Þjóðviljinn - 20.03.1956, Side 7
Þriðjudagur 20. marz 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (7
memar
nm að bygíija nýtt íþróttahus
íþróttafélögin eru samtök
seskufólks, sem finnur þörf á að
veita lífsfjöri sínu útrás á heil-
brigðan og eðlilegan hátt og
stæla jafnframt líkamann til
vemdar líkamlegri og andlegri
heilsu. Fátt vekur ungu fólki
meiri gleði og heilbrigðari
metnað en hófsamleg iðkun í-
þrótta og sameiginlegt starf í
íþróttafélögunum þroskar fé-
lagskennd þess betur en flest
annað. Þjóðfélaginu er því mik-
ils virði, að íþróttafélögin hafi
aðstöðu til að gegna hlutverki
sínu meðal æskufólks, og ber
beinlínis skylda til að sjá um
að svo fari jafnan.
í Hafnarfirði er aðstaða til í-
þróttaiðkana svo léleg, að ná-
lega einsdæmi mun vera á ís-
landi. Eina íþróttahúsið, sem til
er í bænum, var byggt 1921 er
íbúar bæjarins voru aðeins
rúmur þriðjungur þess sem
nú er. Aúgljó'st ér, að íþrótta-
hús, sem miðað var við þarfir
Hafnfirðinga fyrir 35 árum, er
allsendis ófullnægjandi fyrir í-
þróttamenn nú, enda verða þeir
hafnfirzku íþróttamenn, sem
ekki hafa látið þessar aðstæður
kæfa áhuga sinn, að æfa í
Reykjavík að nokkru leyti. Og
þeir Hafnfirðingar, sem hafa
náð því að verða afreksmenn í
íþróttum og gætu þannig glætt
áhuga hinna yngri, eiga ekki
annars kosts en að æfa með í-
þróttafélögunum í Reykjavík,
ef hæfileikar þeirra eiga að
njóta sín.
Leikfirni er lögboðin náms-
grein við skólana og hverjum
nemanda gert skylt að iðka
leikfimi 2—3 stundir á viku.
Hér í Hafnarfirði hefur ekkert
rýmkað um húsnæði fyrir leik-
fimikennslu skólanna í 35 ár,
utan það að kaþólski skólinn
hefur smásal fyrir sig. Nú eru
báðir þessir leikfimisalir full-
setnir frá morgni til kvölds og
veitist skólunum næstum óger-
legt að fullnægja íþróttaskyld-
unni, enda koma níu nemend-
úr á hvem fermetra í leikfimi-
sal í stað þriggja sem hæfilegt
er talið.
Vegna þess ástands, sem hér
hefur verið rakið, var ákveðið
í málefnasamningi þeim, sem
sósíaiistar og Alþýðuflokks-
menn gerðu um stjórn bæjarins
árið 1954, að reist verði nýtt
og fullkomið íþróttahús, sem
jafnframt verði félagsheimili.
Strax á sama ári keypti bærinn
lóð undir húsið, Grundarlóðina
svonefndu við Austurgötu.
Frumteikning hefur verið gerð
að húsinu og fé veitt til fram-
kvæmda Bærinn hefur þannig
gert allt sem á hans færi er til
að koma húsinu upp, en fjár-
festingarleyfi hefur enn ekki
fengizt, og stranda allar fram-
kvæmdir á því.
Ríkissjóði ber að greiða um
50% nf ^+^fnkostnaði hússins,
og vegna þess að það verður
jafnframt skólahús, verður
fjárfestingarleyfi ekki veitt án
sérstaks samþykkis mennta-
málaráðherra. íþróttanefnd
Hafnarfjai ðar hefur rætt við
menntamálaráðherra og reynt
að fá hann til að samþykkja
fjárfest ngarleyfið, og íþrótta-
nefnd kisins og íþróttafiilltrúi
Hafnfirzkir íþróttamenn liafa löngum sýnt, að þeir e.ga iydiiega
skilið að hafa sómasamlega aðstöðu til íþróttaiðkana. Hafn-
firðingar eru frumherjar handknattleiksins hér á landi, og um
árabil áttu Haukar sterkustu handknattleikslið landsins. Árið
1954 varð F.H. fslandsmeistari I n. flokki og sjást piltarnir
hér að ofan ásamt þjálfara sínum og formanni félagsins. Þeir
ieika nú flestir í meistaraflokld á íslandsmótinu sem nú stendur
yfir. Þeir hafa háð tvo leiki og unnið báða með miklum marka-
mun. Einnig hafa þeir vakið athygli fyrir að hafa komið manna
snyrtilegastir til leiks, og er það vel þess virði, að á loft sé haldið.
