Þjóðviljinn - 20.03.1956, Blaðsíða 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 20. marz 1956
Frumsýning LR. á Systur Maríu
Hópferð til íslands 1957 frá Norður-
löndum er nu í undirbúningi
Stjórn Norræna félagsins hefur ákve'öið aö beita sér fyr-
ir stofnun félagsdeilda víðsvegar um land á næstu mán-
uöum til aö stuöla aö aukinni starfsemi félagsins.
Iþróttlr
Framhald af 9. síðu.
Hinn 14. jan. s.l. skipaði
horgarstjói-i 5 manna nefnd til
þess að athuga möguleika á að
koma á víðtækari samvinnu um
byggingar á þessu svæði og fá
fleiri aðila til þátttöku. Var
nefndinni settur þriggja vikna
frestur til þess að skila áliti.
í nefndinni áttu sæti formenn
ÍBR og BÆR, framkvæmdastjóri
Fél. iðnrekenda, fulltrúi borgar-
stjóra og fræðslufulltrúi Reykja-
vikur.
Nefndin skilaði áliti og leggur
til, að á þessu svæði verði komið
upp auk iþróttahúss á lóð BÆR
miklum skálum fyrir sýningar
iðnrekendasamtakanna og fleiri
aðila, án þess þó að eigna- og af-
notaréttur íþróttahreyfingarinn-
ar af íþróttahúsinu skerðist
nokkuð. Hefur þegar verið sótt
um fjárfestingarleyfi fyrir byrj-
unarframkvæmdum.
Sundlaug Vesturbæjar
Lokið var við að gera upp-
drætti að fyrirhugaðri sundlaug
Vesturbæjar á síðasta ári, en
framkvæmdir við laugina gátu
ekki hafizt eins og til stóð s.l.
vor þar sem fjárfestingarleyfi
fékkst ekki. Á árinu veitti bæj-
arstjórn 300.000,00 til byggingar
laugarinnar, og á yfirstandandi
ári hefur hún veitt sömu upphæð,
en í vörzlu bandalagsins er bygs-
ingarsjóður aó upphæð kr
329.807,71 og eru þvi handbærnr
um 930.000.00 kr. til framkvæmd-
anna, sem ætlað er að hefja þeg-
ar er fjáríestingarieyfi fæst.
Framkvæmdir á
íþrnttasvæ'ðunum
Leikvangurinn í Laugardal:
Steypt var loft yfir þann heim-
ing stúkunnar sem ekki tókst
að ljúka við haustið 1954. Þá var
lokið að slá upp fyrir hinum
helmingi stúkunnar og hann
steyptur upp. Steyptar voru upp
plötur undir sætin á syðri helm-
ingnum en alls verður stúkan
um 85 m að lengd. Steypt er upp
aðeins hálf breidd stúkunnar,
sem mun rúma 2000 manns í sæti
en fullgerð mun stúkan rúma
4000 manns í sætum undir þaki.
Kostnaður við framkvæmdir
á íþróttaleikvanginum nam um
1.850.000,00 kr._ en heildarkostn-
aður frarrikvásm'dahna nernur nú
um kr. 7.700.000,00. Kostnaður
við úndirbúning sundlaugar i
Laugardal nam á árinu 670.000.
Unnið var að undirbúningi
byggingar félagsheimilis og bún-
ingsherbergja á íþróttasvæði Ár-
manns, steypt upp að mestu
veggir þess hluta félagsheimilis-
ins, sem reistur verður í fyrsta
áfanga en það verður á tveim
hæðum. — Kostnaður við þessar
framkvæmdir nam á árinu kr.
346.100,00.
Félagsheimili Víkings var að
mestu gert fokhelt á árinu.
Kostnaður við framkvæmdir
þessar var um 159.000,00
Hald'ð var áfram byggingu í-
þróttaskála Vais, var húsið og
búningsherbergi gerð fokheld.
Framkvæmdir þessar kostuðu
111.150,00 kr.
