö hættuleg, ef rétt er með fariö. Reynsla, sem þegar hefur fengizt í Bandaríkjmium, Danmörku, Kanada, Vestur-Þýzkalandi og Suðm*-Afríku, hefur sann- aö, aö „bólusetning gegn lömunarvéiki gefst vel undir Vissum kringumstæöum meöal skólabarna á aldrinum 6—10 ára“. Tilvitnunin er tekin úr skýrslu, sem 12 heimskunnir læknar og vísindamenn hafa samið um reynslu þá, sem fengizt hefur af bólusetningu gegn lömunarveiki. Þessir læknar komu saman í Karelinsku stofnuninni í Stokk- hólmi í haust til þess að bera saman bækur sínar, en ráð- stefnan var haldin á vegum Alþjóðaheilbrigðismálastofun- arinnár (VHO). Skal hér laus- lega vikið áð nokkrum niður- stöðum skýrslunnar, sem nefn- ist „Poliomyelites Vaccination, A Preliminary Review“. Það er skýrt tekið fram í skýrslunni, að þar sem talað er nm bólusetningu gegn lömun- arveiki er átt við bólusetningu bama í aldursfloklcnum 6—10 ára, því enn skortir reynslu í bólusetningu amiarra aldurs- flokka. Aðaltilgangur sérfræðinga- fundarins í Stokkliólmi var að safna vísindaiegum fróðleik og reynslu, sem gæti komið þeim heilbrigðisyfirvöldum að gagni, sem enn hafa ekki ákveðið hvort börn skuli bólusett gegn löm- unarveiki. Óhöppin hræddu frá bólu- setningu Óhöppin, sem áttu sér stað þegar fyrst var farið að nota Salk-bóluefnið í stórum stíl í Bandaríkjunum drógu mjög hug úr heilbrigðisyfirvöldum og almenningi. Stærra óhappið náði til um 200 tilfella og er fylli- lega ljóst hvernig á því stóð Hitt slysið þykir ekki nægi lega upplýst ennþá. 1 Bandaríkjunum hefur mjög dregið úr lömunarveiki eftir að Bretai* sekta þorp á Kýpur í gær lauk á Kýpur verk- fallinu, sem staðið hefur frá því Bretar fluttu Makarios erkibiskup í útlegð. Erkibisk- upsráðið ályktaði i gær, að með því tiltæki hefðu Bretar fyrirbyggt friðsamlega lausn Kýpurdeilunnar, eða að minnsta kosti tafið hana þangað til Makarios fengi að snúa heim. í gær gerði Harding land- stjóri Breta á Kýpur, íbúum smáþorps nærri Kyrenia að grsiða 7000 sterlingspunda (320.000 króna) sekt vegna þess að sprengja varð þar brezkum hermanni að bana á laugardaginn. Herlið sér um að þorpsbúar fái ekki að yfirgefa hús sín fyrr en sektin er greidd að fullu. farið var að bólusetja. Þýðing- armestu spumingarnar í sam- bandi við bólusetningu gegn lömunaiveiki telja sérfræðing- amir að séu eftirfarandi: Er hægt að tryggja. örugga framleiðslu bóhisetningar- efnis? Svarið í skýrslu WHÖ er þetta: „Nýjustu aðferðir í framleiðslu og eftirliti með bólusetningarefni ættu að vera trygging f\-rir öruggri vöru“. — Hinsvegar er bent á, að það hafi komið í ljós, að bólusetn- ingarefni, sem framleitt var á nákvæmlega sama hátt i mis- munandi löndum, hafi gefizt vel og reynzt öruggt í öðru land- inu en ekki hinu. Það verði því aldrei nægilega brýnt fyrir mönnum, að hafa strangt eftir- lit með bólusetningarefninu. Er ráðlegt að láta almenna bólusetningu fara fram alstaðar? Niðurstöður læknaráðstefn- unnar í sambandi við þessa spurningu eru', að svo framar- lega sem alíra varúðarráðstaf- ana, seim getið er í skýrslunni, sé gætt, sé óhætt að Iáta fram fara almenna bólusetningu í þeim löndum, þar sem lömunar- veiki gengur sem faraldur. Tal- ið er þýðingarmikið, að börnin séu bólusett ung. Hvenær er bóluset.ning ráðleg? Samkvæmt skýrslunni ber að gæta tvenns: ..Hversu útbreidd er veikin í viðkomandi landi, hver er kostnaður við almenna bólusetningu og hvað hyggjast menn vinna við bólusetningu í stórum stíl? Það er oft erfitt að taka ákvörðun, sérstaklega þar sem ekki eru fyrir hendi skýrslur um útbreiðslu veikinn- ar, eða þar sem veikin leggst aðallega á ungböm, en ekki er vitað hversu bólusetning á ungbörnum gefst. Hinsvegar er bent á, að lömunarveiki geti gosið upp í löndum, þar sem liennar hefur aldrei orðið vart fyrr. Það er því lögð mikil á- herzla á að haldnar séu örugg- ar skýrslur um útbreiðslu löm- unarveiki. indalegir viðaukar um þetta og önnur atriði fylgja skýrslunni. Sérfræðinga rnir vara mjög eindregið við þvi, að hafin sé almenn bólusetning, án þess, að tryggja að nægjanlegt lið af vönum læknum og hjúkrunar- konum sé fyrir hendi Leiðbein- ingar eru til þeirra þjóða, sem hafa í hyggju að hefja fram- leiðslu á bóluefni. Að lokum leggja sérfræðing- arnir til, að WHO leiti sam- vinnu við ramisóknarstofnanir viðsvegar um heim til þess að