hafa mælt með, að fjárfesting-
arleyfi verði veitt. En mennta-
málaráðherra hefur engu skeytt
um hina augljósu þörf hafn-
firzkra íþróttamanna fyrir nýtt
íþróttahús.
Aðalatriði þessa máls eru:
Óvíffa á landinu er verri aff-
staðá til íþróttaiffkana en í
Hafnarfirffi, og skólar bæjarins
geta varla fullnægt lögboffinni
íþróttaskyldu nemenda sakir ó-
nógs húsakosts. Bæjaryfirvöld-
in í Hafnarfirði hafa gert allt,
sem á þeirra færi er til aff reist
verffi nýtt íþróttahús, en
menntamálaráffherra kemur í
veg fyrir framgang málsins meff
því aff veita ekki formlegt sam-
þykki sitt fyrir fjárfestingar-
Ieyfi.
Sjálfstæðismenn hafa jafn-
an fyrir kosningar haft í
frammi þann áróður við æsku
bæjarins, að þeir hafi ávallt
verið sérstakir forgöngumenn í
baráttunni fyrir nýju íþrótta-
húsi. En sannleikúrinn er sá, að
hefðu Sjálfstæðismenn unnið
jafn ske'egglega fyrir byggingu
íþi’óttahússins og þeir hafa unn-
ið gegn frystihúsinu, væri
bygging þess hafin.
Hafnfirzk æska skyldi gera
sér ljóst, að það er algerlega á
ábyrgð Sjálfstæðismanna í rík-
isstjórn, að aðbúnaður hafn-
firzkra íþróttamanna og skóla-
nemenda skuli vera slíkur sem
raun ber vitni.
Fyrirhugað
íþróttahús
íþróttahúsinu er ætlaður
staður á Grundarlóðinni við
Austurgötu. Það verður því
staðsett svo sem bezt varð á
kosið, í miðjum bænum og í
grennd við báða skólana. Hús-
ið verður allt i senn, íþrótta-
hús, skólaleikfimihús og fé-
llagsheimili. íþróttasalurinir,
verður 16x32 m, og á að
skipta honum með færanlegu
skilrúmi í tvo sali, svo að
bann komi að meira gagni
fyrir skólana. Sæti verða fyr-
ir 450—500 . áhorfendur öðr-
um megin salarins, svo að
unnt verður að halda stórmót
i húsinu. Rúmmál hússins
verður: íþróttasalur 4350 rúm-
metrar, áhorfendasvæði 320
rúmmetrar og búnings-, bað-
herbergi og forstofa 920 rúm-
metrar. Alls 5590 rúmmetrar.
Tekið skal frarn, að allt er
þetta miðað við frumteikn-
ingu og gæti breytzt í smáat-
riðum.
Fyrirhugað er að stofn-
kostnaður verði greiddur
þannig: Ríkissjóður greiðir
a) af fé til byggingar skóla
50% af 2490 rúmmetr-
um, b) af fé íþróttasjóðs, 40%
af kostnaði 3100 rúmmetra.
Bæjarsjóður greiðir 50% af
kostnaði 2490 rúmmetra. Bæj-
arsjóður og íþróttafélög
greiða 60% af kostnaði 3100
rúmmetra.
Enn er ekki fuliráðið hve
mikið rúm verður fyrir fé-
lagsheimili, en það verður
haft svo rýmilegt sem lóðin
leyfir.
★ Skriístofa Sósíal-
istafélags Hafnarfjarð-
ar, Strandgötu 41, er
opin á miðvikudögum.
kl. 6 til 7.