Framh. af 12. síðu
inu Bonaventure, vakti það
mikla athygli, ekki sízt vegna
þess, að leikdómendur og áhorf-
endur höfðu ekki heyrt höfundar
leiksins getið fyrr, en verkið þótti
bera vott um næmt auga og eyra
fyrir kröfum leiksviðsins. Höf-
undurinn var ung stúlka í Lond-
on, sem vann á auglýsingaskrif-
stofu, og hafði ekki skrifað leik-
rit áður. Hún braut upp á sögu-
efni, sem var leikhúsgestum raun
ar gamalkunnugt og kært, en
varð í meðferð hennar næsta ný-
stárlegt. Hér er um að ræða saka-
málaleikrit, sem er látið fara
fram í klausturspítala, sem er
einangraður frá umheiminum
vegna flóða. Höfundurinn þótti
sýna frábæra hugkvæmni í með-
ferð efnis og nýtingu hins þrönga
umhverfis".
Fyrsta leikstjórn Gísla Hall-
dórssonar hjá L. R.
Gísli Halldórsson, sem hefur á
hendi leikstjórn í leikritinu, hef-
ur áður sviðsett leikrit fyrir leik-
flokk í Austurbæjarbíói, „Ást og
árekstrar”, en sviðsetur nú í
fyrsta sinn leikrit hjá Leikfélagi
Reykjavíkur. Gísli hefur sem
kunnugt er tekið mikinn þátt í
leiksýningum félagsins og leikið
mörg og mikilvæg hlutverk, það
fyrsta var síra Lárentíus í sjón-
lc'knum Anna Pétursdóttir vet-
j
urinn 1950—51 en nýjasta hlut-
verkið er Loítur í Galdra-Lofti
Jóhanns Sigurjónssonar.
Hafsteinn Austmann er ungur
listmálari, sem málað hefur leik-
tjöídin fyrir hinn nýja sjónleik.
Hann stundaði nám í Handíða-
Gerðu jafntefli
Framh. af 12. síðu 18. Dc3 Hd8
19. HxH DxH
20. Be3 Dd7
21. Dd2 Dc7
22. Bf4 c5
Og að því búnu
söntdu þeir jafn-
tefli.
Jón og Sveinn sömdu einnig
jafntefli í sinni skák. Tajman-
off hafði peði meira i skákinni
við Gunnar og betri stöðu.
Skákum Benónýs og Guðmund-
ar og Baldurs og Freysteins var
ekki lokið er blaðið fór í
prentun.
Mótið heldur áfram í kvöld.
Þá teflir Friðrik við Guðmund,
Sveinn við Benóný, Gunnar við
Baldur, Freysteinn við Jón —
og hinir sovézku gestir leiða
saman hesta sína.
Skýrslan er ekki ýtarleg um
alla þá starfsemi sem fram fer á
bandalagssvæðinu, en stjórnin
hefur nokkra afsökun þar sem
10 félög hafa ekki sent fullnægj-
andi skýrslur til bandalagsins.
Alls eru 22 félög í bandalaginu.
Hvað gerðist á sjálfum þing-
fundinum er Íþróttasíðunni ó.-
kunnugt um. Stjórn bandalagsins
virðist ekki hafa áhuga fyrir að
blaðamenn komi á þing þess eða
telja það miður heppilegt.
og myndlistarskólanum 1952—54
og framhaldsnám í París vetur-
inn eftir. Hafsteinn er áhugamað-
ur um leiklist og kynnti sér leik-
tjaldagerð í utanförinni. Eru
leiktjöld hans í Systur Maríu
fyrsta verk hans fyrir leiksvið
hér.
8 kvenhlutverk.
Sjónleikurinn Systir María er
í 3 þáttum, en leikendur eru 11.
Með stærstu hlutverkin fara þær
Guðbjörg Þorbjarnardóttir og
Helga Bachmann. Önnur hlut-
verk eru í höndum Sigríðar
Hagalín , Margrétar Magnúsdótt-
ur, Hólmfríðar Pólsdóttur, Jóns
Sigurbjörnssonar, Emilíu Borg,
Eddu Kvaran, Auróru Halldórs-
dóttur og Árna Tryggvasonar.