safnað verði á einn stað þeirri vísindalegu vitneskju, sem fyrir hendi er í dag um lömunarveiki og einkenni hennar í mismun- andi löndum. (Frá SÞ), Mjólk er enn sjaJdséö fœöa hjá börnunum í Jacaleapa i Uonduras í Miö-Ameríku. Mikil framför hefur pó orðið síð- an 1950, þegar Barnahjálparsjóður SÞ hóf aö sjá börnum innan skólaaldurs fyrir mjólk. Síöan héfur veriö mjólkur- veizla á hverjum laugardegi hjá börnunum í Jacaleapa. Hversu lengí varir ónæmið ? Sérfræðingar taka fram, að enn sé engin reynsla fengin fyr- ir því, hve lengi ónæmi vari eftir bólusetningu. Loks veitir skýrslan margs- konar leiðbeiningar um bólu- setningu gegn lömunarveiki, t.d. um magn og hve langt skuli líða milli bólusetninga. Hávís- Þriggja vikna allsherjarverkfalli er lokið meí sigri finnskra verkamanna Hafa fengiS framgengt 70% kauphœkkun í morgun Iauk þriggja vikna allsherjai*verkfalli i Finn-^ landi með sigri verkamanna^ sem fengu kröfur sínar að mestu uppfylltar. Sanmingar tókust í verkfall- inu í fyrrinótt en vinna hófst ekki á ný fyrr en í moi’gun. CrsUtakostir. Það var ríkisstjómin sem bar fram tillögu um lausn deilunnar kortéri fyrir miðnætti á sunnu- dagskvöld og krafðist svars fyrir klukkan eitt. Báðir aðil- ar samþykktu tillöguna, sem ekki hefur verið birt en mun Bretar hylia Malénkoff Mannfjöldi hyllti í gær Malén- koff, raforkumálaráðherra Sov- étríkjanna, er hann gekk á fund Edens, forsætisráðherra Bret- lands, í Downing Street 10. í gærmorgun skoðaði Malénkoff helztu kjarnorkurannsóknastöð Bretlands í Harwell og í gær- kvöldi sat hann veizlu miðstjórn- ar Verkamannaflokksins. \ 'Malénkoff er fyrir sendinefnd sovézkra rafmagnsverkfræðinga. Þegar hann og félagar hans gengu til sætis til að horfa á knattspyrnuleik í London hróp- uðu 50.000 áhorfendur húrra fyr- ir þeim. Við uppþoti lá á föstu- daginn í Oxford Streed í Lond- on þegar Malénkoff brá þar fyrir. Kvenfólkið sem átti leið um þessa götu kvenfataverzlan- anna þá stundina hópaðist í kringum hinn sovézka ráðherra. Blöðin í London segja að slíkt liafi komið fyrir frægar kvik- myndastjörnur,- en Malénkoff sé fyrsti erlendi stjórnmálamaður- inn sem veki aðdáun á borð við þær. vera. á þá leið að verkfalls- merrn fái um 16% kauphækk- un. Atvinnurekendum verður í- vilnað með þvi að lækka hluta- félagsskatt og eignaskatt. Fréttamenn í Helsinki segja að atvinnurekendur séu sáró- ánægðir með málalokin. Haldi þeir því fram aó ríkisstjórnin hafi neytt þá til að fallast á málamiðiunartillöguna með því að hóta. að segja af sér ef annarlivor aðilinn hafnaði henni. Þar að auki hafi hún bent á að til alvarlegra árekstra kynni að koma ef verkfallið stæði lengur. Sendihenra talar í Moskvaútvarpið 1 gær talaði sir William, Hayter, sendiherra Bretlands í Sovétríkjunum, í útvarp og sjónvarp í Moskva. Brezkur sendiráðsfulltrúi þýddi mál hans jafnóðum á rússnesku. Umræðuefni sendiherrans var væntanleg heimsókn Búlganíns og Krústjoffs til Bretlands. Þetta er í fyrsta skipti sem er- lendur sendiherra talar í út« varp í Moskva. Landstjóra Frakka gefið einræðisvald í Alsír Ríkisstjórn Frakklands hefur veitt Robert Lacoste landstjóra í Alsír einræðisvald til að skipa málum þar. byggðarlaga að yfirgefa heim- Tilskipanir ríkisstjórnarinnar um aukin völd Lacoste til handa voru birtar í París í gær. Honum er veitt vald til að banna útkomu bóka og blaða, sýningu kvikmynda og leikrita, að banna fundahöld og loka fundasölum, skemmtistöðum og veitingastöðum, taka upp skeyta- skoðun og bréfaskoðun. Einnig er Lacoste heimilt að banna hver þau samtök sem honum sýnist, að gera menn út- læga að vild, fyrirskipa lögreglu- rannsóknir í híbýlum manna án dómsúrskurðar, að banna ferða- lög úr landi, inn í landið og um það, að fyrirskipa íbúum heilla kynni sin og setjast að þar serrr landstjórnin vill. Lacoste fær heimild til að íela hernum alla löggæzlu í Alsír, til að dæma menn til dauða án réttarhalds fyrir að hlaupast undan merkjum franska herrins og til að láta skyndidómstóla kveða upp dóma yfir handtekn- um skæruliðum. Akvörðun frönsku stjórnar- innar að reyna að friða Alsír með valdbeitingu mælist mjög illa fyrir meðal Serkja. Gerðu allir innbornir menn í þjónustu stjórnarvaldanna verkfall í pær til að mótmæla ofbeldisstefma stjórnarmnar. i

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.