Aldrei munu Hafnfirðingar
hafa fagnað meir nokkurri
framkvæmd í bænum en bygg-
ingu frystihússins, sem nú er
unnið að. Kemur þar einkum
tvennt til: Þetta er stærsta átak,
sem gert hefur verið í atvinnu-
málum Hafnfirðinga um ára-
tugi, og í öðru lagi verður þetta
atvinnutæki í eigu bæjarbúa
sjálfra. Hafnfirðingum varð
bezt ljóst í verkfallinu í fyrra,
hvers virði þeim er að verka-
fólkið eigi sjálft atvinnutækin
í bænum, en þá samdi bærinn
við Hlíf, en atvinnurekendur í-
haldsins neituðu að semja og
hugðust svelta fólkið til að láta
af kröfum sínum um mannsæm-
andi kjör.
Hér á Hafnarfjarðarsíðunni
var rakin saga frystihússins
frá upphafi, og er athugaður var
þáttur Sjálfstæðismanna, varð
niðurstaðan þessi, svo sem sagt
var í greininni:
„Sjálfstæðismenn hafa átt
«DnGg
fulltrúa í stjórn bæjarútgerðar-
innar frá stofnun hennar, en
aldrei hafa þeir minnzt á, að
bæjarútge ðin þyrfti að koma
sér upp frystihúsi. Sjálfstæðis-
menn hafa enga tillögu flutt í
bæjarstjóín um að reist verði
frystihús, en alltaf greitt at-
kvæði gegn slíkum tillögum
bæjarfulltrúa sósíalista.
Síðan ákveðið var að reisa
frystihúsið, hafa Sjálfstæðis-
menn unnið gegn því leynt og
ljóst af öllum mætti og fyllstu
ósvífni. í fyrstu hugðu þeir, að
bæjarútgerðinni myndi ekki
takast að fá nægilegt lánsfé til
framkvæmda, og gerðu reyndar
allt til að stuðla að því, að svo
færi. Er þeim verður ljóst, að
málið muni ná fram að ganga,
taka þeir að berjast fyrir því,
að hlutafélagi stórútgerðar-
manna verði afhent lánsfé það,
er bæjarútgerðin hafði tryggt
sér, og bærinn verði áhrifalaus
aðili að því hlutafélagi. í ofsa
sínum til að freista þess að fá
því framgengt víla bæjarfull-
trúar Sjálsftæðismanna ekki
fyrir sér að beita örgustu lyg-
um“.
Seinasta tölublað Hamars
sannar svo rækilega sem verða
má, að hér var farið með rétt
mál í öllum atriðum. Sjálfstæð-
ismenn treystast ekki til að
hrekja neitt af því, sem sagt var
um framkomu þeirra í frysti-
húsmálinu. Hinsvegar eru birt-
ar ýmsar tölur, sem eiga að
sanna hversu óhagkvæmt hið
þýzka lánstilboð hafi verið.
Lánið var þó ekki óhagstæðara
en svo, að Sjálfstæðismenn
samþykktu að taka því og
höfðu ekkert við það að athuga,
ef það rynni til hlutafélags, sen
þeir hefðu öll ráð yfir. Þessu
til sönnunar verða hér birt orð
Ólafs Elíssonar, er hann mæjti
fyrir munn Sjálfstæðismanna
á bæjarstjórnarfundi 17. des.
1954, er rædd var ályktun út-
gerðarráðs um að samið yrð
um þýzka lánið. Ólafur sagð:
skv. fundargerð: „Tel ég að
vinna beri að því, að lántaka
sú, er tillaga útgerðarráðs fjall-
ar um, svo og fyrirgreiðsla
Framkvæmdabankans, renni til
væntanlegs hlutafélags“. Rit-
stjói'i Hamars skal svo látinn ó-
truflaður við að reikna út hvort
það lán, sem Sjálfstæðismenn
lögðu til að tekið yrði, hafi ver-
ið óaðgengilegt eða ekki. En
þær reikningskúnstir munu
ekki draga athygli Hafnfirð-
inga frá þeirri staðreynd að
Sjálfstæðismenn hafa allsstaðar
neytt aðstöðu sinnar til að tefja
Framhald á bls. 11.