Auk þess fer leikstjórinn, Gísli
Halldórsson með lítið aukahlut-
verk.
Fundur hafinn
um afvopnun
I gær kom undirnefnd af-
vopnunarnefndar SÞ saman til
funda í London eftir fimm
mánaða hlé. Boðað hefur verið
að fulltrúi Frakka muni leggja
fram nýjar tillögur sem Bret-
ar styðja.
Krústjoff
Framhald af 1. síðu.
hernum árið 1937 hafi verið
ósannar, en þeir voru dæmdir
til dauða og teknir af lífi.
Fréttaritari Reuters í Bonn
segir að heimildarmenn sínir,
sem hann tilgreinir ekki, hafi
það eftir Krústjoff að eftir
málaferlin gegn Tukatévskí
hafi 5000 liðsforingjar verið líf-
látnir. Sú blóðtaka hafi mjög
veikt Rauða herinn og hann
því ekki verið fær um að verj-
ast innrás Þjóðverja eins
hraustlega og ella myndi.
Þá segir fréttaritarinn að
Krústjoff sé borinn fyrir því að
innrás Þjóðverja hafi komið
Rauða hernum í opna skjöldu
vegna þess að Sta’ín hafi ekki
viljað trúa aðvörunum, meðal
annars rrá Churchill, um yf-
irvofandi árás, óg látið undir
höfuð leggjast að fyrirskipa
nauðsynlegan viðbúnað.
Þótt opinberir aðilar verjist
allra frétta af ræðu þessari er
það talið óbein staðfesting á
að hún hafi verið haldin að
ritskoðunin í Moskva hefur
sleppt í gegn skeytum erlendra
fréttamanna þar sem á hana
er minnzt. I gær bárust einnig
skeyti frá erlendum frétta-
mönnum í Moskva þar sem
sagt er að fyrir hálfum mán-
uði hafi stúdentar í Tib'isi, höf-
uðborg Grúsíu þar sem Stalín
var fæddur, farið um götur
borgarinnar og mótmælt gagn-
rýni á ferli Stalíns.
Þessar fregnir hafa orðið
æsifréttablöðum hvarvetna til-
efni til mikilla æsingaskrifa, en
gætnari borgarablöð ráða
mönnum til að bíða átekta. Til
dæmis segir brezka íhaldsblað'ð
Glasgow Herald í gær, að a’ls
ekkert sé vitað með vissu um
það, hvað Krústjoff hafi í raun
og veru sagt, og vitneskja um
það fáist ekki fyrr en þar til j
bærir aðilar birti sjálfa ræðuna.
Auk aðalfélagsins í Reykja-
vík eru nú 3 deildir starfandi sem
sé á Siglufirði, ísafirði og Pat-
reksfirði. Samkvæmt lögum fé-
lagsins er hægt að stofna deild
með minnst 20 félagsmönnum.
Á Norðurlöndum eru víða stai'f-
andi deildir innan norrænu fé-
laganna í borgum, kaupstöðum,
kauptúnum og jafnvel í sveitum.
Starfsemi félaganna getur orðið
mikill stuðningur að slíkum
deildum. Þær auka áhuga fólks
á norrænni samvinnu. En sam-
starf norrænu þjóðanna gerist
nú víðtækara og raunhæfara með
ári hverju.
Hlutverk slíkra félagsdeilda er
m. a. að efna til kynninga- og
fræðslufunda með aðstoð aðalfé-
lagsins, efla tengsl viðkomandi
staðar við vinabæi meðal frænd-
þjóðanna á Norðurlöndum og
vera tengiliður milli aðalfélags-
ins og félagsmanna þess utan
höfuðborganna. Norrænu félög-
in vinna að gagnkvæmri kynn-
ingu norrænu þjóðanna og þau
þurfa því að ná til sem fiestra
einstaklinga. Virkar félagsdeild-
ir eiga hér mjög mikilvægu hlut-
verki að gegna.
Norræna félagið hefur einnig
í hyggju að stuðla að sem flest-
um vinabæjatengslum á þessu
ári.
Undir forustu Norræna félags-
ins í Noregi er nú unnið að undir-
búningi hópferðar til íslands frá
Norðurlöndunum sumarið 1957.
Mun þá fulltrúum frá þeim
borgum og bæjum, sem eru í
vinabæjatengslum við bæi hér á
landi, gefast tækifæri til að koma
hingað og mun Norræna félagið
hér skipuleggja kynnisferðix út
um land.
Vinabæjastarfsemin er tiltölu-
lega nýr þáttur í starfi norrænu
félaganna. Starfsemi þessi hófst
í lok síðari heimsstyrjaldarinnar
og er í því fólgin, að tveir bæir,
helzt svipaðir að stærð, sinn í
hvoru landi, ákveða að hafa
menningarleg eða persónuleg
samskipti eftir því sem við verð-
ur komið.
Hér er um fjölþætt samskipti
að ræða, sem skapað hafa traust
vináttubönd milli fjölskyldna í
tugþúsundatali á Norðurlöndum.
Einstaklinghr, hópar, félög og
ýmsar stofnanir hafa með sér
samstarf með bréfaskiptum,
bókagjöfum, skiptum á blöðum
og tímaritum og gagnkvæmum
heimsóknum. Fólk tengist þannig
böndum kunningsskapar og vin-
áttu.
Þegar hópferðir eru farnar til
vinabæjar búa gestirnir oftast á
heimilum, til þess að nánari
kynni geti orðið með einstakling-
um. Gestirnir fá ókeypis dvöl,
en taka síðan á móti gestum á
sínu heimili. Þannig verða heim-
sóknirnar og kynnin gagnkvæm.
Norræna félagið vill stuðla að
því, að sem flestir íslenzkir kaup-
staðir og kauptún tengist vin-
áttuböndum við norrænar borgir
eða bæi, einn í hverju landi.
(Frétt frá Norræna félaginu)
Konungshjónin
Framhald af 3. síðu.
I nefnd til að undirbúa mót-
töku konungshjónanna eru
Hendrik S. Björnsson og Birgir
Thorlaeius forstöðumenn ráðu-
neyta og Hörður Bjamasoœ
húsameistari ríkisins.
Aðalfundur
Náttúrulækitinga-
félagsins
Aðalfundur Náttúrulækninga-
félags Reykjavikur var haldinn
fimmtudaginn 15. marz s.l. For-
maður félagsins, Böðvar Péturs-
son baðst eindregið undan end-
urkosningu. í stjórn voru kosinj
Steinunn Magnúsdóttir formað-
ur; meðstjórnendur: Sigurjóra
Danivalsson, Klemens Þorleifs-
son, Grétar Fells og Hannes
Björnsson. Til vara: Svava Fells,
Kjartan Þorgilsson og Jóhannes
Teitsson. Endurskoðendur: Björn
Svanbergsson og Dagbjartur
Gíslason. í félaginu eru nú á
tólfta hundrað manns.
TILKYNNING
um greiðslu almemra tryggingasjóðsgjalda o.fl.
Almennt tryggingasjóðsgjald hefur nú verið ákveðið
fyrir árið 1956 svo sem hér segir:
F^rir kvænta karlmenn .... kr. 859,00
Fyrir ókvænta karla ...... kr. 774,00
Fyrir ógiftar kounr ...... kr. 576,00
Hjá þeim, sem greiða í sérsjóði, em samsvarandi upp-
hæðir kr. 286,00, kr. 243,00 og kr. 177,00.
Hluti gjaldsins féll í gjalddaga í janúar s.l., en hjá
þeim, sem ekki hafa greitt þann hluta, er upphæðin öll
gjaldfallin. Gjaldendur eru minntir á að greiða gjaldið
hið fyrsta.
Skrifstofan veitir einnig móttöku fyrirframgreiðslum
upp í önnur gjöld ársins 1956.
Reykjavík, 16. marz 1956.
TOLLSTJÓRASKRIFSTOFAN,
Arnarhvoli.